Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

18.03.2026 20:32

Vetrafrí 26-1mars


Við fórum í sumarbústað upp í Húsafell í vetrafríinu 26 feb til 1 mars.

Við fórum deginum fyrr og bættum við einum degi því það átti að spá svo

illa á fimmtudeginum. Siggi sá um að gefa kindunum fyrir okkur á meðan.


Hér vorum við að taka göngutúr um Húsafell.

 


Hér er Ronja í heitapottinum hún alveg elskar að vera í pottinum og var ekki

fyrr búnað opna augun á morgnana þá vildi hún fara beint í pottinn.

 


Ronja að búa til snjókastala. Það var svo kósý að skella sér í pottinn og taka svo spil

á kvöldinn með stelpunum.

 


Kósý hjá Ronju og Emil í pottinum.

 


Hér er skvísurnar í pottinum. Freyja, Ronja, Erika og Embla.

Þær voru alveg að njóta með andlitsmaska og augnmaska í pottinum.


Skelltum okkur í Krauma það er alltaf jafn gaman að fara þangað.

 


Hér erum við öll saman að borða í Krauma.

Þetta var mjög kósý bústaðarferð og við kíktum til Reykjavíkur í einn dag og fórum

svo upp á Akranes í mat hjá Steinari og Gullu og það var alveg dásamlegt og alltaf þvílík

veisla sem þar er í boði Gullu hún er svo mikil snillingur þegar kemur að bakstri eða eldamennsku og

alltaf svo gaman að koma til þeirra. Krakkarnir skelltu sér í sund með krökkunum og við vorum í heimsókn frameftir

kvöldi hjá þeim. Emil fór svo vestur á undan okkur því hann þurfti að fara róa og við fórum svo heim á sunnudeginum 

einum degi fyrr til að geta átt einn dag heima til að ganga frá og þvo og svona.

Flettingar í dag: 184
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 21701
Gestir í gær: 99
Samtals flettingar: 3193978
Samtals gestir: 91873
Tölur uppfærðar: 19.3.2026 01:34:42

Eldra efni

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar