Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
26.06.2012 23:40Ég þrítug úff. Heiti potturinn á pallinn og Bústaðaferð.Ég varð víst þrítug 17 júní og vaknaði þá með þrjátíu fleiri hrukkur í framan og bauga undir augunum og svaf yfir mig ![]() Minn ástkæri Emil bauð mér svo út að borða á Argentínu og það var algjört æði og vorum við svo södd eftir það að við vorum allveg bakk enda sváfum við yfir okkur daginn eftir sem var 17 júní he he. ![]() Hér sjáiði gömlu konuna á Argentínu með eftirréttinn Undur og stórmerki gerðust svo áður en við fórum suður þá var hann Nonni vinur okkar svo góður að koma á lyftaranum til okkar og lána Bóa hann til að setja blessaða heita pottinn okkar á pallinn sem er búna vera inn í bílskúr síðan fyrir jól og þar áður í 2 ára viðgerð. Það gekk þó ekki allt sem skyldi því það voru vandræði að koma löppunum niður á lyftaranum og þá hugsaði ég þessi pottur á ekki að komast á pallinn og vera í lagi. Og þó gerðist það, þær fóru niður og Bói gat komið honum inn á pallinn. loksins úff en sá léttir. En ekki er sagan öll því þegar við fórum að þrífa hann og ætluðum að fara prófa setja vatn í hann kom í ljós að það var frostsprungið eitt rör AAAAAArrrggg ![]() Eins og ég segi þetta er óhappa pottur dauðans hann var inn í bílskúr svo ekki hefur það skeð þar svo það hlýtur af hafa skeð þegar hann var í viðgerð allveg hreint ótrúlegt ég fer að henda þessu drasli!!!! ![]() Verið að hífa þetta aparat á pallinn . Eins og ég sagði hérna ofar þá vorum við á Akureyri og illugastöðum í 6 daga. Það var gert margt skemmtilegt spilað á kvöldin,sund á morgnana,kíkt á Akureyri á daginn og rúnt hingað og þangað til Húsavíkur,Grenivík og Svalbarðseyri varð Emil að kíkja þegar hann uppgötvaði að þar væri bryggja ;) he he. Ég meira segja fór í kaffi til kinda vínkonu minnar hennar Birgittu sem bauð okkur í kaffi og tók ekkert smá vel á móti okkur með kökur og kræsingar. Það var ofboðslega gaman að hitta hana og já það má segja að ég segi eins og hún að mér fannst ég þekkja hana til marga ára því við höfum verið í svo miklu sambandi í gegnum heimasíðurnar og eins var rosa gaman hvað Þórður maðurinn hennar þekkti allt vel hér fyrir vestan og þekkti pabba og Steina svo við gátum spjallað heilmikið saman. Benóný fékk svo gefins bíl sem hann vildi ekki sleppa og það er ekkert smá mikið uppáhald hjá honum hann er búnað sofa með hann síðan að hann fékk hann, svo hann hitti gersamlega í mark hjá honum he he. Ég bíð svo bara spennt til að hitta þau aftur í haust ef þau koma hingað í lambaleiðangur. Ég klikkaði þó á því að ná mynd af okkur saman en það er því myndavélin mín bilaði og ég náði bara örfáum myndum en svo fékk ég copy af myndunum hjá Freyju og á eftir að fá hjá Dagbjörtu svo ég set kanski inn fleiri þegar ég fæ þær í hendurnar. ![]() Jóhann og Emil með Benóný í Listagarðinum á Akureyri. ![]() Um daginn vorum við á rúntinum og tókum eftir þessu að einn gemlingurinn okkar var að áreita æðakollu sem lá á hreiðrinu sínu og vildi hún stanga í hana og líkaði vel við þegar æðakollan krúnkaði í hana og kom þessi nautna svipur á gemlinginn að þetta væri eins og að láta klappa sér. ![]() Við héldum áfram að fylgjast með og annar bættist í hópinn að áreita greyjið og þær voru ekkert að hætta bara stönguðu þangað til hún krúnkaði í þær meira he he ekkert smá ruglaðar. ![]() Hér sjáiði nautna svipinn á þeim þegar hún kom við þær ekkert smá bilaðar en á endanum ákvað ég að fara út og reka þær frá því greyji kollan fékk engan frið. Þegar ég kom að ætluðu þær ekkert að fara en greyji æðakollan var búnað rústa hreiðrinu sínu og eggin komin upp úr við lætin í gemlingunum svo ég rak þær frá og fór svo hún gæti lagað þetta og verið í friði he he allveg ótrúlegt hvað þessum kindum dettur í hug. Jæja þetta er komið flott í bili það eru svo myndir hér af hinu og þessu sem ég bloggaði um svo endilega kíkið hér. Skrifað af Dísu Flettingar í dag: 269 Gestir í dag: 8 Flettingar í gær: 7323 Gestir í gær: 19 Samtals flettingar: 1570171 Samtals gestir: 77987 Tölur uppfærðar: 5.4.2025 16:51:15 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is