Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

07.02.2017 20:14

Gamlar greinar úr Morgunblaðinu um sveitalífið í Mávahlíð

Svona birtist greinin í heild sinni inn á Mbl og ég fékk sendan textan
í tölvupósti hjá Magga bróðir einu sinni og langaði til að koma þessu
fallega fyrir hér inn á síðunni. Mér þykir óskaplega vænt um þessa 
grein og gaman er að lesa hana. Hún er síðan 1984.

Heimsins mesta hnossgæti
 held ég til mín félli;
 mætti ég eignast Margréti,
 Mávahlíð og Velli.

Þessi vísa er orðin yfir 300 ára gömul og var ort vegna heimasætu sem þá var í Mávahlíð í Fróðárhreppi. Þessari stúlku kvæntist síðar maður að nafni Gísli Jónsson. Margrét þessi lést árið 1710. Til minningar um hana gaf Gísli Fróðárkirkju prédikunarstól. Fróðárkirkja var lögð niður árið 1892. Þá var stólinn settur upp í kirkjunni í Ólafsvík. Er hann nú í nýlegri kirkju Ólafsvíkinga og þykir hinn merkasti gripur.


Hér fær þvotturinn á snúrunni að kenna á rebba.

 Enn í dag hefir það áhrif á hvern þann sem hefir vott af sveitamannsblóði í æðum að koma að Mávahlíð. Örskammt neðan vegar um bæjarhúsið í grasi vöfðu túni sem svo teygir sig inn með hlíðinni í átt að Búlandshöfða. Ofan vegar er svo sjálfur hlíðarvanginn. Hann er grösugur allt upp í klettabeltin. Hvert sumar má sjá margt fé á beit í hlíðinni. Þetta eru vænar ær, flestar tvílembdar með þykkvaxin lömb. Innan girðingarinnar neðan vegar má oft sjá marga hrúta í hóp. Þeir sem hafa auga fyrir fallegu fé hægja gjarnan á bílum sínum eða stansa. 

            Þarna og á fjallinu uppaf, gengur Mávahlíðarféð.

            Skammt niður af bænum, í átt til vesturs er stórt vatn, Mávahlíðarvaðall. Í hann fellur Holtsá og síðar Hrísá áður en vaðalinn tengist sjó í Tunguósi. Þar er Ábótapollur. Þar drukknaði Gísli Jónsson sá er forðum hlaut Margréti og Mávahlíð. Nafnið ber pytturinn vegna þess að þar drukknaði fyrr Ögmundur Kálfsson fyrsti ábóti Helgafellsklausturs. Þjóðleiðin utan af nesinu lá yfir Tunguósinn og yfir Mávahlíðarrif til Búlandshöfða. Utan við rifið er Breiðafjörður og ör skammt til gjöfulla miða. Velja má báta á grynnstu miðum af veginum ofan við Mávahlíðarbæinn

            Í Mávahlíð búa bræðurnir Þorsteinn og Leifur Ágústssynir ásamt Huldu Magnúsdóttur, konu Leifs og þrem börnum þeirra. Að auki eiga þeir bræður jarðirnar Fögruhlíð og Kötluholt og hafa á jörðunum á fimmta hundrað fjár.

            Og þetta eru ekki neinar skjátur eins og áður sagði. Kynbætur fjárins hafa þeir stundað af kappi . Kunnugir telja að í Mávahlíð sé nú eitt allra besta fjárbú á landinu. Hver einasta ær er hof sem hrútsmóðir. Allmargir hrútar hafa verið keyptir frá Mávahlíð á sæðingarstöðvar víða um land og margir eru seldir árlega til bænda á Snæfellsnesi. Ýmsir frammámanna í sauðfjárrækt, bændur og áhugamenn gera sér ferð hingað til að skoða hjörðina. Í stofu hangir verðlaunaskjöldur Búnaðarsambandsins, farandgripur veittur eiganda besta hrúts á héraðssýningu. Hlutu þeir gripinn haustið 1980 fyrir hrútinn Þorra sem síðar fór á sæðingarstöð. Gárungarnir segja að þeir hafi hlotið skjöldinn þrátt fyrir þá meginnáttúru þess grips að lenda hjá trúföstum framsóknarmönnum. Nú á, eftir fáeinar vikur að keppa um skjöldinn að nýju. 


 Hér sýnir Leifur okkur einn gripinn þessi er álitlegur, en þó   ekki 

meðal þeirra allra bestu á búinu.

        

Leifur á Mávahlíð er "náttúrubarn" eins og sagt er um þá sem næmir eru fyrir umhverfinu og lesa táknmál úr hverju hljóði, þögn og hreyfingu dýralífsins. Hann er snjall veiðimaður á allt það sem hann fýsir og er refaskytta góð. Við Björn Guðmundsson höfum séð tófuyrðling á vappi í Mávahlíð. Við ákváðum að skreppa í heimsókn og fá að taka myndir. Af þessu varð í byrjun september. Vegna verkfalla erum við svona seint á ferð með árangurinn.


            Við komum að Mávahlíð síðla dags. Þegar okkur bar að garði var skólabílinn að renna í hlað með systkinin úr skólanum. Leifur er á spjalli við Bjarna í Geiragoti sem bílnum ók. Við Björn fylgdumst með rebba litla á meðan þar sem hann ólmast í leik. Tíkin Týra fær engan frið fyrir ærslum og áflögum. Hún sýnir þó ótrúlega þolinmæði og virðist á köflum hafa gaman af. Kötturinn er ekki eins hrifinn. Rebbi hefir nefnilega átt það til að ræna hann veiði,  löglega fenginni " Rebbi er bæði prakkari og þjófur," segir Ágúst litli þegar rebbi sést hanga í þvottinum á snúrunni.

Týra og Rebbi það er aldrei friður

Týra og rebbi Augnabliks hlé.

            Ágúst hefir engar vöflur á.
Hann er búin að skipta um föt og er þotinn niður að vaðli þar sem hann lagði net um morguninn. Rebbi hendist á eftir honum og við Björn fylgjumst með. Í netið sækir Ágúst fimm góðar bleikjur. Þær eru þá orðnar tólf þennan dag. Ágúst líkist föður sínum með áhuga á dýralífinu. Í sumar ól hann ála í kili gamals báts.  " Rebbi stal þeim nú öllum " segir Ágúst. Einni hefir Ágúst gaman af að veiða skordýr og rannsaka þau. Leifur getur nú gefið sér tíma til að rabba við okkur. Ég bið hann um að fá að taka myndir af hrútnum. Við röltum út á túnið. Ég spyr hann fyrst um refaveiðina. Hann er ekkert nema hógværðin en segist hafa unnið 48 dýr alls þetta vor ásamt Bjarna á Kálfárvöllum. Ýmist voru þetta dýr og yrðlingar úr grenjum eða hlaupadýr. Rebbi litli eltir okkur og krakkana. "Hann er úr greni í Bergsmúlanum" segir Leifur.
"Við látum hann lifa til gamans"  bætir hann við
Það er auðséð að hann er hændur að börnum.


Ágúst litli losar bleikju úr netinu. Handan Vaðalsins er Kötluhol. Næstu bæir fjær eru Tunga og Hrísar. Í Hrísum býr Þorgils Þorgilsson, landsþekktur áhugamaður um veðurfar, ásamt Hermanni bróður sínum.

Hrútarnir hafa dreift sér og eru fáir þeirra nálægt bæ. Ég spyr Leif um höldin í vor.  Hann segir höldin hafa verið góð en stundum fleira tvílembt. Það voru um 75%. Undanfarin ár hafa fengið 26-27 kg eftir fóðraða kind en væri meira ef gemlingar væru látnir fá fang. Fóðrið er fyrst og fremst taða en kjarnfóðurgjöf er lítil sem engin nema rétt á vorin. Það er vorgott í hlíðinni og ánum því sleppt fljótt eftir burð í sæmilegu tíðarfari. Varðandi ræktunina segir Leifur að með endurteknum sæðingum og rækilegu vali hafi þetta þróast. Menn mega ekki halda að nú þurfi þeir ekki að fá meira að því féð sé það gott. Afturkippurinn sé fljótur að koma ef þessa sé ekki gætt. Valið verði líka að vera strangt. " Þar höfum við nú ekki staðið einir" segir Leifur. "Leifur Jóhannesson fyrrum héraðsráðunautur nú nýráðin forstöðumaður Stofnlánadeildar landbúnaðarins vann hér gott starf og var óþreytandi að koma að velja lömbin með bændunum.  Við söknum hans héðan úr héraðinu. Hann er sennilega einn sá gleggsti á landinu"

            Við rekum fáeina hrúta á undan okkur. Björn ljósmyndari tapar af þegar rebbi hoppar á bak einum hrútnum og sest þar . Hrissi lætur sér vel líka og stansar. Leifur segir að rebbi geri þetta stundum við hrútana og lömbin. Ærnar kæra sig ekki um þetta. Þær eru varar um sig. Við höldum nú til bæjar og þiggjum kaffi. Lengi megum við ekki dvelja við það því við ætlum að koma við í Fögruhlíð, en þar segir Leifur besta hrútinn þeirra vera á túni.

            Í Fögruhlíð hittum við Þorstein snöggvast.  Ég spyr hann um sölumálin. Hann segir þau í bölvuðum ólsestri og margt sem komi til. Framleiðslan er reyndar of mikil og hol og skuldakóngum haldið á floti, þeim og öðrum til óþurftar. Þeir sem framleiða holdfylltasta kjötið fá reyndar meiri arð eftir hverja á, en ekkert er gert til að leita eftir besta kjötinu frekar en hinu. Varðandi skil á greiðslum þurfum við hér ekki að kvarta. Við verslum við í Stykkishólmni og Grund í Grundarfirði. Þeir hafa greitt fullt grundvallarverð inn í reikninga  fyrir hver áramót. Þeir hafa reyndar fengið skömm í hattinn frá Framleiðsluráði fyrir þetta en hafa haldið sínu striki sem betur fer.

            Það fer að bregða birtu þegar Björn tekur myndir af síðasta hrútnum, Vini Vinssyni. Hann leyfir okkur að ganga að sér þukla og skoða en er hálferfiður við að sitja vel fyrir. Þessi Hrútur er ekkert nema vöðvar. Jafnvel Jón Páll gæti verið montinn af þessum vöðvum. Vinur er fjögurra vetra og gefur afbragðs afkvæmi segja þeir bræður. Þegar hann var tveggja vetra vó hann 125 kg. Brjóstmál mældist þá 120 sm, spjald 27 sm og fótleggur 125 mm.


            Við þuklum og strjúkum. Birtu bregður enn frekar. Mál er að þakka fyrir og halda heim. Vinur þuklaður einu sinni enn og í hug kemur hrútsvísa Háks:

           
Stuttir fætur, staðan er gleið
Stinnir eins og klettur.
Hálsinn digur, bringan breið
bolur jafn og þéttur 

04.02.2017 13:58

Nýtt ár loksins blogg

Gleðilegt ár kæru vinir veit þetta kemur full seint það er að segja að það er liðinn
heill mánuður af þessu ári og febrúar genginn í garð.

Sætu börnin okkar á Gamlárskvöldi.

Við áttum gott Gamlárskvöld með Freyju og Bóa, Huldu mömmu minni og Sigga í Tungu.
Svo komu fleiri til okkar þegar skotið var upp þá kom Maja systir og fjölskylda hennar og 
Jóhanna frænka Emils en hún var að vinna hluta af kvöldinu.

Kindurnar alveg elska krakkana þegar þau koma með mér í húsin og króa þau af til að
fá klapp og athygli.

Nú er fengitími auðvitað búinn og tók ég það saman hversu margar ær fóru í hvern hrút.

18 hrútar voru notaðir með sæðinga hrútum.

Malli sæðishrútur 2 ær

Tinni sæðishrútur 1 á

Bekri sæðishrútur 2 ær

Vinur sæðishrútur 2 ær

Borkó sæðishrútur 2 ær

Burkni sæðishrútur 3 ær

Heimahrútar voru 10 og 2 frá Bárði og Dóru Hömrum.

Partur Klettssonur frá Bárði 3 ær

Flekkur lambhrútur frá Bergi frá Bárði 6 ær

Einbúi lambhrútur undan Ísak 2 ær

Ísak Tvinna sonur 7 ær

Korri Garra sonur frá Sigga 7 ær

Zorró Glaum sonur 8 ær

Mávur Blika sonur 11 ær

Móri lambhrútur frá Sigga 5 ær

Glámur lambhrútur undan Saum frá Sigga 4 ær

Askur lambhrútur undan Kalda sæðishrút 10 ær

Kaldnasi kollóttur frá Hraunhálsi sem ég keyti 5 ær

Grettir lambhrútur undan Máv og Svört frá Sigga 7 ær 

Þá er þetta upptalið við byrjuðum að hleypa rólega til 13 des en það var mest að gera
í kringum 20 des. Seinasta sem gekk upp fékk 18 jan leiðinlega seint en hún fékk með 
Flekk hans Bárðar en hann veiktist eitthvað hefur verið barinn og hefur verið kominn
með hita eða eitthvað svo þess vegna gekk hún upp.

Það var síðan ein ær sem fékk með Part af þessum þrem sem var steindauð einn
morguninn sem ég kom upp í fjárhús. Þá hefði hún orðið afvelta á grindunum
ferlega fúlt þetta er auðvitað mikil kind sem heitir Brimkló og ætlaði ég mér
mikla gullmola undan henni og Part en það verður ekki mögulegt.

Brimkló var fædd 2013


Þau ár sem hún hefur lifað hefur hún ætið verið tvílembd og sem gemlingur líka.
5 lömb hafa verið seld og eitt slátrað og núna í vor fórst risa stór gimbur hjá henni í 
burði sem ég sá mikið eftir en hrúturinn sem hún skilaði í haust var seldur og var
87 stig. Brimkló var undan Blika Gosa syni og Hyrnu. Hyrna er undan Snævari og Hrímu.
Fyrir svona rollu nörda eins og mig finnst mér gaman að rekja ættirnar svo ég ætla
að fara aðeins aftar og segja ykkur að Hríma var svo undan Abel frá sæðingastöð og
rollu frá pabba úr Mávahlíð sem hét Sakka 4 og var undan Læk frá sæðingastöð.
En allavega þá mun ég sjá mikið eftir þessari kind því það er alveg búið að sanna sig
hjá mér að þessar Blika dætur sem ég á eru allar að skila þrusu gerð og frjósemin
er líka góð en ég fór auðvitað mjög sparlega í að nota Blika á sínum tíma út af ófrjósemi
Gosa en sem betur fer veðjaði ég á rétt og hef ekki orðið var við þessa ófrjósemi í 
framræktun á Blika dætrum.

Eins og ég var búnað segja áður frá þá fékk ég þessi dásemdar rúmföt í jólagjöf og hér
eru þau komin á rúmið ásamt hrútapúðanum og ég er alveg í skýjunum með þetta.

Hér eru svo stelpurnar okkar með gemlingunum sem eru svo gæfir. Þessi mynd var 
tekin í kringum áramótin.

Benóný duglegur að hjálpa þegar hann fær verkefni í fjárhúsunum.

Mávahlíðin í sínu fegursta í janúar það er alveg ótrúlegt hvað við erum búnað fá milt
og gott veður þessa hörðu vetramánuði þó svo að það komi smá kaldi inn á milli.

Sætu okkar á þrettándanum að fara sníkja gott í gogginn og kveðja jólin.
Það eru svo myndir af þessu öllu saman hér inn í albúmi.


Það er bara búið að vera heil mikið í gangi hjá mér því ég var í Þorrablótsnefnd og 
það kostaði mikinn tíma og æfingar öll kvöld fram að blóti sem var svo 28 janúar.

Hér er verið að æfa eitt af atriðunum sem komu framm en það var Löggugildrur.
Sem sagt tvær skvísur sem komu hér til Ólafsvíkur í lögguna og gengu báðar út til
pilta sem búa hér í Ólafsvík og því fylgdi ákveðin saga sem gaman var að krydda aðeins.

Viffi var flottur sem Bubbi Morthens. Bubbi átti nefnilega að vera þessa helgi í 
Frystiklefanum en hætt var við vegna Þorrablótsins og hann færður yfir á næstu helgi
og við sáum fyrir okkur spaugilegt atriði að láta hann mæta og svo kom Dóra sem er 
veislustjórinn og rak hann út.

Fiskmarkaðstríð hefur verið viðloðandi hér í Ólafsvík og auðvitað var nýtt að gera grín
af því á spaugilegan hátt.

Ránið sem var framið í apótekinu var tekið fyrir og var allt með léttum og spaugilegum
hætti enda var það hræðileg upplifun í raunveruleikanum.

Það hefur verið mikið að gera á fasteignamarkaðinum og það var mjög fyndið að það
var einskonar kveðja sem þurfti að fara af stað þegar fjögur hús voru í sölu milli 
ákveðna aðila og þurfi einn að rýma húsið svo hinn gæti flutt inn og koll af kolli.

Ég, Arna og Hrefna vorum settar í skreytingarnar og við skreyttum með lopapeysum.

Ég fór með hrútshausinn minn og svo voru myndir af hrútunu mínum þessir þrír 
rassar þarna þar er Herkúles í miðjunni svo er Lækur og Nagli.

Veisluborðið sá ég um að skreyta og gerði svolítið mikið sauðalegt he he og fékk
rollu hauskúpu hjá Bárði og Dóru sem ég setti á grjót og límdi svo berjalyng sem ég
hafði týnt um haustið með fallegum rauðum lit. Siðan var bein af kjamma.

Þetta var svo í hinn endann steinahjón sem ég á og hrútshorn frá Bárði og Dóru Hömrum.

Dóra Kr vínkona mín og snillingur var veislustjóri og kynnir ásamt Ingu Leikskólasrjóra sem var formaður þorrablótsnefndarinnar og stóðu þær sig alveg frábærlega og var 
hlegið mikið og skemmt sér.

Þetta var algerlega út fyrir þægindarammann minn því ég er frekar feimin og stressuð
í kringum mikið af fólki. Mig langaði til að komast yfir það og því hellti ég mér út í 
að fara í þetta. Þetta gekk alveg framar vonum og var góð reynsla og ég kynnist frábæru
fólki og fyrst og fremst var þetta alveg rosalega gaman. Það var mjög mikið stress og 
kvíði fyrir general sýningunni og svo auðvitað Þorrablótinu sjálfu. Ég hélt hreinlega
að ég væri að springa en það gekk allt saman upp og við rúlluðum því og allt gekk 
alveg 100 prósent. Auðvitað var það samvinnan hjá öllum og skipulag hjá Nefndinni
og leikstjóra sem fékk þetta allt saman til að ganga svona vel upp. Þetta var líka bara
alveg rosalega skemmtileg upplifun og frábær hópur og við skemmtum okkur svo vel.
Jæja það eru svo fleiri myndir af Þorrablótinu hér inn í albúmi.

Svo fer næsti spenningur alveg að fara ganga í garð en það er fósturskoðunin hjá 
rollunum ég get varla beðið eftir að fá að kíkja í pakkann þetta er alveg jafn ef ekki
meira spennandi fyrir mér eins og jólin emoticon

Kveð að sinni kæru vinir 

31.12.2016 03:26

Gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Kæru vinir Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Við þökkum kærlega fyrir heimsóknirnar
og kommenntin á liðnu ári og vonum að þið haldið áfram samfylgninni á nýju ári.
Mér finnst líka bara svo frábært að fá heimsóknir og kommennt inn á síðuna það gerir 
bloggið svo miklu meira spennandi og skemmtilegra og gefur manni innblástur að
blogga meira. Takk kærlega fyrir það kæru vinir og megi gleði og hamingja umvefja
ykkur yfir hátíðarnar.

Við höfum haft það frábært yfir jólin haft nóg að gera í fjárhúsunum. Ég sá mest megnis
um að hleypa til sjálf og við gerum það upp á gamla mátann og leitum með hrút og svo
leiðum við ærnar í einn og einn hrút. 
3 daga í röð voru 10 til 12 að ganga og það tók dágóðan tíma og ég nota líka svolítið
mikið af hrútum miðað við fjölda he he en það er bara svo gaman að sjá hvað þeir
gefa og spá og speklura í ræktuninni og hvað passar best saman.
En ég þakka þó fyrir að það var vont veður og 
bræla hjá Emil manninum mínum og þá gat ég notið nærveru hans og hjálpar við 
tilhleypingarnar því áður en hann kom til hjálpar voru dagarnir langir og erfiðir.
Því mikið átti eftir að gera heima líka í undirbúning fyrir jólin og sinna 3 orkuboltum
sem vilja alla athygli þegar maður kemur heim.


En þau bræða mann alveg með brosinu og góðmennskunni sinni þessir englar og hafa
alveg ótrúlega þolinmæði fyrir að mamma sé alltaf í fjárhúsunum.

Áttum æðislegan aðfangadag í faðmi fjölskyldunnar. 
Það eru svo fleiri myndir af jólunum hér inn í albúmi.

Jólakveðja fjölskyldan Stekkjarholti 6

31.12.2016 03:20

Hestarnir teknir inn 26 des

Við tókum hestana inn 26 des.

Krakkarnir voru alsæl yfir því.

Og tóku virkan þátt í umhirðu.

Og allir að sópa saman voða dugleg.

Auðvitað varð hestastelpan okkar að fá að fara á bak.

Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi.

31.12.2016 03:05

Jól í fjárhúsunum

Gæðablóðið hún Hrafna með Emblu vínkonu sína. 
Hún leyfir Emblu dóttur minni að klifra upp á bak á sér og kippir sér ekkert upp við það. 
Ég hef aldrei kynnst annari eins kind.

Svo fær hún að knúsa hana.

Þegar ég er að sópa er kapphlaup að klára sópa áður en þær hópast af manni og eru
enn ágengari þegar Embla er með mér eins og sjá má á þessari mynd.

Zorró er kominn í jólaskap.

Korri líka hó hó.

Mávur vildi líka fá jólamyndatöku.

Og sæta krúttið hann Kaldnasi hann fékk líka jólahúfu en Grettir vildi líka og reyndi
að stela húfunni af honum he he.

Gulla hans Sigga er líka í jólaskapi.

Meira segja Svört hans Sigga leyfði mér að skella einni jólamynd af sér.

Enda svo þetta jólablogg úr fjárhúsunum á Emblu og Hröfnu saman.

Af sæðingum að segja þá sæddi ég 16 fyrir mig. 2 fyrir Jóhönnu og 9 fyrir Sigga.
Ég notaði Bekra, Borkó, Dreka, Vin, Malla, Tinna og Burkna.
Svo núna fer spennan að magnast hvað muni halda núna á næstu dögum.

Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi.

31.12.2016 02:39

Fengitími að byrja og skreytt jólatréð

Hér er hún Embla með Hröfnu sína sem er uppáhalds kindin hennar. 
Hún kemur hlaupandi til Emblu þegar hún heyrir röddina hennar alveg einstök kind.

Svo dugleg að hjálpa mömmu sinni að gefa.

Hrafnarnir sem fylgja bænum Tungu eru oftast ekki langt frá þegar ég kem að gefa og
í þetta skipti náði ég mynd af þeim upp á fjárhúsinu.

Mávur og Ísak eru komnir til baka frá Gaul svo nú fer ég að byrja að hleypa til á fullu
núna 18 des. Fyrstu kindurnar fengu 13 des og svo byrjaði ég að sæða 15 des til 18.
Við höfum þá svona bundna og það bjargar mér alveg á fengitímanum því ég á í fullu
basli að ráða víð þessa stóra hrúta. Þeir eru bara í hestataum og ég losa þá bara þegar
ég þarf að nota þá og ekkert streð og basl að allir séu að reyna að koma í einu. Þeir
eru ekkert ósáttir við þetta heldur læra þetta strax. Ég nota svo einn hrút fyrst til að leita
og ég set á hann poka svo ég sé ekki að missa hann á ærnar sem eru að ganga he he
því stundum ræð ég ekki svo glatt við hann Korra sem ég nota til að leita með þó hann 
sé mesta gæða blóð þá hem ég hann ekki þegar blæsmandi ær er annars vegar.

Hér er Korri hann er Garra sonur hjá Sigga og er alveg gríðarlega stór hrútur.

Lambhrútarnir.

Hér er svo verið að skreyta jólatréð rosa spenningur.

Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessu.

31.12.2016 02:31

4 ára afmæli Freyju Naómí

Freyja Naómí orðin 4 ára. Svo yndisleg og blíð lýsir henni best og hún er svo dugleg
þó lítil og nett sé. Hún var 4 ára 12. 12. 2016.

Svo mikil dama.

Hún fékk nánustu vini sína í afmælið og það var mjög gaman hjá þeim.

Ég bjó til nammi prinsessu köku fyrir hana.

Þær systur á leið á jólaball á leikskólanum.

Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af afmælinu hennar Freyju.

09.12.2016 10:50

Ásettningur hjá Óttari Blómsturvöllum

Þessi er undan Lukku og Hring.

50 kg 36 ómv 4,3 ómf 4,5 lögun 9,5 framp 19 læri.


Þessi er undan Sússu og Sokka.

45 kg 30 ómv 3,2 ómf 4,5 lögun 9 framp 18,5 læri.


Þessi er undan Dímmu og Sokka.

45 kg 31 ómv 3,4 ómf 4 lögun 8,5 framp 18 læri.


Þessi er undan Dimmu og Sokka.

45 kg 34 ómv 2,3 ómf 4,5 lögun 8,5 framp 18,5 læri.


Þessi er undan Golsu og Sokka.

51 kg 30 ómv 4,8 ómf 4,5 lögun 8 framp 18,5 læri.


Sorghyrna er undan Tinnu og Sokka.

49 kg 29 ómv 4,2 ómf 4,5 lögun 9 framp 18 læri.


Þessi er undan Nótt og Hring.

49 kg 33 ómv 3,7 ómf 4,5 lögun 9,5 framp 19 læri.

Þá eru þær upptaldar hjá honum Óttari. Glæsilegar gimbrar og fallega hosóttar.


Stórar og sterkbyggðar kindur hjá honum. Það eru svo fleiri myndir af heimsókn minni
hjá Óttari hér inn í albúmi.

04.12.2016 10:31

Ásettningur hjá Bárði og Dóru Hömrum

Þessi er 41 kg 33 ómv 2,7 ómf 4,5 lögun 9 framp 18 læri 8 ull.

Þessi er undan Kolbrá og Part.
36 kg 31 ómv 3,1 ómf 4,5 lögun 8,5 framp 18 læri 8 ull.

Þessi er undan Kornelíusi.
41 kg 28 ómv 3,1 ómf 4,5 lögun 9 framp 18,5 læri 8 ull.

Þessi er undan Hring frá Óttari held ég.
48 kg 30 ómv 3,2 ómf 4,5 lögun 9 framp 18,5 læri.

Þessi er undan Læk.
41 kg 33 ómv 2,4 ómf 4,5 lögun 8,5 framp 18 læri 8 ull.

Þessi er undan Part.
44 kg 36 ómv 1,9 ómf 5 lögun 9,5 framp 18,5 læri 7,5 ull.

Þessi er frá Bergi í eigu Bárðar.
33 ómv 2,7 ómf 4,5 lögun 9 framp 18 læri 8 ull.

Þessi er undan Part.
38 kg 26 ómv 2,9 ómf 4 lögun 9 framp 18 læri 8 ull.

Þessu er undan Læk.
41 kg 29 ómv 1,7 ómf 4 lögun 9 framp 18,5 læri 8 ull.

Þessi er undan Part,
36 kg 31 ómv 2,4 ómf 4,5 lögun 9 framp 18 læri 8 ull 

Þessi er undan Læk.
45 kg 30 ómv 2,7 ómf 4 lögun 9,5 framp 19 læri 8 ull.

Þessi er undan Part.
50 kg 31 ómv 2,8 ómf 4 lögun 9 framp 18,5 læri 8 ull.

Þessi er undan Læk.
46 kg 26 ómv 4,5 ómf 3 lögun 9,5 framp 18,5 læri 7,5 ull

Þessi er frá Jón Bjarna Bergi í eigu Bárðar. Held hún sé undan Kölska.
28 ómv 4,1 ómf 3,5 lögun 9 framp 17,5 læri 7,5 ull.

Mógolsa er undan Styrmi.
45 kg 26 ómv 3,8 ómf 3,5 lögun 8,5 framp 17,5 læri 7,5 ull.

Þessi er undan Grím.
45 kg 28 ómv 5,6 ómf 3,5 lögun 9 framp 18,5 læri 7,5 ull.

Ég vona að ég hafi komið þessu rétt upp en allavega eru stiganirnar réttar en myndirnar
af hvítu gimbrunum gætu hafa ruglast eitthvað eða verið réttar.

Þetta eru sem sagt 16 gimbrar sem Bárður og Dóra setja á og ekkert smá flottur
hópur af glæsilegum gimbrum.


Vel fylltar með falleg lærahold.

Bárður og Dóra eru með 16 og Hörður og Lauga 4 gimbrar.

Þennan hrút heimti Bárður seint og var ekki stigaður en hann er gríðalega þéttur og 
með mjög öflug læri sem ættu skilið 19 segja fróðir menn svo það verður spennandi að
sjá hvað hann gefur. Hann er ættaður undan syni Kára sæðishrút.

Þessi fallega flekkótti hrútur er í eigu Bárðar og hann fékk hann á Bergi hjá Önnu Dóru
og Jón Bjarna og hann er undan Topps dóttur og Hæng syni.
28 ómv 3,3 ómf 4 lögun 113 fótl 
8 8,5 8,5 8 9 18,5 8 8 8,5 alls 85 stig

Hérna er hvíti okkar Einbúi sem við eigum saman hann er undan Tungu og Ísak.

51 kg 36 ómv 5,8 ómf 4 lögun 108 fótl 
8 8,5 9 9,5 9 19 8 8 8 alls 87 stig.

Þessi er undan Börk sæðishrút og Gloppu frá Sigga í Tungu
Bárður keypti hann af Sigga.


Partur Klettssonur hjá Bárði. Hann er að gefa rosalega góða gerð og bara allan 
pakkann og ég ætla að fá að prófa hann núna í vetur.

Þessi er undan Kára sæðishrút og Frigg frá Mávahlíð. Bárður á hann.
Svarti lambhrúturinn er undan þessum.

Þessi er undan Vita frá Bergi og er í eigu Bárðar.

Þessi fyrirsæta forrystan hans Bárðar styllti sér vel upp fyrir myndatöku með 
fallega Kirkjufellinu í baksýn.

Ég veit að þessar lambamyndir eru að koma seint inn hjá mér en það bara drógst svo 
á langinn því talvan hrundi hjá mér. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessum
fallegu gripum hjá Bárði og Dóru einnig er smá myndir af okkur fjölskyldunni af bústaða
ferð í Ölfusborgum. Svo ef þið hafið áhuga á því endilega kíkið hér í albúm

Það eru svo væntanlegar myndir af ásettningi hjá Óttari á Blómsturvöllum ég er búnað 
gera mér heimsókn til hans og taka myndir svo þær koma fljótlega inn emoticon

Takk fyrir innlitið góðir gestir .............

04.12.2016 09:43

Rollurnar teknar inn og rúningur.

Við erum löngu búnað smala rollunum heim en það vantaði 5 stykki sem við erum búnað vera
leita af á hverjum degi. Við erum búnað vera gefa þessum á kvöldin og hafðar inni en svo settar
út yfir daginn þangað til það verður tekið af þeim.

Okkur til allra hamingju þá fundum við þessar fimm sem okkur vantaði. Eina frá Sigga og fjórar
frá okkur. Þær voru að fela sig einhverstaðar inn í Búlandshöfða og ég var búnað keyra daglega
að gá af þeim og við vorum að gera okkur klár að fara ganga upp á Höfða til að fara leita af þeim
en þá sáum við þær fyrir neðan veg fyrir ofan Búlandið. Við vorum afskaplega fegin að finna þær
og rákum þær út á Tungu. Hér er Siggi að ganga á eftir þeim í Búlandshöfðanum.

Hér eru þær komnar áleiðis og eru að nálgast Mávahlíðarhelluna. 
Fjallið sem sést hér í fjarska er Ólafsvíkur Enni.

Hér er ég búnað sortera litina fyrir rúninginn.

Gummi klippari mættur til okkar að rýja. Ég var fyrst bara ein að draga í hann og ég átti fullt í 
fangi með að draga þessar stóru sem eru allar þyngri en ég en það hafðist á endanum.
Svo sem betur fer kom Bói mér til aðstoðar.

Það fer vel um þær í fanginu á Gumma.

Jóhanna á hleranum.

Bói mættur á svæðið.

Hér er búið að snyrta allar og gefa þeim á garðann og þær alveg alsælar.

Nú er spennandi tími framundan að fara dekra við þær og leggja höfuð í bleyti yfir að raða þeim
í hrútana og velja sæðis hrútana.


Hér eru stóru hrútanir okkar Zorró er að fara á annan vetur.

Mávur Blika sonur er líka að fara á annan vetur og hann er að fara í afkvæmarannsókn 
hjá Heiðu á Gaul.

Ísak Tvinna sonur er líka á öðrum vetri og er að fara í afkvæmarannsókn líka hjá Heiðu á Gaul.
Það er mikill heiður og verður spennandi að sjá hvernig það kemur út.


Þetta er nú alveg yndislegt veður sem er hjá okkur núna í desember. Ég man ekki eftir eins
hlýjum vetri eins og er búið að vera núna í ár.

21.11.2016 22:39

Ásettningurinn okkar 2016

Orabora er undan Guggu og Zorró. Tvílembingur

43 kg 31 ómv 4,1 ómf 4,5 lögun 108 fótl 8,5 framp 17,5 læri 9 ull 8,5 samræmi.


Hlussa er undan Þotu og Máv. Tvílembingur

52 kg 30 ómv 3,1 ómf 4 lögun 107 fótl 8,5 framp 18 læri 8,5 ull 8,5 samræmi.


Bifröst er undan Dröfn og Ísak. Tvílembingur

50 kg 32 ómv 3,6 ómf 4,5 lögun 108 fótl 9 framp 17,5 læri 8 ull 8,5 samræmi.


Arena er undan Ljósbrá og Máv. Undan gemling

40 kg 35 ómv 4,2 ómf 5 lögun 106 fótl 9 framp 18 læri 8,5 ull 8,5 samræmi.


Öskubuska er undan Sölku og Zorró. Þrílembingur

43 kg 32 ómv 4,2 ómf 4 lögun 106 fótl 9 framp 18 læri 7,5 ull 8,5 samræmi.


Rósa er undan Rósalind og Skara. Hún er í eigu Emblu dóttur okkar hún valdi hana.

38 kg 23 ómv 3,5 ómf 3 lögun 106 fótl 7,5 framp 16 læri 8 ull 8,5 samræmi.

Þetta er án efa lélegasta gimbur sem sett hefur verið á frá upphafi en ég marg reyndi
að benda Emblu dóttur minni á aðrar en hún þekkti þessa alltaf aftur svo það var ekki 
hægt að neita henni um hana. Það vill svo skemmtilega til að hún er rosalega gæf
og hefur alveg brætt mig svo ég er alveg búnað meðtaka hana og hef fulla trú á henni.
Hún sem sagt gekk móðurlaus í sumar rollan drapst afvelta upp á fjalli.


Fía Sól er undan Þrumu og Styrmi. Tvílembingur

50 kg 27 ómv 5,2 ómf 3,5 lögun 109 fótl 8 framp 17,5 læri 8 ull 8,5 samræmi.


Þyrnirós er undan Saum og Dalrós. Tvílembingur

40 kg 31 ómv 2,2 ómf 4,5 lögun 102 fótl 9 framp 17,5 læri 8,5 ull 8,5 samræmi.


Þoka er undan Ísak og Elsu. Tvílembingur

55 kg 31 ómv 4 ómf 4 lögun 8,5 framp 18 læri 8 ull.


Árás er undan Hosu og Korra. Tvílembingur

44 kg 32 ómv 4,8 ómf 4 lögun 106 fótl 9 framp 18,5 læri 7,5 ull 8,5 samræmi.


Skuld er undan Svönu og Kölska. Tvílembingur

47 kg 34 ómv 2,9 ómf 5 lögun 107 fótl 9 framp 18,5 læri 8 ull 8,5 samræmi.


Urður er undan Snældu og Ísak. Tvílembingur

46 kg 30 ómv 2,9 ómf 4 lögun 106 fótl 9 framp 18 læri 7,5 ull 8,5 samræmi.


Villimey er undan Vetur og Ýr. Tvílembingur

48 kg 31 ómv 3,5 ómf 4 lögun 106 fótl 8,5 framp 17,5 læri 7,5 ull 8,5 samræmi.


Snædrottning er undan Ísak og Maístjörnu. Tvílembingur

45 kg 29 ómv 2,9 ómf 4 lögun 108 fótl 8,5 framp 17,5 læri 9 ull 8,5 samræmi.


Gæfa er undan Marel og Skuggadís. Tvílembingur

48 kg 27 ómv 4,7 ómf 4 lögun 108 fótl 8,5 framp 17,5 læri 8 ull 8,5 samræmi.


Sarabía er undan Móheiði og Skara. Tvílembingur

48 kg 30 ómv 4,7 ómf 4,5 lögun 109 fótl 8,5 framp 17,5 læri 9 ull 8,5 samræmi.


Nutella er undan Snót og Máv. Hún er í eigu Emelíu frænku Emils. Tvílembingur

43 kg 32 ómv 2,6 ómf 4,5 lögun 106 fótl 8,5 framp 18 læri 9 ull 8,5 samræmi.


Morgunstjarna er í eigu Jóhönnu og er undan Hnotu og Zorró.

40 kg 30 ómv 109 fótl 4,2 ómf 4,0 lögun 8,0 framp 17,5 læri 8,0 ull 8,5 samræmi.

Hér koma svo lambhrútarnir sem verða settir á núna.


Kaldnasi er keyptur frá Eybergi og Laugu Hraunhálsi. Hann er undan Magna og Urtu.
Hann er þrílembingur.

45 kg 107 fótl 29 ómv 3,6 ómf 3,5 lögun

8 8 8,5 8,5 8,5 18 9 8 8,5 alls 85 stig.


Askur er undan Kalda og Brælu. Bræla er veturgömul undan Bekra.

53 kg 35 ómv 4,2 ómf 4 lögun 109 fótl

8 9 8,5 9 9,5 18,5 8 8 8 alls 86,5 stig.


Einbúi er undan Ísak og Tungu og er í eigu míns og Bárðar.

58 kg 35 ómv 2,5 ómf 5 lögun 108 fótl.

8 8,5 9 9 9 18,5 9 8 8,5 alls 87,5 stig.

Þetta er smá af myndunum sem ég náði að bjarga en svo þurfti ég að taka sumar upp 
á nýtt sem ég náði ekki að bjarga. Þess vegna eru sumar með meira af grasi í ullinni
því þær myndir tók ég bara núna í gær.

Ég er búnað spekja 3 gimbrar það eru Gæfa hún er extra spök og kemur hlaupandi
þegar maður fer ofan í kró svo er það hún Rósa hennar Emblu og síðan er það 
hún Þyrnirós. Af hrútunum er Kaldnasi svakalega gæfur ég held ég hafi bara aldrei
átt eins spakan hrút hann er alveg einstakur. Askur er en styggur og Einbúi er hjá 
Bárði og Dóru inn á Hömrum.

Það verður komið að rýja hjá okkur í dag og ég er fór í morgun og sorteraði litina 
og gerði klárt hann kemur að klippa kl 5 svo ég missi því miður af kynningar
fundinum um sæðingar hrútana. 

Verð að fá skýrslu frá þeim sem fara á fundinn 
hvað verður sagt um gripina. En jæja læt þetta duga í bili.







14.11.2016 09:00

Ásettnings gimbrarnar hjá Gumma Óla Ólafsvík

Þessi er undan Rönd og Svima sæðishrút.

49 kg 36 ómv 2,8 ómf 5 lögun 9,5 framp 19 læri 7,5 ull


Þessi er undan Gránu og Ísak.

46 kg 32 ómv 2,6 ómf 4,5 lögun 9 framp 18,5 læri 8,5 ull.


Þessi er undan Dóru og Ísak.

54 kg 31 ómv 2,6 ómf 4,5 lögun 9 framp 18,5 læri 8 ull.


Þessi er undan Ólínu og Ísak.

45 kg 34 ómv 4 ómf 4,5 lögun 9 framp 18 læri 8 ull.


Þessi er undan Gullu og Zorró.

53 kg 33 ómv 4,1 ómf 4 lögun 9 framp 18 læri 8 ull.


Þessi er undan Ísak og Elsu.

52 kg 33 ómv 2,9 ómf 4 lögun 9,5 framp 19 læri 8 ull.


Þessi er undan Flekku og Zorró.

47 kg 32 ómv 5,4 ómf 4 lögun 9 framp 18,5 læri 8 ull.


Veturgömlu hjá honum eða tvævettlurnar núna.

Fallegar kindur hjá Gumma mér finnst þessi svarflekkótta svo skemmtileg á litinn.

Svo flott og frábær fjárhús og litadýrðin alveg æðisleg hann er alveg búnað slá mér við
í litunum og mér finnst þetta alveg frábært hjá honum.

Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessum flottu fjárhúsum og fallega fénu hans.
Endilega skoðið með því að klikka á albúms linkinn hér fyrir ofan.


Því miður hrundi talvan mín og ég glataði myndunum mínum sem ég var búnað taka í haust
af smölun og öllu. Inn í því var svo myndir af ásettnings gimbrunum mínum og hjá Bárði
og Dóru á Hömrum svo ég verð að fara og taka myndir af þeim aftur en það verða ekki
alveg eins flottar myndir því þær eru búnað vera lengi inni og ullin orðin aðeins með grasi
en ég verð að láta það duga fyrst svona fór.

09.11.2016 22:20

Gimbranar hjá Jóa og Auði Hellissandi

Gulla móðir Gjöf og faðir Sokki.

46 kg 31 ómv 4,0 ómf 4 lögun 9 framp 18 læri 7,5 ull


Kiddý móðir Kristbjörg og faðir Hugur

43 kg 29 ómv 3,9 ómf 4,5 lögun 9 framp 18 læri 9 ull.


Skellibjalla móðir Rósalind og faðir Hugur

49 kg 33 ómv 5,9 ómf 4,5 lögun 9 framp 17,5 læri 7,5 ull.


Tinna Nótt móðir Elding og faðir Hugur.

50 kg 27 ómv 4,6 ómf 4 lögun 9 framp 18,5 læri 8 ull.


Svakalega flott fjárhúsin hjá þeim Jóa og Auði og þar er sko dekrað við rollurnar og 
lömbin. Hlýleg og björt fjárhús hjá þeim og allt svo rólegt og yfirvegað. Það var mjög 
gaman að koma til þeirra og fá að skoða. Það eru svo fleiri myndir af heimsókn okkar
hér inn í mynda albúmi.

Það verður smá bið eftir myndum af gimbrunum mínum og frá Bárði og Dóru því ég var
búnað græja þær en þá hrundi talvan mín svo ég er bara með gamla núna að redda mér
og ég var svo heppin að ég var en þá með myndirnar sem ég tók hjá Auði og Jóa í 
myndavélinni svo ég gat sett þær inn. Ég vona samt heitara en allt að það náist að bjarga
myndunum sem ég átti í hinni tölvunni.

Jæja læt þetta duga að sinni og endilega kíkið í albúmið og skoðið flottu fjárhúsin hjá 
Jóa og Auði og flottu kindurnar og ásettnings gimbranar.

31.10.2016 22:00

Gimbranar hans Sigga í Tungu

Þessi er undan Skrúfu og Drjóla 

50 kg 30 ómv 4,3 ómf 3,5 lag 106 fótl

8 framp 17,5 læri 8 ull 8,5 samræmi.


Þessi er undan Svört og Máv.

51 kg 35 ómv 2,2 ómf 5 lag 108 fótl

9 framp 19 læri 8 ull 9 samræmi.


Þessi er undan Vetur og Litlu Gul.

52 kg 35 ómv 4,9 ómf 4,5 lag 109 fótl

9 framp 18 læri 7,5 ull 8,5 samræmi.


Þessi er undan Ísak og Spíru.

53 kg 33 ómv 3,6 ómf 5 lag 110 fótl

9 framp 18 læri 7,5 ull 8,5 samræmi.


Þessi er undan Drjóla og Skrúfu systir hinnar fyrir ofan.

50 kg 30 ómv 3,1 ómf 3,5 lag 107 fótl

7,5 framp 17,5 læri 8,5 ull 8,5 samræmi.


Þessi er undan Snekkju og Saum.

45 kg 32 ómv 3,6 ómf 4,5 lag 105 fótl

8,5 framp 18 læri 8,5 ull 8,5 samræmi.


Þessi er undan Korra og Fönn.

47 kg 32 ómv 3,3 ómf 4 lag 107 fótl

8 framp 18 læri 8,5 ull 8,5 samræmi.


Þessi er keypt frá Bárði og er undan Styrmi.

45 kg 24 ómv 3,1 ómf 3,5 lag

8,5 framp 18 læri 8 ull.


Þessi er undan Dropu og Korra.

50 kg 36 ómv 3,4 ómf 4,5 lag 106 fótl

9 framp 19,5 læri 8 ull 8,5 samræmi.

Hrútarnir hjá Sigga.


Móri er undan Soffíu og Styrmi.

58 kg 30 ómv 3,9 ómf 3,5 lag 110 fótl

8 8,5 8,5 8,5 8,5 18 8 8 8,5 alls 84,5 stig.


Þessi heitir Glámur og er undan Snekkju og Saum.

52 kg 38 ómv 3,5 ómf 5 lag 106 fótl

8 8 8,5 9,5 8,5 18,5 8,5 8 8,5 alls 86 stig.


Þetta er Grettir og er undan Svört og Máv.

55 kg 33 ómv 2,0 ómf 4,5 lag 109 fótl

8 8,5 9 9 9,5 19 7,5 8 8 alls 86,5 stig.


Hér eru stóru komnir inn og þetta er Drjóli Hæng sonur frá Sigga og svo Zorró okkar.

Korri hans Sigga er Garra sonur og er undan Svört. Hann er rosalega stór og fallegur.

jæja þá er hans ásettningur kominn inn og svona næstu daga fer ég að henda inn 
nýjum bloggum af ásettnings gimbrum hjá mér og fleirum eftir því hvað ég verð
dugleg að vinna þetta inn hjá mér.

19.10.2016 22:39

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi 2016

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi 2016 var haldinn vestan girðingar 
hjá Heiðu og Júlla á Gaul. Lárus Birgisson og Jón Viðar Jónmundarson voru dómarar.
Þar voru mættir til leiks 17 mislitir , 9 kollóttir og 29 hyrndir.
Þessum hrútum var svo raðað upp eftir flokkum og úr þeim valdir 5 efstu í uppröðun
og svo keppa þeir við þá efstu sem verða sunnan girðingar.
Sýningin hófst klukkan 13:00 á Gaul og lauk um 16:30
Það var vel mætt og að uppröðun lokinni var boðið upp á súpu
frá Heiðu sem var alveg rosalega góð og vakti mikla lukku ásamt nýbökuðu brauði.
Þetta var skemmtileg sýning og frábær aðstaða í flottum fjárhúsum á Gaul.
Golsótti hrúturinn okkar vakti mikla eftirtekt vegna litarins því hann er ekki bara
golsóttur heldur er hann botnóttur líka svo hann er golsubotnóttur
hann fór í uppröðun af 5 mislitu hrútunum. 
Í hvítu hyrndu fór Saum sonurinn hans Sigga í 5 uppröðun.
Sunnan girðingar mættu 5 mislitir, 4 kollóttir og 15 hyrndir. 
Í heildina voru 22 mislitir, 13 kollóttir og 44 hyrndir.
Bæði vestan og sunnan girðingar.
Sýningin hófst kl 20:30 í Haukatungu Syðri 2 hjá Ásbyrni og Helgu.
Þar var byrjað á því að skoða hrútana og raða upp.
Að því loknu bauðu Ásbjörn og Helga upp á kaffi og kökur
í hlýlega og glæsilega fjárhúsinu þeirra.
Á meðan fóru Jón Viðar og Lárus afsíðis að bera saman hrútana og finna
nýjan héraðsmeistar 2016.
Ég fór með verðlaun fyrir hönd Fjárræktarfélagsins Búa á sýninguna en það var
mynd sem ég teiknaði af hrút og setti það í bleikt skraut í tilefni bleiku slaufunar.
Seinni sýningunni lauk svo um hálf 12. Þetta var mjög skemmtilegur dagur og 
frábær sýning á báðum stöðum. Ég tók stuttlega sögu af deginum saman
sem þið getið skoðað hér ásamt myndum sem eru í mynda albúmi.

Héraðsmeistarinn 2016 er Garra sonur frá Ásbyrni og Helgu Haukatungu Syðri 2.

Héraðsmeistarinn 2016.
Griðalega fallegt lamb og með frábæran blett á afturfót. Faðir Garri.

53 kg 112 fótl 37 ómv 2,7 ómf 5 lag

8 9 8,5 10 9 18,5 7,5 8 9 alls 87,5 stig

Í öðru sæti var hrútur frá Dalsmynni. Faðir Tangi

57 kg 111 fótl 34 ómv 4,3 ómf 4,5 lag

8 8,5 8,5 9,5 9 18,5 8 8 8,5 alls 86,5 stig


Held að þetta sé hrúturinn frá Dalsmynni sem var í öðru sæti sem er með svarta teypið.

Í þriðja sæti var svo hrútur frá Helgu og Ásbyrni Haukatungu Syðri 2. Faðir Stefán

54 kg 108 fótl 33 ómv 4,3 ómf 5 lag

8 8,5 9 9,5 9 18,5 8 8 8,5 87 stig.


Hér er mynd af honum.


Hér má sjá hvitu hyrndu hrútana fyrir vestan girðingu.

Og hér eru fleiri í þeim hóp.

Þessi ungi framtíðarbóndi og ef ekki ráðanautur gaf dómurunum ekkert eftir í að 
skoða hrútana. Þetta er hann Baldur sonur Arnars og Elísabetu Kálfárvöllum.

Þessir fjórir voru í uppröðun ásamt Sigga hrút sem er Saum sonur.

Hér er hann á endanum sem Eyberg heldur í . Sem sagt það var hérna vestan girðingar
voru 5 í uppröðun og það var frá Heiðu á Gaul, Arnari á Kálfárvöllum, Fáskrúðabakka
og ég veit ekki alveg hver hinn er.

Flottur Kölska sonur frá Arnari og Elísarbetu Kálfárvöllum.

Þessi var í uppröðun líka og er frá Fáskrúðarbakka. Flottur hrútur.

Þessi var gríðarlega fallegur hann er frá Heiðu á Gaul og er undan Kalda.

Hvítu hyrndu sunnan girðingar.

Hvítu hyrndu sunnan girðingar.

Fimm efstu í uppröðun sunnan girðingar.

Besti kollótti hrúturinn 2016 var frá Dalsmynni. Faðir Stöðvar

54 kg 107 fótl 33 ómv 5,4 ómf 4,5 lag

8 8,5 8,5 9 8,5 18 9 8 8,5 alls 86 stig


Hér er hann mjög fallegur hrútur frá Dalsmynni.

Í öðru sæti var hrútur frá Bjarnarhöfn. Faðir Deddi

54 kg 110 fótl 30 ómv 4,8 ómf 4,5 lag

8 9 9 9 9 18,5 8,5 8 8 alls 87 stig.

Í þriðja sæti var hrútur frá Hraunhálsi. Faðir Kópur

44 kg 107 fótl 34 ómv 3,5 ómf 4 lag

8 9 9 9 9 18,5 7,5 8 8 alls 86 stig.


Kollóttu fyrir vestan girðingu á Gaul.

Fimm efstu í uppröðun vestan girðingar. 1 frá Eyberg og Laugu Hraunhálsi. 3 frá 
Hjarðafelli og einn frá Bjarnarhöfn.

Litli Baldur var orðinn ansi þreyttur á Gaul í restina og fékk sér smá lúr hjá afa sínum.

Kollóttu hrútarnir í uppröðun sunnan girðingar þeir voru alls 4 til keppni þar.
Þrír frá Ásbyrni og Helgu og einn frá Dalsmynni.

Þessi unga dama var yngsti bóndinn á sýningunni og stal alveg senunni með fallega
brosinu og gleðinni sem geislaði af henni á Haukatungu seinni hluta sýningarinnar.

Besti misliti lambhrútur 2016 var frá Haukatungu Syðri 2. Faðir Kúði

39 kg 106 fótl 32 ómv 2,0 ómf 5 lag

8 8,5 9 9,5 9 19 8 8 8,5 alls 87,5 stig


Hér er hann besti misliti lambhrúturinn 2016 frá Helgu og Ásbyrni Haukatungu Syðri 2.

í öðru sæti var svarflekkóttur hrútur frá Eggjarti á Hofstöðum. Faðir Slutti

54 kg 112 fótl 35 ómv 3,3 ómf 4 lag

8 9 8,5 9 9,5 19 7,5 8 8,5 alls 87 stig

Í þriðja sæti var hrútur frá Hraunhálsi sem Ásbjörn keypti af þeim. Faðir Kópur

45 kg 107 fótl 30 ómv 4,5 ómf 4 lag

8 9 9 9 9,5 18 8,5 8 8 alls 87 stig.


Hér er sá sem var í þriðja sæti en ég náði ekki mynd af öðru sætinu.


Hérna sést í flekkótta hrútinn sem var í öðru sæti ásamt hinum mislitu vestan girðingar.

Allar útgáfur af litum.

Skemmtilega margir mislitir þeir voru 17 vestan girðingar.

Hérna eru 5 í uppröðun vestan girðingar. Svarflekkóttur frá Hofstöðum, Svartur frá
Óttari Blómsturvöllum. Botnugolsóttur frá Mávahlíð. Svartur frá Fáskrúðabakka og 
svartur frá Laugu Hraunhálsi.

Hér er svo mynd af honum botnugolsa mínum.

Mislitu sunnan girðingar. Þeir voru alls 5. Þrír frá Ásbyrni og einn frá Hraunhálsi og 
einn frá Kristbyrni.

Flottir hrútar hér á ferð.

Eyberg og Lauga komu með skemmtilegan grip í keppni með mislitu hrútunum en það
var ferhyrndur hrútur sem þið sjáið hér.

Vígalegur hrútur hér hjá þeim.

Aðeins meiri nærmynd af honum.

Það voru svo einnig veitt verðlaun fyrir afurðarhæðstu 5 vetra ærnar.

Í fyrsta sæti var ær nr 11-194 frá Hjarðarfelli með 114 í einkunn.

Gerð 104 fita 116 frjósemi 110 Mjólkurlagni 110

Móðir Stólpa sem vann héraðssýningu 2013 og verður á sæðingarstöð næsta vetur.

Í öðru sæti var ær nr 11-301 frá Mýrdal með 113,8 í einkunn.

Gerð 93 fita 112 frjósemi 121 Mjólkurlagni 118. 

Er undan Kára heimahrút sem var undan Kalda 03-989.

Í þriðja sæti var ær nr 11-302 frá Mýrdal með 113,2 í einkunn.

Gerð 102 fita 107 frjósemi 114 Mjólkurlagni 121. 

Er líka undan Kára heimahrút undan Kalda 03-989.


Hér eru þau vinningshafarnir fyrir afurðarhæðstu 5 vetra ærnar.

Hér er Ragnar á Kverná, Óttar Blómsturvöllum og Hallur á Naustum.

Elísabet með Bald sem var svo duglegur að mæta á báðar sýningarnar og var svo 
áhugasamur en leiddist að bíða eftir úrslitum og fékk sér lúr á báðum sýningunum
enda erfitt að vera svona lítill og vaka allann daginn.

Hér var hann Baldur í röð með mömmu sinni að fara skoða hrútana.

Svona endaði svo kvöldið hjá litla bóndanum alveg búin á því búnað dæma í allann dag.
Það verður spennandi að fylgjast með honum í framtíðinni hann verður örugglega
án efa stórkostlegur fjárbóndi.

Þessar mæðgur Hildur og Elva frá Hellissandi fylgdust spenntar með.

Mamma mætti með stelpurnar mínar að sjá hrútana á Gaul.

Stelpurnar skemmtu sér vel við að búa til engla í hlöðunni á Gaul.
Hér er Sveina dóttir Hlédísar og vínkona hennar.

Kristinn bæjarstjóri kom og kíkti en aðeins of seint þá var sýningin búinn á Gaul en
hann náði þó spjalli við Lárus.

Hér er Ásbjörn að veita Helgu verðlaunin fyrir besta mislita hrútinn 2016.

Hér veitir Lárus svo Ásbyrni Farandsskjöldinn fyrir besta lambhrút Snæfellinga 2016.

Hér eru þau hjónin Ásbjörn og Helga Haukatungu Syðri 2 með skjöldinn.
Ég óska þeim innilega til hamingju með alla flottu hrútana sína og öllum hinum
verðlaunahöfunum. Takk fyrir frábæra sýningu og skemmtilegan dag.

Það eru svo fleiri myndir sýningunni hér inn í albúmi.






Flettingar í dag: 258
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 1001
Gestir í gær: 33
Samtals flettingar: 724962
Samtals gestir: 47661
Tölur uppfærðar: 5.5.2024 05:50:45

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar