
Hér er Chris að verki allveg ótrúlega snöggur og þetta allveg leikur
í höndunum á honum.
Hér er svo félagi hans með Topp. Þeir fóru nú bara létt með að
taka af þessum stóru þungu hrútum.
Hér má sjá gimbrarnar hans Sigga í Tungu það er ekki amalegt að fá að taka í svona læri.
Hér er Embla með mér í fjárhúsunum hún var 11 mánaða um daginn.
Benóný með Steina frænda sínum að gefa hestunum brauð.
Ég hef ekki náð að blogga mikið núna því fartalvan er að gefa sig ég sé ekkert á skjáinn og varð að tengja hana við sjónvarpið ekki gaman. Ég lét mig þó hafa það núna að skella þessu inn. Það eru fullt af myndum af rúninginum og fleiru hér svo endilega kíkið. Ég á svo eftir að ná betri myndum af hrútunum og skella inn.