Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

05.12.2015 10:29

Aðalfundur Búa fyrir árið 2014

Aðalfundur Búa var haldinn á Átthagastofu Ólafsvík og var farið yfir venjuleg fundarstörf og veitt verðlaun fyrir ýmsa þætti. Þessi fundur átti að vera löngu búið að halda en því miður dróst hann þetta lengi svo betra er seint en aldrei verður maður bara að segja.
En þetta gekk allt ljómandi vel og við komum bara sterk inn á nýju ári og ræddum um að
reyna fara í einhverja ferð á komandi ári.
Hér eru félagarnir Bárður Rafnsson Grundarfirði og Óttar Sveinbjörnsson Kjalvegi.
Ég ákvað að fara aftur í tímann og veita viðurkenningu til að hengja upp í fjárhúsinu.
Við veitum alltaf bikara sem menn geyma í ár og svo fara þeir annað en nú fá allir skjal
sem þeir geta þá átt um ár og aldir .
Anna Dóra og Bárður að taka einnig við verðlaunaskjölum fyrir veturgamla hrúta frá árum
áður.
Gummi með fyrir mig verðlaun fyrir veturgamla frá fyrri árum.
Fleiri viðurkenningar fyrir veturgamla frá árum áður. Gunnar á Kolgröfum með hyrndu
Kverná með kollóttu og Siggi Tungu með mislita.
Gummi og Anna Dóra með 2 afurðarhæðstu 5 vetra ærnar og svo átti ég þriðju.
1.Berg með 103 Gerð 101 Fita 107 Frjósemi 121 Mjólkurlagni 110 heildarstig.
2.Berg með 100 Gerð 109 Fita 106 Frjósemi 116 Mjólkurlagni 109 heildarstig.
3.Mávahlíð  106 Gerð 116 Fita 112 Frjósemi 101 Mjólkurlagni 108 heildarstig.
Afurðarhæðstu búin 2014.
1.Siggi í Tungu fjöldi veturgamla 9 fjöldi áa17 Reiknað kjöt eftir hverja á 43,2
lömb eftir á fædd 2,12 til nytja 2,00 meðalfallþ 20,78 meðalgerð 11,00 meðalfita 9,75
2.sæti Ólafur Tryggvason Grundarfirði. Fjöldi veturgamla 8 fjöldi áa 4 Reiknað kjöt eftir
hverja á 41,4 lömb eftir á fædd 2,25 til nytja 2,00
3.sæti Marteinn Gíslason Ólafsvík. Fjöldi veturgamla 6 fjöldi áa 12 Reiknað kjöt eftir hverja
á 38,5 lömb eftir hverja á fædd 2,08 til nytja 1,92.
Ég og Emil áttum þrjá bestu lambhrútana 2014.
88 stig, 87,5 stig 87 stig.
Kjötmat 2014 Bú sem náðu 9,0 í meðalflokkun fyrir gerð lamba og áttu fleiri en 10
sláturlömb.1 sæti Hörður Pálsson Hömrum sem Bárður heldur á.
21 lamb meðalfallþ 17,80 meðalgerð 11,00 meðalfita 8,38
Sigurður Tungu annað sæti. 28 lömb meðalfallþ 20,78 meðalgerð 11,00 meðalfita 8,38
Guðmundur Ólafsson þriðja sæti. 35 lömb meðalfallþ 18,32 meðalgerð 10,74 meðalfita 7,71
Rollunum var svo smalað heim helgina 20 nóvember og byrjað að hýsa.
Aumingja Tvinni okkar lenti í því leiðinlega atviki að hann var með 4 hrútum í stíu og
eitthvað mikið hefur gengið á því hann var draghaltur og steig ekki í fótinn en það má
alltaf búast við því þegar fengitími nálgast að mikið gangi á í hrútastíunni og auðvitað lenda
svo uppáhalds hrútarnir fyrir barðinu á að slasast. Svo nú er kauði búnað fá Hjalta
dýralæknir til að gifsa sig en gat þó ekki allveg greint hvort hann væri brotinn eða með
slitið liðband en allavega þá þarf hann að vera í gifsi í 4 til 5 vikur.

Það stóð til að lána hann á Hjarðafell í afkvæmarannsókn en það verður nú örugglega ekki
að því þetta árið en ég ætla að prófa hann og sjá hvernig mun ganga hjá honum .
Það er þó skömminni skárra að þetta sé frammfótur. Ég var rosalega svekkt að þetta skyldi
endilega þurfa að koma fyrir hann akkurrat þegar Jón Viðar var búnað biðja um hann í
afkvæmarannsókn en það er víst ekki spurt af því hvernær óhöppin verða.

Jæja það eru svo fleiri myndir af fundinum og fleira hér inn í albúmi.

Flettingar í dag: 1516
Gestir í dag: 208
Flettingar í gær: 1352
Gestir í gær: 248
Samtals flettingar: 729637
Samtals gestir: 48689
Tölur uppfærðar: 8.5.2024 23:47:52

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar