| Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. | |
| 20.08.2014 13:115 ára afmæli Benónýs og Glænýjar lambamyndirYndislegi Benóný Ísak okkar var 5 ára í gær þann 19 ágúst.  Það er allveg ótrúlegt hvað tíminn flýgur að það skuli vera  kominn 5 yndisleg ár síðan að hann fæddist og það  hefur fært okkur allveg ótrúlega reynslu,þroska og  ég tala ekki um gleði og hamingju í líf okkar. Afmælið hans var allveg frábært í alla staði og var þetta í fyrsta sinn  sem við bjóðum krökkum heim og fannst honum það allveg æði og  allt gekk svo vel við vorum búnað gera útisvæði fyrir þau út á  palli með allsskonar afþreyjingu og svo  höfðu þau trampólínið og sandkassann. Við vissum ekki af þeim þau dunduðu sér svo vel saman og ekkert vesen allir vinir og mér fannst þetta bara rosalega gaman  og auðvitað skemmtu þau sér allveg konunglega   Benóný var eitt bros allann daginn svo ég þakka krökkunum  allveg kærlega fyrir að koma og njóta þessa dags með okkur  hann færði okkur mikla hamingju og gleði.  Benóný Ísak að pósa fyrir Karítas frænku sína.  Karítas var svo góð að hjálpa mér með krakkana  og taka myndir fyrir okkur takk kærlega fyrir  besta frænka. Ég þakka líka Jóhönnu fyrir alla  aðstoðina í að hjálpa mér að baka.  Ég gerði heiðarlega tilraun til að gera fyrir hann sundlaugina  í Sandgerði og rennibrautirnar sem er hann æðsti draumur  að fara í og verður það vonandi að veruleika áður  en sumarið tekur enda.  Veisluborðið var með skúffukökuna og svo pizzasnúða  og rice krispi með oreo fjólubláa súkkulaðinu frá milku  og vakti það mikla lukku. Svo auðvitað nóg af nammi.  Rennibrauta gleði við gáfum Benóný þessa rennibraut  í afmælisgjöf svo var líka rennt sér á sólstólunum  niður af heitapottinum svo þó að heitapotturinn sé  alltaf bilaður kemur hann þó að einhverjum notum he he.  Hér má sjá hina rennibrautina sem við gerðum fyrir hana  til þess að hafa hana lokaða með smá myrkri rosa stuð.  Og það var líka hoppað og skoppað.  Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi.  Jæja það er svo langt síðan ég hef bloggað að  það er til skammar.  Þessi mynd er tekin um miðjan júlí og er þetta  Aþena með gimbrarnar sínar undan Garra.  Hér er Hyrna með hrútana sína undan Rafal  og ég tek það fram að þetta er  gamla myndavélin mín  því mín eyðlagðist í sumar og er það líka  ástæða fyrir því að ég hef ekki verið eins  myndaglöð í sumar en það fer batnandi  því ég er búnað fá mér nýja Jibbí     Heyskapur hófst svo loksins eftir rigninga  sumarið mikla  og var hey víða úr sér sprottið  en held við höfum bara  fengið ágætis hey alla vega af Fögruhlíð  og það er nóg af heyji til svo nú er  bara ekkert annað í stöðunni að  bíða eftir að skoða lömbin og fara setja á he he .   Sóley með fóstur lömbin fyrir mig  og hafa þau bara  stækkað fínt þetta voru  tvílembingar undan  sitt hvorum gemlinginum sem  ég skellti undir  hana þegar hún missti lambið  sitt í vor.  Sóley er í eigu Maju systir. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inni  Fórum suður í júlí og fórum með  Steinari ,Unni, Magga, Erlu og Emelíu  í dýragarð í Mosfellssveit.  Það var rosalega gaman þar  fengu krakkarnir að klappa og halda  á dýrunum og svo var hægt að kaupa  2 hringi á hestbaki ekkert  smá sniðugt sá þetta allveg í hyllingum  að kaupa Mávahlíð bara  og gera svona með búskapnum he he  maður má láta sig  dreyma það er markmið    Á myndinni er Embla á hestbaki allveg í skýjunum.  Freyja og Birgitta að klappa kálf rosa gaman.  Svo voru þau bara með svona sand og leikföng og þetta  var þvílíkt vinsælt hjá krökkunum. Mér finnst þetta allveg snilld hjá þeim  sem eru með þennan Dýragarð.  Hér er Maggi og Erla að leika við Freyju og Benóný.   Gullmolinn okkar orðinn tilbúinn og hér er  meistarinn sjálfur hann  Steini sem er búnað vera gera hann svona  rosalega flottann fyrir heyskapinn.  Heyskapur í Tungu og Benóný heldur rosalega mikið  upp á þennan gullmola hjá Sigga.  Það var hópað fólki saman að svæðinu  á Verslunarmannahelginni og haldin smá  brenna upp í Rauðskriðumel.  Fór loksins þegar stytti upp rigningunni og  þegar það var búið að slá kirkjugarðinn á  Brimisvöllum og skreytti fyrir hann pabba  ég setti englastyttu sem ég á og týndi svo  fjörugrjót úr Mávahlíðarfjörunni og  smá Berg úr Kötluholti fyrir hann.   Skreytti líka hjá Steina og setti annan engil  svo setti ég líka lítið grjót hjá henni Gerðu í Tungu  og það er frá Ósnum fyrir neðan Tungu. Blessuð sé minning ykkar yndislega fólk.  Fórum í heimsókn til Inga Björns Meistara og  Emil spilaði við hann Fifa. Hann elskar að spila Fifa með honum.  Við fórum svo líka í húsdýragarðinn með Unni og Birgittu  og margt fleira svo endilega kíkið hér inn í albúm ef þið viljið skoða.  Fórum á Super Sub að borða og mæli ég allveg geggjað með þessum stað við gátum borðað í friði og krakkarnir léku sér  í öllu flotta sem er í boði þar. Það er hægt að fá báta og pizzur  og margt fleira og það bragðaðist allveg ljúffenglega.  Jæja þá er nýja myndavélin komin í gagnið og  hér er Skvísa með hrútinn sinn.  Dóra með þrílembingana sína en það vantar hrútinn  það er ekki langt síðan að hann fór undan svo  ég vona að hann hafi frekar villst undan heldur en  að hann sé dauður.  Rauðhetta með botnuflekkóttan hrút og  botnuhosótta gimbur undan Glaum.  Rán með þrílembingana sína.  Hér sést svo gimbrin hennar líka.  Einn Guffasonur frá Jóhönnu.  Mírranda forrystu kindin mín með gimbrina sína.  Gimbrin er reyndar blönduð og er undan Mugison  svo hún er ekki allveg ekta forrysta.  Hríma hennar Jóhönnu með gimbur undan Ás.  Guffa synirnir hennar Jóhönnu þessir svörtu.  Það má svo skoða þessar myndir hér inn í þessu albúmi.  Rúntur í ágúst allveg glænýtt.  Hér er Frigg með gimbrina sína og hrút undan Kára.  Fyrir aftan Vigga hans Bóa með gráflekkótta gimbur og það vantar hrútinn hennar hún tapaði honum snemma í vor.  Síða er það Svana með gimbranar sínar undan Garra.  Botnleðja með þrílembingana sína undan Brján  og svo Fíóna veturgömul með hrútinn sinn.  Draumarós veturgömul hún bar seinust og  kom með karlömb eiginlega þau voru svo lítil  en það er nú eitthvað að teygjast úr þeim núna.  Frá Sigga ég man ekki allveg hver hún er en  hún er veturgömul og er með fallegan hvítan hrút.  Hér sést í Botnleðju og Snældu og hún er  með 2 gimbrar undan Brimil og bind ég  miklar væntingar við þær því  Snælda átti 88 stiga hrútinn í fyrra.  Bolla gamla orðin lúin og fær að fara í haust blessunin  en hér er hún heldur hölt með hrút og gimbur  undan Glaum hans Sigga í Tungu.  Lotta frá Freyju og Bóa með  hrút og gimbur undan Mugison.  Hriffla er hér til vinstri og er hún með þrílembinga  undan Saum og mér lýst allveg rosalega vel á  þá allavega er stærðin fín miðaða við að þau ganga öll undir.  Hænana í sveitinni hjá Bóa og Freyju  ungaði þessum fallegu ungum út.  Ísey gemlingur undan Klett og Ísabellu með gimbrina sína.  Það eru svo fleiri rollu myndir hér inn í albúmi hér. Jæja þá er þetta stóra blogg loksins komið hjá mér  og ég mun setja inn reglulega núna því núna eru  börnin byrjuð á leikskóla og Freyja yngsta fer að  fara í aðlögun svo þá mun gefast meiri tími fyrir  mig að taka myndir og blogga. Bara spennandi  tímar frammundan ú ég get ekki beðið eftir að  smala þetta er svo æðislegur tími. Flettingar í dag: 10586 Gestir í dag: 59 Flettingar í gær: 16501 Gestir í gær: 56 Samtals flettingar: 2570834 Samtals gestir: 89298 Tölur uppfærðar: 31.10.2025 13:49:26 | Eldra efni 
 Um okkur Nafn:Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm Farsími:8959669,8419069 Tölvupóstfang:benonyisak@gmail.com MSN netfang:Disa_99@hotmail.com Afmælisdagur:17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars Heimilisfang:Stekkjarholt 6 Staðsetning:355 Ólafsvík Heimasími:4361442 Um:Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar. Tenglar
 | 
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is