Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

Færslur: 2018 Júlí

27.07.2018 01:13

Heyjað í Tungu og keyrt möl í veginn í Kötluholti.

Stelkur á staur inn í Tungu.
Ísak. Tvinna sonur.
Drjóli. Hæng sonur frá Sigga.
Grettir hans Sigga. Máv sonur.
Kaldnasi. Magna sonur.
Glámur. Saum sonur.
Askur tók til fótana. Askur er Kalda sonur.
Þeir voru að sniglast í túninu þegar við voru að heyja í Tungu en vildu þó ekkert tala við
mig og Benóný þegar við reyndum að nálgast þá.
Jóhanna búnað snú fyrir Sigga. Það var ansi hvasst í dag þegar Jóhanna var að snúa
en það lægði seinni partinn og þeir byrjuðu að rúlla klukkan 5 og það gekk allt saman
hratt og vel fyrir sig.
Drífa með hrút undan Svan og fóstrar hrút fyrir Hrímu hennar Jóhönnu og hann er líka
undan Svan.
Flottir feðgarnir saman í lyftaranum að fara ná í möl.
Það þurfti að fylla í gras veginn í Kötluholti svo við kæmumst niður eftir til að sækja
rúllurnar og keyra þær á vörubíl upp í Tungu. Emil og Bói náðu að keyra talsvert í 
veginn í kvöld en svo verðum við að keyra rúllurnar bara í rólegheitum á morgun.
Skrúfa hans Sigga með lömbin sín undan Drjóla.
Snúlla gemlingur hennar Jóhönnu með hrútinn sinn undan Kaldnasa.
Þeir feðgar lagðir af stað.
Fíóna með lömbin sín undan Ísak.
Urður með hrútana sína undan Gutta sæðishrút.
Botnleðja með boltana sína undan Ask.
Nútella með lömbin sín undan Glám.
Gimbrin.
Hrúturinn.
Flottar mæðgur Nútella og gimbrin hennar.
Frenja með hrútana sína undan Ask. Hinn er botnóttur og er bak við þann hvíta.

jæja Siggi fékk 13 rúllur af túninu heima hjá sér og þeir kláruðu það í kvöld.
Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi.

27.07.2018 00:22

Heyjað í Kötluholti og ný lömb sjást.

Ljósbrá með hrútinn sinn undan Dranga sæðishrút og svo með gimbur sem gengur 
undir henni og er þrílembingur undan Dröfn og Berg sæðishrút.
Skrúfa hans Sigga með lömb undan Drjóla.
Frá Sigga Storð með gimbur undan Drjóla og svo eru tvær gimbrar undan Fönn og Hlúnk.
Sarabía með hvíta gimbur undan Móra sæðishrút og svo er svartur hrútur undan Sölku
sem gengur undir henni.
Jökulrós með lömbin sín undan Kaldnasa.
Gimbur undan Gersemi og Ask.
Hrúturinn á móti.
Hyrna með hrútinn sinn undan Bjart sæðishrút.
Hér sést hrúturinn betur.
Flottir hrútarnir hennar Skrýtlu og undan Tinna hans Gumma Óla.
Ég komin á gamla flotta Zetorinn og er að fara snúa inn í Kötluholti.
Emil að snúa. Lýst ekkert á útlitið er svo hræddur við rigninguna sem vofir yfir.
Skessa hans Sigga.
Gimbrin hennar Skessu sú golsótta og svo er hrútur undan Sprengju gemling sem 
gengur undir. Hann er undan Tinna hans Gumma Óla.
Undan Frenju og Ask.
Emil að rúlla inn í Kötluholti.
Allt á fullu til að vera á undan rigningunni og það hafðist leið og seinasta rúllann kom
út úr rúlluvélinni þá byrjaði að rigna. Þetta var á miðvikudagskvöldið.
Bói að raka saman.
Siggi að plasta.
Hann var orðinn ansi þungur yfir en sem betur fer beið hann eftir okkur með að fara
rigna og þegar við fóru yfir á hitt stykkið þá sneri ég á meðan þeir rúlluðu.
Við fengum 23 rúllur af fyrsta stykkinu og 4 af litla og 25 af stóra stykkinu hér fyrir ofan.
Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi.


26.07.2018 22:57

Heyjað í Fögruhlíð og fleira

Verið að tættla heyjið inn í Fögruhlíð.
Emil að raka saman fyrir framan sumarbústaðinn hjá Gunna Óla og Ástu í Fögruhlíð.
Rákumst á Hrímu hennar Jóhönnu og gáfum henni brauð.
Björg gemlingur með hrútinn sinn undan Ask og Morgunstjarna hennar Jóhönnu með 
gimbrar undan Gretti.
Gurra gemlingur með lömbin sín undan Hlúnk.
Morgunstjarna.
Björg gemlingur með hrútinn sinn.
Hríma hennar Jóhönnu með lömbin sín.
Krakkarnir fundu þennan fína sílapoll til að veið síli.
Hér erum við búnað raka frá Spóa hreiðri sem þeir voru næstum búnað slá en tóku 
eftir því sem betur fer og skildu það eftir.
Hér eru þeir.
Hér eru krakkarnir með ungan voða gaman.
Botnleðja með lömbin sín. Mér finnst þau virka svo geðveikt þykk og falleg.
Þau eru undan Ask.
Gimbur undan Villimey og Ísak.
Urður með hrútana sína undan Gutta sæðishrút.
Gimbur undan Fíónu og Ísak.
Hrúturinn á móti.
Bói að koma með gamla djásnið fyrir mig svo ég geti farið að tættla í Kötluholti.
Hrútur undan Hnotu hennar Jóhönnu og Berg sæðishrút og gimbrin er undan Skvísu
og Klett sæðishrút.
Dúfa hennar Jóhönnu með hrútana sína undan Móra sæðishrút.
Svo flott.
Hinn hrúturinn.
Lömb undan Snædrottningu og Svan.
Hér er Snædrottning.
Grár hrútur frá Sigga.
Hinn á móti.
Hláka hans Sigga með lömb undan Gretti.
Flottir hrútar frá Sigga ég náði ekki að sjá hvaða rolla þetta væri.
Héla gemlingur frá Sigga með lömbin sín undan Glám. Þau ganga bæði undir.

Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi.

Það gekk vel hjá okkur að heyja í Fögruhlíð en það voru frekar blaut túnin. 
Það voru 38 rúllur á Fögruhlíðar Eyrunum og 6 rúllur af litla stykkinu við 
afleggjarann upp Fögruhlíð.

25.07.2018 00:13

Öskubuska í sjálfheldu

Það skall heldur betur hurð nærri hælum hjá henni Öskubusku í gær. Við vorum á leiðinni að
fara inn í Fögruhlíð að slá þegar við rákum augun í Öskubusku út í miðjum Ós niður við Tungu.
Þarna sjáiði hana á eyrinni eftir að ég var búnað öskra á hana en hún var á smá blett
þarna nær sem sést varla á þessari mynd en næsta mynd gefur til kynna hvar hún var.
Þar sem örin bendir þar stóð hún fyrst og það er ágætlega djúpt þar í kring svo þær 
þurftu að synda út í eyrina.
Hér er ég að reyna öskra á hana því oftast nær hefur það dugað þegar þær festast
þarna.
Jæja búið að sækja vöðlurnar og hér er Emil að klæða sig í.
Virkar glæfralega djúpt og ekki lengra kominn en þetta.
Þetta leit þó betur út en á horfðist því það eru svona hólar ofan í vatninu og það var
grunnt inn á milli. Emil komst alveg yfir og leið og hann var kominn upp á grasið þá synti
hún yfir í land svo allt endaði þetta vel.
Hér var Emil að græja tindana a tættluna. Þetta var tekið áður en við fórum að byrja heyja.
Emil og Bói að setja olíu á traktorana.
Búið að slá og snúa stóra stykkið í Fögurhlíð.
Hér er svo minna stykkið en það gefur yfirleitt vel af sér. 
Siggi að slá í Tungu.
Gemlingarnir hans Sigga með lömbin sín.
Emil og Bói að slá í Kötluholti.
Stelpurnar alsælar í sveitinni. Fundu smá sílapoll til að veiða síli voða gaman og veiddu
 11 síli.
Dásamlegt veður loksins.
Benóný alltaf kátur.
Nál með gimbrina sína og hin er fyrir aftan hana.
Villimey með gimbur undan Ísak.
Hrúturinn á móti.
Hrútur og gimbur undan Bifröst og Gutta sæðishrút.
Tunga með hrút undan Bjart sæðishrút.
Sami hrútur.
Dröfn með þrílembingana sína sem ganga tveir undir og eru undan Berg sæðishrút.
Dollý hans Sigga þessi kollótta er þarna með henni á myndinni.
Hér er önnur mynd af þeim.
Kvika með gimbur og hrút undan Klett sæðingahrút.
Önnur mynd af þeim.
Hrúturinn hennar Tungu og Bjarts sæðingarhrúts.
Smá prufu mynd af Donnu hún var alltaf fyrir þegar ég var að taka myndir.
Hér er hún svo blörruð og sólarlagið og kindurnar í fókus.

Jæja það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi.





24.07.2018 23:31

Útilega á Selfoss

Skelltum okkur í útilegu á Selfossi með Steinari , Unni og börnunum. Það var mjög gaman þó svo að það hafi verið rigning mest allann tímann. Við fórum í sund á Selfossi og kíktum í 
Slakka dýragarðinn. Vorum frá fimmtudegi til sunnudags.
Út að borða á KFC á Selfossi.
Freyja á KFC.
Benóný, þau fengu öll derhúfu voða lukkuleg.
Benóný að hafa það kósý í hjólhýsinu.
Emil með Emblu og Birgittu.
Fyrsta útilegan hjá Kamillu Rún Steinarsdóttur.
Á leiðinni í Slakka.
Í Slakka Freyja, Birgitta,Embla og Benóný.
Freyja með naggrís.
Embla með páfagauk.
Og Freyja og Birgitta.
Benóný lika með hann.
Hérna voru hvolpar.
Með kanínur.
Birgitta með einn á hausnum.
Alexander Ísar Steinarsson.
Embla var yfir sig hrifinn af þessari hænu.
Hér eru þær saman frænkurnar með hænuna.
Benóný í mínigolfi í Slakka.
Töff haninn í Slakka.
Hér endaði svo ferðalagið okkar í Slakka og þá lá leiðinn heim að fara heyja.
Benóný var ekki sáttur því hann átti eftir að fara í sund á Laugarland og Reykholt svo það
verður að bíða til næstu útilegu að fara í þær. Það var nefnilega sunnudagur þegar við 
vorum á ferðinni og þá loka sundlaugarnar svo snemma að við náðum ekki að fara í þær
þegar við vorum búinn í Dýragarðinum Slakka.

Það eru svo fleiri myndir af ferðalaginu okkar hér inn í albúmi.

19.07.2018 12:03

Rúntur 18 júlí

Jæja þetta hafðist hjá þeim að klára að binda allt heyjið. 
Þetta var frekar minna en fyrra en það voru 11 rúllur af Gilinu, Túnið hliðina á Gilinu eru 3, Hliðina á fjárhúsinu í Mávahlíð voru 7 og í Mávahlíðinni voru 13 svo alls voru þetta 34 rúllur. Það er svo ekki útlit fyrir að fara slá meira alveg strax því nú spáir hann áfram rigningu um helgina.
Hrútur undan Mjallhvíti og Hlúnk hans Sigga.
Hér er Mjallhvít með lömbin sín.
Næla.
Hrútur undan Svan og Nælu. 
Hinn á móti.
Hérna eru þeir saman virka vel þykkir og flottir.
Svakalega fallegur á litinn þetta er hrútur frá Gumma Óla í Ólafsvík.
Hitt á móti.
Hér er kindin hans Gumma með lömbin.
Glittir í lömbin hannar Þoku.
Hosa með sín lömb undan Grettir.
Hér sést önnur gimbrin betur.
Sóldögg með gimbranar sínar.
Önnur gimbrin hannar Sóldögg og Ísak.
Hin gimbrin hennar Sóldögg.
Undan Hexíu og Ísak.
Hin gimbrin á móti.
Hrútar undan Skrýtlu og Tinna hans Gumma Óla. Svo flottir.
Hér eru þeir.
Hér er Skrýtla mamma þeirra.
Litla Gul með hrút undan Skuggadís þennan gráa og svo gimbrina sína undan Ask.
Held að þessi golsótta verði svakaleg gimbur hún virkar rosalega þykk.
Hér er ein frá Gumma Óla.
Aðrar frá Gumma Óla.
Hér sést það betur.
Annað frá Gumma.
Frá Gumma.
Litla krúttið sem fær greinilega ekki mikið hjá rollunni.
Hér er litla sílið og svo hrútur og rolla frá Sigga.
Hér er Björg gemlingur með lambið sitt hún er einmitt mamma litla lambsins sem gengur
undir hjá hinni rollunni.
Þetta verður örugglega vænasta lamb hjá henni.

jæja læt þetta duga í bili af rollu rúntinum.
það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi.

18.07.2018 01:53

Heyjað langt framm á nótt

Það byrjaði ekki vel hjá okkur önnur rúllan sem átti að fara í plast fór ekki strax í plast heldur
affelgaðist dekkið á plastaranum. Alltaf svo gaman þegar byrjar allt á afturfótunum og þá 
er engin sem andmælir því að bölva því.
Hér má sjá dekkið en til allra lukku tók ekki mikinn tíma að tjakka upp vélina og Siggi og
Emil kipptu því undan og svo náðist að koma því á og setja meira loft í dekkið.
Ég byrjaði auðvitað á að plasta fyrstu rúlluna og fór af stað á traktornum og fattaði 
ekkert að horfa eftir því hvort væri lint í dekkinu eftir að hann væri búnað standa í 
geymslu yfir veturinn svo það hefur örugglega verið orsökin fyrir því að dekkið fór svona.
En engin skaði skeður fyrst þetta reddaðist svona fljótt.
Ég fór heim að hugsa um krakkana og Bói var búnað vinna og kom til að hjálpa.
Hér er verið að byrja. Siggi á plastaranum, Emil á rúlluvélinni og Bói á rakstrarvélinni.
Allt komið í lag og verið að rúlla Mávahlíðina.
Farinn að þykkna upp með kvöldinu.
Benóný og Embla dugleg að hjálpa til.
Byrjað í brekkunum í Mávahlíðinni.
Stelpurnar duglegar að merkja rúllur.
Túnin eru ansi blaut á ýmsum stöðum í ár.
Það var fjör í sveitinni hjá Freyju ömmu þennan langþráða sólardag.
Auðvitað var tekið myndir af lömbum sem við rákumst á í dag. Hér eru tveir hrútar 
undan Hriflu og Tvist sæðingar hrút.
Hér er hún Hnota hennar Jóhönnu að koma hlaupandi til krakkana eftir að þeir voru 
búnað hrista brauðpoka.
Svo gaman hjá þeim.
Hér eru lömbin hennar hrúturinn er sæðingur undan Berg og gimbrin er undan Skvísu
og Klett sæðingar hrút.
Hrúturinn undan Berg sæðingar hrút.
Þrílembingur undan Skvísu og Klett sæðingar hrút.
Vala hans Sigga með gimbur undan Korra.
Hrúturinn undan Völu og korra. Korri er Garra sonur.
Jæja náði loksins mynd af veturgömlu hrútunum hér er Svanur undan Svönu og Máv.
Hlúnkur hans Sigga undan Skessu og Máv.
Hér eru þeir saman.
Nál með lömbin sín undan Tinna hans Gumma Óla.
Bifröst með lömbin sín undan Gutta sæðingar hrút.
Hér er Nótt hans Sigga með hana Emblu eins og dóttir mín skírði hana he he.
Embla er þrílembingur undan Klett sæðingar hrút.

Jæja ég er að klára þetta blogg núna klukkan hálf 3 um nótt 18 júlí og enn er Emil ekki
kominn heim svo þeir eru enn að klára heyja og nú ætla ég að segja þetta gott og segi
bara góða nótt .

Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi.

17.07.2018 00:15

Þurrkað af krafti og sílaveiði með krakkana

Það var þurrkað og þurrkað heyjið í dag og túnin eru ansi blaut. Ég þurfti að raka heilmikið
af túnunum í Mávahlíð og fékk Freyju tengdamömmu með mér með krakkana. Hann er aftur
búnað breyta spánni og nú á hann að fara rigna á miðvikudaginn svo það verður reynt að
gefa allt í botn og binda það sem búið er að slá.
Emil að tættla.
Hér sést yfir Mávahlíðina og Siggi er að vinna við að skipta um þak með Jóni smið og 
Emil er svo að tættla þarna fyrir neðan við vaðalsbakkann.
Það hefði mátt vera aðeins meiri sól í dag en það rættist þó úr því þegar leið á seinni
partinn og þá kom líka gustur með þvi svo það hefur þurrkað vel.
Hérna er Bói að raka saman.
Það er mikið sport hjá krökkunum að fá að sitja í traktornum hjá Bóa afa en þar er spes
barnasæti.
Jæja nú er sólin loks farin að láta sjá sig. Hér er Alex stoltur í traktornum með afa sínum.
Alex er sonur Unnar og Steinars bróðir Emils og eru þau hérna fyrir vestan núna.
Hér er amma Freyja og Steinar að veiða síli með krökkunum.
Steinar, Bjarki og Alex.
Bjarki og Alex að skoða sílin.
Birgitta, amma Freyja, Embla og Alex.
Freyja og Alex.
Kamilla litla sú yngsta hjá Steinari og Unni fékk líka að koma með og var í bílnum hjá 
mömmu sinni.
Rakst á þessar gimbrar þær eru sæðingar undan Klett og Skvísu. Fæddir þrilembingar
en ganga tvær undir Skvísu.
Skvísu gimbrar og svo hrútur frá Sigga þessi hvíti og þetta litla botnótta var vanið 
undir og rollan tók því ekki alveg svo það sést á vextinum að það fær örugglega
ekki mikið að sjúga hana en fylgir henni.
Jæja læt þetta duga af bloggi í bili .

15.07.2018 21:55

Bjartsýniskast og byrjað að slá

Tókum sénsinn í gær og byrjuðum að slá. Siggi sló hjá sér og við slóum Mávahlíðina og svo
var bara látið liggja enda í bjartsýninni okkar þá rigndi hann eins og hellt væri úr fötu í dag.
En það var svo sem vitað en það spáir þurrk alveg fram á fimmtudag eins og spáin er núna
svo við urðum að taka sénsinn og byrja á einhverju enda langt liðið á júlí.
Emil og Siggi að græja tækin. 
Siggi byrjaður að slá í gær.
Það sést hér útsýnið yfir í Mávahlíð.
Siggi að slá.
Stóru hrútarnir fóru ekki langt í sumar og eru allir í túninu hjá Sigga.
Það er svo sem ágætt því þessi var í sjálfsmorðs hugleiðingum um daginn og var að
afvelta og Siggi sá til hans og gat velt honum við sem betur fer þetta er hann Kaldnasi sem
er svo mikið uppáhald hjá krökkunum og algert gæðablóð við alla og ekki skemmir fyrir
að hann kemur líka vel út og gefur falleg og vel gerð lömb. 
Korri hans Sigga hann er undan Garra sæðishrút og Svört hans Sigga.
Grettir hans Sigga hann er undan Máv sæðishrút.
Kaldnasi hann er undan Magna sæðishrút og Askur er undan Kalda sæðishrút.
Ísak er undan Tvinna heimahrút og Mjallhvíti.

Náði engum merkilegum lamba myndum núna en vonandi fer nú að haldast þurrkur hjá 
okkur svo hægt sé að ná að þurrka heyið sem er búið að slá og hefja heyskapinn af krafti.
Ég hef ekki náð myndum af lambhrútunum síðan við slepptum en þeir fóru eitthvað í burtu.

13.07.2018 19:33

Rúntur 11 og 12 júlí

Botnleðja með lömbin sín undan Ask. Hún og Skuggadís voru búnað koma sér í klípu
í gær þegar þær voru næstum búnað flæða í Tunguósnum en sem betur fer var ég 
látin vita af því svo ég gat keyrt inn eftir og flautað á þær þar sem þær voru út á einum
tanganum og þá föttuðu þær að stökkva í land áður en þær yrðu fastar.
Skuggadís með lamb frá Sigga sem var vanið undir hana.
Hrútur undan Svönu og Part.
Gimbrin á móti.
Hrúturinn hér aftur og er nú lagstur.
Nál með sín lömb undan Tinna hans Gumma Óla.
Birta gemlingur með hrút undan Glám.
Skessa hans Sigga með gimbur undan Ask og fósturlamb frá mér sem er undan Tinna
hans Gumma.
Hér er önnur mynd af lömbunum.
Bræla var upp í hlið með lömbin sín undan Kraft.
Rakel gemlingur með hrútinn sinn undan Glám.

Þetta var það eina sem ég náði á þessum rúnti að mynda. Svo í dag 13 júlí er grenjandi 
rigning og rok svo það er ekkert hægt að mynda núna.

09.07.2018 20:18

Rúntur 30 júní

Hér er Gláma hans Sigga held ég með hrút og gimbur undan Grettir.
Hér er svo Nótt hans Sigga með Gránu litlu sem er aldeilis búnað stækka. Grána greyjið
er þrílembingur undan Skuggadís og var Nótt þriðja mamman sem hún fékk.
Fyrst átti Skuggadís hana og var hún svo vanin undir aðra sem kom í ljós að hún var með
júgurbólgu svo hún var vanin undir Tungu sem var svo skappill og tók hana aldrei.
Svo bar Nótt og missti bæði lömbin sín í fæðingu og tók hún vel á móti Gránu litlu.
 
Orðin svo falleg. Hún er undan Klett sæðishrút.
Gribba hans Sigga búnað stækka sjálf og maður sér alveg mun á lömbunum síðan
ég tók mynd af henni seinast.
Snælda með hrút og gimbur undan Ísak.
Hér sjást þau betur.
Tveir hrútar undan Frenju og Ask.
Sunna gemlingur með lömbin sín undan Glám.
Fíóna með hrút og gimbur undan Ísak.
Falleg gimbur undan Fíónu og Ísak.
Frenja með lömbin sín undan Ask.
Verið að fljúga flugdreka í sveitinni hjá ömmu Freyju og afa Bóa.
Donna hundurinn okkar og Fiðla hundurinn hennar Freyju og Bóa.
Hestarnir eru komnir í sveitina hjá Freyju og Bóa.
Hænu unginn stækkar og stækkar.
Hér eru hinar hænurnar og haninn hann Marteinn og litli unginn er frekar feiminn að elta
þær og vill heldur elta okkur.
Máni.

Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi frá þessu.

06.07.2018 23:46

Lítið ættarmót hjá fjölskyldu Emils á Blöndósi hjá Aroni frænda hans.

Fyrsta útilegan 2018 var á Blöndósi í rigningu hvað annað það er nú búið að vera ansi
blautt og kalt hjá okkur veðrið þetta sumar og virðist ekkert ætla að rætast úr því.
En við látum það ekki á okkur fá og tökum þetta bara með jákvæðinni og drífum okkur af stað.
Freyja er alveg tilbúin í þetta í pollagallanum með regnhlífina.
Krakkarnir spiluðu krikket.
Karlarnir alveg með grillið á hreinu.
Þau eru alveg ótrúleg með pósið þessar krakkar hér er ein alveg óborganlega fyndin af
Bjarka Stein,Emblu Marínu og Freyju Naómí.
Flottir frændur.
Bergþórs og Dagmars afkomendur.
Og svo eru það makar systkynana og makar afkomenda og afkomendur.
Freyja tengdamamma og Jóhanna fallegar systur.
Jakob snillingur með afa klippinguna sína. Hann var duglegur að taka myndir fyrir mig
sem þið getið skoðað inn í albúmi hér.
Hér eru systurnar saman Dísa,Hrönn og Freyja.

Þetta var frábær helgi með frábæru fólki og alveg yndislegt að hittast svona heima hjá 
Aroni og Stínu í stóra fallega húsinu þeirra.

05.07.2018 23:29

Rollu rúntur 27 júní og síla veiði

Rakel gemlingur með hrútinn sinn undan Hlúnk.
Grýla hans Sigga með lömbin sín undan Glám.
Gurra gemlingur með lömbin sin undan Hlúnk hans Sigga. Hlúnkur er undan Máv og Svört.
Látum okkur dreyma um sumar og fórum inn í sveit að veiða síli en það eru bara engin
síli komin í þessum kulda en við veiddum 3 silunga seiði.
Þau nutu þess alveg í botn að skottast úti í náttúrunni og veiða.
Hosa með gimbrar undan Ísak.
Skuld 
Undan Skuld og Hlúnk náði ekki mynd af hinu lambinu á móti.
Villimey og Urður.
Hrútarnir stærri eru undan Villimey og Ísak og sá í miðjunni er undan Urði og Gutta
sæðishrút.
Sömu hrútar.

Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessu.

  • 1
Flettingar í dag: 403
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 1721
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 660915
Samtals gestir: 45526
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 07:25:02

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar