Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

28.04.2026 17:26

Styttist í sauðburð og hrútunum sleppt út á tún


Hér var veðurblíða 9 apríl og búið að vera hlýtt og gott og við

Ronja fórum í göngutúr og kíktum í fjöruna.

 


Ronja Rós er búnað vera dugleg að hjóla í skólann og farin að þrá sumarið.


Sprautuðum seinni sprautunni af blandaða bóluefninu 18 apríl.

 

 

Hér eru hrútarnir komnir út 21 apríl.

 


Það var nú ekki mikil slagsmál hjá þeim núna.

 


Lambhrútarnir fóru líka út og það var svo hlýtt og gott veður að það er frábært að leyfa þeim

að komast út.

 


Hér eru þeir ánægðir og komnir saman við stóru hrútana og fóru að reyna slást við þá.

 


Við fórum í fermingu hjá Birgittu Emý á Akranesi og það var mjög flott og skemmtileg

veisla hún var 19 apríl.

 


Við fórum til Reykjavíkur 22 apríl en þá áttu stelpurnar tannlækna tíma og Freyja tengdamamma

kom með okkur líka og við tókum hana með okkur í bíó á Mario og það var mjög gaman.

 


Ég fór og kíkti á Gumma Óla Ólafsvík og það eru komin 4 lömb

hjá honum hér eru tveir hrútar undan Verk sæðingarstöðvarhrút en 

hinn er bakvið hana og er botnóttur.

 


Þessi fæddist um páskana hjá Gumma og þeir eru orðnir vel stórir.

 


Hér er hinn á móti þeir eru vel dökk mórauður og botnóttur.

Mamman er ættuð frá Fossi

 


Hér eru Birgitta Emý og Freyja Naómí á hestbaki inn í sveit hjá Freyju og Bóa.

 

 

Hér er allt að verða klárt fyrir sauðburð búið að kaupa allar helstu nauðsynjar af lyfjum og bætiefnum.

 


Myndavélarnar eru komnar upp svo nú má bara byrja sauðburður.

Fyrstu eiga tal 1 maí en gætu farið að bera því ein er tvævettla sem er að bera í fyrsta sinn og er

þrílembd og svo er gemlingur sem er tvílembdur.

 

Flettingar í dag: 1775
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 1061
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 3296571
Samtals gestir: 92654
Tölur uppfærðar: 28.4.2026 22:09:52

Eldra efni

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar