Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

Færslur: 2018 Janúar

29.01.2018 16:12

Sumt fé er gáfaðara en annað

Já það má með sanni segja að sumar ær og sumir hrútar eru mun gáfaðari og meiri karektar
en aðrir og það gerir umgengnina svo miklu áhugaverðari og skemmtilega.
Hér er hann Kaldnasi sem er aðal dekurdýrið í hrútunum hann er alveg æðislegur
karekter og gæfari hrút hef ég ekki átt áður. Ég notaði hann til að leita í uppgöngunum
í restina og hann var svo vanur að ég gæfi honum fóðurbætir í lokin. Að núna er hann
búnað taka upp á því að klifra upp á hlerann og þegar ég er að sækja fóðurbætir fyrir
rollurnar og sníkja smá smakk og auðvitað fær hann það eftir þessa fyrirhöfn og áhuga
sem hann sýnir mér he he og auðvitað fær hann klapp og nudd líka.
Þetta var svo líka fastur liður hjá Drjóla hans Sigga að príla upp og biðja um klapp en
þegar hann uppgötvaði að hann gat fengið lúku af fóðurbætir þá var auðvitað alveg 
kjörið að príla upp á til þess. Þeir eru alveg yndislegir báðir tveir og fá smá smakk á 
hverjum degi plús klapp og nudd.
Rollurnar hans Sigga voru fljótar að sjá við þessu eða allavega sumar þeirra því þær
byrjuðu strax að príla upp á hlerann í von um að fá það sama og strákarnir he he.
Auðvitað verð ég að verða við bón þeirra og gefa þeim smá smakk líka ásamt klappi.
Sú hvíta hjá Sigga heitir Príla því hún er svo mikið fyrir að standa svona og gjóa augunum
yfir fjárhúsin.
Móra hans Sigga byrjaði á þessu að príla til að fá athygli mína þegar ég var að gefa
strákunum nammi og tala við þá og það varð til þess að hún fékk líka og svo komu
Soffía og Príla með henni.
Gemlingarnir hans Sigga .
Lambhrútarnir okkar og Sigga.
Það er komið ágætis hornahlaup á gemlingana.
Sú dropótta er undan Vin sæðishrút og Rjúpu og þessi hlíðina á henni með dökku hornin
er undan Part.
Gemlingarnir okkar og Benóný að tala við Vaíönnu.
Þessar skvísur komu líka í fjárhúsin Aníta, Freyja og Embla með risa stóran klaka.
Hérna eru þær að tala við Drjóla.
Við á leiðinni á Þorrablót.
Freyja og Bjarki að pósa.

Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi.

25.01.2018 00:21

Bústaðarferð í Ölfusborgir

Við skelltum okkur í bústað frá föstudegi til mánudags í Ölfusborgir. Það var mjög kalt og 
vindur en rosalega kósý og meira segja fengum við sól á laugardaginn og það var mjög 
gaman að fá að sjá hana því ekki sjáum við hana í Ólafsvík strax því hún er enn svo lágt
á lofti að Ennið skyggir fyrir. Við fórum í göngutúr og út að renna með krakkana og það
var mjög gaman. Svo var skellt sér í pottinn og það fannst krökkunum mikið sport að 
vera í heitapottinum en samt svo kalt og mikið rok úti. Á laugardeginum skelltum við
okkur á rúntinn til Selfossar svo Eyrabakka og Stokkseyri. Benóný var mjög áhugasamur
um umhverfið og auðvitað var skoðað sundlaugarnar á þessum stöðum. 
Maggi bróðir kíkti í heimsókn til okkar og borðaði með okkur á laugardaginn.
Á sunnudeginum fórum við í bíó á Selfossi á Paddington 2 og svo í sund inn á 
Þorlákshöfn og hittum þar Edda og Sibbu vinafólk okkar sem býr þar.
Úti að labba.
Að koma á Eyrabakka.
Stokkseyri.
Freyja Naómí.
Í pottinum.
Að renna.
Flott umhverfið og tunglið svo lítið og sætt.
Rákumst á bátinn Dísu he he og mér fannst kjörið að taka mynd af honum.
Fórum í Ísbúðina Huppu á Selfossi og fengum glæsilegan og góðan ís.
Búnar að gefa pabba sínum bónda dags gjöf.
Embla og hennar upphalds gimbur Vaíanna.

Siggi tók hrútana úr 21 jan. Það gekk ein rolla upp hjá okkur leiðinlega seint eða 17 jan
svo það mun lengja sauðburðinn talsvert en svona vill þetta oft vera bara.
Annars er allt bara rólegt hjá okkur og bíðum bara spennt eftir 10 feb en þá held ég 
að hann komi að fósturtelja hérna á nesinu.

18.01.2018 23:29

Tenerife ferð 2016

Ég var að uppgötva að ég hef aldrei sett inn myndir af Tenerife ferðinni okkar sem var fyrsta
utanlandsferðin hjá krökkunum okkar. Þetta var dásamleg ferð við fórum með Freyju og Bóa
sem sagt mömmu Emils og manninum hennar. Þetta var í þorskveiði stoppinu og það var
hellingur af öðrum ólsörum á sama tíma og það var nánast undantekningarlaust að 
maður hitti einhvern sem maður þekkti á röltinu úti. Við vorum á frábæru hóteli sem var
á Americas ströndinni og heitir Parque santiago V. Við fengum algjöra villu sem var á 
tveim hæðum og með álíka stórar svalir bæði uppi og niðri í kringum alla íbúðina þetta var
alveg æðislegt fyrir krakkana. Okkur leyst ekkert á þetta fyrst þegar við fengum lykilinn
þá sagði maðurinn í lobbýinu á hótelinu að við yrðum að fara yfir götuna til að finna 
herbergið og við fussuðum yfir því að þurfa að labba yfir götuna til að fara í sundlauga
garðinn og héldum áfram að tauta um það þangað til við opnuðum íbúðina og þá sáum við 
hvað við fengum geggjaða íbúð beint fyrir ofan matvöruverslunina og lifandi músík og
mannlíf , meira segja voru leiktæki niðri við verslunina fyrir börnin og eins minigolf völlur.
Svo við gátum ekki fengið betri staðsettningu. Í hótel garðinum var svo fullt af rennibrautum
fyrir rennibrauta sjúka strákinn okkar svo hann var alveg í himnaríki.
Ég setti inn slatta af myndum inn í albúm hér og hér ætla ekki að skrifa miklu meira heldur
bara leyfa myndunum að tala sínu máli.
Fyrsti dagurinn.
Leiktækin fyrir neðan hjá okkur.
Freyja og Bói.
Hluti af rennibrautunum sem voru í garðinum.
Hinn hlutinn.
Sætu mín.
Og svo við á svölunum okkar.
Þessi töframaður með blöðrur vakti mikla lukku og kátínu hjá krökkunum.
Embla var svo ánægð að hitta Margréti frænku sína.
Við fórum með Regínu og Ragga í dýrgarð.
Þessi kerra var alveg nauðsynleg fyrir krakkana þegar maður var að labba svona mikið.
Við fórum svo í Aqualand og þar var Benóný í himnaríki.
Embla.
Freyja.
Við löbbuðum auðvitað og skoðuðum bátana og bryggjuna á leiðinni að heimsækja
Dúdda og Bjöggu sem voru lika á Tenerife.
Svo flottar skvísur Freyja og Bjagga.
Sætu okkar að prófa sundlaugina í garðinum hjá Dúdda og Bjöggu.
Flottir félagarnir Dúddi, Emil og Bói.
Benóný var eitthvað pínu smeikur við hann he he.
Hluti af svölunum okkar og svo voru alveg eins á efri hæðinni hjá okkur.
Stóru börnin að leika sér he he.
Í minigólfinu sem var fyrir neðan hótelið okkar.
Flotta tengdamamma hún Freyja með svakalega flottan ís.
Við skötuhjúin.
Bói fann hreiður á svölunum hjá okkur og fyrst voru bara egg svo rétt áður en við fórum 
heim voru komnir ungar.
Krúttsprengjurnar Freyja og Embla.
Við fjölskyldan fyrir neðan hótel íbúðina okkar.
Freyja og Bói.

Þetta var alveg geggjuð ferð og æðislegur staður mæli alveg hiklaust með því við þá sem
hafa ekki farið á Tenerife að fara þangað. Það er stutt að fara allt í dýragarði og vatnagarða
það er bara 3 til 4 mín og eins í verslunarmiðstöðina að versla.

Mér fannst alveg tilvali að rifja upp þessa mögnuðu ferð núna í skammdeginu og kuldanum
til að láta sig dreyma um sumar og sól emoticon

17.01.2018 14:42

Myndir úr Brúðkaupinu okkar sem var 2015

Það er gaman að rifja upp stórkostlega brúðkaupið okkar sem var 2015 inn í Mávahlíð.
Ég fékk Bóa og Magga bróðir til að teyma mig niður hlaðið á hesti sem var að hluta til
mjög áhættusamt í fína kjólnum og halda sér á baki á hliðinni he he.

Maggi bróðir veitti mér þann heiður að fylgja mér til Emils.

Hér er svo Maggi og Steini svaramennirnir okkar og við að fá hjónavigsluna.

Þá erum við sest saman og nýgift í besta umhverfinu mínu í sveitinni Mávahlíð.

Giftingin fór fram úti í blíðskapar sumar veðri í júní og það var alveg draumi líkast.

Hér er svo brúðarbilinn sem var í eigu vina okkar. Maggi bróðir var bilstjóri.

Hér komum við svo upp í Klif í veisluna.

Skvísurnar í saumaklúbbnum mínum blésu svo sápukúlum yfir okkur.

Svo var skálað.

Gengið inn með börnin.

Þemað var auðvitað bleikt og rollur og hrútar.

Við komin í hásætið okkar.

Tertan var með mynd af lömbum með brúðarslör og slaufu.

Irma vínkona mín var svo æðisleg að aðstoða við að láta stelpurnar okkar syngja man 
það svo vel með Friðrik Dór og þær bræddu alla.

Benóný fékk auðvitað líka að segja nokkur orð.

Svo var það kakan he he.

Þykir endalaust vænt um þessi tvö þetta er Fríða systir pabba og Helgi maðurinn hennar.

Þessi sprengir alveg krúttskalann hún er æðisleg.

Hér erum við svo fjölskyldan á brúðkaupsdaginn.

Alda Dís og pabbi hennar sáu um tónlistina og hún er án efa besta söngkona Íslands og
gerði þetta fullkomið og gæsahúð alla leið.

Bói smiðaði fyrir mig bogann og ég skreytti hann með gerviblómum og svo vorum við
með stóran drumb og svo gæru yfir til að fara niður á hné.

Svona var andyrið gæra á gamalli tösku og svo gestabók.

Skreyting úr steinum sem ég átti.

Það var mikið dúllerí hjá mér ég málaði steina á hvert borð og merkti nafnið á þeim sem 
sat þar. Ég týndi svo hellu grjót og málaði skeifur og skeljar og svo týndi ég hreindýra
mosa og límdi hann á helluna líka síðan skel á hvolfi og sett spritt kerti ofan í hana.

Það voru svo hrúta servíettur hjá strákunum og rollu hjá konunum.

Við hvíttuðum girðingastaura og svo heftuðum við bleikar slaufur og dróum band á milli.
Það var svo slegið túnið bara eftir því hvernig þetta var og svo áttum við mottur til að
hafa sem dregil. 

Ég föndraði gestabókina líka sjálf.

Dóra vínkona mín var svo veislustjóri og var alveg æðisleg eins og alltaf.

Svona var borðaskipan ég fékk húsið hjá nágranna mínum honum Einari og svo málaði
ég það bleikt og föndraði svo á það.

Mamma aðstoðaði mig inn í stígvélin því kjólinn var svo síður og 
svo þurfti ég að vera á góðum stígvélum svo ég myndi ekki sökkva í grasið.

Við vínkonurnar. Irma greiddi mér fyrir brúðkaupið og undirbjó bústaðinn hjá Óla og Maju
ásamt Maju og þar gistum við í Fróðarhreppnum brúðkaupsnóttina. Þetta var alveg
magnaður og ógleymanlegur dagur sem verður í minningu okkar alla ævi.

Hér má svo sjá fleiri myndir af undirbúninginum með því að smella hér.


Og myndir úr veislunni má svo sjá hér inni í
albúmi.

14.01.2018 19:53

Flottur vinnu hópur í fjárhúsunum

Fengum þetta flotta vinnu fólk með okkur í fjárhúsin á laugardaginn.
Þetta eru börnin okkar ásamt frænku og frændum. Birgittu Emý og Alexander Ísar sem 
eru börn Unnar og Steinars bróðir Emils og svo Bjarki Steinn sem er sonur Þórhöllu og
Jóhanns bróðir Emils. Þau stóðu sig svo vel og voru öll svo dugleg.
Freyja ,Bjarki og Birgitta 
Freyja og Bói komu með Alexander. Hann var mjög smeikur fyrst við kindurnar en svo
kom þetta allt hjá honum og hann gaf eins og hann hafi aldrei gert neitt annað ekkert 
smá duglegur.
Birgitta búnað finna sína kind hana Snotru og er að gefa henni nammi.
Allir svo duglegir að hjálpast að við að gefa.
Birgitta Emý.
Alexander Ísar.
Bjarki Steinn.
Komin í hesthúsin hér er Birgitta , Embla og Freyja.
Freyja í heybaði.
Birgitta á Sunnu.
Alexander svo kátur með þetta allt saman.
Benóný kátur á Frey.
Bjarki Steinn á Blæ.
Embla á Mána.
Birgitta á Vökli.
Benóný að klappa rollunum hans Sigga.
Allir að perla.
Góður endir á deginum í pizza og brauðstanga gerð.

Það eru svo fleiri myndir af þessum viðburðaríka degi hér inn í albúmi.

14.01.2018 18:39

Fjárhúsin í janúar

Veturgömlu
Gemlingarnir okkar
Gemlingarnir hjá Sigga í Tungu.
Gemlingarnir hjá Sigga.
Gemlingarnir og veturgömlu búnað fá matinn sinn.
Og rollurnar líka.
Sigga rollur hreyfa sig ekki meðan ég gef mínum og liggja bara í afslöppun.
Ég gef í kringum hádegi en hann gefur um kvöldmatarleytið og það er alveg magnað hvað
þær samstylla sig þessu og vita alveg að þær fá ekki að borða núna.
Ég að reyna að sópa en það er stundum mjög uppáþrengjandi því allar vilja fá
klapp og nudd.
Janúar 2018. Séð inn í Mávahlíð.
Vaíanna er svo rosalega blíð og góð og er gæfust af gemlingunum og hún Embla dóttir mín
á hana. Sem er enn skemmtilegra fyrir hana því hún getur farið ofan í kró og knúsað hana.
Ég að fara gefa á jötuna. Við hand gefum allt hjá okkur og finnst mér það mjög gaman og
plús það að ég fæ góða líkamsrækt út úr því enda talsvert labb úr hlöðunni að 
jötunni.

Jæja læt þetta gott heita í bili og þið getið skoðað fleiri myndir hér inn í albúmi.


08.01.2018 09:28

Þrettándinn og jólin kvödd

Flottur hópur á leið á brennuna og fara svo út að sníkja gott í gogginn. Það er sú hefð hér í 
Ólafsvík að sníkja á þrettándanum en ekki á öskudag eins og er á flestum stöðum á landinu.

Við fengum frábært veður og krakkarnir svo spenntir yfir þessu öllu saman.
Á brennunni sáu þau Álfadrottningu og kóng og einnig Grýlu og Leppalúða.
Það var svo líka rosalega flott flugveldasýning.
Hér eru þau svo lögð af stað að sníkja í gogginn.
Þau fengu alveg fullt af nammi svo það þarf ekki að kaupa nammi á næstunni fyrir 
laugardagana he he.
Rétt fyrir áramót slasaðist Emil út á sjó þegar hann fékk fiskikar ofan á þumalfingur
og hér er verið að skipta um umbúðir og er þetta enn mjög viðkvæmt og bólgið og
nöglin hangir enn á og má varla koma við hana þá finnur hann rosalega mikið til.
Hann verður eitthvað frá vinnu út af þessu þetta tekur sinn tíma að gróa.

Við skelltum okkur suður um daginn með krakkana í bíó.
Það er alltaf mikið sport að fara í bíó.
Benóný og Emil.
Við skelltum okkur auðvitað í heimsókn til Steinars bróðir Emils og hans fjölskyldu.
Hér eru þau öll að borða pizzu. Alexander,Freyja,Embla og Birgitta.
Litla frænka þeirra dóttir Steinars og Unnar dafnar vel og stækkar í hvert skipti sem við
sjáum hana hún heitir Kamilla Rún og er alveg yndisleg svo glöð og alltaf brosandi.
Við kíktum svo líka á Dagbjörtu systir Emils og fjölskylduna hennar og þar var Benóný í 
essinu sínu að fá að fara í playstation hjá Kjartani og svo náði Kjartan í einhvern geimleik
fyrir Benóný sem hann alveg elskar núna. Það er búið að vera mikið geimæði hjá honum
núna þennan vetur. Við fjölskyldan erum einmitt búnað fræðast mikið um geiminn.
Út frá þessum mikla áhuga hans á sólkerfinu og öllu sem tengist því.
Við fórum svo einnig í heimsókn til Fríðu frænku minnar sem er systir pabba og hún og 
Helgi maðurinn hennar taka alltaf svo vel á móti okkur og gaman að koma til þeirra.
Það er allt frekar rólegt í fjárhúsinu núna við settum hrútana í 3 janúar í sitthvora stíuna
svo fer ég með hrút í stíuna hjá veturgömlu á hverjum degi framm til 20 janúar.
Frekar hreyfð mynd en hér er ég með Glám Saum son hans Sigga að leita í veturgömlu
hann er mjög þægilegur og stylltur við mig.
Embla vinnukonan mín svo dugleg að hjálpa mömmu sinni að sópa grindurnar og gefa.
Þær eru svo margar spakar hjá okkur að stundum erum við í vandræðum að sópa þvi
þær eru svo uppáþrengjandi að láta klappa sér og nudda á sér bakið en auðvitað er ég
búnað koma þeim upp á það. Annars væri þetta ekki eins gaman því það er svo gott 
að hafa þær svona gæfar og mikla karekta. Hrafna er uppáhaldið hjá Emblu og hún fær sér
alltaf smá rollu bak og Hrafna kippir sér ekkert upp við það. Hrafna fylgir mér alla króna 
þegar ég er að sópa og ýtir á mig og stundum verð ég að ýta henni frá svo ég nái að sópa
því hún stígur alltaf ofan á heyið sem ég er að sópa. Yndislegri kind hef ég ekki kynnst þó
margar séu gæfar er þó engin eins og hún. Ég er líka svo stolt af henni Emblu minni hvað
hún elskar að kom með mér að gefa og eins er hún hugfangin að því að fara í hesthúsin
líka með Jóhönnu frænku sinni.

03.01.2018 09:11

Gleðilegt ár og takk fyrir það liðna

Kæru vinir við óskum ykkur Gleðilegt nýtt ár og þökkum fyrir það liðna. Með ósk um að þið
eigið í vændum æðislegt og spennandi nýtt ár. Mig langar til að gera smá upprifjun á árinu
sem var að líða hjá okkur fjölskyldunni.

Af sauðfjárræktinni 2017 þá var frjósemin mjög góð og það var fósturtalið í febrúar og þá 
fengum við okkar fyrstu fjórlembu en það höfum við aldrei fengið áður.

Ég rakst svo á gamlar blaðageinar frá lífinu í Mávahlíðinni í gegnum smölun veiði og fleira og það var mjög gaman að sjá það og þið getið séð það blogg hér með þvi að smella hér.

Í endaðan janúar fór ég út fyrir þægindarammann og tók þátt í Þorrablóts nefndinni og lék
í Þorrablótinu í Ólafsvík og það var rosalega skemmtileg upplifun enda var þetta mjög
skemmtilegur hópur og maður kynntist fólki sem maður þekkti ekki áður.

Í mars varð Embla Marína okkar 6 ára og fékk hesta hjálm og beisli í afmælisgjöf og í 
framhaldi af því fór hún svo á reiðnámskeið.


Í apríl gerðist langþráður draumur að veruleika að fara loksins í smá sveitaferð að vetri til
og heimsækja Ágúst bróðir og Írisi konu hans og dóttir Dalíu Sif á Felli á Breiðdalsvík
og í leið okkar þangað stoppuðum við í eina nótt hjá góðvinum okkar Birgittu og Þórði 
á Möðruvöllum og þar fékk ég annan draum uppfylltan að fá að sjá kindurnar hennar að 
vetri til það var alveg æðislegt.
Hér er mynd af Emblu og Dalíu með geiturnar á Felli.
Heimsóknin okkar til Birgittu og Þórðar var alveg æðisleg og þau svo gestrisinn að hýsa
okkur eina nótt sem var mjög dýrmætur og skemmtilegur tími.
Benóný fékk ósk sína uppfyllta að fara í sundlaugina á Höfn á Hornafirði svo hann getur
strokað hana út af listanum sínum.
Embla lærði að hjóla og Benóný líka.

Sauðburður hófst svo í Maí og gekk mjög vel og þetta var frekar mikið gimbra ár og loksins
fékk ég nokkrar mórauðar gimbrar.

Embla útskrifaðist af leikskólanum.

Við keyptum okkur hjólhýsi sem var alveg óvænt og skemmtilegt.
Fórum fyrstu útileguna í Reykjavík og það byrjaði frekar brösulega það fauk önnur topp
lúgan af svo við þurftum að fjárfesta í nýrri en svo tók við bara mjög skemmtilegt sumar
og við fórum fyrstu almennilegu útileguna með góðu vinafólki okkar á Hvammstanga og 
það var rosalega gaman svo tók við Varmaland með fjölskyldunni hans Emils bróðir hans
og fjölskyldu og mömmu hans Freyju og Bóa.
Við fórum svo á Akureyri um versunarmannahelgina og áttum frábæran tíma þar og svo 
fórum við á Apavatn með bróðir Emils honum Jóhanni og fjölskyldu og Freyja og Bói 
komu líka þangað og Benóný átti afmæli í þeirri útilegu og varð 8 ára.
Hjólhýsið okkar.
Benóný fékk aðra ósk uppfyllta að fara loksins í nýju rennibrautina á Akureyri og það
var langþráður draumur enda var hann búnað fylgjast með henni frá því að teikningar komu
að rennibrautinni.
Krakkarnir fengu ógleymanlegar minningar þetta sumar og frábært veður á Akureyri á 
flotta tjaldstæðinu í Kjarnaskógi.
Útilega á Apavatni.
Önnur sundlaug sem hægt er að strika út af listanum hjá Benóný en það var sundlaugin
á Borg og hann ætlaði ekki að vilja fara í hana en svo þegar við fengum hann til að fara
fannst honum hún æðisleg.
Kakan hans Benóný þegar hann var 8 ára 19 ágúst og auðvitað varð það rennibrautakaka.
Embla Marína byrjaði í skólanum og hér eru þau að fara saman fyrsta skóladaginn.
Í september var smalað og það gekk vel fyrir sig nema ég held að ég hafi aldrei 
fengið eins góða þjálfun því ég fór upp á Búlandshöfða alls 4 sinnum og niður aftur og
undir hann að leita af Móru og hennar gengi og þá kom í ljós að hún bæði stakk mig af
og svo var hún í felum og ég labbaði fram hjá henni. En þetta var bara gaman og plús
fyrir mig að komast í gott form.
Við fengum bikar fyrir besta veturgamla mislita hrútinn í ár 2017.
Fyrir Ask sem er undan Kalda sæðishrút og Brælu sem er undan Bekra sæðishrút.
Hér er svo Emil með bikarinn fyrir besta kollótta veturgamla 2017.
Hann er undan Magna sæðishrút og við keyptum hann af Laugu og Eybergi sem lambhrút.
Héraðssýning lambhrúta var haldin á Hömrum hjá Bárði og Dóru og þau fengu
Farandsskjöldinn fyrir besta hrútinn á sýningunni alveg glæsilegt hjá þeim.
Þetta var mjög skemmtileg sýning við vorum með bleikt þema og lambahappdrætti sem
var mjög góð þátttaka í og allir skemmtu sér mjög vel.
Ásettningurinn okkar var rosalega flottur í ár enda ætlaði ég að fækka og gerði það við 
lóguðum slatta rollum en svo voru bara svo fallegar gimbrar sem ég gat ekki staðist að
setja á. Við fengum tvær með 19 í læri og mesti ómvöðvinn var 37.
Setjum tvo lambhrúta á einn undan Máv sem er 88,5 stig og svo undan Ísak sem er 86 stig.
Mávur okkar var svo tekinn á sæðingarstöðina í haust og var þar langþráður draumur
og afrek að veruleika að koma hrút inn á sæðingarstöð. Við fengum svo þær gleðifréttir
að hann varð vinsælasti hrúturinn á stöðinni ár og var mest notaður.
Freyja Naómí varð 5 ára 12 desember og hér er hún og Bjarki frændi hennar að halda
5 ára afmælin sín saman.
Aðfangadagur var frábær með fjölskyldunni.
Áramótin voru líka æðisleg með fjölskyldunni og gaman að koma allir saman.
Fengitíminn gekk vel. Bói hætti með okkur í rollunum í haust og við tókum við hans
rollum svo það var aðeins meiri vinna í fengitímanum í ár enda munar um hans vinnu
hann er svo rosalega drífandi og duglegur en hann var þó ekki alveg laus við fáum að 
hóa í hann ef okkur vantar he he og enda hefur hann bara gaman af því.

Fengitíminn gekk samt mjög vel og ég komst fljótt upp á lagið að fara með þessi ferlíki og
leiða þá á réttar kindur. Jóhanna sem er með okkur í húsum lenti í þeim leiðindum að hún
er að vinna í fiskiðjunni Bylgjunni og henni var sagt upp í byrjun desember og það hefur
ekki verið nein vinna hjá henni og ég naut góðs af því og gat tekið hana með mér í 
fjárhúsin allann desember til að aðstoða mig við sæðingarnar og tilhleypingarnar.

Ég sæddi 31 ær.

6 fyrir Sigga í Tungu og þær héldu allar.
2 fyrir Jóhönnu og þær héldu.
23 fyrir mig og 18 héldu.
Samkvæmt þessu eigum við að fá lömb úr öllum hrútunum sem ég notaði.

Siggi fær úr Bjart, Móra, Klett og Berg.

Jóhanna fær úr Móra og Berg.

Við Emil fáum úr Móra, Klett, Gutta, Bjart, Dranga og Tvist.

Af þessu sem gekk upp voru tvær sem ég sæddi bara að ganni ég var nánast viss um að
þær gengu upp því þær voru byrjaðar að blæsma snemma um morguninn fyrir daginn 
sem ég sæddi. 2 gengu upp sem fengu með Dranga og svo voru hinar 3 sem gengu upp
fengu með Bjarti. Ég er annars bara mjög ánægð hvað þetta er stórt hlutfall sem heldur.

Jæja nú er komið í ljós hversu marga hrúta ég notaði og hversu margar ær hver fékk.

Alls notuðum við Emil á okkar kindur 23 hrúta með sæðishrútunum.


Gutti sæðishrútur fékk 3 ær

Móri sæðishrútur fékk 3 ær hjá mér og 1 hjá Jóhönnu og 1 hjá Sigga

Bergur sæðishrútur fékk 2 hjá mér 2 hjá Sigga og 1 hjá Jóhönnu

Klettur sæðishrútur fékk 3 hjá mér 1 hjá Sigga

Tvistur sæðishrútur fékk 2

Drangi sæðishrútur fékk 1

Bjartur sæðishrútur fékk 4 hjá mér og 2 hjá Sigga

Partur hans Bárðar fékk 2

Móflekkur hans Bárðar fékk 3

Svarflekkur hans Bárðar fékk 2

Skjöldur hans Bárðar fékk 1

Bónus hans Bárðar fékk 1

Tinni hans Gumma Óla fékk 3

Svanur Máv sonur okkar fékk 11

Hlúnkur Máv sonur Sigga fékk 4

Glámur Sigga fékk 4

Kraftur Ísak sonur okkar fékk 6

Grettir Máv sonur Sigga fékk 6

Ísak fékk 6

Móri Sigga fékk 5

Askur okkar fékk 7

Kaldnasi kollótti okkar fékk 3

Láfi hans Óla í Ólafsvík fékk 1 hjá okkur og 1 hjá Jóhönnu.

Já það er nokkuð ljóst að þetta verður spennandi í vor og nú tekur bara við næsti spenningur sem verður fósturvisi talningin í febrúar.

Jæja en og aftur Gleðilegt ár og hlökkum til að njóta þess með ykkur og deila minningum
og búa til minningar hér á síðunni og njóta þess að fá innlitið og kommenntin ykkar sem
er svo gaman að lesa. Held ég sé búnað taka þetta helsta saman sem átti sér stað á árinu.








  • 1
Flettingar í dag: 686
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 1721
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 661198
Samtals gestir: 45534
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 11:32:53

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar