Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
Færslur: 2014 Ágúst24.08.2014 01:09Sigurrós,Elding,Rósalind ,Eygló og SvörtBara gleði gleði hér ég datt aldeilis í lukkupottinn í dag og náði góðum myndum af nýjum kindum og lömbum. Botnleðja með þrílembingana sína undan Brján. Ég er enn að bíða eftir að ná betri mynd af þeim þegar ég kemst nær henni. Snælda með gimbrina sína undan Brimil. Hin gimbrin hennar Snældu. Glódís með hrút og gimbur undan Brján. Hrútar undan Maístjörnu og Guffa. Gimbrin undan Ösp og Blika. Hún var með 2 en hin drapst í fæðingu. Elding með gimbrina sína og það vantar hina sem á að vera botnuflekkótt O það er alltaf jafn svekkjandi þegar vantar lömb. Hin er svo Rósalind með gimbur og hrút undan Glaum. Sara veturgömul með gimbur undan Blika. Hosa með hrút undan Þorsta sæðishrút og einnig gimbur undan Þorsta sem er þrílembingur undan Guggu sem var vanin undir hana. Sigurrós veturgömul með 2 gimbrar undan Blika. Ein kollótt og ein hyrnd frekar skondið. Ég er ekki fyrir að blanda saman kollóttu og hyrndu en neyddist til þess því ég náði ekki að fá lánaðan kollóttan hrút og því verða nokkrir blendingar í haust undan þeim ám sem ég sæddi ekki. Eygló með hrút undan Glaum og hún var með annan allveg eins en hún tapaði honum í sumar og það sem er svo skrýtið að hún týndi líka öðru lambinu í fyrra og einnig Elding hér fyrir ofan sem vantar botnuflekkóttu gimbrina svo það er spurning hvort þær séu á eitthvað vafalegum slóðum með lömbin sín úr því að þær tapa aftur lömbum núna í ár. Svört hans Sigga með þrílembingana sína undan Garra sæðishrút. Svakalega flott lömb hjá henni eins og árum áður allveg topp ær. Ú hvað það verður gaman að fá að sjá alla þessa gripi þegar það verður rekið inn. Embla í berjamó í nýju peysunni sinni sem Brynja frænka var svo góð að prjóna á hana og gefa henni. Hér eru veturgömlu sem voru hafðar geldar. Loppa Doppa, Líf, Skrýtla og Gersemi. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi. 23.08.2014 00:25Ú svo spennt fleiri lambamyndirVissi að það yrði ekki langt í næsta blogg hjá mér enda iða ég af spenningi að deila með ykkur nýju myndunum sem ég náði í gær og í dag af lömbunum. Þá er ekki eftir neinu að bíða nema skella þeim hér inn. Hér er Mjallhvít með móra undan Mugison og hrút undan ÁS sæðishrút. Mist með gimbur undan Ás sæðishrút. Veturgömul frá Sigga með gráa gimbur. Hyrna með hrúta undan Rafal sæðishrút. Ég er rosalega spennt að fyrir þeim. Frá Sigga Dropa held ég með hrút og gimbur. Dröfn með gimbur þrílembing undan Garra. Hinn á móti gimbrinni. Þau ganga 2 undir við vöndum eitt undan henni. Soffía hans Sigga með hrút undan Brimil held ég. Gloppa hans Sigga með hrút og gimbrin er fyrir aftan hana. Hér kemur svo gimbrin. Hér er Frigg með hrút og gimbur undan Kára sæðishrút. Ég er að vona að þessi bæði verði ásettningar. Gimbranar undan Garra og Aþenu. Hér eru svo fleiri myndir af þessu hér inni. Rúntaði með Jóhönnu um daginn inn í Tungu og þar voru rollurnar hennar og þær eru vel uppaldar því hún kallaði á þær og þá komu þær hlaupandi að fá brauð hjá henni. Gimbur undan Guffa sæðishrút. Eldibrandur hans Sigga alltaf jafn duglegur í fuglunum. Hér er hann með Hrossagauksunga. Hér er Maístjarna með 2 hrúta undan Guffa sæðishrút. Freyja Naómí adrenalín sjúklingur að renna sér í sundlaugina og hún fór sko allveg á fleygiferð á bólakaf. Hér er Embla prinsessan okkar. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inni. 20.08.2014 13:115 ára afmæli Benónýs og Glænýjar lambamyndirYndislegi Benóný Ísak okkar var 5 ára í gær þann 19 ágúst. Það er allveg ótrúlegt hvað tíminn flýgur að það skuli vera kominn 5 yndisleg ár síðan að hann fæddist og það hefur fært okkur allveg ótrúlega reynslu,þroska og ég tala ekki um gleði og hamingju í líf okkar. Afmælið hans var allveg frábært í alla staði og var þetta í fyrsta sinn sem við bjóðum krökkum heim og fannst honum það allveg æði og allt gekk svo vel við vorum búnað gera útisvæði fyrir þau út á palli með allsskonar afþreyjingu og svo höfðu þau trampólínið og sandkassann. Við vissum ekki af þeim þau dunduðu sér svo vel saman og ekkert vesen allir vinir og mér fannst þetta bara rosalega gaman og auðvitað skemmtu þau sér allveg konunglega Benóný var eitt bros allann daginn svo ég þakka krökkunum allveg kærlega fyrir að koma og njóta þessa dags með okkur hann færði okkur mikla hamingju og gleði. Benóný Ísak að pósa fyrir Karítas frænku sína. Karítas var svo góð að hjálpa mér með krakkana og taka myndir fyrir okkur takk kærlega fyrir besta frænka. Ég þakka líka Jóhönnu fyrir alla aðstoðina í að hjálpa mér að baka. Ég gerði heiðarlega tilraun til að gera fyrir hann sundlaugina í Sandgerði og rennibrautirnar sem er hann æðsti draumur að fara í og verður það vonandi að veruleika áður en sumarið tekur enda. Veisluborðið var með skúffukökuna og svo pizzasnúða og rice krispi með oreo fjólubláa súkkulaðinu frá milku og vakti það mikla lukku. Svo auðvitað nóg af nammi. Rennibrauta gleði við gáfum Benóný þessa rennibraut í afmælisgjöf svo var líka rennt sér á sólstólunum niður af heitapottinum svo þó að heitapotturinn sé alltaf bilaður kemur hann þó að einhverjum notum he he. Hér má sjá hina rennibrautina sem við gerðum fyrir hana til þess að hafa hana lokaða með smá myrkri rosa stuð. Og það var líka hoppað og skoppað. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. Jæja það er svo langt síðan ég hef bloggað að það er til skammar. Þessi mynd er tekin um miðjan júlí og er þetta Aþena með gimbrarnar sínar undan Garra. Hér er Hyrna með hrútana sína undan Rafal og ég tek það fram að þetta er gamla myndavélin mín því mín eyðlagðist í sumar og er það líka ástæða fyrir því að ég hef ekki verið eins myndaglöð í sumar en það fer batnandi því ég er búnað fá mér nýja Jibbí Heyskapur hófst svo loksins eftir rigninga sumarið mikla og var hey víða úr sér sprottið en held við höfum bara fengið ágætis hey alla vega af Fögruhlíð og það er nóg af heyji til svo nú er bara ekkert annað í stöðunni að bíða eftir að skoða lömbin og fara setja á he he . Sóley með fóstur lömbin fyrir mig og hafa þau bara stækkað fínt þetta voru tvílembingar undan sitt hvorum gemlinginum sem ég skellti undir hana þegar hún missti lambið sitt í vor. Sóley er í eigu Maju systir. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inni Fórum suður í júlí og fórum með Steinari ,Unni, Magga, Erlu og Emelíu í dýragarð í Mosfellssveit. Það var rosalega gaman þar fengu krakkarnir að klappa og halda á dýrunum og svo var hægt að kaupa 2 hringi á hestbaki ekkert smá sniðugt sá þetta allveg í hyllingum að kaupa Mávahlíð bara og gera svona með búskapnum he he maður má láta sig dreyma það er markmið Á myndinni er Embla á hestbaki allveg í skýjunum. Freyja og Birgitta að klappa kálf rosa gaman. Svo voru þau bara með svona sand og leikföng og þetta var þvílíkt vinsælt hjá krökkunum. Mér finnst þetta allveg snilld hjá þeim sem eru með þennan Dýragarð. Hér er Maggi og Erla að leika við Freyju og Benóný. Gullmolinn okkar orðinn tilbúinn og hér er meistarinn sjálfur hann Steini sem er búnað vera gera hann svona rosalega flottann fyrir heyskapinn. Heyskapur í Tungu og Benóný heldur rosalega mikið upp á þennan gullmola hjá Sigga. Það var hópað fólki saman að svæðinu á Verslunarmannahelginni og haldin smá brenna upp í Rauðskriðumel. Fór loksins þegar stytti upp rigningunni og þegar það var búið að slá kirkjugarðinn á Brimisvöllum og skreytti fyrir hann pabba ég setti englastyttu sem ég á og týndi svo fjörugrjót úr Mávahlíðarfjörunni og smá Berg úr Kötluholti fyrir hann. Skreytti líka hjá Steina og setti annan engil svo setti ég líka lítið grjót hjá henni Gerðu í Tungu og það er frá Ósnum fyrir neðan Tungu. Blessuð sé minning ykkar yndislega fólk. Fórum í heimsókn til Inga Björns Meistara og Emil spilaði við hann Fifa. Hann elskar að spila Fifa með honum. Við fórum svo líka í húsdýragarðinn með Unni og Birgittu og margt fleira svo endilega kíkið hér inn í albúm ef þið viljið skoða. Fórum á Super Sub að borða og mæli ég allveg geggjað með þessum stað við gátum borðað í friði og krakkarnir léku sér í öllu flotta sem er í boði þar. Það er hægt að fá báta og pizzur og margt fleira og það bragðaðist allveg ljúffenglega. Jæja þá er nýja myndavélin komin í gagnið og hér er Skvísa með hrútinn sinn. Dóra með þrílembingana sína en það vantar hrútinn það er ekki langt síðan að hann fór undan svo ég vona að hann hafi frekar villst undan heldur en að hann sé dauður. Rauðhetta með botnuflekkóttan hrút og botnuhosótta gimbur undan Glaum. Rán með þrílembingana sína. Hér sést svo gimbrin hennar líka. Einn Guffasonur frá Jóhönnu. Mírranda forrystu kindin mín með gimbrina sína. Gimbrin er reyndar blönduð og er undan Mugison svo hún er ekki allveg ekta forrysta. Hríma hennar Jóhönnu með gimbur undan Ás. Guffa synirnir hennar Jóhönnu þessir svörtu. Það má svo skoða þessar myndir hér inn í þessu albúmi. Rúntur í ágúst allveg glænýtt. Hér er Frigg með gimbrina sína og hrút undan Kára. Fyrir aftan Vigga hans Bóa með gráflekkótta gimbur og það vantar hrútinn hennar hún tapaði honum snemma í vor. Síða er það Svana með gimbranar sínar undan Garra. Botnleðja með þrílembingana sína undan Brján og svo Fíóna veturgömul með hrútinn sinn. Draumarós veturgömul hún bar seinust og kom með karlömb eiginlega þau voru svo lítil en það er nú eitthvað að teygjast úr þeim núna. Frá Sigga ég man ekki allveg hver hún er en hún er veturgömul og er með fallegan hvítan hrút. Hér sést í Botnleðju og Snældu og hún er með 2 gimbrar undan Brimil og bind ég miklar væntingar við þær því Snælda átti 88 stiga hrútinn í fyrra. Bolla gamla orðin lúin og fær að fara í haust blessunin en hér er hún heldur hölt með hrút og gimbur undan Glaum hans Sigga í Tungu. Lotta frá Freyju og Bóa með hrút og gimbur undan Mugison. Hriffla er hér til vinstri og er hún með þrílembinga undan Saum og mér lýst allveg rosalega vel á þá allavega er stærðin fín miðaða við að þau ganga öll undir. Hænana í sveitinni hjá Bóa og Freyju ungaði þessum fallegu ungum út. Ísey gemlingur undan Klett og Ísabellu með gimbrina sína. Það eru svo fleiri rollu myndir hér inn í albúmi hér. Jæja þá er þetta stóra blogg loksins komið hjá mér og ég mun setja inn reglulega núna því núna eru börnin byrjuð á leikskóla og Freyja yngsta fer að fara í aðlögun svo þá mun gefast meiri tími fyrir mig að taka myndir og blogga. Bara spennandi tímar frammundan ú ég get ekki beðið eftir að smala þetta er svo æðislegur tími.
Flettingar í dag: 316 Gestir í dag: 37 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 1188505 Samtals gestir: 69640 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 07:31:23 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is