Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

08.07.2014 16:44

Ferðalag á Akureyri og rollu rútntur


Fórum norður til Akureyrar með Magga bróðir og Erlu 
og áttum þar rosalega flott viku. 
Það var Magga og Erlu að þakka að 
við fórum því þau voru með verkalýðsíbúð sem þau
gátu bara nýtt yfir helgina og 
við fengum svo að nýta restina af vikunni.
Við fengum allveg geggjað veður og 
sem betur fer því ekki hefur verið mikið um sólardaga 
hér heima síðan að við komum heim. 
Eins og sést á myndinni þá er Benóný allveg í essinu
sínu í rennibrautunum og fórum við oftast á Hrafnagili í sund 
því þar var mjög gott að vera og alger snilld fyrir barnafólk því 
þar er upphituð vaðlaug við rennibrautina. Hver kannast ekki 
við að þurfa að bíða í ískaldri lauginni við rennibrautina 
meðan krakkarnir renna allavega ég og þarna þurfti 
ég þess ekki heldur lá bara með Freyju í vaðlauginni 
og fylgdist með svo ég mæli eindregið með þessari laug 
mér fannst hún snilld.

Embla er orðin svo köld að hún gaf Benóný ekkert 
eftir í rennibrautunum og hér erum við í sundi á 
Dalvík og fórum við svo einnig í sund á Akureyri og 
Eskifirði þegar við enduðum svo ferðalagið okkar 
á því að fara allaleið austur til Ágústar bróðirs og Írisar. 
Mér til mikillar ólukku þá eyðilagðist myndavélin mín á 
Dalvík og ég gat ekki tekið myndir á hana þegar 
við fórum austur en ég á það til í símanum og 
ég kann ekki að færa þær yfir í tölvuna eins og 
er svo það verður bara að koma þeim myndum 
inn á facebookið.

Ég fór svo auðvitað í heimsókn til hennar Birgittu kindavínkonu 
og þar var tekið vel á móti okkur og fórum við meira segja 
tvisvar til hennar og Þórðs í þeirra yndislegu sveit. 
Ég var allveg dáleidd af sveitinni þeirra það er svo 
rosalega fallegt umhverfið hjá þeim. 
Ég veit þessi mynd er svolítið hreyfð en ég varð bara að setja hana inn. 
Það var rosalega gaman að fá að kíkja til ykkar takk kærlega fyrir okkur .

Freyja blómarósin mín í Kjarnaskógi.

Kíktum líka í sumarbústað til Jóhanns og Þórhöllu á móti Illugastöðum 
ég man ekki hvað það heitir en það var æðislegur staður 
og svakalega flott leiksvæði fyrir börn. 
Hér eru allir í krikket og það endaði með því að Freyja 
fékk kúlu eftir systir sína sem sveiflaði óvart í hana kylfunni.

Maggi og Erla með Freyju í Lystagarðinum á Akureyri.

Sessa með gimbrina sína og Vigga með flekkóttu.

Mjallhvít með hrút undan Ás og Hríma hennar Jóhönnu með gimbur undan Ás.
Það eru svo fleiri myndir bæði af rollum og ferð okkar norður með því að smella hér.

Mist með gimbur undan Ás og mun hún heita Ása ef hún verður sett á.

Hrútur og gimbur undan Kára og Frigg ég er rosalega spennt fyrir þeim.
Þrílemibngarnir undan Mugison og Rán.


Svana með tvær gimbrar undan Garra virka mjög flottar.

Botnleðja með þrílembingana sína undan Brján.

Skuggadís, Ísabella og er ekki allveg klár á hver hin er en ég held að það sé Herdís hennar Jóhönnu.

Svana með gimbrarnar sínar undan Garra.

Kápa með hrút og gimbur undan Brimil.
Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inni.

Jæja svo er núna komið að því að fara huga af heyskap 
og ekki er nú veðrið að leika við okkur þessa dagana 
það er alltaf rigning. Siggi sló fyrir mánaðarmót og 
hefur ekki getað hreyft við því fyrr en núna fyrst og 
tóku þeir eitthvað af þvi saman í gær og er það harla 
fátt sem hann hirðir því megnið af því er orðið ónýtt.

Samkvæmt nýjustu spám veður kanski hægt að heyja 
um helgina og vona ég að það standist. Af okkur að segja 
þá er Emil á fullu að græja bátinn á makríl og krakkarnir 
eru komnir í frí á leikskólanum svo það er nóg að 
gera að hafa ofan fyrir þeim. 
Tala nú ekki um þegar veðrið er svona. 
En við verðum bara vera bjartsýn það 
hlýtur að fara koma sól og sumar hjá okkur.
Flettingar í dag: 209
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 487
Gestir í gær: 23
Samtals flettingar: 712536
Samtals gestir: 47053
Tölur uppfærðar: 24.4.2024 08:46:48

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar