Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
Færslur: 2013 Desember30.12.2013 17:36Jólin 2013 og fleira.Jæja kæru vinir við óskum ykkur Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum fyrir allar innkomur og kommennt á liðnu ári. Það er búið að ganga á ýmsu hjá okkur í desember fyrst til að byrja með fékk Benóný hlaupabóluna. Emil var að róa allveg á fullu út á sjó þegar það var og brjálað að gera í fjárhúsunum líka hjá mér að sæða svo það gafst lítill tími til að setjast við tölvuna og blogga. Jólastressið var allveg að fara með mig og nú er ég svo fegin að það er búið. Embla fékk svo hlaupabóluna á þorláksmessu og Benóný fékk heiftarlegt munnangur í jólafríinu og það ágerðist alltaf meira og meira og karlgreyjið öskraði og vældi allt aðfangadagskvöld eftir að við vorum búnað opna pakkana. Gat ekkert leikið sér með dótið eða neitt var bara sár þjáður og við gátum ekkert gert nema verkjastilla hann og láta hann vera með tusku upp í sér og kæla. Á jóladag var hann svo slæmur að ég leitaði ráða að fá eitthvað annað fyrir hann og fékk þá aloe vera gel og svo fjólublátt meðal við munnangri og það kvöld var hann að drepast til 3 um nóttina og grét sig í svefn. En til allra hamingju þá lagaðist hann eftir þetta fjólubláa sem Júníana lét mig fá og við erum svo hamingjusöm að honum líði betur og eigum Júnu það mikið að þakka og Magga hann náði í það hjá henni fyrir mig. Meira segja gleymdi ég mér allveg með jólakortin í ár og náði ekki að vera nógu fljót til að græja myndir af börnunum sem auðvitað gátu ekki verið kyrr öll saman fyrir mig og svo var ég alltaf að bíða eftir að redda mér rauða slaufu á Benóný enn fékk hana svo aldrei. Hún átti nefla vera í stíl við buxurnar hans og kjólana hjá stelpunum já ég var með þetta allt útpælt enn það gekk svo ekkert upp. Ég missti mig allveg í sæðingum þetta árið og tók allt of mikla sénsa líka því það voru svo margar að ganga þegar að ég gáði fyrst að ég varð að prófa að sæða því annars hefði það verið of seint að sæða þær næst þegar þær myndu ganga ef þær skyldu svo ganga upp úr því. Ég sæddi 28 rollur hjá mér og Bóa. Eins og komið er eru 19 búnað halda enn það er eftir að koma í ljós með 4 í viðbót. Eins og ég sagði þá átti ég allveg von á því að þessar fyrstu gengu upp því þær voru allar á öðrum eða jafnvel þriðja degi því ég vissi ekki hvenær þær byrjuðu. Mér til mikillar gleði voru 3 kollóttar sem héldu með Baug og meira segja ein sem ég hélt að myndi ekki halda því það var eiginlega runnið af henni svo þetta er allveg órtúlegt hvað þetta er mikið happa glapp. Ég var allveg að deyja mig langaði svo mikið úr Snævari og þar sæddi ég 5 .4 hjá mér og 1 hjá Sigga og þær gengu allar upp nema 1 sem hélt hjá mér svo ég vona að það verði gull hrútur og gimbur sem ég fæ þar. Eins og komið er þá fæ ég lömb úr öllum sæðishrútunum sem ég notaði nema Flórgoða forrystu hrút en hún var á öðrum degi og hún hélt ekki því nú verr. Ég á svo eftir að blogga betur um þessar sæðingar og tilhleypingar þegar það verður búið. Skásta myndin sem ég náði af þeim öllum saman he he. Það má svo sjá fullt af fleiri jólamyndum hér í albúmi. Þessi skvísa var dugleg að rífa í pakkana enn var ekkert að spá í innihaldinu frekar að fá að príla í kassana sem var utan af dótinu. Freyja Naómí var svo auðvitað 1 árs þann 12.12.2013 og hún var byrjuð að labba nokkrum dögum fyrir afmælið og er núna farin að labba um allt en skellir sér þó oft á rassinn því hún er mun fljótari þanning í förum. Hér má svo sjá myndir af afmælisdeginum hennar enn afmælið hennar verður haldið seinna því Emil var að róa svo mikið þegar hún átti afmæli. Skoða myndir hér. 08.12.2013 23:14Brjálað að gera og sæðingar byrjaðar.Jæja tímalausa manneskjan ég ætla loksins að gefa mér tíma til að blogga. Nýjasta nýtt er það að hún Freyja Naómí tók sín fyrstu skref í dag og er byrjuð að labba 3 til 4 skref svo brátt verður allur friður úti he he enn þetta passar allveg hún er á svipuðum tíma og hin í kringum 1 árs afmælið sitt. Ég á eftir að ná myndum af henni að labba enn það eru smá myndir hér af þeim systkynum. Það er allveg ótrúlegt hvað það er alltaf mikið að gera eitthvað, mér vantar allveg auka tíma í sólarhringinn til að geta komist yfir allt sem ég þarf að gera : með börnunum, á heimilinu og í fjárhúsinu spurning um að fara klóna sig bara. Hlutirnir eru þó alltaf gerðir í fjárhúsinu þeir meiga ekki bíða enn svefn og hvíld er látin sitja á hakanum og fæ ég stundum að kenna á því með hausverk og háum blóðþrýstingi. Það er gaman að segja frá því að ég vaknaði á föstudagsmorgun með dúndrandi hausverk og hafði mig til og græjaði krakkana á leikskólann og auðvitað gekk það ekki eins og dans á rósum, Embla þurfti að vera geðveikt þrá að fara í fötin og allt einhvern veginn öfug snúið. Mamma kom svo 10 mín í 8 og ég orðin nett pirruð og hugsa o afhverju hringdi ég ekki í hana og lét hana koma fyrr argg enn svo gekk þetta allt og ég var búnað drösla þeim niður á leikskóla korter yfir 8. Kominn heim að verða hálf 9 og þá varð ég að fletta upp hrútaskránni og gera upp við mig hvaða hrúta ég ætti að sæða með í dag. Samt sem áður var ég búnað liggja yfir skránni til hálf 1 í gærkveldi plús það að skreyta eldhúsið já maður er ekki allveg eðlilegur stundum. Svo þegar ég loksins fór að sofa þá var ég að hugsa svo mikið út í hrútana að ég ætlaði aldrei að sofna en já áfram með daginn í dag eins og ég sagði þá ákvað ég að taka sénsinn og panta mér 2 strá í rollur sem voru byrjaðar að ganga á fimmtudeginum seinni partinn því þær voru svo margar og bölvaði ég því vel að hafa ekki byrjað að leita fyrr og sæða. Enn já svo var kl orðin 9 þegar ég loksins komst af stað því ég átti tíma hjá lækni út af blóðþrýstinginum upp á Skaga kl 11 og það var brunað af stað og mamma kom með til að passa Freyju fyrir mig. Þegar við vorum komin í Borgarnes var kl orðinn 25 mín í 11 og ég allveg í stress kasti og skuttlaði mömmu og Freyju til Hafdísar systir mömmu og brunaði af stað í hendingskasti upp á Skaga og náði á mínótunni 11. Þegar ég var svo komin inn og búið að mæla blóðþrýstingin og gera hjartalínurit mældist blóðþrýstingurinn auðvitað eftir því allt of hár enn klárlega ekki að marka það eftir allt þetta stress. Það kom svo betur fyrir ekki að þessi ferð hefði getað sleppt því að eiga sér stað því ekkert amar af mér allveg stál hraust og meira segja sagði læknirinn að það væri ekkert óeðlilegt að vera með of háan blóðþrýsting þegar maður væri með svona mörg lítil börn því fylgdi ákveðið álag og líka að hugsa um heimilið með því. Svo kom reikningurinn Bvaaaa 17 þúsund krónur takk fyrir eins og það hafi ekki verið nóg að keyra alla þessa leið í einu kasti og mamma greyjið enn þá með hjartað í buxunum þorði ekki einu sinni að biðja mig að stopppa til að fara á klóstið he he. Ég á nýjum nagladekkjum og ekki að ódýrustu gerð og örugglega búnað spæna nokkra naglanna úr Emils til mikillar ánægju ... Ég var svo líka að drífa mig heim því ég þurfti að fara sæða og hafðist þetta allt á endanum ég náði að vera kominn heim um hálf 3 og þá beint að sækja krakkana á leikskólann og svo beint út í fjárhús að sæða. Já það má segja að jólastessið sé farið að segja til sín hjá mér he he enn þetta verður bara gaman nóg að gera og vonandi kemst maður yfir það allt og brosir. Gummi úr Dölunum kom og snyrti fyrir okkur dömurnar um daginn. Snöggur og vandleg vinnubrögð hjá honum. Eins og vanalega fengum við þvílíkt kuldakast stuttu eftir enn það slapp því það hélst allveg mátulegur hiti í húsunum. Embla Marína svo dugleg að gefa rollunum brauð. Við fórum í heimsókn til hans Hannesar á Eystri Leyrárgörðum um daginn og hér er hann Siggi undan Svört hans Sigga og Grábotna sem Hannes fékk hjá Sigga í fyrra. Ekkert smá langur og flottur gripur. Flottir lambhrútar hjá Hannesi annar Mórauður og hinn Grámórauður. Emil kíkti aðeins í heimsókn í fjárhúsin hjá Jóa og Auði sem eru með fjárhús út á Hellissandi með Rabba og Gunnu og hér eru ásettnings gimbrarnar hjá þeim. Það eru svo fleiri myndir af ferð okkar til Hannesar,rúninginum og fleiru með því að smella hér. Ég var enda við að sæða núna kl hálf 10 með hrút frá Suður landinu. Ég og Bárður áttum pantað sæði þaðan úr Saum og Rafal. Ég fékk sæðið svo seint að ég gat ekki sætt nema 3 sem voru að ganga 2 hjá mér og 1 hjá Sigga með Saum en Rafal ætla ég að taka sénsin á að kæla og geyma í ískápnum til morguns ef eitthvað skyldi vera ganga í fyrramálið.
Flettingar í dag: 316 Gestir í dag: 37 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 1188505 Samtals gestir: 69640 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 07:31:23 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is