09.04.2026 16:06
Emil átti afmæli 1 apríl og við fórum dagsferð til Reykjavíkur í tilefni þess og fórum í langþráða
Sky Lagoon sem Benóný er búnað bíða lengi eftir að prófa og var alsæll með þá ákvörðun að gefa
pabba sínum það í afmælisgjöf að fara þangað. Við vorum mjög ánægð með það mjög skemmtileg upplifun og
svakalega fallegt og mikil sjarmi yfir þessum stað.
Hér erum við ég ,Embla ,Emil og Benóný. Freyja og Ronja komu ekki með okkur til Rvk í þetta
skipti svo Freyja fær að prófa þetta seinna en hún var heima með frænku sinni Birgittu og þær
vildu frekar vera þar en koma suður.
Benóný var mjög sáttur með þetta.
Emil að njóta og yngist bara með árunum lítur svo vel út.
Svo töff ofan í lóninu.
Embla og Benóný undir fossi sem kemur niður klettana mjög flott.
Við hjónin saman að njóta.
Benóný og Emil að njóta útsýnisins.
Við mæðgur saman.
Þann 2 apríl kom loks að því sem Ronja Rós er búnað bíða svo lengi eftir hún missti
fyrstu tönnina sína og Emil fékk að toga í hana með bandi svo seinni part sama dag missti hún
aðra neðri tönn sem var hliðina á svo hún var alveg í skýjunum yfir þessu og auðvitað kom svo
tannálfurinn til hennar um nóttina og hún fékk tvo 500 kr seðla fyrir tennurnar.
Föstudaginn langa gerðum við okkur ferð á Lýsuhól í sund.
Hér eru Ronja Rós og Emil í lauginni sem er svo heit og æðisleg við elskum að
gera okkur ferð og fara í laugina hún er alveg einstök og dásamleg. Það var svo
gott veður að við vorum smá sólbrennd eftir daginn.
Við Ronja Rós saman.
Við fórum svo út á Arnarstapa og heimsóttum vini okkar Kolfinnu og Vignir sem tóku vel á móti
okkur og Kolfinna bakaði pönnukökur og svo fóru eldri stelpurnar í göngutúr með dóttir þeirra sem er
með Freyju í bekk og skoðuðu sig um Stapann meðan við vorum í heimsókn og Ronja var að leika við
Harald og Hauk strákana þeirra. Við enduðum svo á því að fara á veitingarstað sem heitir Stapinn og
þar er alveg svakalega gott að borða og yndislegt starfsfólk svo gaman að gera sér dagamun og njóta
þess að upplifa allt sem er í kringum okkur.
Daginn eftir sem sagt á laugardeginum þá fórum við og kíktum á Ösku trippið okkar sem er í
útgang hjá Bárði og Dóru í Grundarfirði og hún þekkti alveg stelpurnar og kom og talaði við þær.
Við fórum svo aðra dagsferð í sund og núna var ferðinni heitið til Búðardals í nýju sundlaugina þar sem opnaði
núna um páskana og hér eru krakkarnir að labba inn í sundlaugina. Sundlaugin er alveg frábær hún er svo falleg og fallegt
útsýni frá henni og það eru tveir heitir stórir pottar og ein vaðlaug. Svo er sánaklefi og hann er mjög kósý með glugga alveg niður svo þú færð
sama útsýni frá honum eins og þegar þú ert í sundlauginni. Benóný gefur sundlauginni mjög flotta einkunn og hann hefur nú farið í flestar
sundlaugar á Íslandi svo við mælum hiklaust með því að gera sér ferð í Dalina og skella sér í sund.
Við fórum svo á veitingarstað í Búðardal sem heitir Blys og við fengum mjög góða hamborgara og pizzu þar og
Ronja fékk sér kjúklinganagga og allir voru mjög sáttir og konan sem afgreiddi okkur og þjónaði bauðst til að taka mynd
af okkur öllum svo vingjarnleg og þjónustan upp á 10. Við fórum svo Heydalinn heim til að taka rúnt þar yfir en vegurinn var
mjög holóttur og erfiður en gaman að taka rúnt og sjá Hlíð það er mjög langt síðan ég hef keyrt þangað man eftir að hafa
farið þar með Steina frænda að heimsækja Einar Halls í Hlíð og það eru mörg ár síðan. Við fórum þó ekki alveg upp að því heldur keyrðum
bara þjóðveginn og sáum afleggjarann upp að því.
Flettingar í dag: 1622
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 1523
Gestir í gær: 3
Samtals flettingar: 3240730
Samtals gestir: 92274
Tölur uppfærðar: 9.4.2026 19:34:16