Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

06.08.2016 01:54

Verslunarmannahelgin

Áttum frábæra verslunarmannahelgi í Reykjavík. Við fengum lánaða íbúðina hjá
Magga bróðir og Erlu því þau voru út í útlöndum.

Við fórum auðvitað í sund á hverjum degi fyrst var það Laugardalslaugin svo kíktum
við í fyrsta sinn í Nauthólsvík með Steinari og Unni og krökkunum og það var 
mjög gaman við grilluðum svo öll saman með Dagbjörtu, Kjartani og krökkunum 
þeirra heima hjá Steinari og Unni.

Fjör í Nauthólsvíkinni.

Kíktum á Suðurnesið og fórum á Garðskaga og kíktum á lítið kaffihús sem er inn í 
Vitanum ekkert smá flott.

Næst á óskalistanum hjá Benóný var að fara í sund í Garðinum og það var æðisleg
sundlaug og Benóný fannst rennibrautin æði og talaði um að þetta væri skemmtilegasta
rennibraut í heimi he he. Það eru súper meðmæli hjá honum sem hefur prófað þær
mjög margar hér á landi sem og í Tenerife.

Fórum svo í heimsókn í Vogana í leiðinni til Júlíu systir mömmu og Helga og þau eiga
rosalega skemmtilegan Ævintýragarð eins og sjá má og krakkarnir voru svo ánægðir
að fá að setjast á þennan flotta hest.

Hér er svo strákurinn sem er alltaf í fýlu á bekknum og var fundinn upp hjá Helga
af syni þeirra sem alltaf var í fýlu og auðvitað skelltu krakkarnir sér á bekkinn og fóru
í fýlu með fýlupokanum.

Hér er svo karlinn sem fylgist með hverfinu og hreyfir hausinn framm og aftur.

Hérna erum við svo komin í Húsdýragarðinn.

Þau fengu öll að prófa fara í boltana og fljóta á vatninu.

Benóný og Embla.

Freyja

Steinar og Birgitta.

Unnur og Alexander.

Það var svo farið í sund í Mosfellsbæ og Kópavogi hina dagana.
Veðrið var frábært hjá okkur allann tímann 19 til 20 stiga hiti og sól alveg geggjað.

Ég og Emil fengum svo að skella okkur í bíó og Dagbjört og Kjartan 
pössuðu fyrir okkur svo góð. 
Það var mjög gaman að komast aðeins tvö út.

Það eru svo fleiri myndir af þessu öllu saman hér inn í albúmi.

Flettingar í dag: 457
Gestir í dag: 34
Flettingar í gær: 1566
Gestir í gær: 78
Samtals flettingar: 715412
Samtals gestir: 47177
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 12:55:56

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar