Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

Færslur: 2012 Desember

29.12.2012 16:01

Óveður í Mávahlíð þakið að fjúka af hlöðunni

Þakið á hlöðunni inn í Mávahlíð.

Vonsku veður hefur verið inn í Fróðarhrepp. Við fórum að gefa inn í Tungu þegar Maggi bróðir hringdi í mig og sagði að Snorri Rabba hafi látið hann vita að þakplötur væru að fjúka af hlöðunni og fór ég og náði þessum myndum og hringdi svo aftur í Magga og hann ætlar að hafa samband við Björgunarsveitina hvað sé hægt að gera.

28.12.2012 10:30

Jólin 2012 og Útskrift hjá Steina frænda

Jæja þá er kerfið komið í lag og ég er búnað skella inn fullt af myndum af jólunum og útskriftinni hjá Þorsteini Erlingi frænda.

Biðin var rosalega lengi að líða hjá Benóný mínum eftir því að fá að opna pakkana en hann og Embla fengu óvænta heimsókn á aðfangadags hádegi og það voru jólasveinarnir með pakka sem þau fengu að opna þá.

Það gladdi þau rosalega mikið og var ekki hikað við að taka við pökkunum og opna þá.

Þorsteinn Erlingur Ólafsson orðinn stúdent. Innilega til hamingju Steini minn. 
Það var haldin veisla á Hótel Hellissandi rosalega fínt.

Maggi bróðir og Erla mættu vestur.

Við fjölskyldan á aðfangadag loksins sest við borð eftir mikinn eltingaleik að halda Benóný frá pökkunum og reyna elda og klára. Eins og ég sagði í fyrra bloggi komst hann í pakkana og varð allveg óður eftir það og vildi bara fara í pakkana og skildi náttúrulega ekkert í því að fá ekki að opna þá strax he he. 

Hann var róaður niður yfir matnum með því að gefa honum popp og engjaþykkni sem er varla frásögufærandi. Svakalegur jólamatur enda ekki séns að fá hann til að smakka jólamatinn. 

Emil komst ekki einu sinni í jólasturtuna sína svo mikið var fjörið hér á bæ en við gátum ekki annað en bara hlegið af þessu og hugsað já við erum með 3 börn núna til að hugsa um svo það verður að gefa sér aðeins meiri tíma en klukkutíma til að græja allt þvi við fórum inn í kirkjugarð á Brimisvöllum að kveikja á friðarkerti fyrir Steina frænda og Ragga frænda og ég náði engan veginn að kveikja á þeim það er alltaf svoddan rokrassgat þarna og Emil sagði einmitt við mig og þarna villt þú láta grafa þig he he í þessu rokrassgati. Þar af leiðandi vorum við ekki komin heim fyrr en 4 og þá áttum við eftir að græja allt nema kjötið var auðvitað að malla í pottinum.

Þetta var svo kapphlaup að ná að skrifa niður hver fékk hvaða pakka frá hverjum en þetta var samt bara mjög gaman og þau fengu fullt af flottum gjöfum. Við fórum svo í jólakaffi hjá Steina og Jóhönnu og skiptumst á að fara því litlu grallararnir okkar voru alveg búnir á því eftir daginn.

Embla stolt systir í jólaboði hjá Huldu ömmu sinni.

Þá er komið að því að segja frá rollunum. Það voru sæddar 3 fyrst og var bara ein sem hélt úr því. 12 des voru næstu sæddar og það eru 3 gengnar upp úr því og kemur meira í ljós með restina í dag hverjar ganga upp svo þetta er ekki gott útlit hjá mér og svo á ég líka eftir að skrá sæðingarnar var allveg búnað gleyma því svo ég vona að ég sé ekki allt of sein í því.

Hér er Brimill að sinna Heklu.

Það var tekinn rúntur til Óttars á annan í jólum og já það er mikið lagt á sig til að fá kynbætur he he.

Þegar við fórum og sóttum þær í gær var hávaða rok og endaði það með að Emil missti kerruna þegar hann ætlaði að setja hana aftan á bílinn og rann hún lengst út á tún hjá Óttari.

Jæja þá er hann kominn niður á bílnum til að festa kerruna og koma henni upp aftur.

Við erum búnað vera með bilinn hans Eggjarts vin Emils yfir jólin þvi hann er með tengdaforeldra sína yfir jólin og tengdamamma hans er á hækjum og komst ekki upp í jeppann. Það er reyndar búnað koma sér vel sérstaklega þegar snjórinn kom og svo er aðeins meira pláss fyrir krakkana aftur í og ég var allveg orðin á því að langa í jeppa en þegar við tókum olíu á hann þá breyttist það he he algjört brjálaði sérstaklega því ég keyri svo rosalega mikið að við myndum aldrei ráða við að eiga svona bíl miðað við hvað okkar bíll eyðir litlu.

Við erum búnað fara með 2 á Mýrum til Óla í hrút hjá Óla Tryggva kollóttann og svo fórum við með aðrar 2 í gær og svo er ferðinni heitið til Laugu og Eybergs næst með 2 kollóttar svo það er nóg að gera að keyra út rollur he he.

Það eru svo myndir af jólunum hér og myndir af rollu rúntinum til Óttars og fleiru hér.



26.12.2012 21:27

Gleðileg jól 2012

Gleðileg jól kæru netvinir vonandi höfðu allir það gott yfir jólin. Ég er búnað vera í stökustu vandræðum að setja myndir inn svo ég gat bara sett þessar tvær til að byrja með það hlýtur að vera eitthvað rugl á kerfinu. Ég blogga því bara betur og set inn myndir þegar þetta er komið í lag. Annars höfðum við það fínt um jólin en það var mikið fjör að vera bara við með 3 lítil börn og mikil spenna hjá Benóný að bíða eftir að fá að opna pakkana og gat engan veginn biðið svo hann sá sér um augnablik meðan ég fór í sturtu og Emil var að matreiða og fór og tók forsprett á pakkana og slátraði þrem pökkum rétt fyrir mat og eins og sjá má á þessari mynd leit þetta svona út 
ÁÐUR EN VIÐ OPNUÐUM PAKKANA he he.

Sem betur fer voru lika ekki komnir allir pakkarnir undir tréið og við vissum líka hverjum þessir þrír voru frá þegar hann var búnað opna þá sem betur fer emoticon
Jæja ég vona að kerfið komist sem fyrst í lag því það bíða fleiri skemmtilegar myndir og sögur eftir að komast hér inn.

Kveð að sinni Dísa.

20.12.2012 00:03

Fyrstu dagarnir hjá prinsessunni okkar.

Það er nóg að gera þessa dagana í að skipuleggja allt fyrir jólin og svo fengitímann í fjárhúsunum og svo auðvitað að sjá um nýjasta gullið í fjölskyldunni sem er svo vær og góð að ég þarf enn að vekja hana til að gefa henni. Hún lætur mig þó aðeins hafa fyrir sér því hún á það til að vakna kl 3 á nóttinni og vaka til 5 og það er það mesta sem hún vakir yfir sólarhringinn svo hún mætti allveg gera það frekar á daginn. 

Benóný og Embla eru öll að koma til með að venjast henni þó Embla sé svakalega afbrigðusöm, hún á auðvitað mömmu sína og er ekki allveg tilbúin að deila henni svona og leyfa litla barninu að súpa mömmu sína he he. Þetta kemur þó allt saman ég leyfi henni að hjálpa mér að skipta á henni og ýmislegt og það finnst henni rosalega gaman hún er svo mikill vinnukona.

Hér eru sætu gullmolarnir mínir sem voru svo fínir og áttu að fara í myndartöku hjá Óla fyrir jólakort en NEI þau voru kolvitlaus og neituðu að sita saman og allt ómögulegt svo það þýddi ekkert að taka mynd af þeim svo hann tók bara myndir af litlu prinsessunni.

Og það heppnaðist allveg frábærlega eins og þið sjáið. Svakalega flott mynd hjá honum Óla hann er einmitt með síðu á flicker sem þið getið farið inn á hér.

Ég er búnað fara 2 svar út úr húsi síðan að ég kom heim og er það varla frásögufærandi
fyrst fór ég inn í Grundafjörð að sækja sæði og sæddi svo 3 rollur eina fyrir mig og 2 fyrir Sigga og verð ég að viðurkenna að það var samt rosalega gaman ég fékk þá að sæða eitthvað því Bárður hefur séð um hinar sæðingarnar fyrir mig. Hann sæddi fyrir mig 12 kindur og svo sæddi ég þessa einu fyrir mig svo það eru 13 alls og 2 hjá Sigga. Svo nú er bara að biðja og vona að þær haldi það ætti að fara koma í ljós núna á morgun og hinn hvort að þessar fyrstu haldi. Ég notaði bara Soffa og Prúð.

Já svo fór ég í annað skiptið út núna í kvöld og þá fór ég með Emil með eina rollu til Óttars í Botna botnótta hrútinn hans. Það var svo brjálað gera í fjárhúsunum hjá Bóa í dag að hleypa til og ég að segja honum til í símanum hver ætti að fara á hverja og hvaða rollur væru að ganga svo hann stendur sig allveg stórkostlega í þessu öllu saman fyrir mig en er samt pínu stressaður emoticonað hann sé ekki að gera allt rétt he he en það er allt saman í góðu lagi hann fær góða leiðsögn og þá gengur allt vel. 

 Já ég fer nú svo að fara kíkja í búðir næst þegar ég fer út til að klára jóla innkaupin og svo eru tvær útskriftarveislur framundan hjá Steina frænda mínum syni Maju systir og svo hjá Hafrúnu vínkonu svo það verður nóg farið út á næstunni. 

Spennan er svo í hámarki að bíða eftir morgundeginum því þá verður Þórhalla kona Jóhanns bróðir Emils skorin og þá kemur í ljós hvort við fáum frænku eða frænda.

 Jæja það eru svo myndir af prinsessunni og fyrstu dögunum með því að smella hér.

14.12.2012 21:03

Stúlka fæðist 12.12.2012

Jæja þetta stóðst hjá mér og stúlka kom í heiminn 12.12.2012. Henni lá á í heiminn og gekk allt mjög vel. Það var bið í fæðingu því það voru tvær fæðingar í gangi og við þurftum að bíða á biðstofu eftir að komast inn en ég notaði tímann til að ræða við Bárð um sæðingar á kindunum því hann og Bói voru að sjá um að sæða fyrir mig já ég veit að maður er ekki með rolludellu fyrir ekki neitt he he en þeir redduðu þessu fyrir mig en við komumst svo loksins að hálf 7 og ég var of sein til að fá deyfingu og daman var komin í heiminn korter yfir 7. Við fengum svo svítu og góða umönnun á Skaganum eins og vant er þar er rosalega gott að vera. 
Daman var 14,5 mörk og 53 cm og er algjör engill bara sefur og drekkur og ég er í rauninni í vandræðum að vekja hana til að drekka.

Hér er prinsessan okkar. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi.

Svo var það nú leiðinlegra að segja að Donna hundurinn okkar missti alla hvolpana sína en henni heilsast vel og er að ná sér bara.

10.12.2012 21:42

Donna Gítur 2 vikum fyrir tímann

Búið að vera allt á haus hjá okkur í dag Embla byrjaði með 40 stiga hita í morgun og ældi líka svo tók annað við af öðru og í hádeginu tók sorgardagur við hún Donna okkar gaut 6 hvolpum 2 vikum fyrir tímann í dag. 3 dóu en 3 komu lifandi og vorum við eiginlega allveg búnað gefa upp vonina en þá lifði fyrsti hvolpurinn allveg til 3 um daginn og þá komu svo 2 aðrir lifandi og nú er verið að basla við að mjólka upp í þá úr tíkinni. Brynja,Marta,Jóhanna og Steini eru búnað vera hjálpa okkur og þeir lifa enn svo það er kanski ekki öll von úti en þetta er svakalega mikill vinna við þurfum að skipta með okkur nóttinni því það þarf að gefa þeim á 2 tíma fresti. Ég get nú ekki komið mikið nálægt þessu því ég bara þori því ekki því hún hálf partinn lét hvolpunum svo maður veit ekki hvort ég megi nokkuð koma nálægt þessu enda er ég líka komin svo langt að maður tekur enga sénsa. Nú er bara að biða og vona að dagsettningin standist hjá mér og ég fari að koma með þetta núna 12 emoticon
Hér er Donna greyjið með krílin sín sem vigtuðu ekki 100 grömm sá stærsti vigtaði 80 gr og sá minnsti er 61 gramm og einn er 70 grömm og það er talið að þeir lifi ekki nema vera 100 grömm svo það er bara biðja og vona.

Eins og sjá má á þessari mynd er þetta sá minnsti og hann lifir enn. Það eru svo fleiri myndir inn í albúmi með því að smella hér.

Steinar og Unnur komu í heimsókn með Birgittu Emý sem er orðin svo stór síðan við sáum hana seinast enda orðin 6 mánaða skvísa og tóku Benóný og Embla vel á móti frænku sinni og kom þeim vel saman.


Embla svo góð að knúsa Birgittu frænku sína.

Benóný með Myrru sína.

Jæja 39 vikur þetta má nú allveg koma svo 12.12.2012 hugsið stíft með mér. Það eru svo 
fleiri myndir af Benóný og Emblu og fleira í albúmi með því að smella hér.
  • 1
Flettingar í dag: 1176
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 1606
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 668027
Samtals gestir: 45755
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 13:00:51

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar