Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

08.06.2016 12:23

Sauðburði lauk 1 júní.

Það var hún Lukka gemligur sem lokaði sauðburði í ár og hin gemlingurinn sem var með henni er geld en var sónuð með lambi svo hún hefur látið.
Lukka lokaði sauðburði með þessari hvítu gimbur undan
Drjóla Hæng syni frá Sigga í Tungu.

Benóný lét undan mömmu sinni stundum og hafði gaman af að koma og halda á lambi.

Fíóna með svarta sinn sem var fótbrotinn og spelkaður og hér er búið að taka af honum
og það hefur tekist mjög vel því hann er góður sem aldrei fyrr og hleypur um allt.

Þessar skvísur voru 66 ára 18 maí. Hulda Maggý og Hafdís Auður tvíburasystur.

Flotti strákurinn okkar hann Benóný Ísak hefur nú klárað 1. Bekk.

Seinustu ærnar komnar út Hexía og Lukka gemlingar.

Gæf hún Lukka hennar Jóhönnu að koma og gæða sér á köku hjá stelpunum.

Eldey gemlingur með fallega dökkmórauðann hrút undan Styrmi.

Dúfa með hrútana sína undan Skara.

Gimbur undan Huldu og Krapa.

Embla að klappa Dúfu. Þær héldu sig allar inn í Mávahlíð í skjóli við húsið um daginn
í ógeðslega veðrinu. Það var svo hífandi rok og rigning í langt um 4 daga samfleytt.
Ég hef ekki séð neitt vanta nema kanski einn tvílembing undan gemling sem hefur
ábyggilega tapast í veður ofsanum annað hvort í fyrra rokinu eða seinna sem kom 
svo vikuna eftir en varði bara í 2 daga.
Jæja nú erum við komin í sumarfrí og við tekur að taka rúnt á hverjum degi og fylgjast
með að lömbin og kindurnar séu ekki á veginum og auðvitað á eftir að þrífa fjárhúsin
líka og taka til þar. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessu.



Flettingar í dag: 1052
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 1606
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 667903
Samtals gestir: 45755
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 12:15:04

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar