Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

Blogghistorik: 2018 Mer >>

25.06.2018 01:01

Rúntur 25 júní og Bjarki veiðimaður

Sáum Gersemi með gimbranar sínar undan Ask.
Þessi verður grábotnu golsótt.
Skvísa með sínar skvísur undan Klett sæðishrút.
Vænt lamb frá Sigga í Tungu.
Gufa hans Sigga með lömbin sín undan Korra held ég.
Þessi hrútur er undan Kviku og Klett sæðishrút.
Gimbur undan Klett sæðingarhrút og hrútur undan Berg sæðingarhrút.
Við að gefa Hnotu brauð.
Grýla hans Sigga með lömbin sín undan Glám.
Held að þetta gæti verið Vala hans Sigga með lömb undan Korra.

Eftir lamba rúntinn inn í sveit fórum við rúnt inn í Ólafsvík og sáum tvo feðga vera veiða
niður á bryggju og við kíktum á þá og ég smellti líka þessum fínu myndum af framtíðar
veiðimanninum honum Bjarka Stein frænda Emils.
Bjarki Steinn Jóhannsson.
Svo með þetta á hreinu.
Einbeittur að taka kastið.
Sjá gleðina og hamingjuna þegar hann kastar.
Svo frábær strákur sem elskar að veiða.

Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi.

19.06.2018 19:24

Fyrsti rollu rúnturinn sumarið 2018

Hér er Salka með sæðingana sína undan Klett þau eru þrílembingar en ganga 2 undir.
Hexía með lömbin sín undan Ísak.
Hér er hitt lambið hennar.
Fallega lambið mitt sem er draumaliturinn minn. Þetta er gimbur undan Mónu Lísu og
Knarran hans Bárðar og Dóru Eyravegi 12.
Eik með móbottnóttu gimbrina sína sem var svo gæf í fjárhúsunum í vor.
Þyrnirós með gimbrina sína undan Knarran hans Bárðar.
Ljósbrá.
Gimbur undan Dröfn og Berg sæðishrút gengur undir Ljósbrá og svo er hrúturinn 
undan Ljósbrá og Dranga sæðishrút.
Þessi lömb eru frá Sigga ég náði ekki alveg að sjá hvaða rolla þetta er sem á þau.
Héla gemlingur frá Sigga með lömbin sín undan Glám.
Snædrottning með lömbin sín undan Svan.
Glámur hans Sigga.
Að gefa Hnotu brauð.
Gimbur undan Skvísu gengur undir Hnotu og er undan Klett sæðishrút og svo er hrútur
undan Hnotu og Berg sæðishrút.
Fórum suður um daginn og splæstum í ný stór dekk á stóra traktorinn okkar.
Skessa hans Sigga með gimbur undan Ask og hrút frá Sprengju minni og undan Tinna
frá Gumma Óla Ólafsvík.
Botnleðja og Skuggadís með sín lömb.
Anna með lömbin sín undan Svan.
Flottur hann Marteinn hani hjá Freyju og Bóa.

Það eru svo fleiri myndir af rúntinum hér inn í albúmi.

18.06.2018 10:23

Ferðalag norður og austur í júní.

Við skelltum okkur í sumarbústað norður á Akureyrir þann 7 júní og fengum alveg yndislegt
veður. Á leiðinni norður stoppuðum við á Blöndósi og fórum í sund og þar var 20 stiga 
hiti og sól.

Sundlaugin á Blöndósi.

Glæsileg leiktæki sem voru á Blöndósi.

Við fórum svo áfram og inn á Akureyri og kíktum í Kjarnaskóg.

Auðvitað var svo kikt í jólahúsið sem er alveg ómissandi þegar maður fer norður.

Fórum líka á Kaffi kú sem krökkunum finnst svo gaman að fara. Enda æðislegt að koma
þangað á kaffi húsið og fylgjast með kúnum.

Hér erum við komin á Möðruvelli 3 til Birgittu og Þórðar.

Hér erum við að skoða kindurnar hjá Birgittu og krakkarnir eru að gefa þeim brauð.

Hér erum við komin upp í fjárhús að skoða heimalingana.

Hér er flotti mynda veggurinn hjá Birgittu með öllum kindunum. Auðvitað fékk ég hana
til að stylla sér upp við hann.

Benóný fékk að keyra fjórhjól hjá Birgittu og Þórði.

Hér er Embla að keyra.

Emil með Freyju á stóra hjólinu.

Hér er svo Þórður búnað fara með þau öll saman.

Við Birgitta fengum svo mynd af okkur sem er orðið árleg myndartaka því við erum búnað
fara á hverju ári norður síðustu ár. Enda alltaf stórkostlega gaman og eftirminnilegt að 
koma í heimsókn til hennar, Þórðar og Damians.

Við áttum yndislegan tíma í sumarbústaðnum á Akureyri.

Fórum í Lystigarðinn á Akureyri og tókum fallegar myndir af krökkunum okkar.

Benóný Ísak.

Emil og Benóný Ísak,Freyja Naómí og Embla Marína.

Embla Marína.

Freyja Naómí.

Benóný Ísak.

Freyja Naómí.

Embla Marína.

Benóný Ísak.

Blómarósirnar mínar.

Sundlaugar sumarið er hafið og var byrjað á því að fara á Blöndós í sund og hér erum
við komin inn á Hrafnagil í sund. Við fórum svo auðvitað líka inn á Akureyri í frægu
klósett rennibrautina sem er geggjuð.

Leikvöllurinn á Hrafnagili.

Þá erum við mætt í sundlaugina í Þelamörk og þar er búið að skipta um rennibraut hún var
rauð á litinn í fyrra en núna er hún orðin blá.

Við gerðum okkur svo dagsferð austur og gistum eina nótt hjá Ágústi bróðir og Írisi
á Felli í Breiðdal.

Leið okkar lá fyrst til Neskaupsstaðar því þar átti Benóný eftir að prófa sundlaugina og 
rennibrautirnar.

Hér má sjá sundlaugina og rennibrautirnar á Neskaupsstað.
Það er búið að vera langþráður draumur hjá Benóný að prófa þessar.

Áfram höldum við í átt að Breiðdalsvík.

Jæja nú er leið okkar að ljúka við erum stutt frá Felli núna þar sem Ágúst bróðir býr.

Þá erum við komin á Fell í Breiðdal.

Við fórum að kíkja á hana Baddý svínið hjá Ágústi.

Hún er ekkert smá stór. Hún var nývöknuð og frekar geðill við Ágúst og Emil og henni var
ekki vel við Emil og ætlaði að ráðast á hann.

Ágúst með kiðlingana sína en hann er með þrjá heimalinga.

Hjá Ágústi og Írisi er fastur liður að kveikja upp í eldstæði á hverju kvöldi og grilla 
sykurpúða.

Benóný var alveg að fíla það og fannst þetta geðveikt spennandi.

Freyja að borða sykurpúða.

Embla og Dalía. krakkarnir dýrka alveg frænku sína og eltu hana eins og lamb á eftir 
rollu allann tímann sem við vorum í heimsókn og auðvitað var Dalía svo góð við þau
og sýndi þeim allt það skemmtilega sem hægt er að gera í sveitinn.

Svo hrifnar af kiðlingunum.

Ágúst fór lengst upp í fjall að sækja geiturnar til að sýna okkur en þær máttu ekkert vera
að því að stoppa og þeyttust í gegnum hlaðið og aftur upp í fjall enda orðnar svo ánægðar
að vera komnar út í frelsið og hætta ekki á að láta ná sér. Hér er ein að gæða sér á brauði
og svo er hún rokin af stað.

Dalía Sif frænka alltaf svo kát og glöð.

Gaman að fá að halda á hænunum þær eru svo spakar hjá þeim.

Benóný að fylgjast með kiðlingunum að drekka.

Auðvitað var ég alveg sjúk í kiðlingana þeir eru alveg æði.
Flottar frænkur Freyja,Dalía og Embla.

Hér erum við komin í hestaleiguna hjá Írisi og hér eru krakkarnir búnað græja sig.

Benóný kominn á hestbak.

Freyja.

Embla svo dugleg.

Á leið okkar til baka var farið í sund á Eskifirði að ósk Benónýs því hann átti eftir að 
prófa bláu rennibrautina og fannst hún mjög skemmtileg og sagði að hún væri alveg eins 
og græna í Borgarnesi.

Þegar við komum svo aftur inn á Akureyri fórum við að borða á Greifanum og
það var mjög gott.

Það eru svo fleiri myndir af ferðalaginu okkar á Akureyri hér og Austur hér inn í albúmi.

05.06.2018 12:32

Sjómannadagurinn

Sjómannadagurinn skiptir miklu máli enda maðurinn minn Emil Freyr mikill sjómaður og 
var hann meðal annars á forsíðu sjómannablaðsins hjá Skessuhorni.
Það má sjá það hér inn á þessum link
Hér er Emil að landa úr bátnum sem hann er á Guðbjarti SH.
Hér er myndin af honum sem er á forsíðu Sjómannablaðs Skessuhorns 2018.
Svo flott mynd af honum sem Alfons Finnsson tók.
Það er mjög skemmtileg grein um Emil og áhöfnina á Guðbjarti inn í blaðinu.



Mjög stolt af duglega manninum mínum sem hjálpar mér í búskapnum með sjónum.
Það var mikið að gera hjá Emil i maí en hann gaf sér tíma til að hjálpa mér að klaufsnyrta
rollurnar og hjálpa mér að hleypa út.
Ég óska honum innilega til hamingju með daginn og
öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra. 
Þeir eru sannar hetjur hafsins.

Við skelltum okkur í siglingu á sjómannadags helginni.
Hér erum við í siglingu.
Við drógum mömmu með okkur og henni þótti það mjög gaman.
Það var sól en frekar kalt.
Krakkarnir skemmtu sér mjög vel hér er Freyja, Embla ,Aníta og Benóný.
Það var svo mikið stuð í Sjómannagarðinum þar var allt í hoppuköstulum.
Við hjónin skelltum okkur svo á Sjómannahóf um kvöldið.

Það má svo sjá fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi.

05.06.2018 11:43

Freyja útskrifast af leikskólanum Krílakot og Benóný klárar 3 bekk og Embla 1 bekk

Það er búið að vera mikið um að vera hjá okkur Freyja Naómí okkar yngsta er orðin svo stór
að hún var að útskrifast af leikskólanum Krílakoti í Ólafsvík. 
Embla Marína var að klára 1 bekk og Benóný 3 bekk og þau stóðu sig alveg frábærlega.

Embla tók þátt í sínu fyrsta frjálsíþróttamóti HSH og fannst það rosalega gaman.
 
Karítas frænka dóttir Maju systir minnar
var útskrifast úr framhaldsskólanum FSN í Grundafirði og stóð sig rosalega vel.
 
Mamma varð 68 ára 18 maí og við fjölskyldan fórum öll út að borða á Hrauninu og 
svo kom Maggi vestur óvænt og það þótti mömmu mjög vænt um.
 
Við fórum svo suður að láta skipta um rúðu
í bílnum sem var búnað vera með 3 sprungur í framrúðunni allt og lengi. Þá var kíkt í 
húsdýragarðinn með Þórhöllu og Bjarka Stein og við áttum þar frábæran dag í blíðskapar
veðri og hitinn kom okkur á óvart enda við ekki vön því að það sé yfir 7 gráður heima
he he svo kalt er vorið búið að vera fyrir vestan.
Hér er litla skvísan að fá skjalið sitt.
Orðin svo stór þetta gull.
Flott frændsystkini sem voru bæði að útskrifast Bjarki Steinn og Freyja Naómí.
Flottur útskriftarhópurinn á Krílakoti.
Benóný hitti þessa snillinga á 1 maí.
Afmælis skvísan 18 maí á Hrauninu hún Hulda Maggý Magnúsdóttir mamma mín.
Steini sonur Maju systir og Maggi bróðir minn sem birtist óvænt.
Fallega parið Daníel og Karítas Bríet frænka sem var að útskrifast. Við fögnuðum því 
með henni og fjölskyldunni út að borða á Viðvík á Hellissandi og það var æðislegt og 
frábær þjónusta.
Fjársjóðurinn okkar Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naómí.
Embla Marína svo stolt búin með 1 bekk.
Snillingurinn okkar búinn með 3 bekk og við tekur stórt stökk að
byrja í Ólafsvíkur skóla í haust.
Embla tók þátt í sínu fyrsta HSH frjáls íþróttamóti um daginn og hér er
hún og vínkonur hennar Sunna og Aníta.
Við skelltum okkur suður um daginn og auðvitað var farið í Húsdýragarðinn
það er ekki eins og við eigum ekki nóg af dýrum he he börnin fá aldrei leið á því.
Ein að lokum hér af duglegu sveita stelpunni minni henni Freyju. Mér finnst þetta 
æðisleg mynd af henni.

Það eru svo fleiri myndir af útskriftinni og því hér inn í albúmi.


03.06.2018 23:28

Stóra Sauðburðarbloggið

Jæja þá er loksins komið að því að ég gefi mér tíma til að setjast niður og koma sauðburðar
blogginu niður. Sauðburður byrjaði mjög skart og það var mjög mikið að gera svo ég er 
núna fyrst að hafa tíma til að blogga. Það gekk mjög vel hjá okkur fyrstu dagana en svo 
komu auðvitað dagar sem ekki gekk vel og sérstaklega einn daginn þá misstum við 3 lömb 
í fæðingu sama daginn. Afleiðingin af því var mjög stór burður og eitt var afturfótafæðing.
Eitthvað bar svo á því að það komu dauð og úldin fóstur sérstaklega hjá þrílembunum.
í heildina voru 10 sem drápust á sauðburði hjá okkur og Jóhönnu og 6 fóstur.
152 lömb eru alls hjá okkur.
82 hrútar
70 gimbrar
Við höfum aldrei átt jafnmikið af mislitum lömbum eins og núna í ár.
Mórautt 7
Móflekkótt 5
Mókápótt 1
Móhosótt 1
Móbotnótt 1

Svartflekkótt 8
Golsótt 4
Svartgolsubotnótt 2
Svartbotnuflekkótt 1
Svartbotnótt 9
Svart 8
Grábotnótt 2
Grá 3

Tók saman að ganni hvað hver hrútur á mikið af lömbum.

Partur 2
Bergur sæðishrútur 4
Klettur sæðishrútur 8
Móri sæðishrútur 6
Gutti sæðishrútur 6
Tvistur sæðishrútur 2
Bjartur sæðishrútur 6
Drangi sæðishrútur 1
Ísak 10
Askur 15
Kaldnasi 8
Móri 11
Glámur 6
Grettir 15
Svanur 20
Kraftur 8
Hlúnkur 7
Láfi hans Óla 2
Knarran frá Bárði 3
Skjöldur frá Bárði 2
Bónus frá Bárði 2
Bliki frá Bárði 3

Þá er það upptalið og á myndinni hér fyrir ofan má sjá hrútana frá okkur og Sigga í Tungu.

Bifröst með sæðinga undan Gutta.
Bakstur fyrir sauðburðinn.
Stelpurnar að hjálpa til við að baða lamb sem á að venja undir.
Magga Lóa kom með hrút og gimbur alveg dökkmórauð.
Kolfinna er undan Myrkva sæðishrút og hún kom mér skemmtilega á óvart og kom með
mókápótta gimbur. Hún fékk með Blika hans Bárðar sem er svartflekkóttur hrútur.
Þennan lit fann ég í Kaupfélaginu í Borgarnesi og verður hann klárlega notaður til 
ásettnings í haust. Skærbleikur eins og mér finnst svo fallegur.
Eftirréttur í tilefni að sauðburður sé hafinn.
Kvika með tvo hrúta undan Klett sæðishrút.
Embla og Aníta.
Þráinn bróðir Anítu var alveg dolfallinn fyrir Kaldnasa hrútnum okkar.
Embla Marína, Freyja Naómí og Benóný Ísak með móflekku.
Aníta,Freyja,Embla og Bergrún.
Stelpurnar alveg í essinu sínu með öll lömbin. Hér eru minar stelpur og tvær vinkonur
þeirra Aníta og Freydís.
Ég fékk svo loksins drauma litinn minn móhosótta með krónu og gimbur. Ég var alveg
í skýjunum með hana því miður drapst hrútur á móti henni í fæðingu en hann var mórauður.
 
Falleg lömbin hjá Þoku undan Grettir. Grettir er Máv sonur hjá Sigga í Tungu.
Kindurnar fengu góða aðstöðu inn í Hlöðu þegar fór að þrengjast inn í húsum vegna 
leiðinda veðurs og því var ekki hægt að henda neinu beint út strax. Stelpurnar voru mjög
ánægðar með það að hafa þær í hlöðunni og leika við lömbin.
Hér sést aðstaðan inn í hlöðu.
Sarabía með sæðisgimbur undan Móra og svo var vaninn undir hana svartur hrútur undan
Sölku.
Skvísa með þrílembingana sína þrjár gimbrar undan Klett sæðishrút.

Gola hans Sigga í Tungu með þrílembingana sína undan Berg sæðishrút.
Von með þrilembingana sína undan Móra sæðishrút einn var vaninn undir Móru hans Sigga.
Þessi eyglótti er þriðja lambið frá Von og svo á Móra hans Sigga þessa mórauðu gimbur
og hún er líka sæðingur undan Móra. Það var hrútur á móti henni sem var ný dauður fyrir
kanski einum til tveim dögum.
Dúfa hennar Jóhönnu með tvo hrúta undan Móra sæðing.
Freyja með Hröfnu sína en hún er geld í ár hún gekk upp á öðru gangmáli allt í einu og 
hefur svo greinilega ekki haldið.
Jæja loks var útilit fyrir að geta hent stóru hrútunum út.
Þeir gáfu mér ekkert myndefni í ár og fóru ekkert að fljúast á heldur bara allt í róleg heitum.

Það eru svo myndir af þessum hluta sauðburðsins hér inn í þessum tveim hér og hér.

Freyja og Magga Lóa.
Svakalega dökk mórauð og falleg undan Möggu Lóu.
Móflekka hjá Glóð gemling að stækka vel.
Krúttleg gimbur undan Móra sæðishrút.
Freyja og Dröfn.
Fjárhúsin í Tungu.
Siggi að reka hrútana út úr túninu svo við getum farið að sleppa lambrollunum út í tún.
Hér má sjá Drjóla hans Sigga sem er undan Hæng sæðishrút svo Askur sá golsótti undan
Kalda og fyrir aftan hann er Ísak sem er frá mér undan Tvinna heimahrút. Korri hans Sigga
er undan Garra svo kemur Grettir hans Sigga sem er undan Máv sæðishrút frá okkur.
Sá kollótti er Kaldnasi og er undan Magna sæðishrút.
Jæja þetta skeður hægt þetta vor en það er allavega farið að grænka vel inn í Mávahlíð.
Hérna fer Von út með sæðingana sína undan Móra.
Skvísa með gimbranar sínar undan Klett hún var með þrjár ein var vanin undan henni.
Gló með lömbin sin undan Svan okkar.
Gurra gemlingur með lömbin sín undan Hlúnk hans Sigga.
Villimey með lömbin sín undan Ísak.
Nál með lömbin sín undan Tinna hans Gumma Óla.
Bifröst með lömbin sín undan Gutta sæðishrút.
Árás með lömbin sín undan Gutta sæðishrút.
Urður með lömbin sín undan Gutta sæðishrút.
Kvika með lömbin sín undan Klett sæðishrút.
Dúfa með boltana sína undan Móra sæðishrút.
Salka var með þrjú eitt var vanið undan henni. Hún er með lömb undan Móra hans Sigga.
Orabora með gimbur undan Kraft.
Magga Lóa með mórauðu lömbin sín undan Móra hans Sigga.
Eldey með móhosu undan Knarran hans Bárðar.
Kolfinna með sín undan Blika hans Bárðar.
Ísól með hrút og gimbur undan Bjart sæðishrút.
Ýr með lömbin sín undan Bjart sæðishrút.
Svana með lömbin sín undan Part hans Bárðar.
Hrifla með lömbin sín undan Tvist sæðishrút.
Móra hans Sigga með fósturlamb undan Von og Móra sæðishrút og svo mórauða gimbur
sem hún á undan Móra líka.
Skessa hans Sigga með gimbrina sína undan Ask og fósturlamb frá okkur sem er 
undan gemling sem var svo vitlaus að hann vildi ekki sjá lambið sitt.
Litla Gul hans Sigga með gimbur undan Ask og svo fóstrar hún fyrir okkur gráan hrút
undan Skuggadís og Klett sæðishrút.
Grána hans Sigga með tvær gimbrar undan Bjart sæðishrút.
Mikki hennar Jóhönnu svo fallegur.
Hér er örn að svífa yfir það hefur verið mjög mikið um þá núna undan farið og hefur sést
til þeirra 6 saman. Maður hefur pínu áhyggjur yfir því að sleppa lömbunum út því þeir
gætu léttilega tekið þau þegar þau eru fyrst að koma út.
Áfram heldur burður og hér er Bræla með hrút og gimbur undan Kraft.
Stelpurnar með eina botnugolsótta gimbur.
Ísbrá hennar Jóhönnu þurfti að fara í keisara hún fór aldrei almennilega af stað og við
komumst ekkert inn í hana hún opnaði sig ekki.Þá kom í ljós að lömbin voru dauð inn í 
henni fyrir kanski 4 til 7 dögum síðan og þá gerist ekkert.
Fíóna var sónuð með þrjú en kom með 2 og eitt úldið. Þau eru undan Ísak.

Það má svo skoða fleiri myndir af þessum hluta hér inn í albúmi.

Seinni Hluti sauðburðar 

Það gerði svo slæmt veður enn og aftur og við rákum allt inn í hlöðu aftur.
Við höfum aldrei séð lömbin eins gæf eins og í ár þau eru nánast öll spök.
Hér eru stelpurnar að nálgast Hnotu út á túni.
Ég er svo hrifin af gráu gimbrinni undan Móra sæðishrút.
Öskubuska með hrút og gimbur undan Ask.
Stærðar þrílembingar undan Hrímu og Svan. Svanur er lambhrútur hjá okkur undan Máv.
Ég alveg dýrka þessa móbotnóttu gimbur undan Eik og Móra hans Sigga hún er svo
rosalega gæf að ég fæ engan frið þegar ég er að sópa grindurnar.
Skemmtilega mikið af móruðu hjá okkur núna hér eru tveir hrútar undan Mónu Lísu og 
Móra hans Sigga.
Móheiður er með tvo hrúta einn móflekkóttan og svo hvítan undan Kaldnasa.
Svo gaman þegar þær eru svona gæfar hér er Vaíanna hennar Emblu og Dollý hans Sigga.
Freyja og Gribba hans Sigga sem er gemlingur og er búnað vera svo stygg við Sigga í 
vetur en liggur svo killiflöt fyrir Freyju og leyfir henni að klappa sér.
Birgitta frænka kom í heimsókn að kíkja á lömbin sín undan Snotru.
Náði skemmtilegri hoppmynd af gimbrinni hennar Mjöll hans Sigga.
Gimbur undan Botnleðju sú botnótta og svo flekkótt gimbur undan Þoku.
Gimbrin undan Mjöll hans Sigga og svo undan Þoku.
Gimbur undan Gersemi og Ask.
Mikil litadýrð í þessari kró.
Þetta krúttlega lamb er tvílembingur undan gemling og var vanið undir stærstu rolluna í 
húsinu sem missti lambið sitt he he og það er mjög fyndið að sjá þau saman. Hún alveg
elskar þetta litla fósturlamb sitt og flóð mjólkar því svo það verður spennandi að sjá 
stærðina á því í haust.
Mjallhvít með hrút og gimbur hún var sónuð með þrjú en eitt kom úldið fóstur.
Morgunstjarna með gimbur og hrút undan Grettir.

Það eru svo fleiri myndir hér af þessum hluta.


Jæja sauðburðar lok nálgast

Freyja með vinkonur sínar Vaíönnu og Möggu Lóu.
Ég hef miklar trú á þessum svarta hrút undan Zeldu og Kraft hann fæddist alveg 
ofboðslega þykkur og mikill eins og sjá má á myndinni svo það verður spennandi að sjá
hann í haust hvernig hann stigast.
Ekki skemmir heldur fyrir hvað hann er rosalega gæfur eins og flest lömbin eru og það
er svo yndislegt og svo gaman fyrir krakkana þegar kindurnar eru svona gæfar.
Embla og Benóný með fallega botnuhosótta gimbur í sófanum.
Krakkarnir ánægðir í sveitinni hjá ömmu Freyju og afa Bóa með hænu ungan sem þau 
voru unga út.
Eini unginn sem kom úr útungunarvélinni hjá þeim sem þau keyptu af Aliexpress en 
það er líka spurning hvort haninn sé ekki nógu frjór.
Skrýtla kom með móflekkótta hrúta undan Tinna hans Gumma Óla.
Tunga með hrútinn sinn undan Bjart sæðishrút hann á eftir að verða flottur.
Dröfn með þrílembingana sína undan Berg sæðishrút en eitt var vanið undan henni.
Eik að fara út með flottu gimbrina sína.
Þoka með flottu lömbin sín undan Gretti.
Ófeig með þrílembingana sína undan Móra hans Sigga.
Tala með lömbin sín undan Grettir.
Hexía með lömbin sín undan Ísak.
Næla með lömbin sín undan Svan.
Rósa með hrútinn sinn.
Fía Sól með gimbrar undan Ask.
Gemlingarnir komnir út með lömbin sín.
Hríma með þrílembingana sína það var eitt vanið undan henni.
Rakel gemlingur með lambið sitt undan Glám hans Sigga.
Skuld með lömbin sín undan Hlúnk.
Pæja með hrútana sína undan Kraft.
Bræla með sín lömb undan Kraft.
Þá er seinasta kindin komin út það er hún Sunna gemlingur með lömbin sín undan
Glám hans Sigga.

Jæja þá held ég að þetta sé nokkurn veginn komið hjá mér í bili og hér er restin af 
myndunum í albúmi.
  • 1
Antal sidvisningar idag: 376
Antal unika besökare idag: 122
Antal sidvisningar igår: 1079
Antal unika besökare igår: 260
Totalt antal sidvisningar: 727145
Antal unika besökare totalt: 48355
Uppdaterat antal: 7.5.2024 07:19:19

Um okkur

Namn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Mobilnummer:

8959669,8419069

MSN användarnamn:

Disa_99@hotmail.com

Födelsedag:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Postadress:

Stekkjarholt 6

Plats:

355 Ólafsvík

Telefonnummer hem:

4361442

Om:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Länkar

Länkar

Länkar