Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|||||||||||||
05.09.2023 21:45Göngutúr 5 septÞað var ansi hvasst í morgunsárið og ég var ekki alveg að leggja í að fara í göngu en eftir að ég rúntaði inn fyrir Búlandshöfða komst ég að því að það var ekki nærri eins hvasst þar innfrá nær Grundarfirði og niður í Búlandi svo ég lagði bílnum upp á útsýnisstaðinn og labbaði niður í Búland og færði mig svo upp í hlíðina niður fyrir veginn og labbaði undir Höfðanum og þar var bara fínasta veður. En það blasti við mér ófögur sjón þegar ég var búnað ganga dágóða stund undir Höfðanum en þá sá ég ull út um allt og það vakti áhuga minn að þetta var óvenju mikil ull fyrir að vera einhver ull sem hefur dottið af kind svo ég elti slóðina og horfði vel í kring og þá sá ég það að það var hræ af kind neðar í brekkunni og ekkert eftir nema hryggsúlan og hornin svo ég gat ekki greint hvaðan hún væri en þetta hefur verið lambhrútur og mórauður. En þegar ég labbaði svo lengra sá ég legg með ull og klauf og það var ekki alveg mórautt svo líklega hefur þetta verið móbotnóttur hrútur og ef þetta er sá sem ég held að þetta sé það er að segja ef hann er frá mér þá var þetta hrútur undan Hríslu gemling og Grettir sæðingarstöðvarhrút en ég vona svo innilega að það sé ekki rétt hjá mér því ég var virkilega spennt fyrir því að sjá hann í haust. En Emil sá Hríslu um daginn og ekki hrútinn svo það er ansi líklegt að þetta hafi verið hann.
Flettingar í dag: 194 Gestir í dag: 16 Flettingar í gær: 358 Gestir í gær: 15 Samtals flettingar: 1349531 Samtals gestir: 74506 Tölur uppfærðar: 28.1.2025 04:08:13 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is