Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
03.06.2024 09:16Tenerife apríl 2024Jæja þá hef ég loksins gefið mér tíma til að koma þessu bloggi inn hjá mér enda búið að vera nóg að gera eftir að við komum heim frá Tenerife skall sauðburður fljótlega á. Þessi Teneferð var sú allra kaldasta sem við höfum farið í og mikið rok en það var mjög ljúft að komast aðeins í frí og ekki var veðrið skárra heima um páskana það var mjög kalt og leiðinlegt svo við vorum ekki að missa af neinu. Við byrjuðum á að fara á GF Viktoría hótel og það var alveg geggjað og klárlega það flottasta sem við höfum farið á. Benóný var alsæll með garðinn enda margar rennibrautir og svo var hægt að fara í allskonar afþreyingu eins og klifurhús og krakkaklúbb sem höfðaði fyrir allan aldur en þau voru nú ekki alveg tilbúin að fara í hann en Benóný fór aðeins í smá tölvukvöld þá var hægt að fara og spila leiki og svona. Mér fannst líka æðislegt að þú gast farið í tennis og minigolf og það kostaði ekkert var bara innifalið með hótelinu. Við vorum á þessu hóteli í 6 daga og fórum svo yfir á Amerísku og vorum þar í 6 daga og það var hótel Cleopatra palace og það var allt annar standard miðað við hitt en staðsettningin var mjög góð alveg á laugarveginum og við ströndina en veðrið var stundum svo kalt og mikið rok að við vorum ekki mikið í garðinum fórum freka niður á strönd það var hlýrra þar en við áttum mjög góðan tíma saman sem fjölskylda og spiluðum mikið saman á kvöldin og svo var Karítas frænka og Danni kærasti hennar líka úti með foreldrum Danna og við hittum þau og fórum með þeim í Siampark og keyptum tvöfaldan fast pass fyrir Benóný svo hann gat farið í allar rennibrautirnar eins oft og hann vildi og Danni var alveg í uppáhaldi hann var svo duglegur að fara með krökkunum. Sem betur fer fengum við heitt og gott veður þegar við vorum þar svo allir gátu notið sín vel og Ronja fór í minni rennibrautirnar og fannst það alveg æði. Við fórum líka í Monkey park með Ronju svo hún gæti fengið að gefa dýrunum að borða og sjá alla apana það var mjög gaman.
Flettingar í dag: 139 Gestir í dag: 5 Flettingar í gær: 900 Gestir í gær: 35 Samtals flettingar: 1350376 Samtals gestir: 74530 Tölur uppfærðar: 29.1.2025 01:15:39 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is