Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
Færslur: 2016 Október31.10.2016 22:00Gimbranar hans Sigga í TunguÞessi er undan Skrúfu og Drjóla 50 kg 30 ómv 4,3 ómf 3,5 lag 106 fótl 8 framp 17,5 læri 8 ull 8,5 samræmi. Þessi er undan Svört og Máv. 51 kg 35 ómv 2,2 ómf 5 lag 108 fótl 9 framp 19 læri 8 ull 9 samræmi. Þessi er undan Vetur og Litlu Gul. 52 kg 35 ómv 4,9 ómf 4,5 lag 109 fótl 9 framp 18 læri 7,5 ull 8,5 samræmi. Þessi er undan Ísak og Spíru. 53 kg 33 ómv 3,6 ómf 5 lag 110 fótl 9 framp 18 læri 7,5 ull 8,5 samræmi. Þessi er undan Drjóla og Skrúfu systir hinnar fyrir ofan. 50 kg 30 ómv 3,1 ómf 3,5 lag 107 fótl 7,5 framp 17,5 læri 8,5 ull 8,5 samræmi. Þessi er undan Snekkju og Saum. 45 kg 32 ómv 3,6 ómf 4,5 lag 105 fótl 8,5 framp 18 læri 8,5 ull 8,5 samræmi. Þessi er undan Korra og Fönn. 47 kg 32 ómv 3,3 ómf 4 lag 107 fótl 8 framp 18 læri 8,5 ull 8,5 samræmi. Þessi er keypt frá Bárði og er undan Styrmi. 45 kg 24 ómv 3,1 ómf 3,5 lag 8,5 framp 18 læri 8 ull. Þessi er undan Dropu og Korra. 50 kg 36 ómv 3,4 ómf 4,5 lag 106 fótl 9 framp 19,5 læri 8 ull 8,5 samræmi. Hrútarnir hjá Sigga. Móri er undan Soffíu og Styrmi. 58 kg 30 ómv 3,9 ómf 3,5 lag 110 fótl 8 8,5 8,5 8,5 8,5 18 8 8 8,5 alls 84,5 stig. Þessi heitir Glámur og er undan Snekkju og Saum. 52 kg 38 ómv 3,5 ómf 5 lag 106 fótl 8 8 8,5 9,5 8,5 18,5 8,5 8 8,5 alls 86 stig. Þetta er Grettir og er undan Svört og Máv. 55 kg 33 ómv 2,0 ómf 4,5 lag 109 fótl 8 8,5 9 9 9,5 19 7,5 8 8 alls 86,5 stig. Hér eru stóru komnir inn og þetta er Drjóli Hæng sonur frá Sigga og svo Zorró okkar. Korri hans Sigga er Garra sonur og er undan Svört. Hann er rosalega stór og fallegur. jæja þá er hans ásettningur kominn inn og svona næstu daga fer ég að henda inn nýjum bloggum af ásettnings gimbrum hjá mér og fleirum eftir því hvað ég verð dugleg að vinna þetta inn hjá mér. 19.10.2016 22:39Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi 2016Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi 2016 var haldinn vestan girðingar hjá Heiðu og Júlla á Gaul. Lárus Birgisson og Jón Viðar Jónmundarson voru dómarar. Þar voru mættir til leiks 17 mislitir , 9 kollóttir og 29 hyrndir. Þessum hrútum var svo raðað upp eftir flokkum og úr þeim valdir 5 efstu í uppröðun og svo keppa þeir við þá efstu sem verða sunnan girðingar. Sýningin hófst klukkan 13:00 á Gaul og lauk um 16:30 Það var vel mætt og að uppröðun lokinni var boðið upp á súpu frá Heiðu sem var alveg rosalega góð og vakti mikla lukku ásamt nýbökuðu brauði. Þetta var skemmtileg sýning og frábær aðstaða í flottum fjárhúsum á Gaul. Golsótti hrúturinn okkar vakti mikla eftirtekt vegna litarins því hann er ekki bara golsóttur heldur er hann botnóttur líka svo hann er golsubotnóttur hann fór í uppröðun af 5 mislitu hrútunum. Í hvítu hyrndu fór Saum sonurinn hans Sigga í 5 uppröðun. Sunnan girðingar mættu 5 mislitir, 4 kollóttir og 15 hyrndir. Í heildina voru 22 mislitir, 13 kollóttir og 44 hyrndir. Bæði vestan og sunnan girðingar. Sýningin hófst kl 20:30 í Haukatungu Syðri 2 hjá Ásbyrni og Helgu. Þar var byrjað á því að skoða hrútana og raða upp. Að því loknu bauðu Ásbjörn og Helga upp á kaffi og kökur í hlýlega og glæsilega fjárhúsinu þeirra. Á meðan fóru Jón Viðar og Lárus afsíðis að bera saman hrútana og finna nýjan héraðsmeistar 2016. Ég fór með verðlaun fyrir hönd Fjárræktarfélagsins Búa á sýninguna en það var mynd sem ég teiknaði af hrút og setti það í bleikt skraut í tilefni bleiku slaufunar. Seinni sýningunni lauk svo um hálf 12. Þetta var mjög skemmtilegur dagur og frábær sýning á báðum stöðum. Ég tók stuttlega sögu af deginum saman sem þið getið skoðað hér ásamt myndum sem eru í mynda albúmi. Héraðsmeistarinn 2016 er Garra sonur frá Ásbyrni og Helgu Haukatungu Syðri 2. Héraðsmeistarinn 2016. Griðalega fallegt lamb og með frábæran blett á afturfót. Faðir Garri. 53 kg 112 fótl 37 ómv 2,7 ómf 5 lag 8 9 8,5 10 9 18,5 7,5 8 9 alls 87,5 stig Í öðru sæti var hrútur frá Dalsmynni. Faðir Tangi 57 kg 111 fótl 34 ómv 4,3 ómf 4,5 lag 8 8,5 8,5 9,5 9 18,5 8 8 8,5 alls 86,5 stig Held að þetta sé hrúturinn frá Dalsmynni sem var í öðru sæti sem er með svarta teypið. Í þriðja sæti var svo hrútur frá Helgu og Ásbyrni Haukatungu Syðri 2. Faðir Stefán 54 kg 108 fótl 33 ómv 4,3 ómf 5 lag 8 8,5 9 9,5 9 18,5 8 8 8,5 87 stig. Hér er mynd af honum. Hér má sjá hvitu hyrndu hrútana fyrir vestan girðingu. Og hér eru fleiri í þeim hóp. Þessi ungi framtíðarbóndi og ef ekki ráðanautur gaf dómurunum ekkert eftir í að skoða hrútana. Þetta er hann Baldur sonur Arnars og Elísabetu Kálfárvöllum. Þessir fjórir voru í uppröðun ásamt Sigga hrút sem er Saum sonur. Hér er hann á endanum sem Eyberg heldur í . Sem sagt það var hérna vestan girðingar voru 5 í uppröðun og það var frá Heiðu á Gaul, Arnari á Kálfárvöllum, Fáskrúðabakka og ég veit ekki alveg hver hinn er. Flottur Kölska sonur frá Arnari og Elísarbetu Kálfárvöllum. Þessi var í uppröðun líka og er frá Fáskrúðarbakka. Flottur hrútur. Þessi var gríðarlega fallegur hann er frá Heiðu á Gaul og er undan Kalda. Hvítu hyrndu sunnan girðingar. Hvítu hyrndu sunnan girðingar. Fimm efstu í uppröðun sunnan girðingar. Besti kollótti hrúturinn 2016 var frá Dalsmynni. Faðir Stöðvar 54 kg 107 fótl 33 ómv 5,4 ómf 4,5 lag 8 8,5 8,5 9 8,5 18 9 8 8,5 alls 86 stig Hér er hann mjög fallegur hrútur frá Dalsmynni. Í öðru sæti var hrútur frá Bjarnarhöfn. Faðir Deddi 54 kg 110 fótl 30 ómv 4,8 ómf 4,5 lag 8 9 9 9 9 18,5 8,5 8 8 alls 87 stig. Í þriðja sæti var hrútur frá Hraunhálsi. Faðir Kópur 44 kg 107 fótl 34 ómv 3,5 ómf 4 lag 8 9 9 9 9 18,5 7,5 8 8 alls 86 stig. Kollóttu fyrir vestan girðingu á Gaul. Fimm efstu í uppröðun vestan girðingar. 1 frá Eyberg og Laugu Hraunhálsi. 3 frá Hjarðafelli og einn frá Bjarnarhöfn. Litli Baldur var orðinn ansi þreyttur á Gaul í restina og fékk sér smá lúr hjá afa sínum. Kollóttu hrútarnir í uppröðun sunnan girðingar þeir voru alls 4 til keppni þar. Þrír frá Ásbyrni og Helgu og einn frá Dalsmynni. Þessi unga dama var yngsti bóndinn á sýningunni og stal alveg senunni með fallega brosinu og gleðinni sem geislaði af henni á Haukatungu seinni hluta sýningarinnar. Besti misliti lambhrútur 2016 var frá Haukatungu Syðri 2. Faðir Kúði 39 kg 106 fótl 32 ómv 2,0 ómf 5 lag 8 8,5 9 9,5 9 19 8 8 8,5 alls 87,5 stig Hér er hann besti misliti lambhrúturinn 2016 frá Helgu og Ásbyrni Haukatungu Syðri 2. í öðru sæti var svarflekkóttur hrútur frá Eggjarti á Hofstöðum. Faðir Slutti 54 kg 112 fótl 35 ómv 3,3 ómf 4 lag 8 9 8,5 9 9,5 19 7,5 8 8,5 alls 87 stig Í þriðja sæti var hrútur frá Hraunhálsi sem Ásbjörn keypti af þeim. Faðir Kópur 45 kg 107 fótl 30 ómv 4,5 ómf 4 lag 8 9 9 9 9,5 18 8,5 8 8 alls 87 stig. Hér er sá sem var í þriðja sæti en ég náði ekki mynd af öðru sætinu. Hérna sést í flekkótta hrútinn sem var í öðru sæti ásamt hinum mislitu vestan girðingar. Allar útgáfur af litum. Skemmtilega margir mislitir þeir voru 17 vestan girðingar. Hérna eru 5 í uppröðun vestan girðingar. Svarflekkóttur frá Hofstöðum, Svartur frá Óttari Blómsturvöllum. Botnugolsóttur frá Mávahlíð. Svartur frá Fáskrúðabakka og svartur frá Laugu Hraunhálsi. Hér er svo mynd af honum botnugolsa mínum. Mislitu sunnan girðingar. Þeir voru alls 5. Þrír frá Ásbyrni og einn frá Hraunhálsi og einn frá Kristbyrni. Flottir hrútar hér á ferð. Eyberg og Lauga komu með skemmtilegan grip í keppni með mislitu hrútunum en það var ferhyrndur hrútur sem þið sjáið hér. Vígalegur hrútur hér hjá þeim. Aðeins meiri nærmynd af honum. Það voru svo einnig veitt verðlaun fyrir afurðarhæðstu 5 vetra ærnar. Í fyrsta sæti var ær nr 11-194 frá Hjarðarfelli með 114 í einkunn. Gerð 104 fita 116 frjósemi 110 Mjólkurlagni 110 Móðir Stólpa sem vann héraðssýningu 2013 og verður á sæðingarstöð næsta vetur. Í öðru sæti var ær nr 11-301 frá Mýrdal með 113,8 í einkunn. Gerð 93 fita 112 frjósemi 121 Mjólkurlagni 118. Er undan Kára heimahrút sem var undan Kalda 03-989. Í þriðja sæti var ær nr 11-302 frá Mýrdal með 113,2 í einkunn. Gerð 102 fita 107 frjósemi 114 Mjólkurlagni 121. Er líka undan Kára heimahrút undan Kalda 03-989. Hér eru þau vinningshafarnir fyrir afurðarhæðstu 5 vetra ærnar. Hér er Ragnar á Kverná, Óttar Blómsturvöllum og Hallur á Naustum. Elísabet með Bald sem var svo duglegur að mæta á báðar sýningarnar og var svo áhugasamur en leiddist að bíða eftir úrslitum og fékk sér lúr á báðum sýningunum enda erfitt að vera svona lítill og vaka allann daginn. Hér var hann Baldur í röð með mömmu sinni að fara skoða hrútana. Svona endaði svo kvöldið hjá litla bóndanum alveg búin á því búnað dæma í allann dag. Það verður spennandi að fylgjast með honum í framtíðinni hann verður örugglega án efa stórkostlegur fjárbóndi. Þessar mæðgur Hildur og Elva frá Hellissandi fylgdust spenntar með. Mamma mætti með stelpurnar mínar að sjá hrútana á Gaul. Stelpurnar skemmtu sér vel við að búa til engla í hlöðunni á Gaul. Hér er Sveina dóttir Hlédísar og vínkona hennar. Kristinn bæjarstjóri kom og kíkti en aðeins of seint þá var sýningin búinn á Gaul en hann náði þó spjalli við Lárus. Hér er Ásbjörn að veita Helgu verðlaunin fyrir besta mislita hrútinn 2016. Hér veitir Lárus svo Ásbyrni Farandsskjöldinn fyrir besta lambhrút Snæfellinga 2016. Hér eru þau hjónin Ásbjörn og Helga Haukatungu Syðri 2 með skjöldinn. Ég óska þeim innilega til hamingju með alla flottu hrútana sína og öllum hinum verðlaunahöfunum. Takk fyrir frábæra sýningu og skemmtilegan dag. Það eru svo fleiri myndir sýningunni hér inn í albúmi. 10.10.2016 12:06Sláturmat og Kaupferð í Hraunháls.Jæja þá er komið af erfiðasta kaflanum í sauðfjárræktinni og finnst mér það vera slátrunin sérstaklega þegar þarf að kveðja gamlar og ungar ær sem verða ónýtar. Að þessu sinni verður sárast að kveðja hana Huldu okkar sem er svo rosalega sterkur karekter í húsunum hjá okkur. Emil á hana og það er alveg magnað að sjá þegar hann kallar á hana og hún kemur hlaupandi til hans í von um að fá brauðbita. Hún er sem sagt ein af þessum kindum sem eru mikið fyrir brauð nema hún er alveg ótrúlega nösk að finna þegar maður er með það og má ekki heyra smá skrjáf þá er hún komin eins og píla með tunguna lengst út. Jæja en nú er það mál komið að hún kviðslitnaði í vor og hefur ekki verið að fóðrast eins vel og hún ætti að gera svo eitthvað meira er að hrjá hana. Hér er hún uppáhaldið hans Emils það verður ekki eins að koma í húsin í vetur þegar vantar hana Hullu hans hennar verður sárt saknað Þær voru tvær sem drápust í sumar það voru Rósalind og Kría. Við þær bætast svo þessar sem verða slátraðar núna og það eru Hulda, Kápa, Líf, Skálmöld, Búkolla Gaga og Draumarós. Ég var svo heppin að Freyja, Bói og Bárður sáu um slátrunina fyrir mig og ég fékk að sleppa því að vera viðstödd þegar þær fóru og þakka ég þeim óendalega mikið fyrir það því mér finnst þetta svo erfitt þegar það eru svona fullorðnar kindur sem maður er búnað mynda svo mikil tengsl við. Dóra mín átti að fara líka hún er einspena fékk júgurbólgu í fyrra sem hefur ekki náð að lagast og var hún komin í sláturhópinn en ég sleppti henni út og ákvað að gefa henni eitt ár í viðbót ég held svo rosalega mikið upp á þessa kind enda er þetta fyrsta kindin hans Benónýs sem Bárður og Dóra gáfu mér þegar hann fæddist. Af 122 lömbum voru 17 slátruð heima. 23 voru seld til lífs. 16 gimbrar verða settar á plús ein sem ég keypti af Gumma Óla. 2 Hrútar verða settir á og einn keyptur alls 3 en með Sigga verða 6 lambhrútar á Samvirkjubúinu okkar í Tungu í vetur. 64 lömb fóru í sláturhús og var gerðin 10,25 meðalvigt 19,71 og meðalfita 7,86 Hjá Sigga fóru 33 lömb í sláturhús gerð 10,64 meðalvit 19,38 og meðalfita 8,06 Hjá Jóhönnu fóru 10 lömb gerðin var 10,1 meðalvigt 21,07 meðalfita 8,8 Það var svo að koma víða vel út sláturmatið. Hjá Gumma Óla Ólafsvík var gerðin 11 meðalvigt 22,4 og meðalfita 8,53 af 15 lömbum. Hjá Óttari á Kjalveg var gerðin 11,6 meðalvigt 20 og meðalfita 9 af 30 lömbum Embla og Freydís komu með okkur í kaupleiðangur í Hraunháls og voru mest hrifnar af ferhyrnda fénu. Hér er einn glæsilegur sem þær voru mjög hrifnar af. Ég á eftir að taka betri mynd en þessi hvíti lambhrútur er nýji kollótti hrúturinn okkar. Hann er með 18 í læri og er 84,5 stig. Hann á móflekkótta móður sem ég var alveg dáleidd af. Faðir hans er Magni sem er frá sæðingarstöð. Þetta er móðirin sem er við jötuna gríðalega stór og falleg kind. Það verður spennandi að nota þennan hrút í vetur og sjá hvort við fáum móflekkótt. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessu. Ég minni svo á þessa auglýsingu Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi 2016 Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi verður haldin laugardaginn 15. okt 2016.
Við viljum hvetja sauðfjárræktendur að mæta með sína gripi á sýninguna og taka þátt í uppskeruhátíð sauðfjáræktenda á Snæfellsnesi. Nefndin Reglur vegna lambhrútasýningar Snæfellsnesi
Flettingar í dag: 316 Gestir í dag: 37 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 1188505 Samtals gestir: 69640 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 07:31:23 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is