18.02.2026 16:32
Jæja þá er spennan í hámarki hér er Bubbi að fósturtelja fyrir okkur og Siggi og Emil voru að teyma þær
í hann og Kiddi var ritari og ég ,Selma og Freyja vorum að reka þær og vera á hleranum.
Kiddi spenntur að byrja.
Selma og Freyja til í þetta.
Við vinkonurnar saman ég og Selma.
Þá byrjar ballið.
Þetta kom mjög vel út hjá okkur öllum.
Hjá Sigga eru Gemlingarnir 6
3 eru með 2
3 eru með 1
kindur hjá Sigga eru 35
3 eru með 3
4 eru með 1
rest með 2
Hjá okkur eru gemlingarnir 25
5 voru hafðir geldir
2 voru sónaðir geldir
8 eru með 2
11 með 1
Kindur hjá okkur eru 66
1 með 4
8 með 3
3 með 1
Rest með 2
1 tvævettla var ónýt hún gengur alltaf aftur og aftur.
Alls er von á 164 lömbum af því eru 48 sæðislömb.
Hjá heimahrútunum hljóðar það svona
Prímus er með 5
Tarzan er með 7
Gummi Óla með 10
Koggi með 4
Álfur með 4
Sómi með 22
X með 11
Steini með 17
Dorri með 14
Kakó með 2
Kútur með 8
Hrútur frá Friðgeir með 1
Dallas frá Óla Ólafsvík 11
Sæðishrútar fósturtalning hljóðar svona
Fursti með 2
Faldur með 3
Hlekkur með 2
Hrókur með 6
Verkur með 6
Flói með 3
Bryti með 6
Goði með 6
Magni með 4
Völusteinn með 4
Fáni með 2
Hróður 4
Þetta verður mjög spennandi.
Hér er Dorri búið að taka vírinn úr hornunum á honum og þau eru komin vel frá hjá honum.
Hér er Ronja að klappa gimbrunum.
Hér er hún með Söndru sem er undan Álf og Strönd .
Hér er Freyja umkringd af gimbrunum.
Búið að gefa eftir fósturtalninguna.
Freyja er búnað vera svo dugleg að fara á hestbak og hér er hún og Birgitta frænka
hennar komnar á hestunum fyrir utan húsið okkar.
Við Ronja fórum í göngutúr til ömmu Huldu inn á Dvalarheimili á nýju
hjólaskautunum hennar Ronju.
Hér erum við komnar inn til mömmu á Dvalarheimilið Jaðar.
Ég fór með mömmu á Þorrablót á Jaðri um daginn og það var alveg æðislega flott og gaman.
Hér er Ronja í dag öskudag og fór hún sem norn í skólann.
Flettingar í dag: 1360
Gestir í dag: 34
Flettingar í gær: 1366
Gestir í gær: 35
Samtals flettingar: 2994163
Samtals gestir: 90959
Tölur uppfærðar: 18.2.2026 21:27:41