Jæja það var smalað fyrir mig á laugardaginn og var heldur erfitt að vera föst í bílnum með kíkirinn í allar áttir en svona verður það þetta árið og fékk hann Benóný Ísak að hristast í bílstólnum aftur í steinsofandi á malarveginum inn í sveit. Þetta gekk svo allt bara ljómandi vel og var svo farið í frábærar veitingar hjá Gerðu í Tungu. Spenningurinn var síðan orðin svo mikill að ekki var hægt að bíða lengur eftir að fara skoða lömbin. Benóný þurfti þá náttla endilega að vakna, þegar ég var að fara út í fjárhús en ég lét það nú ekki stoppa mig og fékk hann að koma með og finna rollu ilminn í fyrsta sinn og líkaði vel því hann sofnaði í fanginu á mér.
