Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

Blogghistorik: 2026 Nästa sida

29.04.2026 17:52

Sauðburður hafinn 29 apríl

Örk tvævettla bar í morgun og er að bera í fyrsta sinn og var alveg súper mamma strax og

allt sneri rétt og hún bar tveim gimbrum og einum hrút undan Prímusi.

 


Hér er fyrsta gimbrin komin.

 


Hér er gimbur númer 2 komin og hún er aðeins stærri en sú fyrsta.

 


Hér er hún svo komin með öll þrjú ég á svo eftir að taka betri myndir þegar þau verða þurr.

28.04.2026 17:26

Styttist í sauðburð og hrútunum sleppt út á tún


Hér var veðurblíða 9 apríl og búið að vera hlýtt og gott og við

Ronja fórum í göngutúr og kíktum í fjöruna.

 


Ronja Rós er búnað vera dugleg að hjóla í skólann og farin að þrá sumarið.


Sprautuðum seinni sprautunni af blandaða bóluefninu 18 apríl.

 

 

Hér eru hrútarnir komnir út 21 apríl.

 


Það var nú ekki mikil slagsmál hjá þeim núna.

 


Lambhrútarnir fóru líka út og það var svo hlýtt og gott veður að það er frábært að leyfa þeim

að komast út.

 


Hér eru þeir ánægðir og komnir saman við stóru hrútana og fóru að reyna slást við þá.

 


Við fórum í fermingu hjá Birgittu Emý á Akranesi og það var mjög flott og skemmtileg

veisla hún var 19 apríl.

 


Við fórum til Reykjavíkur 22 apríl en þá áttu stelpurnar tannlækna tíma og Freyja tengdamamma

kom með okkur líka og við tókum hana með okkur í bíó á Mario og það var mjög gaman.

 


Ég fór og kíkti á Gumma Óla Ólafsvík og það eru komin 4 lömb

hjá honum hér eru tveir hrútar undan Verk sæðingarstöðvarhrút en 

hinn er bakvið hana og er botnóttur.

 


Þessi fæddist um páskana hjá Gumma og þeir eru orðnir vel stórir.

 


Hér er hinn á móti þeir eru vel dökk mórauður og botnóttur.

Mamman er ættuð frá Fossi

 


Hér eru Birgitta Emý og Freyja Naómí á hestbaki inn í sveit hjá Freyju og Bóa.

 

 

Hér er allt að verða klárt fyrir sauðburð búið að kaupa allar helstu nauðsynjar af lyfjum og bætiefnum.

 


Myndavélarnar eru komnar upp svo nú má bara byrja sauðburður.

Fyrstu eiga tal 1 maí en gætu farið að bera því ein er tvævettla sem er að bera í fyrsta sinn og er

þrílembd og svo er gemlingur sem er tvílembdur.

 

09.04.2026 15:09

Gleðilega páska


Hér eru páskaeggin hjá krökkunum sem við felum svo fyrir þau og Birgitta frænka þeirra á 

líka eitt egg og við felum þau svo um morguninn áður en þau vakna.

 


Við Freyja fórum í messu á páskadagsmorgun og það var svo svakalega fallegt veður og 

Ólafsvíkurkirkja skartaði sínu fegursta.

 


Stelpurnar fengu svo að leita af eggjunum sínum þegar við komum heim úr messunni.

 


Við fjölskyldan óskum ykkur kæru vinir Gleðilegra páska .

 


Við fórum svo í fjárhúsin og gáfum kindunum og Snæfellsjökullinn alltaf jafn fallegur.

 


Ég set alltaf upp fallegu húsin sem Einar nágranni smíðaði ég held mikið upp á þessi hús

og ég málði þau bleik því ég elska bleikan og svo er það bara svo páskalegt að hafa bjarta liti.

 


Hér er hitt ég á tvö svona stór bleik.

 


Ronja Rós svo spennt að bíða eftir að fólkið komi í mat til okkar.

 


Benóný að passa hænurnar fyrir Freyju ömmu og afa Bóa en þau fóru til Spánar.

 


Allt að verða klárt.

 


Fallegu mín.

 


Ronja búnað hjálpa mér að leggja á borð og pússa hnífapörin.

 


Freyja að hjálpa til að hræra í sósunni.

 


Amma Hulda komin til okkar og hér eru þær Ronja saman.

 


Allt að vera klárt það er svínahamborgarahryggur og úrbeinaður lambahryggur grillaður ásamt meðlæti.

 


Ronja svo ánægð með Módísi Maríu frænku sinni sem karítas frænka og Danni eiga.

Við buðum þeim í mat og svo komu mamma Hulda , Siggi i Tungu og Jóhanna frænka Emils.

 


Hún var alveg sjúk að skoða ipadinn hjá Ronju svo gaman.

 


Við mæðgur saman.

Við áttum notalega stund með öllum og maturinn var mjög góður og mamma var hin 

rólegasta og naut samverunar með okkur.

Við erum svo búnað panta lambasýni fyrir komandi lömb og versla fyrir sauðburðinn það sem þarf

svo allt fer núna að vera klárt fyrir það en ég þarf að halda áfram að skipuleggja ferminguna og allt

sem því fylgir.

09.04.2026 14:06

Afmæli Emils 1 apríl og sundferðir


Emil átti afmæli 1 apríl og við fórum dagsferð til Reykjavíkur í tilefni þess og fórum í langþráða

Sky Lagoon sem Benóný er búnað bíða lengi eftir að prófa og var alsæll með þá ákvörðun að gefa

pabba sínum það í afmælisgjöf að fara þangað. Við vorum mjög ánægð með það mjög skemmtileg upplifun og

svakalega fallegt og mikil sjarmi yfir þessum stað.

 


Hér erum við ég ,Embla ,Emil og Benóný. Freyja og Ronja komu ekki með okkur til Rvk í þetta 

skipti svo Freyja fær að prófa þetta seinna en hún var heima með frænku sinni Birgittu og þær 

vildu frekar vera þar en koma suður.

 


Benóný var mjög sáttur með þetta.

 


Emil að njóta og yngist bara með árunum lítur svo vel út.

 


Svo töff ofan í lóninu.

 


Embla og Benóný undir fossi sem kemur niður klettana mjög flott.

 


Við hjónin saman að njóta.

 


Benóný og Emil að njóta útsýnisins.

 

 


Þann 2 apríl kom loks að því sem Ronja Rós er búnað bíða svo lengi eftir hún missti 

fyrstu tönnina sína og Emil fékk að toga í hana með bandi svo seinni part sama dag missti hún

aðra neðri tönn sem var hliðina á svo hún var alveg í skýjunum yfir þessu og auðvitað kom svo 

tannálfurinn til hennar um nóttina og hún fékk tvo 500 kr seðla fyrir tennurnar.

 


Föstudaginn langa gerðum við okkur ferð á Lýsuhól í sund.

 


Hér eru Ronja Rós og Emil í lauginni sem er svo heit og æðisleg við elskum að

gera okkur ferð og fara í laugina hún er alveg einstök og dásamleg. Það var svo

gott veður að við vorum smá sólbrennd eftir daginn.

 


Við Ronja Rós saman.

 


Við fórum svo út á Arnarstapa og heimsóttum vini okkar Kolfinnu og Vignir sem tóku vel á móti

okkur og Kolfinna bakaði pönnukökur og svo fóru eldri stelpurnar í göngutúr með dóttir þeirra sem er

með Freyju í bekk og skoðuðu sig um Stapann meðan við vorum í heimsókn og Ronja var að leika við

Harald og Hauk strákana þeirra. Við enduðum svo á því að fara á veitingarstað sem heitir Stapinn og

þar er alveg svakalega gott að borða og yndislegt starfsfólk svo gaman að gera sér dagamun og njóta 

þess að upplifa allt sem er í kringum okkur.

 


Daginn eftir sem sagt á laugardeginum þá fórum við og kíktum á Ösku trippið okkar sem er í 

útgang hjá Bárði og Dóru í Grundarfirði og hún þekkti alveg stelpurnar og kom og talaði við þær.

 


Við fórum svo aðra dagsferð í sund og núna var ferðinni heitið til Búðardals í nýju sundlaugina þar sem opnaði 

núna um páskana og hér eru krakkarnir að labba inn í sundlaugina. Sundlaugin er alveg frábær hún er svo falleg og fallegt

útsýni frá henni og það eru tveir heitir stórir pottar og ein vaðlaug. Svo er sánaklefi og hann er mjög kósý með glugga alveg niður svo þú færð

sama útsýni frá honum eins og þegar þú ert í sundlauginni. Benóný gefur sundlauginni mjög flotta einkunn og hann hefur nú farið í flestar

sundlaugar á Íslandi svo við mælum hiklaust með því að gera sér ferð í Dalina og skella sér í sund.

 


Við fórum svo á veitingarstað í Búðardal sem heitir Blys og við fengum mjög góða hamborgara og pizzu þar og

Ronja fékk sér kjúklinganagga og allir voru mjög sáttir og konan sem afgreiddi okkur og þjónaði bauðst til að taka mynd

af okkur öllum svo vingjarnleg og þjónustan upp á 10. Við fórum svo Heydalinn heim til að taka rúnt þar yfir en vegurinn var

mjög holóttur og erfiður en gaman að taka rúnt og sjá Hlíð það er mjög langt síðan ég hef keyrt þangað man eftir að hafa

farið þar með Steina frænda að heimsækja Einar Halls í Hlíð og það eru mörg ár síðan. Við fórum þó ekki alveg upp að því heldur keyrðum

bara þjóðveginn og sáum afleggjarann upp að því.

 

09.04.2026 12:08

Ýmislegt í Mars og afmæli Emblu Marínu


Ronja Rós er búnað vera dugleg að koma með okkur í fjárhúsin og 

elskar að vera hjá gemlingunum og klappa þeim þeir eru langflestir orðnir svo spakir.

 


Harpa alveg að éta Freyju he he.

 


Það er eins með gemlingana þeir hópast að Freyju til að fá klapp og athygli þær alveg elska hana.

 


Nútella og Móa eru undan Kakó hans Sigga og eru svo fallegar á litinn.

 

 


Embla Marína okkar átti afmæli 28 mars og við fórum dagsferð til Reykjavíkur

hér erum við út að borða og hún fékk smá glaðning með blysi í tilefni þess að vera 15 ára .

 

 


Við fórum rölt niður í bæ og kíktum í kolaportið sem okkur finnst mjög gaman að fara

en stelpurnar voru ekki eins hrifnar af því he he. Hér erum við á starbuck. Við kíktum svo líka í kringluna og

hún fékk að velja sér föt í afmælisgjöf.

 

Við kíktum á Magga bróðir og Rut og Marra Már að kveðja þau því

þau voru að fara til Tenerife yfir páskana. Hér er Ronja að lesa fyrir Marra geiturnar þrjár

og hann hlustar og fylgist með af mikilli athygli honum finnst svo gaman að leika við Ronju.

 


Við fórum í sund í Keflavík og Ronja vildi kíkja á skessuna í skessuhellinum.

Það er mjög gaman að kíkja á hana og svo er hún sofandi og hrýtur svakalega hátt og það heyrist alveg

út úr hellinum og Ronju stóð ekki alveg á sama að kíkja inn svo ég þurfti að halda á henni inn he he en

henni fannst þetta mjög skemmtileg upplifun.

 


Hér er Ronja að máta Skessuna.

 


Þegar við vorum búin að skoða skessuna þá kom alveg grenjandi rigning og smá haglél svo við vorum

vel blautar að bíða eftir að Emil kæmi að sækja okkur því hann fór með Benóný að gefa honum dominos á meðan.

 


Þann 30 mars settum við ásettningsmerkin í gemlingana og Birgitta frænka Emils

var að hjálpa okkur með Freyju þær voru svo duglegar að hjálpa okkur.

 


Freyja að festa hlerann til að halda við meðan við setjum merkin í þær.

 


Lambhrútarnir eru búnað taka vel við sér og eru með mikil hornahlaup.

 


Gummi Óla er enn svo mikið krútt. Hann er með gulan

fána og H154.

 


Hrúturinn hans Sigga hann heitir Kútur. Hann er alveg

einstakur karekter og mjög gæfur. Hann er með H154

og gulan fána og er undan Kát sæðingarstöðvarhrút og Sóley.

 


Dorri svo fallegur. Hann er undan Sælu og Örvari og er

með gulan fána og C151.

 


Steini með mjög mikil hornahlaup. Hann er undan Garp 

og Mávahlíð og arfhreinn H154

 


X er líka með mikil hornahlaup og er svo mikil dúlla og mjög gæfur.

Hann er undan Bríet og Klaka. Hann er hlutlaus gulur.

 


Sómi er líka með svakalega mikil hornahlaup og ég er svo

spennt að sjá hvernig hann á eftir að gefa og reyndar spennt

fyrir öllum hrútunum hvernig kemur undan þeim en ég hef

mestar væntingar til Sóma hann er undan Snúru og Brimil sæðingarstöðvarhrút.

Hann er með gulan fána og R171

 


Ég er búnað vera svo lánsöm að Emil er búnað vera mikið heima út af

þorskveiðistoppinu og brælu svo hann hefur komið með mér í fjárhúsin á hverjum degi

og Ronja kemur með okkur á helgum er stundum treg að koma með en þegar hún er komin

finnst henni svakalega gaman og er svo dugleg. Ég kláraði að vinna á leikskólanum fyrir páskafrí

og er núna komin í frí að sauðburði svo ég geti klárað að skipuleggja ferminguna hennar Freyju

okkar sem verður 24 maí um Hvítasunnuna og þegar sauðburður byrjar verð ég á haus í því svo

það verður mjög gott vera búnað gera allt klárt bæði fyrir sauðburð og fermingu áður en sauðburðurinn hefst.

 


Ég fór í heimsókn til Bárðar um daginn og hér er lambhrútur sem hann á undan Brúnó okkar sem dó í fyrra sumar.

Þessi er gráflekkóttur og mjög fallegur ég er spennt að sjá hvernig lömb Bárður fær undan honum.

 


Hér eru gemlingarnir hjá Bárði og þessi fremsta er systir Tásu sem ég fékk hjá honum og þær eru

mjög líkar þær eru undan hrút sem Bárður fékk frá mér og er undan Kleópötru og Jór sæðingarstöðvarhrút.

 

Hér er Tása en þessi mynd var tekin fyrr í vetur hún hefur stækkað talsvert núna þarf

endilega að ná mynd af henni núna og bera þær saman það væri gaman.

 


Hér sést hrúturinn betur. Hann á ættir í Einbúa frá mér í móðurætt og Part sem var frá Óttari á Kjalveg.
  • 1
Antal sidvisningar idag: 2
Antal unika besökare idag: 1
Antal sidvisningar igår: 2809
Antal unika besökare igår: 6
Totalt antal sidvisningar: 3341657
Antal unika besökare totalt: 92691
Uppdaterat antal: 7.5.2026 00:02:16

Um okkur

Namn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Mobilnummer:

8959669,8419069

MSN användarnamn:

Disa_99@hotmail.com

Födelsedag:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Postadress:

Stekkjarholt 6

Plats:

355 Ólafsvík

Telefonnummer hem:

4361442

Om:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Länkar

Länkar

Länkar