Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

02.02.2021 13:46

Ronja Rós 16 mánaða og útkoma úr erfðagreiningu á hrútunum

Frábæra,kröftuga og uppatækjasama Ronja Rós er full af orku og fagnar núna 16 mánaða
afmæli sínu. Hún er mjög skýr og farin að tala heilmikið og skilur mun meira en maður heldur og finnur sínar leiðir til að komast sem hún vill.

Hér er þessi eldklára og káta dama sem bræðir alla.

Hún elskar að ögra mömmu sinni og príla út um allt og gera alskyns gloríur.

Út að leika í snjónum.

Fórum líka að renna en hún var ekki mikið fyrir það vildi bara fá að labba.

Benóný kom með okkur að renna í sjómannagarðinum.


Siggi fékk svo sent til sín frá Mast útkomuna úr hrútunum hjá okkur öllum og það kom
mjög vel út allir í góðu lagi og Kaldnasi er bestur hann er með arfblendið fyrir þolnu arfgerðinni. Ég setti bréfið hérna inn sem Siggi fékk.

Við Maja systir fórum suður að kveðja Guðmund Helga eða Helga hennar Fríðu eins og við
kölluðum hann en hann dó  15 janúar og var orðinn 90 ára og búnað vera veikur.
Hann var maður systir hans pabba sem heitir Friða og þau eiga sumarbústað í Fögruhlíð og
komu þangað á hverju sumri þegar við bjuggum í Mávahlíð og dvöldu þar megnið af 
sumrinu svo við eigum margar minningar með þeim og fjölskyldu þeirra. Við Emil höfum
mikið farið til þeirra líka þegar við förum til Reykjavíkur í heimsókn svo við höfum alltaf
verið náin. Mamma kom með okkur í jarðaförina og var þetta mjög falleg athöfn og í hans
anda var tæknin að stríða og streymið virkaði ekki alveg fyrst og þurfti að pása smá athöfnina og flestir voru sammála því að þarna væri Helgi á ferðinni enda svakalega stríðinn.
Hans verður sárt saknað og minningar hans lifa áfram hjá okkur. Myndin hér að neðan var
tekin í brúðkaupi okkar Emils og þótti mér afar vænt um að hann og Fríða skildu komast
en hann hafði þá verið að glíma við veikindi og var hæpið að þau kæmust.

Flettingar í dag: 606
Gestir í dag: 61
Flettingar í gær: 1174
Gestir í gær: 117
Samtals flettingar: 706284
Samtals gestir: 46674
Tölur uppfærðar: 18.4.2024 12:47:21

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar