Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
Færslur: 2017 Febrúar13.02.2017 21:24Fósturvísatalning 2017Jæja þá er spennu fallið liðið og búið að telja fóstrin. Guðbrandur kom til okkar seinast liðinn laugardag og taldi fyrir okkur. Gemlingar eru 17 5 eru með 2 11 með 1 1 var hafður geldur alls 21 fóstur og meðaltal er um 1,24 Veturgamlar eru 19 15 eru með 2 4 eru með 1 alls 34 fóstur og meðaltal um 1,79 Rollur eru 51 1 er með 4 6 eru með 3 40 eru með 2 2 eru með 1 1 er geld og 1 ónýt með samgróninga alls 104 fóstur meðaltal 2,04 Veturgamlar plús rollur er meðaltal 1,97 Tók saman að ganni hvað hrútarnir eiga mörg fóstur og líka sæðingarnar en þær komu mjög vel út í frjósemi hjá okkur. Vinur sæðishrútur á einn gemling með 2 og 1 rollur með 3 Bekri sæðishrútur á gemling með 1 og veturgamla með 2 Borkó sæðishrútur á gemling með 2 og 1 rollur með 2 Burkni sæðishrútur á 2 veturgamlar með 2 og 1 rollu með 2 Malli sæðishrútur á eina rollu með 2 og eina rollu með 3 Tinni á eina rollu með 3 og eina veturgamla hjá Jóhönnu með 2 Askur lambhrútur golsótti á 2 gemlinga með 2, 1 gemling með 1, 1 veturgamla með 1 og 1 veturgamla með 2 og 4 rollur með 2 alls 16 fóstur. Kaldnasi lambhrútur kollóttur á gemling með 1 og 4 rollur með 2 alls 9 fóstur. Partur á tvær rollur báðar með 2 alls 4 fóstur. Einbúi lambrútur fékk bara eina og hún er með 2 alls 2 fóstur. Ísak er með 3 veturgamlar með 2 og 1 rollu með 3 og 3 rollur með 2 alls 15 fóstur. Mávur er með 4 rollur með 2, 1 með 4, 2 rollur með 1, 1 veturgamla með 1 og gemling með 1 alls 16 fóstur Grettir lambhrútur Sigga er með 5 með 2, 1 með 3 og 1 gemling með 1 alls 14 fóstur. Korri er með 2 gemlinga með 1, 4 rollur með 2 alls 9 fóstur Glámur lambhrútur frá Sigga er með 1 gemling með 1 og 3 rollur með 2 alls 7 fóstur. Zorró er með 1 með 3 og 7 með 2 alls 17 fóstur Flekkur hans Bárðar er með 1 gemling með 2 og 3 gemlinga með 1, 1 veturgamla með 1 og 1 rollu með 2 alls 8 fóstur Móri lambhrútur frá Sigga er með 1 veturgamla og 4 rollur allar með 2 alls 10 fóstur. Siggi í Tungu 4 rollur með 3 17 með 2 2 með 1 1 veturgömul með 1 2 geldar Gemlingar 9 alls 1 með 2 7 með 1 1 geld Jóhanna 10 rollur 3 með 3 5 með 2 1 með 1 1 gemlingur með 1. Talning kom bara víðast vel út sem ég hef heyrt og hjá Óttari á Blómsturvöllum kom hún rosalega vel út en svona hljóðar hún. 24 rollur 9 með 3 13 með 2 1 með 1 1 geld Gemlingar 5 1 með 2 5 með 1 1 geldur Þetta eru að megninu til Kletts dætur hjá honum sem eru þrílembdar og eru að koma alveg rosalega vel út hjá honum bæði í mjólkurlagni og frjósemi. Partur sem ég fékk lánaðan hjá Bárði er undan Klett svo ég bíð spennt eftir að fá þessi 4 lömb sem eru væntanleg hjá mér undan honum. Að öðru að segja langaði mér að segja frá því að ég á 6 veturgamlar undan Tvinna sem var undan Saum og þær eru allar tvílembdar nema 1 er með 1 svo frjósemin virðist vera í lagi eins og er en það verður spennandi að fylgjast með hvernig mjólkulagnin verður hjá þeim. Tvinni var fæddur þrílembingur og er faðir Ísaks sem ég notaði talsvert núna. Ísak á 4 gemlinga hjá mér og af þeim eru 2 tvílembdir og hinir tveir með 1 svo það lofar góðu. Það var svo ekki bara verið að telja fóstur á laugardaginn því hann Gummi kom líka að taka af fyrir okkur snoðið svo þetta var langur og annasamur dagur í Tungu. Embla og Birgitta komu í fjárhúsin að fylgjast með öllu stuðinu. Ný snoðaðar og fínar. Svört hans Sigga er þrílembd. Búið að taka af stóru hrútunum.Korri hans Sigga hérna fyrstur til hægri svo Drjóli hans Sigga svo Ísak,Zorró og Mávur við hlerann. Mávur,Zorró og Ísak. Lambhrútarnir. Kaldnasi,Einbúi,Glámur,Askur og Móri. Glámur,Askur,Móri og Grettir. Jæja það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 13.02.2017 21:11Vann 7 minnka sl. laugardag grein um Leif í Mávahlíð í kringum 1980Hér eru tvær greinar sem birtust saman held í kringum 1980 Það var reyndar ruglast í greininni og skrifað Hulda og Þorsteinn en átti að vera Leifur. Þar sem margir bændur eiga von á hækkunum á kjúklingum og eggjum á næstunni vegna fóðurbætisskattsins hafa þeir tekið til við hænsnarækt í auknum mæli heima fyrir. Þessi ungi bóndasonur frá Mávahlíð í grennd Ólafsvíkur, nýtur góðs af hinum óvænlegu verðlagshorfum, því dáleikar eru með honum og hænunum. Húsfreyjan í Mávahlíð með einn minkanna sjö. Hinir sex liggja við fætur þeirra sonar hennar. Titilinn var Vann 7 minka sl. laugardag ! Leifur Þór Ágústsson, bóndi í Mávahlíð í grennd Ólafsvíkur, hefur veitt meira en 100 minka þetta árið og sl. laugardag veiddi hann ekki færri en sjö minka! Launin fyrir dagsveiðina eru 49 þúsund, þar sem 7 þúsund kr. Er greitt fyrir unninn mink. Jörðin Mávahlíð liggur hins vegar á mörkum umdæma Ólafsvíkur og Grundarfjarðar, svo Leifur hefur orðið að leggja vel á minnið hvar hver minkur næst og heimta verðlaunin á réttum kontór. Þ 08.02.2017 08:46Ótitlað
07.02.2017 20:45Tófan er vör um sig.Hér er gömul grein úr morgunblaðinu um viðtal við pabba í Mávahlíð 1997. Ég held ég hafi áður verið búnað setja þetta hér inn á síðuna eða allavega eitthvað svipað en náði þessu svo vel núna og skrifaði upp textann svo hægt væri að lesa hann alveg. Það er alveg yndislegt og fróðlegt að geta nálgast þessar gömlu greinar þær eru alveg gull. Meðan landsmenn leggja land undir hjól og vængi og fara víða í sumarleyfum sínum fer Leifur Ágústsson, bóndi í Mávahlíð á Snæfellsnesi, helst upp í fjöll að leita að lágfótu sem dældirnar smó. Guðrún Guðlaugsdóttir heimsótti Leif fyrir skömmu og ræddi við hann um líferni tófurnnar og tófuveiðar hans, en hann er með afkastamestu tófubönum hér á landi. Mávahlíð var um tíma 430 fjár en nú hefur fénu fækkað heldur á þeim bæ, það er þó kvótinn en ekki tófan sem höggvið hefur skörð í hópinn og á hún þó harma að hefna, svo mörgum tófum hefur Leifur Ágústsson bóndi í Mávahlíð banað um dagana. Leifur býr ásamt konu sinni, Huldu Magnúsdóttur og fjórum börnum í fallegu myndarlegu íbúðarhúsi og þegar litast er um í stofu þeirra hjóna sést greinilega að þótt fénu hafi fækkað hefur vænleiki þess ekki minnkað, uppi á vegg er skjöldur útskorinn af Ríkarði Jónssyni sem Búnaðarsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu veitir fjórða hvert ár þeim sem á besta hrútinn á Héraðssýningu. Skjöldinn hafa Leifur og Þorsteinn bróðir hans, sem einnig er bóndi í Mávahlíð, fengið þrisvar í röð og einu sinni áður. Leifur vill lítið tala um þetta efni. Honum verður hins vegar heldur liðugra um mál þegar talið berst að tófuveiðunum. Hann fór ungur að stunda veiðar. Það hefur alltaf verið mikið af tófu á þessum slóðum segir Leifur. Ég lenti í því að vera á grenjum með Þórði á Dagverðará. Hann er mjög skmmtilegur, þótt ekki sé kannski allt mjög nákvæmt í hans frásögn. Mér eru þessar ferðir minnisstæðar þótt ekki yrðu þær margar. Bjarni Vigfússon á Kálfárvöllum í Staðarsveit hefur hins vegar verið veiðifélagi minn um langt skeið, síðan 1983 höfum við náð 1.020 dýrum. En Bjarni er nú orðinn verktaki og hefur því minna getað verið við veiðarnar en áður. Það gerist vissulega ýmislegt þegar maður skýtur um hundrað dýr á sumri. Það hefur verið einkennilega mikið af tófu undanfarin ár, þær hljóta að koma einhvers staðar að, kannski úr Dölum og norðan af Hornströndum. Þær koma út á nesið þegar líður á veturinn, hér í fjöllunum er gífulega mikið æti, þær lifa mikið á Múkka og eggjum á vorin. Það hafa verið tófur í sömu grenjunum allt frá fyrstu tíð. Ef greni er unnið er komin ný tófufjölskylda í sama grenið árið eftir. Ég hef legið greni á sjötíu og einum stað á Nesinu. Það þarf að liggja yfir grenjunum og bíða eftir að tófan komi, það getur verið mikið þolinmæðisverk, stundum þarf maður að vaka alla nóttina, og er þetta líka kalsamt starf en útbúnaðurinn er orðinn svo góður að maður finnu reyndar lítið fyrir því. Tófur éta stundum lifandi kindur upp að augum. Leifur segir fátítt að refir leggist á búfénað, það var meira um slíkt áður fyrr, líklegra er meira æti núna og kannski voru tófur fleiri áður segir hann. Hann kveðst vera með góðar byssur, riffla og haglabyssur. Ekki segist hann vera við þessar veiðar af því að honum sé illa við tófuna. En ef henni fjölgar mikið getur hún orðið til vandræða. Ef kindur eru afvelta ræðst tófan stundum á þær og étur þær jafnvel upp að augum lifandi. Hrafninn er þó enn skæðari, hann á ekkert gott skilið. Hann ræðst á lömb og kroppar úr þeim augun og rekur jafnvel út þeim garnirnar, það er hald Leifs að ef tófurnar væru ekki drepnar myndi þeim fljótlega fjölga óhóflega. Nítíu og tvær tófur unnu þeir Leifur og Bjarni í fyrra en hundrað og fimmtán árið þar áður. Yrðlingar í hverju greni eru frá þremur og upp í átta, yfirleitt þó um fjórir. Ég spyr Leif hvort hann hafi fallið í þá freistni að taka með sér yrðling heim. Ég er búinn að vera með yrðlinga hér heima í mörg ár, svarar hann. Ég hef tekið með mér einn og tvo á hverju vori og leyft þeim að vera hér frjálsum, þeir eru misjafnir í umgegni, sumir eru grimmir en aðrir gæfir og hægt að venja þá eins og hvolpa, það má finna þetta strax þegar þeir eru teknir, sumir hreyfa sig ekki en aðrir eru kolvitlausir. Ég tek auðvitað fremur þá sem eru rólegri og þeir eru betri en kettir, þeir hafa aldrei bitið krakkana hérna. Sumir gera sig heimakomna, einn var meira segja kominn upp í hjónarúm til konurnnar minnar, og oft hanga þeir á eldhúsglugganum og horfa á fólkið borða, segir Leifur. Enginn yrðlingur er þó í Mávahlíð um þessar mundir. Leifur sýnir mér mynd af yrðlingi sem var heimagangur á bænum. Hann kom allann veturinn og var mikill vinur krakkanna, en ég varð að skjóta hann um vorið, hann var skaðræðisskepna í varpinu hér á bæjunum í kring. Hann kom alltaf hér á morgnanna að fá sér að éta en samt réð hann ekki við sig. Ef tófan kemst í æðarvarp er hún að alla nóttina, að tína upp eggin og hlaupa með þau sitt á hvað. Hún étur þau ekki en felur þau út um allt og ætlar svo að éta þau seinna. Ein tófa getur rústað heilu æðavarpi á einni nóttu. Tófurnar í sama greni búa við fjölskyldusamheldni. Leifur veiðir líka mink. Hann er miklu heimskari en tófan og talsvert grimmari segir Leifur. Hann kveður tófuna mjög vara um sig, þær leita að grenjunum og koma alltaf með eitthvað handa yrðlingunum. Ef þær finna lyktina af manni verða þær styggari. En eftir að þessir nýju rifflar komu er hægt að skjóta tófurnar á löngu færi. Einkennilegt er það að þótt eitt dýrið sé skotið og hitt komi svo og sjái dauðu tófuna virðist hið síðar komna ekki gera sér grein fyrir að tófan sé dauð, heldur fer að hoppa í kringum hana, kannski með gleðilæti jafnvel þótt fallna tófan sé sundurtætt eftir skotið. Hræðsluhljóð í fuglum vísar á tófur Oft er hægt að skjóta margar tófur í kringum æti á veturna og þótt þær liggi dauðar kringum ætið koma hinar lifandi og virðast ekki taka eftir þeim dauðu, heldur fara beint í ætið, þær vara sig yfirleitt ekki. Þegar legið er á greni má heyra langar leiði þegar tófan er að koma, fuglarnir í kring gefa frá sér hræðsluhljóð. Flest allir fuglar hafa vísað mér á tófur nema helst rjúpan. Sumir fuglar ráðast að tófunni t.d. kjóinn, tófunni er mjög illa við kjóann. Henni er líka illa við örninn og hefur mikinn vara á sér ef hann er nálægt. Tófan reynir líka að varast manninn ef hún finnur af honum lyktina. Tófan treystir nefinu betur en sjóninni þótt hún sjái mann fer hún alltaf í sveig upp í vana. Fyrst náði ég lengi vel engu dýri, en svo fór þetta að koma. Veiðimenn þurfa fyrst og fremst að vera rólegir og þolinmóðir. Menn þurfa kannski að bíða í 7 til 8 klukkutíma og ekkert gerist, svo kemur allt í einu tófan. Biðtímann nota menn til þess að fylgjast með umhverfinu, það fer því ekki hjá því að ýmislegt lærist af því sem gerist í náttúrunni. Leifur sýnir mér myndbandsupptöku af tófu sem fyrir nokkru var heimilsvinur í Mávahlíð. Þar sést að tófur borða jólakökur og leika sér við heimilshundinn eins og um bestu vini væri að ræða. Þessi tófa ólst upp með hundinum segir Leifur. Tófan í myndinni fer að borða egg og hleypur síðan upp í fjall. Flest þessi dýr hafa hlaupið burt og ekki sést meira og ég hef kannski skotið þau seinna. Skinn af föllnum dýrum eru ekki nýtt en skottunum er skilað og fyrir þau er greitt, segir Leifur að lokum. 07.02.2017 20:14Gamlar greinar úr Morgunblaðinu um sveitalífið í MávahlíðSvona birtist greinin í heild sinni inn á Mbl og ég fékk sendan textan í tölvupósti hjá Magga bróðir einu sinni og langaði til að koma þessu fallega fyrir hér inn á síðunni. Mér þykir óskaplega vænt um þessa grein og gaman er að lesa hana. Hún er síðan 1984. Heimsins mesta hnossgæti Þessi vísa er orðin yfir 300 ára gömul og var ort vegna heimasætu sem þá var í Mávahlíð í Fróðárhreppi. Þessari stúlku kvæntist síðar maður að nafni Gísli Jónsson. Margrét þessi lést árið 1710. Til minningar um hana gaf Gísli Fróðárkirkju prédikunarstól. Fróðárkirkja var lögð niður árið 1892. Þá var stólinn settur upp í kirkjunni í Ólafsvík. Er hann nú í nýlegri kirkju Ólafsvíkinga og þykir hinn merkasti gripur. Hér
fær þvotturinn á snúrunni að kenna á rebba.
Þarna og á fjallinu uppaf,
gengur Mávahlíðarféð. Skammt niður af bænum, í átt til
vesturs er stórt vatn, Mávahlíðarvaðall. Í hann fellur Holtsá og síðar Hrísá
áður en vaðalinn tengist sjó í Tunguósi. Þar er Ábótapollur. Þar drukknaði
Gísli Jónsson sá er forðum hlaut Margréti og Mávahlíð. Nafnið ber pytturinn
vegna þess að þar drukknaði fyrr Ögmundur Kálfsson fyrsti ábóti
Helgafellsklausturs. Þjóðleiðin utan af nesinu lá yfir Tunguósinn og yfir
Mávahlíðarrif til Búlandshöfða. Utan við rifið er Breiðafjörður og ör skammt
til gjöfulla miða. Velja má báta á grynnstu miðum af veginum ofan við
Mávahlíðarbæinn Í Mávahlíð búa bræðurnir Þorsteinn
og Leifur Ágústssynir ásamt Huldu Magnúsdóttur, konu Leifs og þrem börnum
þeirra. Að auki eiga þeir bræður jarðirnar Fögruhlíð og Kötluholt og hafa á
jörðunum á fimmta hundrað fjár. Og þetta eru ekki neinar skjátur eins og áður sagði. Kynbætur fjárins hafa þeir stundað af kappi . Kunnugir telja að í Mávahlíð sé nú eitt allra besta fjárbú á landinu. Hver einasta ær er hof sem hrútsmóðir. Allmargir hrútar hafa verið keyptir frá Mávahlíð á sæðingarstöðvar víða um land og margir eru seldir árlega til bænda á Snæfellsnesi. Ýmsir frammámanna í sauðfjárrækt, bændur og áhugamenn gera sér ferð hingað til að skoða hjörðina. Í stofu hangir verðlaunaskjöldur Búnaðarsambandsins, farandgripur veittur eiganda besta hrúts á héraðssýningu. Hlutu þeir gripinn haustið 1980 fyrir hrútinn Þorra sem síðar fór á sæðingarstöð. Gárungarnir segja að þeir hafi hlotið skjöldinn þrátt fyrir þá meginnáttúru þess grips að lenda hjá trúföstum framsóknarmönnum. Nú á, eftir fáeinar vikur að keppa um skjöldinn að nýju.
meðal þeirra allra bestu á búinu.
Leifur á Mávahlíð er
"náttúrubarn" eins og sagt er um þá sem næmir eru fyrir umhverfinu og lesa
táknmál úr hverju hljóði, þögn og hreyfingu dýralífsins. Hann er snjall
veiðimaður á allt það sem hann fýsir og er refaskytta góð. Við Björn
Guðmundsson höfum séð tófuyrðling á vappi í Mávahlíð. Við ákváðum að skreppa í
heimsókn og fá að taka myndir. Af þessu varð í byrjun september. Vegna
verkfalla erum við svona seint á ferð með árangurinn. Týra og Rebbi það er aldrei friður Týra og rebbi Augnabliks hlé.
Ágúst hefir engar vöflur á. Ágúst litli losar bleikju úr netinu. Handan Vaðalsins er Kötluhol. Næstu bæir fjær eru Tunga og Hrísar. Í Hrísum býr Þorgils Þorgilsson, landsþekktur áhugamaður um veðurfar, ásamt Hermanni bróður sínum. Hrútarnir hafa dreift sér og eru fáir þeirra nálægt bæ. Ég spyr Leif um höldin í vor. Hann segir höldin hafa verið góð en stundum fleira tvílembt. Það voru um 75%. Undanfarin ár hafa fengið 26-27 kg eftir fóðraða kind en væri meira ef gemlingar væru látnir fá fang. Fóðrið er fyrst og fremst taða en kjarnfóðurgjöf er lítil sem engin nema rétt á vorin. Það er vorgott í hlíðinni og ánum því sleppt fljótt eftir burð í sæmilegu tíðarfari. Varðandi ræktunina segir Leifur að með endurteknum sæðingum og rækilegu vali hafi þetta þróast. Menn mega ekki halda að nú þurfi þeir ekki að fá meira að því féð sé það gott. Afturkippurinn sé fljótur að koma ef þessa sé ekki gætt. Valið verði líka að vera strangt. " Þar höfum við nú ekki staðið einir" segir Leifur. "Leifur Jóhannesson fyrrum héraðsráðunautur nú nýráðin forstöðumaður Stofnlánadeildar landbúnaðarins vann hér gott starf og var óþreytandi að koma að velja lömbin með bændunum. Við söknum hans héðan úr héraðinu. Hann er sennilega einn sá gleggsti á landinu" Við rekum fáeina hrúta á undan
okkur. Björn ljósmyndari tapar af þegar rebbi hoppar á bak einum hrútnum og
sest þar . Hrissi lætur sér vel líka og stansar. Leifur segir að rebbi geri
þetta stundum við hrútana og lömbin. Ærnar kæra sig ekki um þetta. Þær eru
varar um sig. Við höldum nú til bæjar og þiggjum kaffi. Lengi megum við ekki
dvelja við það því við ætlum að koma við í Fögruhlíð, en þar segir Leifur besta
hrútinn þeirra vera á túni. Það fer að bregða birtu þegar Björn
tekur myndir af síðasta hrútnum, Vini Vinssyni. Hann leyfir okkur að ganga að
sér þukla og skoða en er hálferfiður við að sitja vel fyrir. Þessi Hrútur er
ekkert nema vöðvar. Jafnvel Jón Páll gæti verið montinn af þessum vöðvum. Vinur
er fjögurra vetra og gefur afbragðs afkvæmi segja þeir bræður. Þegar hann var
tveggja vetra vó hann 125 kg. Brjóstmál mældist þá 120 sm, spjald 27 sm og
fótleggur 125 mm. Við þuklum og strjúkum. Birtu
bregður enn frekar. Mál er að þakka fyrir og halda heim. Vinur þuklaður einu
sinni enn og í hug kemur hrútsvísa Háks: 04.02.2017 13:58Nýtt ár loksins bloggGleðilegt ár kæru vinir veit þetta kemur full seint það er að segja að það er liðinn heill mánuður af þessu ári og febrúar genginn í garð. Sætu börnin okkar á Gamlárskvöldi. Við áttum gott Gamlárskvöld með Freyju og Bóa, Huldu mömmu minni og Sigga í Tungu. Svo komu fleiri til okkar þegar skotið var upp þá kom Maja systir og fjölskylda hennar og Jóhanna frænka Emils en hún var að vinna hluta af kvöldinu. Kindurnar alveg elska krakkana þegar þau koma með mér í húsin og króa þau af til að fá klapp og athygli. Nú er fengitími auðvitað búinn og tók ég það saman hversu margar ær fóru í hvern hrút. 18 hrútar voru notaðir með sæðinga hrútum. Malli sæðishrútur 2 ær Tinni sæðishrútur 1 á Bekri sæðishrútur 2 ær Vinur sæðishrútur 2 ær Borkó sæðishrútur 2 ær Burkni sæðishrútur 3 ær Heimahrútar voru 10 og 2 frá Bárði og Dóru Hömrum. Partur Klettssonur frá Bárði 3 ær Flekkur lambhrútur frá Bergi frá Bárði 6 ær Einbúi lambhrútur undan Ísak 2 ær Ísak Tvinna sonur 7 ær Korri Garra sonur frá Sigga 7 ær Zorró Glaum sonur 8 ær Mávur Blika sonur 11 ær Móri lambhrútur frá Sigga 5 ær Glámur lambhrútur undan Saum frá Sigga 4 ær Askur lambhrútur undan Kalda sæðishrút 10 ær Kaldnasi kollóttur frá Hraunhálsi sem ég keyti 5 ær Grettir lambhrútur undan Máv og Svört frá Sigga 7 ær Þá er þetta upptalið við byrjuðum að hleypa rólega til 13 des en það var mest að gera í kringum 20 des. Seinasta sem gekk upp fékk 18 jan leiðinlega seint en hún fékk með Flekk hans Bárðar en hann veiktist eitthvað hefur verið barinn og hefur verið kominn með hita eða eitthvað svo þess vegna gekk hún upp. Það var síðan ein ær sem fékk með Part af þessum þrem sem var steindauð einn morguninn sem ég kom upp í fjárhús. Þá hefði hún orðið afvelta á grindunum ferlega fúlt þetta er auðvitað mikil kind sem heitir Brimkló og ætlaði ég mér mikla gullmola undan henni og Part en það verður ekki mögulegt. Brimkló var fædd 2013 Þau ár sem hún hefur lifað hefur hún ætið verið tvílembd og sem gemlingur líka. 5 lömb hafa verið seld og eitt slátrað og núna í vor fórst risa stór gimbur hjá henni í burði sem ég sá mikið eftir en hrúturinn sem hún skilaði í haust var seldur og var 87 stig. Brimkló var undan Blika Gosa syni og Hyrnu. Hyrna er undan Snævari og Hrímu. Fyrir svona rollu nörda eins og mig finnst mér gaman að rekja ættirnar svo ég ætla að fara aðeins aftar og segja ykkur að Hríma var svo undan Abel frá sæðingastöð og rollu frá pabba úr Mávahlíð sem hét Sakka 4 og var undan Læk frá sæðingastöð. En allavega þá mun ég sjá mikið eftir þessari kind því það er alveg búið að sanna sig hjá mér að þessar Blika dætur sem ég á eru allar að skila þrusu gerð og frjósemin er líka góð en ég fór auðvitað mjög sparlega í að nota Blika á sínum tíma út af ófrjósemi Gosa en sem betur fer veðjaði ég á rétt og hef ekki orðið var við þessa ófrjósemi í framræktun á Blika dætrum. Eins og ég var búnað segja áður frá þá fékk ég þessi dásemdar rúmföt í jólagjöf og hér eru þau komin á rúmið ásamt hrútapúðanum og ég er alveg í skýjunum með þetta. Hér eru svo stelpurnar okkar með gemlingunum sem eru svo gæfir. Þessi mynd var tekin í kringum áramótin. Benóný duglegur að hjálpa þegar hann fær verkefni í fjárhúsunum. Mávahlíðin í sínu fegursta í janúar það er alveg ótrúlegt hvað við erum búnað fá milt og gott veður þessa hörðu vetramánuði þó svo að það komi smá kaldi inn á milli. Sætu okkar á þrettándanum að fara sníkja gott í gogginn og kveðja jólin. Það eru svo myndir af þessu öllu saman hér inn í albúmi. Það er bara búið að vera heil mikið í gangi hjá mér því ég var í Þorrablótsnefnd og það kostaði mikinn tíma og æfingar öll kvöld fram að blóti sem var svo 28 janúar. Hér er verið að æfa eitt af atriðunum sem komu framm en það var Löggugildrur. Sem sagt tvær skvísur sem komu hér til Ólafsvíkur í lögguna og gengu báðar út til pilta sem búa hér í Ólafsvík og því fylgdi ákveðin saga sem gaman var að krydda aðeins. Viffi var flottur sem Bubbi Morthens. Bubbi átti nefnilega að vera þessa helgi í Frystiklefanum en hætt var við vegna Þorrablótsins og hann færður yfir á næstu helgi og við sáum fyrir okkur spaugilegt atriði að láta hann mæta og svo kom Dóra sem er veislustjórinn og rak hann út. Fiskmarkaðstríð hefur verið viðloðandi hér í Ólafsvík og auðvitað var nýtt að gera grín af því á spaugilegan hátt. Ránið sem var framið í apótekinu var tekið fyrir og var allt með léttum og spaugilegum hætti enda var það hræðileg upplifun í raunveruleikanum. Það hefur verið mikið að gera á fasteignamarkaðinum og það var mjög fyndið að það var einskonar kveðja sem þurfti að fara af stað þegar fjögur hús voru í sölu milli ákveðna aðila og þurfi einn að rýma húsið svo hinn gæti flutt inn og koll af kolli. Ég, Arna og Hrefna vorum settar í skreytingarnar og við skreyttum með lopapeysum. Ég fór með hrútshausinn minn og svo voru myndir af hrútunu mínum þessir þrír rassar þarna þar er Herkúles í miðjunni svo er Lækur og Nagli. Veisluborðið sá ég um að skreyta og gerði svolítið mikið sauðalegt he he og fékk rollu hauskúpu hjá Bárði og Dóru sem ég setti á grjót og límdi svo berjalyng sem ég hafði týnt um haustið með fallegum rauðum lit. Siðan var bein af kjamma. Þetta var svo í hinn endann steinahjón sem ég á og hrútshorn frá Bárði og Dóru Hömrum. Dóra Kr vínkona mín og snillingur var veislustjóri og kynnir ásamt Ingu Leikskólasrjóra sem var formaður þorrablótsnefndarinnar og stóðu þær sig alveg frábærlega og var hlegið mikið og skemmt sér. Þetta var algerlega út fyrir þægindarammann minn því ég er frekar feimin og stressuð í kringum mikið af fólki. Mig langaði til að komast yfir það og því hellti ég mér út í að fara í þetta. Þetta gekk alveg framar vonum og var góð reynsla og ég kynnist frábæru fólki og fyrst og fremst var þetta alveg rosalega gaman. Það var mjög mikið stress og kvíði fyrir general sýningunni og svo auðvitað Þorrablótinu sjálfu. Ég hélt hreinlega að ég væri að springa en það gekk allt saman upp og við rúlluðum því og allt gekk alveg 100 prósent. Auðvitað var það samvinnan hjá öllum og skipulag hjá Nefndinni og leikstjóra sem fékk þetta allt saman til að ganga svona vel upp. Þetta var líka bara alveg rosalega skemmtileg upplifun og frábær hópur og við skemmtum okkur svo vel. Jæja það eru svo fleiri myndir af Þorrablótinu hér inn í albúmi. Svo fer næsti spenningur alveg að fara ganga í garð en það er fósturskoðunin hjá rollunum ég get varla beðið eftir að fá að kíkja í pakkann þetta er alveg jafn ef ekki meira spennandi fyrir mér eins og jólin Kveð að sinni kæru vinir
Flettingar í dag: 121 Gestir í dag: 29 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 1188310 Samtals gestir: 69632 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 07:10:19 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is