Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

17.07.2018 00:15

Þurrkað af krafti og sílaveiði með krakkana

Það var þurrkað og þurrkað heyjið í dag og túnin eru ansi blaut. Ég þurfti að raka heilmikið
af túnunum í Mávahlíð og fékk Freyju tengdamömmu með mér með krakkana. Hann er aftur
búnað breyta spánni og nú á hann að fara rigna á miðvikudaginn svo það verður reynt að
gefa allt í botn og binda það sem búið er að slá.
Emil að tættla.
Hér sést yfir Mávahlíðina og Siggi er að vinna við að skipta um þak með Jóni smið og 
Emil er svo að tættla þarna fyrir neðan við vaðalsbakkann.
Það hefði mátt vera aðeins meiri sól í dag en það rættist þó úr því þegar leið á seinni
partinn og þá kom líka gustur með þvi svo það hefur þurrkað vel.
Hérna er Bói að raka saman.
Það er mikið sport hjá krökkunum að fá að sitja í traktornum hjá Bóa afa en þar er spes
barnasæti.
Jæja nú er sólin loks farin að láta sjá sig. Hér er Alex stoltur í traktornum með afa sínum.
Alex er sonur Unnar og Steinars bróðir Emils og eru þau hérna fyrir vestan núna.
Hér er amma Freyja og Steinar að veiða síli með krökkunum.
Steinar, Bjarki og Alex.
Bjarki og Alex að skoða sílin.
Birgitta, amma Freyja, Embla og Alex.
Freyja og Alex.
Kamilla litla sú yngsta hjá Steinari og Unni fékk líka að koma með og var í bílnum hjá 
mömmu sinni.
Rakst á þessar gimbrar þær eru sæðingar undan Klett og Skvísu. Fæddir þrilembingar
en ganga tvær undir Skvísu.
Skvísu gimbrar og svo hrútur frá Sigga þessi hvíti og þetta litla botnótta var vanið 
undir og rollan tók því ekki alveg svo það sést á vextinum að það fær örugglega
ekki mikið að sjúga hana en fylgir henni.
Jæja læt þetta duga af bloggi í bili .
Flettingar í dag: 953
Gestir í dag: 28
Flettingar í gær: 487
Gestir í gær: 23
Samtals flettingar: 713280
Samtals gestir: 47064
Tölur uppfærðar: 24.4.2024 21:43:33

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar