Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

18.03.2026 23:13

Seinni rúningur og fyrsta sprauta við lambablóðsótt

Þann 5 mars kom Jökull til okkar og tók af snoðið og það gekk svakalega vel hann gerir þetta svo svakalega vel og er svo ótrúlega fljótur.

Ég tók mér frí í vinnunni því hann mætti til okkar strax um morguninn og hann kláraði á hádegi og við buðum honum í hádegismat og ég

fór og sótti fyrir okkur öll hamborgaratilboð á sjoppunni hjá Júnu. 

 


Hér er Jökull að klippa. Siggi sá um að fara yfir ullina. Emil lagði niður kindurnar og

ég og Kiddi drógum þær til Emils og vorum að koma þeim inn í hólfin með hlerum.

 


Hér eru skvísurnar vel klipptar og fínar og allar mjög vel í holdum.

 


Hér er hluti af lambhrútunum.

 


Hér eru hinir.

 


Hér eru Freyja og Ronja duglegar að hjálpa til.

 


Hér er Ronja að knúsa Dögg sem er svo afskaplega blíð kind.

 


Snjónum var tekið fagnandi loks þegar hann lét sjá sig.

 


Ronja að fá smá blys afganga síðan á gamlárskvöld.

 


Benóný á leið á árshátið hjá Fsn.

 


Ronja búnað vera dugleg að hjálpa til í fjárhúsunum.

 


Hér eru gimbranar alveg sjúkar í hana.

 


Marri Már litli frændi kom í heimsókn í fjárhúsin og Ronja var að sýna honum kindurnar svo gaman.

 


Hér er Maggi bróðir minn með Marra sinn í heimsókn í fjárhúsunum.


Við sprautuðum kindurnar á sunnudaginn 15 mars við lambablóðsótt 

fyrri sprautuna. Hér er Emil að halda kindunum meðan Siggi sprautar

og Kiddi réttir næstu sprautu þegar ég er búnað draga upp í sprautuna.

 

Flettingar í dag: 184
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 21701
Gestir í gær: 99
Samtals flettingar: 3193978
Samtals gestir: 91873
Tölur uppfærðar: 19.3.2026 01:34:42

Eldra efni

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar