Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

07.11.2018 15:46

Minningarorð um Ísak Tvinnason

Var alveg búnað steingleyma að hann Ísak okkar var bráðkvaddur þegar við smöluðum lömbunum inn fyrir Héraðssýninguna. Alveg ömurlegt hann var að gefa okkur svo flott lömb núna í ár og eins eru dætur hans alveg að skara fram úr í mjólkurlagni og ég var næstum 
búnað ákveða hvað ég ætlaði að nota hann á núna í vetur en svona getur allt breyst bara
einn tveir og tíu. Langaði að taka hér saman smá sögu af lífsleiðinni hans.
Besti hyrndi hvíti hrúturinn 2015 frá Mávahlíð. 
Lamb númer 852 undan Tvinna 14-001
Stigun: 63 kg fótl 112 ómv 36 ómf 2,3 lögun 4
8 9 9 9 9 19 8,5 8 8,5 alls 88 stig.
Hér afhenti Lárus Birgisson mér Herdísi Leifsdóttur Farandsskjöldinn fyrir besta
lambhrútinn 2015. Ég er enn í sjokki eins og sést á myndinni og allveg rosalega
þakklát fyrir að fá þann mikla heiður að fá þennan mikla grip.
Mér fannst líka æðislegt að fá þessa viðurkenningu frá Jón Viðari og Lárusi
heiðursmönnum sem  ég lít mjög upp til síðan ég var
smá stelpa í Mávahlíð á hrútasýningum.
Enda sagði Emil að ég hafi sofnað með bros á vör eftir daginn emoticon

Hér er minningar klippa frá því að við fengum Farandsskjöldinn fyrir Ísak árið 2015.

Hér er svo önnur þegar hann var valinn besti veturgamli hrúturinn hjá Sauðfjárræktarfélaginu Búa


Hér er ég svo með vinningshafann í hvítu hyrndu nr 15-001 Ísak Tvinna sonur og Mjallhvítar.
Tvinni er Saum sonur og Mjallhvít er undan heimaær og Storm Kveiksyni.

Ísak 15-001 frá Mávahlíð.

Hann var 105 kg fótl 119 ómv 38 ómf 3,4 lag 4

8 haus 9 H+h 9 B+útl 9 Bak 9,5 malir 19 læri 8,5 ull 8 fætur 8,5 samr. Alls 88,5 stig.

Ísak fór svo með Máv í afkvæmarannsókn á Gaul árið 2016 og hafði þar Mávur vinninginn og var
tekin á stöð en Ísak stóð rétt á eftir honum í rannsókninni.


Einbúi er undan Ísak og Tungu og er í eigu míns og Bárðar.

58 kg 35 ómv 2,5 ómf 5 lögun 108 fótl.

8 8,5 9 9 9 18,5 9 8 8,5 alls 87,5 stig.

Þessi hrútur undan honum er enn til og er hjá Bárði hann hefur ekki verið notaður neitt af ráði
svo það er spurning um að fara prófa hann almennilega núna því hann á að geta gefið mjög gott.
Tunga móðir hans er undan Dröfn sem er móðir Mávs sem er á sæðingarstöðinni frá okkur og svo
er hún undan Garra sæðingarstöðvarhrút. Hann var svo mikið skyldur mínu fé svo Bárður tók
hann en ég á núna eitthvern hóp sem er óskyldur honum svo það væri gaman að prófa hann.

Við eigum nokkrar dætur undan Ísak sem mig langar að telja hér upp.


Bifröst er undan Dröfn og Ísak. Tvílembingur fædd 2016

50 kg 32 ómv 3,6 ómf 4,5 lögun 108 fótl 9 framp 17,5 læri 8 ull 8,5 samræmi.


Þoka er undan Ísak og Elsu. Tvílembingur fædd 2016

55 kg 31 ómv 4 ómf 4 lögun 8,5 framp 18 læri 8 ull.

Urður er undan Snældu og Ísak. Tvílembingur fædd 2016

46 kg 30 ómv 2,9 ómf 4 lögun 106 fótl 9 framp 18 læri 7,5 ull 8,5 samræmi.



Snædrottning er undan Ísak og Maístjörnu. Tvílembingur fædd 2016

45 kg 29 ómv 2,9 ómf 4 lögun 108 fótl 8,5 framp 17,5 læri 9 ull 8,5 samræmi.

Sprengja 17-003 undan Dröfn og Ísak. Þrílembingur fædd 2017

44 kg 34 ómv 3,4 ómf 4,5 lag 105 fótl.

9,5 framp 18,5 læri 7,5 ull 8 samræmi 43,5 heildarstig


18-005 Brúða undan Villimey og Ísak. Tvílembingur fædd 2018

50 kg 35 ómv 3,8 ómf 5 lag 108 fótl 18,5 læri 8 ull 8,5 samræmi 43,5 heildarstig

18-009 Elektra undan Fíónu og Ísak. Þrílembingur fædd 2018

54 kg 34 ómv 3 ómf 4,5 lag 107 fótl 9 framp 18,5 læri 8 ull 9 samræmi 44,5 heildarstig


18-013 Terta undan Hexíu og Ísak. Tvílembingur fædd 2018

47 kg 35 ómv 3,5 ómf 5 lag 107 fótl 8,5 framp 18 læri 7,5 ull 8,5 samræmi 42,5 heildarstig
Kraftur 17-002 undan Íssól og Ísak. Tvílembingur fæddur 2017

44 kg 30 ómv 2,2 ómf 4,5 lag 110 fótl.

8 8,5 9 8,5 9 18,5 8 8 8,5 alls 86 stig.

Þessi var að koma rosalega vel út í haust og voru öll lömbin undan honum með 18 í læri og yfir
og 2 sem fóru í sláturhús undan honum fóru bæði í E svo þetta hefur verið hörku gerðar hrútur
hann fórst um veturinn eftir fengitíma hafði lent í einhverjum áflogum við hina hrútana og náði 
sér aldrei og fóðraðist ekki.

Kynbótamatið hans Ísaks var Gerð 108 Fita 114 Frjósemi 103 Mjólkurlagni 107

Jæja læt þetta duga sem minningarorð um hann Ísak Tvinnason. 

Það verður svo næst á blogginu hjá mér ásettningurinn hjá Guðmundi Ólafs Ólafsvík.

Flettingar í dag: 1395
Gestir í dag: 123
Flettingar í gær: 1259
Gestir í gær: 96
Samtals flettingar: 708332
Samtals gestir: 46832
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 13:56:18

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar