Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

Færslur: 2012 Apríl

30.04.2012 12:24

Fyrstu lömbin hjá okkur og fyrsta sjóferð Emils á Kristborgu.

Jæja þá er spennan loksins runninn upp og sauðburður er hafinn og gengur vel eins og komið er. Erum búnað fá sæðinga úr Gosa,Grábotna og Hróa og eigum eftir að fá úr Snævari,Hriflon og Sigurfara. Ég gaf mér loksins tíma til að blogga smá og henda inn smá sýnishorni af lömbunum sem komin eru hjá okkur og Sigga. Síðan fór ég líka í heimsókn til Bárðar um daginn og Gumma Óla og tók myndir af lömbunum þeirra en sauðburður þar er allveg kominn vel í gang þó svo hann sé bara rétt að byrja hjá okkur. Jæja nú er mál að drífa að henda þessu inn og fara svo í fjárhúsin heyrumst fersk þegar fleiri lömb eru kominn.....


Gulla hans Sigga í Tungu bar fyrst hrút og gimbur undan Gosa.

Svo bar hún Ronja mín þremum undan Gosa einnig úr sama strái og var notað í Gullu en eitthvað er liturinn skrítinn miðað við að Gosa á að vera arfhreinn. Ronja er allveg afburðar ær og er þetta þriðja árið í röð sem hún kemur með þrjú risa lömb en það var henni aðeins um megn núna því hún fékk smá doða og erum við að sprauta hana með kalki og dekstra við hana með brauði og vonast til að hún nái sér.

Ylfa er einnig með einn hrút undan Gosa en ég hefði nú viljað sjá hana tvílembda ef hún ætlar að standast ættirnar sínar hvað frjósemi varðar.

Flekkóttur hrútur og grá gimbur undan Grábotna.

Svört hans Sigga með 2 hrúta undan Grábotna.

Ísabella með 2 hrúta undan Grábotna. Það eru svo fleiri myndir af sæðislömbunum inn í myndaalbúminu hér svo endilega skoðið.


Emil fór sína fyrstu sjóferð á Kristborgu í gær á handfæri og var næstum með fullan bát eða 3,9 tonn ekki amaleg byrjun hjá honum sko kallinn hann kann þetta emoticon
Ég fór og tók á móti honum með myndavélina og náði nokkrum myndum sem þið getið skoðað hér.

Vel siginn hjá honum báturinn eins og þið sjáið.

23.04.2012 22:54

Heyskapur,Ullarferð og fyrstu lömbin á Hömrum.

Jæja það er orðið til háborna skamma hva það er langt síðan ég hef komist í tölvuna til blogga og með hlaðið af efni til að setja inn en það hafðist núna loksins. Kanski var það líka vonbrigðin með það að tvær kindur hjá okkur létu já það var ekki nóg ein heldur þurfti önnur að smitast örugglega af hinni allveg ömurlegt ég byrjaði að blóta sprautunni í sand og ösku en ég veit það er ekki henni að kenna en maður reynir alltaf að finna eitthvað. Svo getur það verið raskið í kringum það að sprauta þær. Heyið eða bara allur anskotinn maður verður allavega alltaf jafn fúll og pirraður og setti þetta allveg strik í tilhlökkunina fyrir sauðburðinn en sem betur fer er ég búnað jafna mig og er farin að hlakka til núna aftur.

Það er búið að vera mikið að gera hjá okkur meira segja heyskapur svona snemma vors og var það Siggi í Tungu sem fór að slá til að henda af túninu hjá sér til að rækta upp fyrir sumarið allveg þrælsniðugt. Það skapaðist smá heyskapar fílingur og Emil og Bói fóru og hjálpuðu honum að raka saman og Siggi ýtti heyinu svo á traktornum.

Hér er Siggi að slá í apríl sem er sjaldséð hér í sveit.

Hér er Emil að raka saman í blíðskapar vorveðri. Það eru svo fullt af myndum inn í albúmi og einnig af páskunum sem ég átti eftir að setja inn líka hér

Við fórum svo loksins með ullina á Yrstu Garða og tók Andrés við okkur þar og hjálpaði okkur að koma henni inn í gám. Við vorum svo heppin að hann bauð okkur að skoða fjárhúsin sem eru stórglæsileg og er hann með um 70 mórauðar ær og það dökkmórauðar ekkert smá flottar hann er örugglega einn af fáum sem er að rækta svona mikið af því. 
Við fengum líka að skoða gemlingana hans sem voru tæpir 200 ekkert smá fjöldi enda er hann með um 800 ær. Það eru fullt af myndum af ferð okkar svo hér. og fleiru.

Hér erum við að fara hlaða inn í gáminn.

Svakalega flott fjárhús.

Mikið að fallegum litum.

Það er allt komið á fullt í sauðburði hjá Bárði og Dóru inn á Hömrum og fór ég náttúrulega að kíkja á þau og svo er líka að komast á skrið hjá Gumma í Ólafsvík og Óla og þeim en ég verð bara bíða spennt áfram eftir þessu hjá okkur.

Rosalega flottur litur á gimbur hjá Bárði og Dóru sem er undan Frey Sokka syni.


Hér er svo ein stærðar gemlings gimbur hjá honum.



08.04.2012 10:24

Meira rolluflandur og fyrstu lömbin í Ólafsvík hjá Gumma og Brynjari.

Sælir kæru vinir núna er ég búnað fara á enn fleiri staði og var Bug þar fyrir valinu hjá Óskari,Óskari eldri og Jóhönnu. Emil fór að hjálpa Óskari að sprauta fyrir lambablóðsóttinni og ég notaði tækifærið og tók myndir hjá þeim. 

Hér er prinsinn hjá Óskari hann Bjartur en hann er undan Magna frá Hjarðafelli.

Hér er svo prinsinn hennar Jóhönnu hann Höttur en hann er undan Herkúles.

Næst lá leið okkar inn í Háls til Þórunnar og Gvendar og hitti það svo vel á að við vorum að koma úr Bónus og vorum á leiðinni heim þegar ég sá að það var einhver í Hálsi og varð ég að koma við og fá að kíkja á kindastofninn þeirra.

Hér eru kindurnar þeirra og eru þau með um 90 kindur.

Svo er það sem allir eru búnað vera bíða eftir með eftirvæntingu en það eru litlu sætu lömbin sem eru komin í Ólafsvík hjá Gumma Óla og Brynjari.

Þessi gemlingur kom með 2 hjá Gumma Óla.

Þessi kom með móflekkótan hrút og er einnig gemlingur.

Þessi er í eigu Brynjars og er með grábotnótt lamb.

Þetta er líka í eigu Brynjars.

Það var verið að bera ofan í afleggjarann í Tungu og upp að fjárhúsunum og náði ég mynd af Óla í Geirakoti á gröfunni.

Hér er hann að störfum.


Embla alsæl með kexið sitt en hún Hulda og Rauðhetta eru að reyna ná því af henni.

Hér er Benóný í traktornum sem Ágúst bróðir á í Fögruhlíð. Það eru myndir af flandrinu og tiltektinni í fjárhúsinu og allt saman inn í myndaalbúminu hér.

Við héldum upp á 1 árs afmælið hennar Emblu Marínu á Skírdag loksins og var það rosa stuð og gaman og held ég að Benóný hafi samt skemmt sér mest.
Hann var alsæll með traktorinn sem Dagbjört frænka og fjölsk gáfu honum. Embla fékk líka fullt af flottum gjöfum og svakalega flotta hello kitty köku sem Rakel Gunnars bakaði.

Allveg snilldar bakari þessi kona geggjuð kaka. Þið getið svo séð meira af þessu öllu inn í þessu myndaralbúmi endilega kíkið og kommenntið.


03.04.2012 11:38

Á rollu flandri á ýmsum stöðum.

Jæja nú er ég búnað vera á rollu flandri á ýmsum stöðum hjá rollu bændum hér í nágrenninu og byrjaði á því að fara til Stebba og Heimirs í Ólafsvík og síðan til Bárðar á Hömrum og því næst aftur inn í Ólafsvík til Gumma og Marteins. Það sem stóð upp úr var algjörlega breytingin á flekkótta hrútnum hjá Bárði sem er án efa búnað taka rosalegum frammförum og bæta heilmikið við lærin og svo er eins og það hafi verið teygt á honum því svo langur er hann orðinn. 

Emil er svo loksins kominn heim eftir 4 vikna útilegu og hef því loks tíma til að blogga almennilega og óþreytt núna í staðinn fyrir að vera að gera þetta seint á kvöldin þegar börnin eru sofnuð emoticon

Við sprautuðum fyrstu sprautuna bæði hjá sæðisrollunum og hinum um daginn og er núna um páskana kominn tími á seinni sprautuna hjá sæðisrollunum. 
Þetta er allt að verða svo spennandi þegar þessi skemmtilegi tími er framm undan.

Hjá Gumma og Óla er þetta allveg að fara bresta á því hrúturinn hefur sloppið í eitthverjar fyrr en átti að vera og eru þær allveg að fara bera en þeir vita ekki nákvæma dagsettningu svo þeir eru bara öllum stundum í fjárhúsunum he he.

Það var farið í mikla fjárræktarferð seinustu helgi en ég komst ekki í þá ferð svo ég fór bara í stutta ferð á eigin vegum um nágrennið. En hann Svanur í Dalsmynni fór í ferðina og tók flottar myndir og bloggaði svo endilega kíkið á snilldar bloggið hans hér Dalsmynni.123.is en hér kemur svo bloggið mitt emoticon


Hér eru fjárhúsin hjá Stebba í Ólafsík fyrsti viðkomu staður í ferð minni.

Þessar eru hjá Stebba og er þessi golsótta undan Rambó golsótta hrútnum okkar og sú gula er undan Mola.

Hér eru hrútarnir hjá Heimi og Stebba sá flekkótti er undan Topp frá okkur og svo er þetta hann Heisi frá Snorra .

Hér má sjá feikileg lærahold á honum Heisa og mikla fyllingu.

Þá erum við komin á Hamra til Bárðar og hér er hann Freyr með svakalegu lærin sín og ekkert smá stór orðinn og svo er hrúturinn hans Óttars sem er líka með svakaleg læri en ekki eins feitur að sjá. Já þeir fá sko alleg nóg að borða þessir.

Hér sést svo vel lengdin á honum það er eins og það hafi verið teygt úr honum. Mig minni allavega að hann hafi ekki verið svona langur í haust en svo getur það vel verið en allavega þá hefur hann tekið allveg rosalega vel við sér og er þetta örugglega komandi sigurvegari í mislitaflokknum í haust til að viðhalda titlinum hjá Bárði he he.

Svakalega þroskamiklir og holdfylltir gemlingarnir hjá Bárði.

Hér erum við svo komin aftur inn í Ólafsvík og hér er andastofninn hans Óla.

Hér erum við hjá Gumma og er þessi gemlingur allveg að fara bera hjá honum eins og sjá má á júgrinu á honum.

Hér er fjárhúsið og hlaðan hjá Marteini í Ólafsvík.

Hérna eru fjallmyndalegar skjátur sem eru í dekri hjá Marteini en önnur þessi gráflekkótta er frá Gumma og sú mórauða frá Marteini.

Þessi fallega kisa á heima í fjárhúsunum hjá Marteini og er allveg einstaklega ljúf og góð og tók vel á móti okkur þegar hún fékk smá klapp og klór.

Hérna er hrúturinn hans Marteins sem hann keypti af Jensínu og Andrési. Afskaplega fallegur og vel í holdum enda fær hann allveg fyrsta flokks dekur hjá Marteini.

Þær eru stórar og fallegar hjá honum og vel í holdum og  eru 5 þrílembdar hjá honum.

Auðvitað varð svo minn maður að fá að fara aðeins í traktorinn okkar.

Jæja þá er þetta upptalið hjá mér og er svo fullt af myndum hér af þessu öllu saman.

Embla átti afmæli um daginn og fékk hún afmælisgjafir á afmælisdaginn en enga veislu því við ætlum að halda hana við fyrsta tækifæri fyrst Emil er kominn í frí. Ég skellti inn smá myndum af þeim á afmælisdaginn hennar og smá myndum úr afmæli Nonna Sig sem var 30 ára 30 mars og Irma hélt honum svakalega flotta afmælisveislu í klifi svo endilega kíkið á það hér.
  • 1
Flettingar í dag: 467
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 1721
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 660979
Samtals gestir: 45529
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 08:13:58

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar