Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

Færslur: 2012 Október

30.10.2012 10:01

Ásettningsgimbrarnar 2012

Drífa 12-018 er í eigu Dísu og er undan Laufey gemling og Frey hans Bárðar.
Þungi 48 ómv 27 ómf 4,3 lag 3,5 framp 8,5 læri 17,5 ull 9

Hrifla 12-005 er í eigu Dísu og er undan Hlussu og Hriflon sæðishrút.
Þungi 49 ómv 30 ómf 2,9 lag 4 framp 8,5 læri 18 ull 8.

Hosa 12-006 er í eigu Dísu og er undan Topp og Dóru. 
Þungi 44 ómv 29 ómf 3,8 lag 4 framp 8,5 læri 17 ull 7,5.

Mjallhvít 12-007 er í eigu Emils og er undan Frigg gemling og Storm Kveiksyni.
Þungi 54 ómv 33 ómf 3,6 lag 5 framp 9 læri 18 ull 9.

Dröfn 12-008 er í eigu Dísu og er undan Guggu og Hróa sæðishrút.
Þungi 47 ómv 31 ómf 2,9 lag 4 framp 9 læri 17,5 ull 7,5.

Sigurrós 12-009 er í eigu Emils og er undan Móheiði og Sigurfara sæðishrút.
Þungi 44 ómv 30 ómf 5 lag 4 framp 9 læri 17 ull 7,5.

Mist 12-010 er í eigu Bóa og Freyju og er undan Nínu og Brimill Borða syni.
Þungi 46 ómv 32 ómf 4,1 lag 4,5 framp 9 læri 17,5 ull 9.

Hyrna 12-011 er í eigu Bóa og Freyju og er undan Hrímu og Snævari sæðishrút.
Þungi 47 ómv 32 ómf 3,8 lag 4,5 framp 9 læri 18,5 ull 9.

Hrafna 12-012 er í eigu Bóa og Freyju og er undan Flekku og Sváfni frá Hraunhálsi.
Þungi 47 ómv 27 ómf 3,4 lag 4 framp 8,5 læri 17,5 ull 8.

Sumarrós 12-013 er í eigu Bóa og Freyju og er undan Kápu og Grábotna sæðishrút.
Þungi 56 ómv 30 ómf 6,5 lag 4 framp 8,5 læri 17,5 ull 8.

Maístjarna 12-014 er í eigu Bóa og Freyju og er undan Stjörnu og Týr Mánasyni.
Á eftir að fá stigun hjá Maju.

Glódís 12-015 er í eigu Bóa og Freyju og er undan Skuggadís og Brimill Borðasyni.
Þungi 47 ómv 31 ómf 2,5 lag 4,5 framp 9 læri 18 ull 8,5.

Silla 12-016 Graslambið hans Bóa sem er undan Birtu og Brimill.

Gjöf er í eigu Óla hennar Maju systir og er undan Gaga og Mola hún er eina gimbrin sem þau setja á. Á eftir að fá stigun hjá Maju.

Þessi átti að vera með í ásettningshópnum en skilaði sér ekki heim og ég sé gríðalega eftir henni hún var á móti hinni flekkóttu þrílembingur undan Topp og Dóru 
og auðvita var hún betri helmingurinn það er alltaf þær sem koma ekki.
Þungi 45 Ómv 34 ómf 3,2 lag 4 framp 9 læri 17,5 ull 7,5.

Það eru svo myndir af þessum gimbrum og fleira inn í albúmi og gimbrunum hans Sigga í Tungu og set ég þær næst hér að framan en mig vantar bara fleiri upplýsingar um þær. Ég er búnað búa til link hérna hægra megin í horninu sem heitir gimbrar 2012. En hér eru myndirnar með því að smella hér.


Hér eru Freyja og Bóa með barnabörnin það vantar bara Benóný hann var í fýlu og vildi ekki vera með
Hér til vinstri er Jóhann sonur Dagbjörtu systir Emils svo kemur Freyja með Birgittu dóttur Steinars yngsta bróður Emils og svo Eyrún sem er dóttir Jóhanns elsta bróður Emils og við hlið hennar er bróðir hennar Jakob svo kemur Bói með Emblu okkar og síðan Emelía sem er dóttir Dagbjartar.
Já þetta er sko flottur hópur og svo eiga 2 ný eftir að bætast í hann í desember því þá kemur eitt hjá Emil í viðbót og líka hjá Jóhanni elsta bróður Emils. Ég er sett 19 des og hún Þorhalla hans Jóhanns 20 svo þetta verður spennandi.

Svakalegt stuð með kisu sem fékk nafnið Myrra. Henni leiddist ekki að láta keyra sig í traktrornum
en var þó fljót að stökkva úr he he. Það eru svo myndir af Benóný og Emblu og fleiru með því að 
smella hér.

21.10.2012 00:22

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi 2012

Hér tekur Guðný Gísladóttir frá Dalsmynni við farandsskjöldinum frá Lárusi fyrir besta lambhrútinn 2012.

Hér má sjá vinningshafana fyrir hvítu hyrndu hrútana ásamt ráðanautunum.
1. sæti Dalsmynni
2. sæti Fáskrúðabakki
3. sæti Óttar Kjalvegi


Hér er mynd af efsta hrútnum í hyrnda flokknum en hann er hér á endanum og er númer 78  og Guðný Gísladóttir frá Dalsmynni heldur í hann. 
Hann er undan Borða syni sem heitir Ásbjörn nr 11-004.

Stigun hans hljóðaði svona : 
Þungi 53 fótl 111 ómv 37 ómf 4,3 lag 4,5

8 9 9 9 8,5 18,5 7,5 8 8 Alls 85,5 stig.

Í öðru sæti var hrútur númer 12 frá Fáskrúðabakka undan Blakk 07-865

Stigun hans hljóðaði svona :
Þungi 51 fótl 112 ómv 37 ómf 2,6 lag 5

8 8,5 9 9 9 18 8 8 8,5 Alls 86 stig.

Í þriðja sæti var hrútur númer 126 frá Óttari á Kjalveg undan Klett Kveiksyni.

Hér er mynd af honum og stigun hans hljóðaði svona :
Þungi 48 fótl 108 ómv 36 ómf 2,9 og lag 5

8 8,5 8,5 9 9,5 19 7,5 8 8,5 Alls 86,5 stig.


Vinningshafar fyrir bestu kollóttu hrútana 2012.
1. sæti Hraunháls
2. sæti Hjarðafell
3. sæti Óli Tryggva Grundafirði


Í fyrsta sæti kollótta var hrútur númer 158 frá Hraunhálsi og er það örugglega annar hvor
þessara hrúta sem þau Eyberg og Lauga halda í. Þau vonandi kommennta fyrir okkur hvor það er sem vann. Hann er undan Lumbra 07-445 frá þeim.

Stigun hans hljóðaði svona :
Þungi 48 fótl 112 ómv 34 ómf 4,5 og lag 4,5

8 8,5 8,5 9,5 9 18 8 8 8,5 Alls 86 stig.


Hér er frá Hjarðafelli hrútur númer 414 held ég allveg örugglega sem varð í 2 sæti.
Hann er undan Snær 10-761.

Stigun hans hljóðaði svona :
Þungi 43 fótl 108 ómv 32 ómf 2,7 og lag 5

8 8 8,5 9,5 9 18 9 8 8,5 Alls 86,5 stig.

Í þriðja sæti var hrútur númer 11 frá Óla Tryggva undan Búra 10-601 og náði ég ekki mynd
af honum.

Stigun hans hljóðaði svona :
Þungi 49 fótl 105 ómv 30 ómf 4,3 og lag 4

8 9 9 8,5 9 18 8,5 8 8,5 Alls 86,5 stig.


Vinningshafar fyrir bestu mislitu hrútana 2012.
1. sæti Hraunháls
2. sæti Mýrdalur
3. sæti Minni Borg


Hér er sá svarti númer 163 frá Hrunhálsi undan Sváfni 11-441 besti misliti hrúturinn 2012.
Það ber að nefna að Sváfnir var einnig besti misliti hrúturinn 2011 glæsilegir gripir.

Stigun hans hljóðaði svona :
Þungi 51 fótl 111 ómv 32 ómf 2,7 og lag 4,5

8 8,5 8,5 9 9 18,5 8 8 8 Alls 85,5 stig.


Í öðru sæti var hrútur númer 23 frá Mýrdal undan At. Held allveg örugglega að það sé þessi hér annars verðið þið bara leiðrétta mig.

Stigun hans hljóðaði svona :
Þungi 56 fótl 110 ómv 33 ómf 4,3 og lag 5

8 9 8,5 9 8,5 18 8 8 8,5 Alls 85,5 stig.

Í þriðja sæti var hrútur númer 598 frá Minni Borg undan Hring 11-151.

Stigun hans hljóðaði svona :
Þungi 50 fótl 103 ómv 35 ómf 3,8 og lag 4

8 9 9 9 9 18 8 8 8 Alls 86 stig.


Hér eru efstu 5 í mislitaflokknum vestan girðingar og ég held að sá ljósgrái sé þessi sem var í þriðja sæti. Ég var mjög ánægð að ná Topps syninum mínum í topp 5 það er þessi gráflekkótti sem Kristinn bæjarstjóri var svo vænn að halda í fyrir mig.


Pínu hreyfð þessi mynd hjá mér en þetta eru vinningshafar yfir efstu ærnar í kynbótamati
á Snæfellsnesi fæddar 2007.

1. Von 07-378 frá Jörva. Einkunn 116,3. Faðir Erpur 919 frá Heydalsá.

2. 07-084 frá Bergi.Einkunn 115,5. Faðir Hrollur Lásasonur 944.

3. Lóa 07-904 frá Bíldhól. Einkunn 114,5. Faðir Glanni Lásasonur 944.

4. 07-738 frá Hjarðafelli. Einkunn 113,3. Faðir Tvistur Álssonur 868 og móðurfaðir Fjarki
frá Hjarðafelli.

5. Höfuðlausn 07-069 frá Hraunsmúla. Einkunn 112,5. Faðir Skundi Lundasonur 945.


Ég óska öllum innilega til hamingju með þessa glæsilegu gripi og þakka fyrir 
skemmtilega sýningu. Það eru svo fullt af myndum af sýningunni  inni í myndaalbúmi fyrst er frá Haukatungu syðri 2 svo þið smellið bara hér með músinni og 
svo hér fyrir sýninguna á Gaul.


Svo að allt öðru það er búið að vera stússast með hundinn okkur Donnu því hún er byrjuð
á lóðarrýi. Það var byrjað með að fara með hana inn í Grundafjörð í hund þar en það var ekkert að ganga enda hann orðinn 10 ára gamall greyjið. Svo leitin hélt áfram og vorum 
við allveg komin á það að fara með hana til Reykjavíkur í hund hjá frænku minni en þá gerðist þau undur og stórmerki að Marta frænka fékk hugljómun og fattaði að það væri 
hundur á Bifröst þar sem hún er í skóla svo hún tók hana með sér þangað og fór með hana í hund sem heitir Askur.


Askur

Það hófst mikill leikur hjá þeim og ást en ekki náðu þau þó að festast saman þessa 2 daga sem Marta var með hana. Marta kom svo heim á fimmtudaginn og ákváðum við að gefa 
þessu lengri tíma og fá Ask lánaðan yfir helgina.

Það var allveg hrikalegt að sjá gredduna í Donnu he he hún var allveg þvílík klína við hann og reyndi meira segja sjálf að nauðga honum svo við vorum farin að halda að við þyrftum að stýra þeim saman en þá gerðist það loksins að ég heyrði svaka væl út á palli
og hljóp út og Bamm þau voru föst saman Jibbí.

Og það voru villtar ástir alla helgina og þau eru búnað festast 4 til 5 sinnum í allt yfir helgina svo nú er bara að bíða og vona að þetta hafi heppnast.


Það er svo líka komin nýr fjölskyldumeðlimur inn á heimilið. Steinar og Unnur fóru og skoðuðu fyrir mig kettling og mér leyst allveg rosalega vel á hann og þau komu með hann vestur til mín á föstudaginn. Hún var allveg rosalega hrædd fyrst en hún er öll að koma til.


Hér er svo kisa hún er blanda af skógarkött og venjulegum og er allveg rosalega sæt.
Nú er bara finna rétta nafnið á hana.

Já það er sem sagt búið að vera líf og fjör hjá mér um helgina. Emil er búnað vera á 
Skagaströnd í heila viku og verður þar áfram eins og spáin nær. Þeir eru búnað vera fiska
fínt frá 4 upp í 7 tonn á dag. Svo það er búið að vera svolítið strembið að vera ein með grislingana mína,hundana,kisu og þreytuna sem fylgir óléttunni. En það dreifir huganum að hafa nóg að gera og svo fékk ég smá tíma fyrir mig með því að fara á hrútasýninguna á föstudagskvöldið og í gær en maður verður samt alltaf aðeins dasaður eftir að standa svona lengi í köldum fjárhúsum en það var bara gaman.

Ég er líka búnað vera með Emblu í aðlögun hjá dagmömmunum og hún verður þar frá 8 til 12 svo þegar það er komið í gang þá fæ ég kanski að sofa loksins smá út Vá hvað mig
hlakkar til þegar það gerist. Ég er líka búnað vera standa í ströngu við að láta Benóný fara sofa í sínu rúmi sjálfan hann vill alltaf láta liggja hjá sér. En það er allt að koma. 
Núna sit ég bara á stól hliðina á honum og vonandi næ ég svo að sleppa því allveg því hann fór alltaf sjálfur að sofa og það var geðveikt nice en svo fór allt úr skorðum í sumarfríinu og ég hef ekki náð að leiðrétta það enn. 
Svo það er ekki seinna vænna en að fara koma því á rétt ról áður en næsta barn kemur sem styttist óðum. 
Er ekki bara hægt að hætta við núna he he þetta er allt of fljótt að líða. Já maður hugsar 
stundum Hvað var ég að hugsa að koma strax með þriðja 2 eru allveg meira en nóg ;) 
nei nei þetta verður bara gaman.

Jæja nóg komið í bili það eru svo myndir af Donnu og Ask og kisu í albúminu og myndir af Benóný og Emblu svo endilega kíkið hér.

09.10.2012 22:22

Kletts synir komnir saman og hænu ungar í Varmalæk.

Ég og Bói fórum rúnt nú í kvöld með hrútinn hans Sigga undan Klett og litla sílið hans Bóa til Bárðar í fóðrun og voru þá saman komnir 4 Kletts synir úr ræktuninni hans Óttars á Kjalvegi.
Við reyndum að stilla þeim flott upp og smella myndum af þessum gæða gripum sem eru hver öðrum fallegri og allveg einstaklega vel stigaðir og vel gerðir. 


Hér koma þeir allir saman hrúturinn hans Þórs svo hrúturinn hans Óttars og svo hrúturinn
hans Sigga og svo aftur hans Óttars. Það eru 2 með 19 í læri og einn með 18,5 og einn með 18. Allir yfir 30 í vöðva. Hans Óttars eru með 36 og 37 í ómv og allir eru þetta fituleysis hrútar. Já Óttar getur sko verið stoltur hrútaræktandi með þessa útkomu.
Hreint allveg glæsileg og það verður spennandi að sjá hvort það verði ekki bara Kletts
synir í uppröðun í ár á sýningunni.

Hér koma þeir aftur vantaði bara aðeins upp á að sá aftasti sæist betur.

Hér sést vel hversu gríðalega fylling er í lærum og mölum á þeim og það þarf ekki einu 
sinni að snerta til að sjá það.

Hér er hrúturinn hans Þórsa undan Klett og hann virkar ekkert smá fylltur og flottur. Það má svo finna fleiri myndir af þessum fallegu hrútum með því að smella hér.

Það er svo líf og fjör í Varmalæk hjá Freyju og Bóa því hænu ungarnir eru byrjaðir að koma úr útungurnar vélinni. Við fórum að skoða þá og Benóný var allveg sjúkur í þá en 
Embla var hálf smeik við þá.

Hér er vélin og allt að gerast .

Embla og Benóný að skoða.

Ekkert smá krútt. Það eru svo fleiri myndir af ungunum með því að smella hér.

Segjum þetta gott í bili 

Kveðja Dísa

08.10.2012 22:42

Lambhrútasýning 2012

 

Fékk þetta inn á fréttablaði búvest.


Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi

Föstudaginn 19. október í Haukatungu-Syðri 2 í Kolbeinsstaðahreppi og hefst klukkan 20.30

Laugardaginn 20. október á Gaul í Snæfellsbæ og hefst klukkan 13.00

 

Sauðfjáráhugafólk er hvatt til að mæta og fylgjast með sýningunum en það verður mikið spáð og þuklað. Verðlaunaafhending verður í lok sýningarinnar á Gaul.

 

Reglur vegna lambhrútasýningar á Snæfellsnesi

ü      Þetta er eingöngu sýning á lambhrútum.

ü      Hrúturinn verður að vera fæddur á Snæfellsnesi og því má ekki koma með hrúta sem eru aðkeyptir.

ü      Allir hrútar skulu hafa verið stigaðir, hrútarnir verða ekki stigaðir aftur heldur

verður stuðst við fyrri stigun.

ü      Nauðsynlegt er að koma með stigun hrútanna með á sýninguna. Ef það er ekki

gert er viðkomandi hrútur ekki með í sýningunni.

ü      Hvert býli má koma með 3 hrúta í hverjum flokki. Þ.e. 3 kollótta, 3 hyrnda, 3

mislita og ferhyrnda.

ü      Hrútar sem koma á sýninguna verða að ná 83 stigum, það á þó ekki við mislita

og ferhyrnda hrúta.

 

Hrútasýning Mýramanna

Lambhrútasýning verður haldin sunnudaginn 21. október í Lækjarbug og hefst hún kl. 13.00

Þar munu ráðunautar frá BV mæta og raða hrútunum. Ætlast er til hrútar hafi verið stigaðir fyrir sýningu. Þeir hrútar verða ekki stigaðir aftur heldur verður stuðst við fyrri stigun. Nauðsynlegt er að koma með stigun hrútanna með á sýninguna, að öðrum kosti verður viðkomandi hrútur ekki með í sýningunni. Hvert býli má koma með 2 hrúta í hverjum flokki, þ.e. 2 kollótta, 2 hyrnda, 2 mislita og ferhyrnda.

 

Kaffi og súkkulaðirúsínur á boðstólum! Nánari upplýsingar hjá Sigurjóni á Mel í síma 867 8108.

03.10.2012 12:01

Lambhrútar í fóðrun hjá Bárði

Föngulegir rassar í fóðrun hjá Bárði. Hrútur frá Óttari lengst til vinstri svo botnuflekkur sem ég og Bárður ætlum að eiga saman svo Topp sonur frá mér og Gosa sonur og svo Botni sem Óttar fékk hjá Sigga í Tungu. Já þeir hafa það sko rosalega gott hjá honum Bárði. 
Það eru svo myndir af ásettnings hrútunum okkar, Óttars og Bárðar hér inni.


Hér er litla sæta rúsínan hans Bóa sem Bárður var að bjóðast til að fóðra fyrir okkur í vetur því hann er með annað svona lítið samt aðeins stærra.

Nýji kynbóta hrúturinn hans Sigga í Tungu frá Óttari undan Klett. Hann er með 18 í læri og 1,8 í fitu svo nú ættum við að getað náð fitunni niður og bætt stofnin okkar með þessu afbragðsklettskyni frá Óttari.

Jæja sláturupplýsingarnar eru komnar hjá mér og er ég bara nokkuð sátt held ég miðað við að þetta var nú bara afgangur sem fór því við seldum öll þau bestu. 
Annars þarf ég aðeins að kynna mér þetta kann ekki allveg á þetta sláturmat.

Það voru 23 lömb sem fóru í sláturhús hjá okkur og voru þau með 19,6 í meðalþyngd 9,83 fyrir gerð og 7,78 fyrir fitu.

Ég ætla svo að koma því á framfæri að Birgitta kinda vínkona mín fékk allveg glæsilega útkomu hjá sér úr stiguninni og ef þið farið inn á síðuna hennar hér sjáiði gríðanlega sterkan bakvöðva og mikla þyngd. Já hún þarf sko ekki að fara langt til að kaupa góð lömb hún á allveg svakalega góðar og fallegar kindur og óska ég henni innilega til hamingju með glæsileg lömb.

01.10.2012 09:20

Týri kveður

Jæja nú er búið að slátra heima það var gert á laugardaginn og kom Raggi hennar Hafdísar til okkar með mann með sér og svo var Eva með litla prinsinn sinn og Jói kom með líka. Meðalvigtin af þessum 9 lömbum sem við slátruðum heima var 22,5 kíló.
Þyngsta rollan hún Aríel mín vigtaði 56 kíló ekkert smá skrokkur úff algjör synd.

Það gekk allt saman vel Maja, Bói og Siggi voru líka en ég gerði ekki neitt bara var með krakkana heima og kíkti svo á þau þegar það var búið. Þau fóru svo í mat til Gerðu og var það allveg til fyrirmyndar eins og alltaf, hún er allveg yndisleg.


Týri heimlingurinn í Tungu sem Siggi og Gerða eru búnað hugsa svo vel um í allt sumar kvaddi okkur í gær og fór með bíl á Hvammstanga. Það verður skrýtið að koma og hafa engan til að taka á móti sér og hrekkja. Hann átti það til að vera svo óþekkur og manneygður dóninn sá. Hans verður sárt saknað. Hann er undan Týru og Týr.

Það voru góðar rollur sem kvöddu að sinni og verður það mikil eftirsjá. Þar má nefna að Hlussa fannst dauð rétt fyrir smalamennsku en hún var besta rollan mín en ég set gimbrina hennar á sem er undan Hriflon og vona ég að hún erfi góðu genin frá móður sinni. Aríel Hlussu dóttir er ónýt og var hún látin fara algjör synd enda ung kind. Nína hans Bóa er líka jafn gömul Aríel fæddar 2008 og var hún allveg búin í fótunum og eitthvað hefur skeð fyrir hana því hún var svo lúin. 

Aríel og Nína eru báðar Jökuls dætur svo það fer að verða lítið eftir af hans stofni. Hríma besta rollan hans Bóa kvaddi líka en hún fékk svo heiftalega júgurbólgu í haust.
Þúfa tvævettla frá Bóa sem var afburðar kind kom tvílembd sem gemlingur og skilaði hörku gimbur sem var Týra en hún lést í vor eftir keisara af tvílembingum en aðeins annar lifði og var það heimalingurinn hann Týri. 

Týra var með 18 í læri og 32 í ómv og hrúturinn á móti henni var líka með 18 í læri og 84,5 stig ekki amaleg lömb tvílembingar undan gemling svo það verður að halda í þetta kyn fyrst Þúfa er að fara en ég á móðir hennar sem heitir Drottning og kom hún með 2 gimbrar núna en ég seldi aðra og hin var ekki nógu vel stiguð svo það verður að velja góðan hrút á Drottningu næsta ár.

Gulbrá hans Bóa var líka látin fara en hún var orðin eitthvað fótalúin svo það verða miklar endurbætur hjá Bóa í ár hann setur 6 gimbrar á og verða þær sjö með litla graslambinu.


Hér eru Þúfa og Aríel í hinsta sinn. Aríel er rosalega falleg kind og mun ég sjá svakalega eftir henni.


Var næstum búnað gleyma Týr Mána syni, karl greyjinu en hann kvaddi líka. Hann var barinn svo heiftarlega í vetur og náði sér aldrei almennilega og lá afskaplega mikið í sumar og var allveg búinn í fótunum á aftan svo hann var látinn fara.

Sláturbílinn kom í gær og sótti 23 lömb hjá mér og 9 hjá Sigga svo nú er bara komin pása á þessa vertíð. Bárður tók hrútana fyrir mig sem ég set á til að fóðra þá inni með sínum hrútum sem hann er búnað taka inn og á ég eftir að fara og taka mynd af þeim og einnig gullmolunum hans Óttars þeir eru líka inni hjá Bárði. 

Við erum núna með lömbin sem Birgitta fær inni og hrútinn hans Sigga sem hann fékk hjá Óttari og litla graslambið hans Bóa og lömbin fyrir Gígí og einn hrút sem verður tekinn í dag og eru þau í góðu yfirlæti. 

Jæja kveð að sinni en fer fljótlega og tek myndir af hrútunum ;)


  • 1
Flettingar í dag: 111
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 1721
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 660623
Samtals gestir: 45519
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 03:15:48

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar