Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

25.01.2018 00:21

Bústaðarferð í Ölfusborgir

Við skelltum okkur í bústað frá föstudegi til mánudags í Ölfusborgir. Það var mjög kalt og 
vindur en rosalega kósý og meira segja fengum við sól á laugardaginn og það var mjög 
gaman að fá að sjá hana því ekki sjáum við hana í Ólafsvík strax því hún er enn svo lágt
á lofti að Ennið skyggir fyrir. Við fórum í göngutúr og út að renna með krakkana og það
var mjög gaman. Svo var skellt sér í pottinn og það fannst krökkunum mikið sport að 
vera í heitapottinum en samt svo kalt og mikið rok úti. Á laugardeginum skelltum við
okkur á rúntinn til Selfossar svo Eyrabakka og Stokkseyri. Benóný var mjög áhugasamur
um umhverfið og auðvitað var skoðað sundlaugarnar á þessum stöðum. 
Maggi bróðir kíkti í heimsókn til okkar og borðaði með okkur á laugardaginn.
Á sunnudeginum fórum við í bíó á Selfossi á Paddington 2 og svo í sund inn á 
Þorlákshöfn og hittum þar Edda og Sibbu vinafólk okkar sem býr þar.
Úti að labba.
Að koma á Eyrabakka.
Stokkseyri.
Freyja Naómí.
Í pottinum.
Að renna.
Flott umhverfið og tunglið svo lítið og sætt.
Rákumst á bátinn Dísu he he og mér fannst kjörið að taka mynd af honum.
Fórum í Ísbúðina Huppu á Selfossi og fengum glæsilegan og góðan ís.
Búnar að gefa pabba sínum bónda dags gjöf.
Embla og hennar upphalds gimbur Vaíanna.

Siggi tók hrútana úr 21 jan. Það gekk ein rolla upp hjá okkur leiðinlega seint eða 17 jan
svo það mun lengja sauðburðinn talsvert en svona vill þetta oft vera bara.
Annars er allt bara rólegt hjá okkur og bíðum bara spennt eftir 10 feb en þá held ég 
að hann komi að fósturtelja hérna á nesinu.

Flettingar í dag: 545
Gestir í dag: 47
Flettingar í gær: 1566
Gestir í gær: 78
Samtals flettingar: 715500
Samtals gestir: 47190
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 15:15:37

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar