Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

Færslur: 2010 Mars

28.03.2010 22:36

Rúningur í Mávahlíð

Jæja þá eru Bói og Emil búnað fá að spreyta sig á rollunum og gekk bara ljómandi vel og Bárður kom og aðstoðaði okkur svo þetta tæki einhvern tímann enda he he nei nei þeir stóðu sig mjög vel. Allavega eru allar en lifandi og með öll eyru á sér en það kom í ljós að 3 rollur bera örugglega fyrr en hinar því við misstum hrútinn í svo þær verða væntanlega 10 apríl. Ég fór náttla með Benóný í fjárhúsin og Donnu hundinn okkar og er hún allveg ótrúlega huguð þó lítill sé því hún æðir bara inn til hrútana eins og ekkert sé og er maður allveg skíthræddur um að hún verði stöppuð niður eða barinn en þeir þefa bara af henni og ekkert meir. Farið nú og skoðið afburðarríkar myndir af þessu í albúmi.
Bless í bili 
Fjölsk að Stekkjarholti 6.

Líf í fjárhúsunum í Mávahlíð.

Emil SO...  busted að dekra Donnu að gefa henni með sér ís hann er svo kolfallinn fyrir henni.

27.03.2010 12:40

Margt í Mars

Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur Emil er búnað vera heima eintóm bræla og fórum við í heimsókn til Freyju ömmu og Bóa afa og tókum Donnu með og hún hitti Perlu í fyrsta sinn og var það svolítið skrítið fyrst en svo kom skapið hjá henni Donnu og reyndi að gelta á Perlu og fór svo að leika við hana. Benóný elskar Perlu og hlær svo innilega þegar heyrist í henni ýkt fyndið. Við fórum svo í svaka göngutúr um daginn og löbbuðum inn í hesthús og meira segja upp hestaveginn og bak við Klumbu og fundum ilminn af henni. Það var mjög hressandi svo gáfum við hestunum og kíktum á Mána og hina hestana hjá Bóa. Vorverkin voru svo kominn í huga okkar og fór Emil að klippa tréin og ég að hreinsa og gekk það bara mjög vel. Daginn eftir fórum við svo inn í Hólm í Bónus og tókum hvolpana með okkur til að sprauta þá og heyrðist ekki múkk í .þeim, þeir eru svo góðir en þeir fengu smá hita um kvöldið eftir sprautuna greyin. Benóný Ísak er svo farinn að spjalla heil mikið með góli og skrækjum og er allveg rosalegur fjörkálfur er svo öflugur í fótunum að hann stoppar ekki að sparka og alltaf er hann brosandi og hlæjandi þessi drengur og fékk hann að gæða sér á gúrku til að naga um daginn en jæja það er ekki meira í bili, endilega kíkið á myndirnar í albúminu.

Öflugi göngutúrinn.

Benóný Ísak með Dögg.

21.03.2010 00:04

Rúningur og Fyrstu lömbin.

Emil,Bói og Gummi fóru á Námskeið í Rúningi á Bergi hann Guðmundur frá Hvanneyri kom og kenndi og tókum við Maja rúnt og fylgdumst með og Kara og Selma komu með og hitti svo heppilega á að Dögg var hjá Önnu Dóru. Hún var búnað eignast 6 hvolpa en aðeins tveir lifðu og eru þeir algjörir boltar þeir eru svo feitir og stórir en það var fagnaðarstund hjá okkur að sjá hana og tók hún vel á móti okkur og þekkti okkur allveg á því að dæma. Við fórum svo inn til Önnu og hjálpuðum henni að gera klárt áður en mennirnir kæmu í mat og þá hitti Benóný hana Sól og var allveg rosa hrifin af henni en hún var pínu feimin við hann. Næst héldum við af stað heim og komum við að gefa og fyrsta sem við heyrum er jarm í lambi og viti menn þá var hún Golsa Ronja borin þrem hrútum og var einn dauður á grindunum frekar leiðinlegt en við bara vissum ekki að hún myndi bera svona snemma hún hlýtur að hafa fengið með hrútnum áður en þeir voru teknir inn og vissum við enga dagsettningu þar af leiðandi en það er nú samt fínt að þessir tveir lifi og eru þeir bara myndarlegir þrílembingar. Það er svo allt að koma hjá Olíver og Donnu því þau eru orðnir vinir og þegar ég set hana út á pall vill Óli alltaf fara með og leika við hana ýkt fyndið. Það eru svo myndir af þessu öllu í albúminu endilega kíkið.

Benóný með lamb í fyrsta sinn.

Allir að læra að rýja.
Ronja með hrútana sína

19.03.2010 11:16

7 Mánaða

Jæja nú er strákurinn orðin 7 mánaða svaka gaur. Við skutumst til Reykjavíkur í gær með Magga því hann var að fara með bílinn á sölu og því miður komumst við ekkert í heimsóknir svo það verður bara að vera næst. En við komumst þó með Benóný í heimsókn til langömmu sinnar hennar Dagmar hún er búnað vera svo veik og er inn á Borgarspítala en er öll að hressast og varð en þá hressari við að sjá littla kút. Það gengur svo bara allt vel Olíver er allveg að taka Donnu í sátt nýja hundinn okkar sem við höfum gefið nafnið Donna eða ég það eru búnað vera miklar pælingar hva hún ætti að heita og var ég að spá í Týra en mér finnst það svo margir hundar sem heita það svo ég endaði á Donnu nafninu. Ég keypti handa henni bæli í gær og er hún voða ánægð með það. Við höfum svo verið dugleg að fara á hestbak og fórum við í rigningunni um daginn og komum allveg upp að húsi hérna í Stekkjarholtinu það er svo nice að geta bara komið allveg heim eins og í sveitinni bara.
Í nýju körfunni sinni.
Alltaf brosandi.


15.03.2010 00:44

Svartfuglsveiðar

Steingleymdi að skella þessu inn að Emil,Dagbjört,Kjartan og Bói fóru að veiða svartfugl á laugardaginn og fengu tuttugu og eitthvað fugla og tók Emil myndir af því.
Dagbjört allveg í essinu sínu að veiða.

14.03.2010 23:46

Afmæli og hundurinn okkar

Jæja það er mikið um afmæli í mars Maja systir átti afmæli 11 mars og svo Steinar 12 og því næst á Íris Björk 30 ára afmæli í dag og vil ég óska þeim öllum innilega til hamingju með afmælin sín. Það var kaffi hjá Steina og Jóhönnu í dag fyrir Steinar og eru myndir af því í albúminu. Kara og Maja komu svo með Gyðu Sól sem er nýjasti fjölskyldumeðlimurinn hjá okkur sem hún Karítas var að gefa okkur og erum við henni rosalega þakklát fyrir það og vonandi kemur öllum vel saman, alla vega byrjar það vel Olíver er bara voða forvitinn en gerir ekkert við hana og hún er en þá svolítið smeik við hann. Ég tók svo rúnt inn í sveit að gefa um daginn og var allveg æðislegt vorveður í lofti og tók ég myndir af því það er alltaf svo yndislegt í sveitinni. En núna liggjum við inn í stofu að horfa á mynd og Olíver liggur ofan á Magga og Hvolpurinn á milli mín og Emils voða happy fjölskylda og Benóný er sofnaður hann er nefla kominn á svo góðann tíma hann sofnar alltaf um 9 á kvöldin.

Að naga matarkex í fyrsta sinn.

Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn.

08.03.2010 00:50

Útreiðartúr og Kaffi

Komiði sæl. Við fengum Frikka og Jóa í heimsókn og var Benóný aldeils hissa og var allveg óður í hann voða gaman hjá þeim og fékk Jói að prufa hoppuróluna hans og var hann allveg í skýjunum í henni og getið þið skoðað myndir af því í albúminu. Steini frændi átti afmæli í fyrradag 6 mars og fórum ég, Maja,Karítas,Selma og Maggi niður í kirkjugarð með rós og kerti en það var hávaða rok og nístings kuldi svo það var ekkert hægt að kveikja á kertinu. Við fórum svo í göngutúr í dag eða semsagt í gær klukkan er orðin svo margt og fóru Yrma og Nonni með okkur voða hressandi bara síðan fórum við í reiðtúr 7 saman svo það er mikið líf í hestamennskunni núna og Freyja amma passaði Benóný svo fórum við í mat hjá henni og Bóa mjög gott og fórum svo heim og buðum þeim í kaffi að smakka aðra tilraun mína í að baka eða satt segja að búa til köku því ég svindlaði og keypti botna og setti svo rjóma með jarðarberjabragði á milli og glasúr ofan á og svo skreytt með rjóma og sá Emil um það og það kom bara vel út og bragðaðist mjög vel og komu mamma,Freyja,Bói,Steini,Jóhanna,Hafrún og Steinar að fá sér köku.

Emil montinn með kökuna.

Stuð á baki Steinar,Unnur,Ég,Snævar og Emil og það vantar Bóa og Lenu á myndina.

04.03.2010 23:37

Lopapeysur

Jæja það eru allir orðnir vitlausir í að prjóna þessa dagana mamma er nýbúnað prjóna kjól á Soffíu og núna er hún búnað prjóna geggjaða peysu á Magga voða dugleg það væri munur ef maður hefði erft eitthvað af þessum hæfileikum og eins bökunarhæfileikum því eins og flestir vita er mamma alltaf bakandi voða góðar kökur og þekkt fyrir það en svo erum við systurnar algjörlega fjölfatla hvað þetta varðar en ég ætla nú samt að reyna að æfa mig og reyna að ná þessu. Ég byrjaði að baka með mömmu hjálp, jólaköku og tókst mér náttla að klúðra kreminu það varð of þunnt og allt of dökkt svo kakan leit út eins og kúkaklessa ekki beint girnileg en ég verð þó að játa að hún bragðast bara mjög velemoticonsvo ég get huggað mig við það. Við fengum svo Herdísi og Tryggva nágranna okkar í heimsókn í dag og voru þeir voða spenntir saman og að reyna að klípa og toga í hvorn annan voða stuð. Það er svo sorgarfréttir að það verður ekki ungbarnasundið það skráðu sig ekki nógu margir ekkert smá fúlt það eiga að vera nóg að börnum svo HALLÓ mömmur skráiði ykkur það voru bara 5 sem skráðu sig og ég veit að við erum miklu fleiri en bara 5 sem erum með lítil börn. Emil og Bói eru svo búnað járna og fórum við á hestbak í fyrradag og það var voða fínt ég var ekki búnað komast á bak í ár svo þetta var mikill spenningur að komast aftur og var Askur eins og vanalega allveg æðislegur og fór ég svo aftur á bak í dag með Steinari og Unni en það var svoldið mikill snjór á leiðinni inn í Bug en annars bara mjög fínt og Maggi passaði Benóný og Tristan. Já ég var næstum búnað gleyma að ég verð að segja ykkur frá því að hann Benóný er með æði fyrir Gummibear á youtube sem er lag og hann dillar sér á fullu og horfir allveg agndofa á það þegar við setjum það á fyrir hann og yfir höfuð dillar hann sér fram og aftur þegar hann heyrir tónlist ýkt fyndið.

Maggi lukkulegur í peysunni sem mamma prjónaði á hann.

Kátir saman Benóný Ísak og Tryggvi Páll.

  • 1
Flettingar í dag: 138
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 1721
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 660650
Samtals gestir: 45519
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 03:38:07

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar