Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
Færslur: 2017 Október19.10.2017 11:26Héraðssýning lambhrúta Hömrum 2017Jæja Héraðssýningin heldur áfram og nú er kominn laugardagurinn 14 október og hún hófst kl 13:00 og lauk um hálf fimm leytið. Sýningin var á Hömrum Grundarfirði hjá Bárði og Dóru og ég ákvað að hafa smá bleikt þema í tilefni af bleikum október og skreytti fjárhúsin eftir því. Sauðfjárræktarfélagið okkar Búi og Sauðfjárræktarfélag Eyrasveitar og nágrennis sá um þessa sýningu og það gekk allt eins og í sögu það var vel mætt um 70 manns held ég með börnum upptalið. Við héldum áfram með lambahappdrættið okkar og það gekk framar vonum við seldum 82 miða og svo var selt kaffi og með því fyrir 500 kr og frítt fyrir börn svo við fáum vel upp í kostnað fyrir sýningunni. Fangelsið á Kvíabryggju sá um að búa til kjötsúpu fyrir okkur sem vakti mikla lukku og var einstaklega gómsæt og með hollensku ívafi því kokkurinn þar er Hollenskur. Það voru 11 kollóttir vestan girðingar, 18 mislitir og 22 hyrndir svo í heildina vestan girðingar og austan voru alls 19 kollóttir, 29 mislitir og 37 hvítir hyrndir mættir á sýningu. Jón Viðar og Lárus voru mættir aftur til að dæma og fara nú að raða hér eins og á hinni sýningunni í 5 í uppröðun í hverjum flokki sem keppa við hina 5 austan girðingar. Það var svo dregið í lambahappdrættinu meðan dómararnir gerðu upp hug sinn. Það var mikil spenna og dregið var um 2 gullfallegar gimbrar og egg frá Dóru og Bárði úr Hamrabúinu þeirra. Jæja þá ætla ég að skella myndum hér inn og láta þær tala sýnu máli ásamt útskýringum. Hér er Héraðsmeistarinn 2017 á Snæfellsnesi hjá Bárði og Dóru Hömrum. Hér er Óttar Sveinbjörnsson Kjalvegi en hann á hluta af heiðrinum bak við meistarann að miklu leiti bæði í móður og föður hrútsins. Hér er svo hrúturinn sem er undan hrút hjá Bárði sem heitir Partur og er Kletts sonur. Klettur var hrútur frá Óttari á Kjalvegi undan Kveik sæðishrút. 47 kg 109 fótl 36 ómv 1,8 ómf 5 lag 8 9 9 9,5 9,5 19 7,5 8 9 alls 88,5 stig. Í öðru sæti var hrútur frá Snorrastöðum undan Njáll 16-480 frá Haukatungu. Það er hrúturinn sem er fyrstur í röðunni og Magnús heldur í. 51 kg 110 fótl 36 ómv 2,6 ómf 5 lag 8 8,5 8,5 9,5 9 19 8 8 8,5 alls 87 stig. Kristján á Fáskrúðarbakka átti hrútinn í þriðja sæti og ég náði ekki mynd af honum. en hér eru verðlaunahafarnir fyrir hvítu hyrndu 2017. Í þriðja sæti hrútur undan Leki 14-003 51 kg 103 fótl 35 ómv 3 ómf 5 lag 8 8,5 9 9,5 9 18,5 8 8 8,5 alls 87 stig Hér eru vinningshafarnir fyrir kollóttu hrútana 2017. 1 sæti Guðbjartur Hjarðafelli 2 sæti Ásbjörn Haukatungu Syðri 2 3 sæti Lauga Hraunhálsi Besti kollótti hrúturinn 2017. Frá Hjarðafelli undan Brúsa 53 kg 108 fótl 34 ómv 3,4 ómf 4 lag 8 9 9 9 9 18,5 9 8 8,5 alls 88 stig í öðru sæti frá Haukatungu Syðri undan Magna. 59 kg 106 fótl 34 ómv 2,1 ómf 4 lag 8 8,5 8,5 9 9 18 9 8 8,5 alls 86,5 stig. Þriðja sæti frá Hraunhálsi undan Hnallur. 51 kg 110 fótl 28 ómv 4,1 ómf 4 lag 8 9 8,5 8,5 9 18 8 8 8,5 alls 85,5 stig. Vinningshafar í mislitu hrútunum 2017. 1 sæti Arnar og Elísabet Bláfeldi 2 sæti Guðmundur Ólafsson Ólafsvík 3 sæti Arnar og Elísabet Bláfeldi Besti misliti hrúturinn 2017 frá Arnari og Elísabetu undan Hermil 50 kg 109 fótl 34 ómv 2,5 ómf 4,5 lag 8 9 9 9 9 18,5 8 8 8,5 alls 87 stig Í öðru sæti frá Gumma Ólafs undan Tobba. 55 kg 111 fótl 32 ómv 4,6 ómf 4 lag 8 8,5 8,5 9 9 19 8 8 9 alls 88 stig. Í þriðja sæti frá Arnari Bláfeldi undan Ask frá mér. 52 kg 108 fótl 33 ómv 2,8 ómf 5 lag 8 9 9 9 8,5 18,5 8 8 8,5 alls 86,5 stig. Hér má sjá töfluna með stigunum á gimbrunum sem voru í vinning í happdrættinu. Svört gimbur frá Bárði og Dóru sem var undan Part og Hlédísi. 47 kg 30 ómv 2,0 ómf 4 lag 8,5 framp 18,5 læri 8 ull Flekkótt gimbur frá Hraunhálsi. 45 kg 28 ómv 2,5 ómf 3,5 lag 8,5 framp 18 læri 7,5 ull Hér eru vinningshafarnir úr happdrættinu og það eru þeir Hallur á Naustum sem fékk þá kollóttu og svo Guðjón frá Syðri Knarratungu sem fékk þá hyrndu. Eins og myndin sýnir þá sýnist mér þeir vera hæðst ánægðir með gripina sína. Hér má sjá betri mynd af happdrættis vinningunum. Hér má sjá bleika skrautið í fjárhúsunum. Kaffi borðið var líka með bleikum löber og verðlaunin með bleikum slaufum og borðum. Ég teiknaði hrútamyndirnar og gaf í verðlaun og Jóhanna Bergþórsdóttir málaði fallega vatnslita málverkið sem var líka í verðlaun. Hér má sjá kræsingarnar sem voru í boði. Verið að skoða kollóttu hrútana. Mýsnar hjá Bárði vöktu mikla athygli hjá yngstu kynslóðinni. Eins var með karið sem er inn í Hlöðu sem róla. Bjargmundur lét sig ekki vanta á sýninguna og hafði miklar skoðanir á hrútunum. Margir og fjölbreyttir litir voru í mislitu hrútunum. Trausti og Hanna komu og skemmtu sér vel. Dóra rík amma. Kristinn Bæjarstjóri hér einbeittur að fylgjast með. Verið að skoða hyrndu hvítu. Dúllurnar mínar komu með ömmu Huldu. Við Dóra að fara láta krakkana draga happdrættis vinningana. Lárus Birgisson að segja frá þessum fallega verðlauna grip. Gummi Ólafs prentaði svo út stiganir á öllum hrútunum sem voru skráðir á blað og það vakti mikinn áhuga og pælingar til að fygjast með. Alveg þrælsniðugt. Verið að skoða í Haukatungu. Það eru svo fleiri myndir hér inn í mynda albúmi. 19.10.2017 10:54Héraðssýnng lambhrúta á Snæfellsnesi 2017Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi fór fram um seinustu helgi 13 og 14 október. Fyrri sýningin fór fram í Haukatungu Syðri 2 í flottu fjárhúsunum hjá Ásbyrni og Helgu. Jón Viðar og Lárus Birgisson voru dómarar. Það voru 8 kollóttir, 11 mislitir og 15 hvítir hyrndir mættir til sýningar. Það voru rúmmlega 40 manns með börnum sem mættu á sýninguna sem hófst kl hálf 9 og lauk í kringum 11 um kvöldið. Það var byrjað á því að fá alla hrútana í hverjum flokki og síðan endað með 5 í uppröðun sem keppa svo við þá 5 sem fara í uppröðun vestan girðingar næsta dag. Að lokinni uppröðun var boðið upp á kaffi og kræsingar. Mjög skemmtileg og vel heppnuð sýning. Hér er verið að skoða kollóttu hrútana sem voru 8 . Hér er svo verið að skoða mislitu sem voru 11. Hér er verið að skoða hvítu hyrndu sem voru 15. Hér er svo Farandsskjöldurinn til sýnis og kaffi og kræsingar. Hér má svo sjá myndir af sýningunni inn í albúmi. 11.10.2017 14:50Héraðssýning lambhrúta 2017Vill koma því á framfæri að Héraðssýningin vestan megin girðingar hefur verið breytt og verður haldinn á Hömrum Grundarfirði hjá Bárði og Dóru en ekki í Tungu eins og stóð til. endilega látið það berast Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi 2017 Fyrri sýningin fer fram föstudaginn 13.október á Haukatungu Syðri 2 í Kolbeinsstaðarhreppi og hefst kl 20:30. Áframhald fer framm laugardaginn 14.október á Hömrum Grundarfirði og hefst kl 13:00. Á þeirri sýningu verða veitingar í boði geng vægu gjaldi til að fá aðeins upp í kostnað sýningarinnar. Það verður sem sagt 500 kr á mann ef menn vilja gæða sér á kræsingum og kaffi og að sjálfsögðu verður frítt fyrir börn. Það verður svo áfram lambahappdrættið sem vakti svo mikla lukku og skemmtun. Þeir sem hafa áhuga á að krækja sér í miða þá mun miðinn kosta 1000 kr. Vegleg verðlaun í boði. Engin posi verður á staðnum. Verðlauna afhending verður svo að lokinni sýningu á Hömrum Grundarfirði fyrir báðar sýningarnar. Allir velkomnir og áhugafólk um sauðfjárrækt auðvitað kvatt til að mæta með sína gripi og sjá aðra. Það verður mikið spáð og þukklað. Reglur vegna lambhrútasýningar á Snæfellsnesi. * Þetta er eingöngu sýning á lambhrútum. * Hrútar verða að vera fæddir á Snæfellsnesi og því má ekki koma með aðkeypta hrúta. * Allir hrúta skulu vera stigaðir, þeir verða ekki stigaðir aftur heldur verður stuðst við fyrri stigun. * Nauðsynlegt er að koma með stigun hrútanna með á sýninguna. Ef það er ekki gert, er viðkomandi hrútur ekki með í sýningunni. * Hvert býli má koma með 3 hrúta í hverjum flokki. Þ.e. 3 kollótta, 3 hyrnda, og 3 mislita og/eða ferhyrnda. * Hrútar sem koma á sýninguna verða að ná 83 stigum, það á þó ekki við um mislita og ferhyrnda hrúta. Sjáumst hress og kát og eigum góðan dag saman. 02.10.2017 16:44Minni á Héraðssýningu lambhrútaHéraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi 2017 Fyrri sýningin fer fram föstudaginn 13.október á Haukatungu Syðri 2 í Kolbeinsstaðarhreppi og hefst kl 20:30. Áframhald fer framm laugardaginn 14.október í Tungu Fróðarhreppi í Snæfellsbæ og hefst kl 13:00. Á þeirri sýningu verða veitingar í boði geng vægu gjaldi til að fá aðeins upp í kostnað sýningarinnar. Það verður sem sagt 500 kr á mann ef menn vilja gæða sér á kræsingum og kaffi og að sjálfsögðu verður frítt fyrir börn. Það verður svo áfram lambahappdrættið sem vakti svo mikla lukku og skemmtun. Þeir sem hafa áhuga á að krækja sér í miða þá mun miðinn kosta 1000 kr. Vegleg verðlaun í boði. Engin posi verður á staðnum. Verðlauna afhending verður svo að lokinni sýningu í Tungu Fróðarhreppi fyrir báðar sýningarnar. Allir velkomnir og áhugafólk um sauðfjárrækt auðvitað kvatt til að mæta með sína gripi og sjá aðra. Það verður mikið spáð og þukklað. Reglur vegna lambhrútasýningar á Snæfellsnesi. * Þetta er eingöngu sýning á lambhrútum. * Hrútar verða að vera fæddir á Snæfellsnesi og því má ekki koma með aðkeypta hrúta. * Allir hrúta skulu vera stigaðir, þeir verða ekki stigaðir aftur heldur verður stuðst við fyrri stigun. * Nauðsynlegt er að koma með stigun hrútanna með á sýninguna. Ef það er ekki gert, er viðkomandi hrútur ekki með í sýningunni. * Hvert býli má koma með 3 hrúta í hverjum flokki. Þ.e. 3 kollótta, 3 hyrnda, og 3 mislita og/eða ferhyrnda. * Hrútar sem koma á sýninguna verða að ná 83 stigum, það á þó ekki við um mislita og ferhyrnda hrúta. Sjáumst hress og kát og eigum góðan dag saman. Hér er gimbur sem var í verðlaun árið 2015 í happdrættinu svo það verður spennandi að sjá hvað verður í vinning núna.
Flettingar í dag: 121 Gestir í dag: 29 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 1188310 Samtals gestir: 69632 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 07:10:19 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is