Jæja þá gef mér loksins tíma til að henda einhverju hér inn og ekki seinna vænna því sauðburður er hafin en þó rólega og er ég að deyja úr óþolinmæði að allt fari á fullt.
Hrafna bar fyrst 28 apríl hrút undan Baug sæðishrút. Svakalega hvítur þykkur og fallegur.
Nala var önnur og hún er með 2 gimbrar undan Baug sæðishrút.
Flekka kom næst með 2 hrúta undan Baug líka.
Svana með 2 gimbrar undan Garra.
Svört hans Sigga kom með 3 undan Garra sæðishrút.
Hrifla var sónuð með 2 en kom með 3 undan Saum sæðishrút.
Dröfn með þrílembingana sína undan Garra. Það var vanið undan henni undir tvævettlu sem er með 1.
Hér er Benóný með fyrstu bleikju sumarsins sem ég fékk í vaðlinum.
Farið að grænka vel og maður bíður spenntur eftir sumrinu.
Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi.
Gugga með þrílembingana sína undan Þorsta. Það tókst að venja undan henni undir tvævettlu sem var með 1.
Það er svo gaman að segja frá því að 1 strá sem ég notaði út Garra var notað í 5 kindur 2 hjá Sigga og 3 hjá mér og Siggi fékk tvær þrílembdar og ég fékk 1 þrílembda og 2 tvílembdar svo það er ekkert smá góð nýting á 1 strái 13 lömb alls.
Sauðburður hefur gengið rosalega vel en hann fer mjög rólega af stað það bar til dæmis bara ein í dag og það var fyrsta mislita lambið sem kom og það er svartur hrútur undan Kára sæðishrút annars er allt hvítt sem komið er. Nú eigum við eftir að fá lömb úr Guffa, Ás og Kára í viðbót úr sæðingunum svo byrjar að koma úr heimahrútunum okkar og ég er að deyja úr spenningi yfir að sjá lömbin undan Mugison og Glaum.
Fyrstu lambærnar fengu að fara út í gær og geldu gemlingarnir.
Hrútarnir fengu líka að fara út í heimahagana sína í Máfahlíð og var rosa fjör eins og sjá má á þessari mynd.
Mugison og Glaumur komnir inn í Máfahlíð.
Myrra gaut svo 4 kettlingum á sumardaginn fyrsta.
Hér eru krúttin.
Benóný Ísak elskar svarta kettlinginn.
Freyja verður líka að fá að halda á þeim.
Embla Marína elskar þann hvíta mest.
Algjörar krúttsprengjur engin furða að krakkarnir séu sjúkir. Ég þarf allveg að skammta þeim tíma með þá því þau gætu verið með þá allan daginn.
Hér er svo Myrra með ungana sína. Það eru svo fleiri myndir af henni og krökkunum með kettlingana hér inni í albúmi.
Aðalfundur Búa var haldin núna seinast liðinn miðvikudag 30 apríl í Átthagastofu í Ólafsvík og fór þar fram verðlauna afhending , venjuleg fundarstörf, reikningar og fleira.
Hér er Gummi að afhenda Ragnari á Kverná verðlaun fyrir þriðju afurðahæðstu ánna hjá Búa og fyrsta sæti hlaut Anna Dóra og Jón Bjarni Bergi og annað sæti Óli Tryggva
Grundarfirði.
Bestu alhliða ærnar fæddar 2008 í
Sauðfjárræktarfélaginu Búa
Ær
Faðir
Fita
Gerð
Kjötgæði
Mjólk
Frjósemi
Heild
Eigandi
08-126
Raftur 05-966
112
109
110,5
107
110
109,2
Jón Bjarni
Þorvarðarson, Bergi
Stygg 08-002
Raftur 05-966
107
105
106
105
111
107,3
Ólafur Tryggvason,
Grundargötu 62
Íris 08-107
Fróði 07-262
114
82
98
112
112
107,3
Guðfinna og Ragnar,
Kverná
08-021
Raftur 05-966
99
112
105,5
113
102
106,8
Ólafur Ingi, Mýrum
Arna 08-127
Óttar 06-293
112
102
107
101
111
106,3
Guðfinna og Ragnar,
Kverná
Skessa 08-003
Raftur 05-966
111
105
108
105
106
106,3
Lárus, Gröf
Krubba 08-027
Raftur 05-966
114
105
109,5
101
106
105,5
Óttar Sveinbjörnsson,
Kjalvegi
08-166
Raftur 05-966
109
102
105,5
101
110
105,5
Jón Bjarni
Þorvarðarson, Bergi
08-455
Raftur 05-966
116
109
112,5
96
106
104,8
Kjartan, Nýjabúð
08-156
Mundi 07-202
112
92
102
107
105
104,7
Jón Bjarni
Þorvarðarson, Bergi
08-004
Raftur 05-966
103
105
104
95
115
104,7
Ólafur Ingi, Mýrum
Birta 08-026
Máni 07-702
102
100
101
105
106
104,0
Dóra og Bárður,
Eyrarvegi 12
Þosta 08-020
Raftur 05-966
110
105
107,5
102
101
103,5
Guðfinna og Ragnar,
Kverná
Efstur í þessum flokki var Ingibjörg og Valgeir og svo átti Óli á Mýrum sem hér tekur við verðlaununum annað og þriðja sætið.
Hrútar
sem eiga 8 sláturlömb og gerð þeirra 9,5 eða meira haustið 2013
Hrútur
Faðir
Heimili
Fjöldi
Fallþungi
Gerð
Fita
12-722
Ljúfur 08-859
Grundargata 47
12
16,53
10,75
7,17
Satan 12-682
Blakkur 07-865
Mýrar
10
17,23
10,7
7,7
Vindur 11-695
Laufi 08-848
Mýrar
27
16,97
10,11
6,56
Svartbotni
12-201
Grábotni 06-833
Berg
46
15,86
9,83
5,91
Partur 12-400
Klettur 10-397
Hamrar
10
16,48
9,8
6,5
Salamon
12-032
Guffi 08-869
Vallholt 24
17
17,41
9,76
6,71
Stormur
11-001
Kveikur 05-965
Máfahlíð
12
19,63
9,75
8,42
Lundi 12-370
Grábotni 06-833
Kjalvegur
16
18,01
9,69
8,06
Prúður 08-088
Kroppur 05-993
Kolgrafir
25
17,06
9,68
6,88
Biskup 12-681
Púki 06-807
Mýrar
9
17,23
9,67
7,78
Snjókarl
09-204
Spakur 08-153
Kvíabryggja
11
17,35
9,64
6,82
Dropi 09-093
Kveikur 05-965
Kolgrafir
66
15,83
9,59
6,48
Njörður
09-692
Púki 06-807
Mýrar
25
17,1
9,56
7,28
Silfri 12-200
Grábotni 06-833
Berg
41
16
9,54
6,15
Kibbi 12-202
Lagður 07-847
Berg
16
15,36
9,5
5,81
Hér er Andrés og Jensína í 1 sæti fyrir kjötmat og gerð svo Þór annað sæti og svo Marteinn Gíslason Ólafsvík þriðja sæti.
Bú sem
náðu 30 kg eftir hverja á eða meira árið
2013 - Fjárræktarfélagið Búi
Eigandi
Fjöldi áa
Tvílemba
Einlemba
Ær með lambi
Hverja á
Fædd lömb
Til nytja
Fleirlembur
Geldar
Andrés og
Jensína, Bárðarási 4
13
41,8
0
41,8
41,8
2,23
2,08
3
0
Þór Reykfjörð
Kristjánsson, Eiðhúsum
15
42,1
20
40,6
40,6
2,07
2
2
0
Marteinn
Gíslason, Túnbrekku 16
16
44,1
21
40,8
38
2,2
1,93
6
1
Blómsturvellir
ehf, Kjalvegi
33
40,5
24,5
38,5
37,4
2,03
1,91
6
1
Ólafur
Tryggvason, Grundargötu 62
11
41,7
17,6
37,3
37,3
2,18
1,91
2
0
Óskar H.
Þorgilsson, Ólafsbraut 54
13
39,7
20,7
36,8
36,8
2,15
2
3
0
Guðmundur
Ólafsson, Vallholt 24
20
39,6
21,9
36,1
36,1
1,9
1,9
2
0
Jóhanna
Bergþórsdóttir, Stekkjarholti 7
5
39,6
17
35,1
35,1
2,2
2,2
2
0
Sigurður A.
Guðmundsson, Miðbrekku 1
15
37
21,8
35,9
33,5
2,07
1,87
1
0
Herdís
Leifsdóttir, Máfahlíð
41
41,5
25,1
38,1
33,2
1,74
1,59
1
2
Edda Bára
Sveinbjörnsdóttir, Hellisbraut 18
26
36,9
22,8
32,5
32,5
1,85
1,69
1
0
Dóra
Aðalsteinsdóttir, Eyrarvegi 12
73
33,2
18,3
32,3
31,4
2,11
1,99
17
1
Oddur H.
Kristjánsson, Skallabúðum
21
37,3
20,1
34,6
31,3
1,76
1,67
1
1
Þorvarður
Guðbjartsson, Naustabúð 6
9
38,8
0
38,8
30,2
1,78
1,56
0
0
Ólafur Ingi
Jónsson, Mýrum
157
33,7
18,3
31,5
30
2,01
1,77
12
0
Hér er verið að veita verðlaun fyrir Bú með 9,0 í gerð sláturlamba. Í fyrsta sæti Sigurður Gylfason Tungu og í öðru sæti Óttar Sveinbjörnsson og í þriðja við.
Bú með
9,0 í gerð sláturlamba eða meira í Fjárræktarfélaginu Búa árið 2013
Eigandi
Sláturlömb
Fallþungi
Gerð
Fita
Sigurður K.
Gylfason, Tungu
9
20,04
11,67
8,11
Blómsturvellir
ehf
27
18,37
10,11
8
Herdís
Leifsdóttir, Máfahlíð
33
19,97
9,91
8,39
Hörður
Pálsson, Hömrum
30
16,79
9,6
6,1
Ólafur Ingi
Jónsson, Mýrum
228
17
9,53
7,01
Ingibjörg
Sigurðarsdóttir, Grundargötu 47
46
15,99
9,43
6,63
Guðmundur
Ólafsson, Vallholti 24
34
17,68
9,41
6,82
Gunnar
Ingvarsson, Kolgröfum
173
15,86
9,27
6,35
Jón Bjarni
Þorvarðarson, Bergi
263
15,13
9,17
5,67
Guðmundur K.
Pálsson, Hálsi
98
16,21
9,01
7,02
Emil að taka við verðlaunum fyrir okkur fyrir hæðst stiguðu lambhrútana og áttum við 1 og 3 sæti og svo átti Anna Dóra og Jón Bjarni Bergi 2 sæti.
Lambhrútar hjá Búa með 86 stig eða meira
haustið 2013
Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.