Hæ núna fékk Benóný að fara aftur í fjárhúsin að skoða kindurnar og kynnast hrútunum og voru þeir vel forvitnir að skoða þessa litlu veru. Lömbin eru komin inn og lambhrútarnir og það var búið að opna rúllu svo við látum þau bara vera inni og hafa það gott, það er líka svo gaman að fara að gefa þeim og spekja þau. Við fórum í göngutúr í dag í góða veðrinu og kíktum á pabba niður á dvalarheimili og tókum hann með í göngutúr rosa stuð.