09.04.2026 14:08
Ronja Rós er búnað vera dugleg að koma með okkur í fjárhúsin og
elskar að vera hjá gemlingunum og klappa þeim þeir eru langflestir orðnir svo spakir.
Harpa alveg að éta Freyju he he.
Það er eins með gemlingana þeir hópast að Freyju til að fá klapp og athygli þær alveg elska hana.
Nútella og Móa eru undan Kakó hans Sigga og eru svo fallegar á litinn.
Embla Marína okkar átti afmæli 28 mars og við fórum dagsferð til Reykjavíkur
hér erum við út að borða og hún fékk smá glaðning með blysi í tilefni þess að vera 15 ára .
Fallega Embla okkar ,við fórum rölt niður í bæ og kíktum í kolaportið sem okkur finnst mjög gaman að fara
en stelpurnar voru ekki eins hrifnar af því he he. Hér erum við á starbuck. Við kíktum svo líka í kringluna og
hún fékk að velja sér föt í afmælisgjöf.
Við kíktum á Magga bróðir og Rut og Marra Már að kveðja þau því
þau voru að fara til Tenerife yfir páskana. Hér er Ronja að lesa fyrir Marra geiturnar þrjár
og hann hlustar og fylgist með af mikilli athygli honum finnst svo gaman að leika við Ronju.
Við fórum í sund í Keflavík og Ronja vildi kíkja á skessuna í skessuhellinum.
Það er mjög gaman að kíkja á hana og svo er hún sofandi og hrýtur svakalega hátt og það heyrist alveg
út úr hellinum og Ronju stóð ekki alveg á sama að kíkja inn svo ég þurfti að halda á henni inn he he en
henni fannst þetta mjög skemmtileg upplifun.
Hér er Ronja að máta Skessuna.
Þegar við vorum búin að skoða skessuna þá kom alveg grenjandi rigning og smá haglél svo við vorum
vel blautar að bíða eftir að Emil kæmi að sækja okkur því hann fór með Benóný að gefa honum dominos á meðan.
Þann 30 mars settum við ásettningsmerkin í gemlingana og Birgitta frænka Emils
var að hjálpa okkur með Freyju þær voru svo duglegar að hjálpa okkur.
Freyja að festa hlerann til að halda við meðan við setjum merkin í þær.
Lambhrútarnir eru búnað taka vel við sér og eru með mikil hornahlaup.
Gummi Óla er enn svo mikið krútt. Hann er með gulan
fána og H154.
Hrúturinn hans Sigga hann heitir Kútur. Hann er alveg
einstakur karekter og mjög gæfur. Hann er með H154
og gulan fána og er undan Kát sæðingarstöðvarhrút og Sóley.
Dorri svo fallegur. Hann er undan Sælu og Örvari og er
með gulan fána og C151.
Steini með mjög mikil hornahlaup. Hann er undan Garp
og Mávahlíð og arfhreinn H154
X er líka með mikil hornahlaup og er svo mikil dúlla og mjög gæfur.
Hann er undan Bríet og Klaka. Hann er hlutlaus gulur.
Sómi er líka með svakalega mikil hornahlaup og ég er svo
spennt að sjá hvernig hann á eftir að gefa og reyndar spennt
fyrir öllum hrútunum hvernig kemur undan þeim en ég hef
mestar væntingar til Sóma hann er undan Snúru og Brimil sæðingarstöðvarhrút.
Hann er með gulan fána og R171
Ég er búnað vera svo lánsöm að Emil er búnað vera mikið heima út af
þorskveiðistoppinu og brælu svo hann hefur komið með mér í fjárhúsin á hverjum degi
og Ronja kemur með okkur á helgum er stundum treg að koma með en þegar hún er komin
finnst henni svakalega gaman og er svo dugleg. Ég kláraði að vinna á leikskólanum fyrir páskafrí
og er núna komin í frí að sauðburði svo ég geti klárað að skipuleggja ferminguna hennar Freyju
okkar sem verður 24 maí um Hvítasunnuna og þegar sauðburður byrjar verð ég á haus í því svo
það verður mjög gott vera búnað gera allt klárt bæði fyrir sauðburð og fermingu áður en sauðburðurinn hefst.
Ég fór í heimsókn til Bárðar um daginn og hér er lambhrútur sem hann á undan Brúnó okkar sem dó í fyrra sumar.
Þessi er gráflekkóttur og mjög fallegur ég er spennt að sjá hvernig lömb Bárður fær undan honum.
Hér eru gemlingarnir hjá Bárði og þessi fremsta er systir Tásu sem ég fékk hjá honum og þær eru
mjög líkar þær eru undan hrút sem Bárður fékk frá mér og er undan Kleópötru og Jór sæðingarstöðvarhrút.
Hér er Tása en þessi mynd var tekin fyrr í vetur hún hefur stækkað talsvert núna þarf
endilega að ná mynd af henni núna og bera þær saman það væri gaman.
Hér sést hrúturinn betur. Hann á ættir í Einbúa frá mér í móðurætt og Part sem var frá Óttari á Kjalveg.
Flettingar í dag: 1675
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 1523
Gestir í gær: 3
Samtals flettingar: 3240783
Samtals gestir: 92274
Tölur uppfærðar: 9.4.2026 19:55:30