Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

Færslur: 2021 Desember

24.12.2021 17:18

Gleðileg Jól

Jólagleði í fjárhúsunum.

Fjölskyldumynd af börnunum okkar.

Stelpurnar með Ljóma að fara með hann í jólaskap.

Kristinn og Bolti komnir í jólaskap og í góðum gír á aðfangadag.

Siggi og Bibbi óska gleðilegra jóla.

Hér er jólatréð svo glæsilegt en við lentum svo í því að fóturinn gaf sig og það datt niður
í fyrradag og allar fallegu jólakúlurnar sem við höfum keypt í gegnum árin í Jólahúsinu
á Akureyri fóru í small alveg örmurlegt. En við reistum það við og allt hafðist þó kúlurnar
væru tapaðar.

Við fjölskyldan óskum ykkur kæru vinir og ættingjar gleðilegra jóla og hafið það yndislegt
yfir hátíðarnar.

24.12.2021 08:29

Nóg að gera í fjárhúsunum

Það bætast alltaf við fleiri og fleiri á dag sem eru að ganga og það er nóg að gera hjá hrútunum
í fjárhúsunum að hafa undan að sinna þeim. Einn daginn var notkun á flestum hrútum og það
gengur misvel hjá mér að fara með þá he he. Óðinn er mjög krefjandi og bókstaflega flýgur
með mig af stað þegar ég set taum á hann og labba með hann í kindurnar.

Hér er Óðinn hann er Vask sonur sem er Ask sonur og undan kind sem heitir Bomba og hún
er undan Máv sem var á sæðingarstöðinni frá okkur.

Hér er Grettir hans Sigga sem er undan Svört og Máv sem var á sæðingarstöðinni frá okkur.
Hann er aðal leitar hrúturinn minn þó hann sé svakalega stór þá er hann mjög viðráðanlegur
og er svo góður við mig og bíður meðal annars eftir að ég opni inn fyrir hann og er ekkert að
reyna riðjast á mig.

Hér er Bassi að störfum hann er undan Bolta. Bolti er Vikíngssonur og Vikingur er frá
Bárði og Dóru á Hömrum.

Hér er Ljúfur að störfum hann er undan Óðinn og Kolfinnu. Kolfinna er Myrkva dóttir.

Hér er Bolti Vikíngs sonur að fara á Djásn og við að vonast eftir sömu uppskrift við fengum
bestu gimbur sem við höfum fengið undan þeim 2020 það var þrilembingur hún Epal
með 41 í ómv og 19,5 í læri.

Hér Ingibergur hans Sigga sem er kallaður Bibbi. Hann fer á nokkrar hjá okkur.

Hér var nóg að gera hjá Óðinn í fyrradag.

Hér er Bolti Víkingssonur og hann er í eigu Kristins. 

Hér er Dagur hann er undan Mínus sem var á sæðingarstöðinni og Sóldögg frá okkur sem
á ættir í Þorsta sem var einu sinni á stöðinni.

Hér eru tvær botnur frá Óttari sem Pétur Steinar kom með til okkar í hrúta.
Eins og þið sjáið þá er ég að nota marga hrúta og þarf að teyma þá í hverja kind fyrir sig svo
þetta krefst mikilla vinnu og þolinmæði. Það er komið vel á fengitímann eins og er.

19.12.2021 15:51

Sæðingar og fleira

Hér er ein hjá Jóa og Auði að fá með Bolta 8 des.

Lóa og Gjöf voru mjög áhugasamar um þetta og voru báðar að ganga á sama tíma en þær
fá næst þegar þær ganga.

Við byrjuðum að sæða 10 des. Þá voru sæddar 2 lömb og ein kind kollótt með Bikar og 
svo annað lamb og kind með Kurdó og svo 2 hjá Sigga með Kapall og tvær með Amor.

Hér er ég að sæða og Siggi heldur í þær á meðan og svo er hrúturinn hafður í stíu við
hliðina á þeim.

Hér er Rósa að fá með Diskó 11 des.

Hér er Dögg og Snúlla að fá með Prímus 13 des.

Báturinn Lilja SH sem Emil er skipstjór á , var tekinn upp um daginn og gert við hann því það hefði komið gat á hann í vonda veðrinu um daginn þá hefur hann rekist í við bryggjuna.

Við fórum svo suður á miðvikudeginum fyrir sæðingar og kláruðum slatta af jólagjafa 
innkaupunum. Hér er Benóný og Freyja í Kids Collshop.

Embla líka við stóra hestinn sem er þar.

Það var svo skellt sér í Rush með krakkana.

Embla í loftinu.

Hér er nóg um að vera og krakkarnir fá útrás eftir allar búðirnar.

Freyja að fara klifra.

Embla Marína ánægð með nýju úlpuna sína sem hún fékk í Cintamani.

Elsku glaðlynda og hjartahlýja Freyja Naómí okkar var 9 ára þann 12 des.
Við héldum stelpu kósý afmæli fyrir hana á afmælisdaginn hennar 12 des og svo í framhaldi 
af því fór ég að sæða og svo var fjölskylduafmæli fyrir hana líka svo þetta var stór og flottur
dagur hjá okkur.

Hér er afmæliskakan sem við Freyja skreyttum saman.

Af sæðingunum að segja voru ekki margar sæddar hjá okkur það gekk betur fyrir mig að
sæða hjá Sigga hann fékk fleiri kindur.

10 des voru 5 sæddar tvær með Kurdo og þrjár með Bikar.

11 des voru 2 sæddar með Ramma.

12 des voru bara eitt lamb hjá mér með Kappa.

Svo í heildina hjá okkur eru þetta 8 stykki og af því eru 5 lömb og 2 veturamlar og 1 fullorðin.
Svo þetta verður spennandi að sjá og auðvitað halda þær allar er þaggi á maður ekki að vera
jákvæður og sannfærður um það emoticon

Síðan hefur bara gengið rólega hjá okkur svona tvær til fjórar á dag. Við fórum svo með til
Bárðar í mórauða hrútinn hjá honum frá Lalla Sverris Gröf og í Glitnis soninn hjá Bárði og
skiljum þær eftir þangað til þær eru búnað fá.

07.12.2021 18:07

Fengitími nálgast

Gemlingarnir.

Þær eru 10 öðru megin og 11 hinum megin.

Alger snilld hjá Sigga og Kidda þeir eru búnað smíða bretti undir vatnsstampinn
svo kindurnar séu ekki alltaf að skíta í hann og núna helst hann alveg hreinn og flottur.

Hér er annar hjá gemlingunum.

Hér er kind frá Jóa og Auði Hellissandi að fá með Bolta og Lóa fylgist spennt með.
Við erum ekki byrjuð að hleypa til en Jói kom með nokkrar kindur sem ég er að fylgjast
með og láta hrút á ef þær eru að ganga.

Lóa svo fyndin.

Hér eru fallegar kindur Brá veturgömul undan Fíónu og Bolta, Dís frá Óttari undan 
Brussu og Ask, Kóróna undan Mosa Gumma og Gyðu Sól frá mér. Þær bíða spenntar
eftir fengitímanum.
Stefnan er að byrja sæða á föstudaginn og taka svo áfram helgina.
  • 1
Flettingar í dag: 359
Gestir í dag: 45
Flettingar í gær: 1174
Gestir í gær: 117
Samtals flettingar: 706037
Samtals gestir: 46658
Tölur uppfærðar: 18.4.2024 09:21:21

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar