Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

18.01.2026 20:19

18 janúar sett vír í hornin á hrútunum

Það var sett vír í hornin á lambhrútunum í dag sem þurfa á því að halda og Siggi sá

um að græja það fyrir okkur ásamt Kidda og við Freyja gáfum kindunum. Ég fór í aðgerð núna 12 janúar

sem ég átti að vera búnað fara í fyrir 6 árum því ég var mjög stutt frá því að fá blóðtappa í

fótinn þegar ég var ólétt af Ronju og þá þurfti ég að fá lyf til að halda því niðri og liggja

inn á spítala yfir nótt og var sagt að láta fjarlægja æðahnúta sem voru þá mjög áberandi og bláir

en svo jafnaði það sig og þegar ég var búnað eiga þá jafnaði þetta sig alltaf betur og betur og ég

hætti að spá í þessu en í gegnum árin hefur þetta verið að angra mig á álagstímum eins og 

sauðburði,smölun og fengitíma og ákvað ég nú ætti ég á nýju ári að láta skoða þetta loksins

og það var með réttu því ég fékk strax tíma í aðgerð og það var tekið þá. Ég er búnað vera 

taka því rólega þessa vikuna og Siggi gaf fyrir mig mánudag og þriðjudag og svo tóku Emil

og stelpurnar við og ég gaf svo í fyrsta sinn á laugardaginn og það gekk vel finn aðeins fyrir

þessu og er að nota teygjusokka í tvær vikur og fer svo í eftirskoðun svo það er gott að 

vera búnað klára þetta núna á meðan það eru rólegir tímar í sauðfjárræktinni.

 

Hér er Dorri kominn með vír í hornin. Siggi borar litil göt í hornin og 

húkkar svo vírinn í og svo er plaströr utan um vírinn svo það sé þæginlegra fyrir

hann að vera með þetta á sér alveg snilldar lausn.

Það var settu vír í Dorra, X, Kút og Sóma.

 


Móa er mikill karekter eins og Lóa mamma hennar var og hér er

hún að krafsa í pokann þegar ég er að sópa.

 


Hér er Viský sem er gemlingur undan Jobbu og Breiðflóa frá Hraunhálsi og svo

Vetrarrós sem er undan Ástrós og Refil frá Hraunhálsi.

Hún var sædd með Flóa.

Hér er Tása gemlingur sem ég fékk hjá Bárði á Hömrum

Hún er undan Hrút hjá Bárði 24-701 og Goltu .

Hún var sædd með Verk.


Sandra gemlingur er undan Strönd og Álf og er með 171 og gulan fána.

 


Nútella gemlingur er undan Kakó og Elku hún var sædd með Verk.

 


Hér eru gimbrarnar hans Sigga og mórurnar sem stelpurnar fengu frá Friðgeir

og er sú stærri sem fékk nafnið Brownie hjá Freyju orðin mjög gæf en sú

minni er ekki alveg búnað gefa sig en á eftir að verða spök líka.

Flettingar í dag: 190
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 1325
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 2831615
Samtals gestir: 90473
Tölur uppfærðar: 19.1.2026 03:01:39

Eldra efni

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar