Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

12.06.2026 07:34

Sauðburður 2026

Jæja þá er loksins komið að því að blogga um sauðburðinn en mikið var að gera í allann maí bæði sauðburður og svo ferming hjá Freyju Naómí dóttur okkar svo ég ákvað að bíða bara róleg og velja góðan tíma eftir allt og setjast niður og blogga.


Þann 2 maí tókum við til í fjárhúsunum og söfnuðum öllu plastinu á kerru og fórum með á gámastöðina.

 


Siggi fékk þessi fallegu lömb undan Skvettu og Kakó þann 2 maí.

 


Botna hans Sigga með lömb undan Gumma Óla okkar.

 


Zeta með mjög þykka gimbur undan Kút hans Sigga sem er lambhrútur undan Kát sæðingarstöðvarhrút.

Hún kom með eitt dautt fóstur annars átti hún að vera með tvö.


Ösp með sæðislömb undan Hróð og við erum mjög spennt yfir golsuflekkóttu gimbrinni því 

þetta er í fyrsta sinn sem við fáum þennan lit á kollótt og Ösp er mjög góð kind hún var meðal annars

móðir Steinda sem fór á sæðingarstöðina frá okkur.

 


Katla kom með pínulítið kríli á móti þessu svakalega stóra og þau eru undan Völustein sæðingarhrút.

við þurftum að taka þetta litla heim og ná hita og kraft í það og Siggi gaf því brodd með magaslöngu .

 


Hér tókum við það heim og fórum svo með það þegar það var farið að standa og jarma.

 


Þetta er hún Mýra frá Emblu sem hún fékk frá Friðgeiri á Knörr í haust og hún var fengin þegar hún 

kom í fjárhúsin okkar svo hún er með gráan hrút sem dafnar vel og hún mjólkar mjög vel en 

við vitum þó ekki hver faðir lambsins er.

 


Við tökum sýni úr öllum sem óljóst hvað þau verða með og það voru 132 sýni og við höfum alltaf gert það síðan

þetta hófst og við vitum hvað allar kindurnar okkar eru með og eigum von á mikið af sæðingum sem

blandast svo smátt og smátt inn í stofninn okkar en við höldum okkar bestu hrútum þó svo að þeir séu með gulan fána

því við viljum ekki tapa gerðinni og mikilli vinnu af góðri ræktun og til að fá gott verður að blanda þessu saman til að fá sem

bestan einstakling og það hefur gengið mjög vel.

 


Örk fór út með þrílembingana sína 9 maí og þeir stækka vel hjá henni þeir eru undan Prímus .

Prímus var keyptur af Hjarðarfelli og er undan Val 20-723 . Hann gefur góða gerð og mjólkurmiklar ær.

Hann er orðinn fullnotaður hjá okkur svo hann fór á Álftavatn eftir að við vorum búnað nota hann á tvær ær hjá okkur.


Hér er Mandla gemlingur með gimbrarnar sínar undan Prímus.

 


Skvetta hans Sigga með golsótta gimbur og golsuflekkóttan hrút undan Kakó frá Sigga.

 


Falleg golsuflekkótt gimbur undan Hróð sæðingarstöðvarhrút.

 


Nútella gemlingur með hrútinn sinn undan Verk sæðingarstöðvarhrút og það var annar á móti alveg eins en hann

var vaninn undir kind hjá Sigga.

 


Marri Már frændi og Ronja Rós að leika sér í fjárhúsunum.

 


Sól með svarta gimbur undan Verk sæðingarstöðvarhrút og svo var vanið undir hana undan Dögun þrilembing.

Sól var með eitt úldið fóstur.

 

Leikskólinn Krilakot sem ég er að vinna hjá kom í heimsókn til okkar í fjárhúsin hjá Sigga og

það var mjög gaman að fá þau þetta er orðin árleg heimsókn hjá þeim að koma til okkar og kikja á lömbin.

 


Tása gemlingur með lömbin sín þau eru bæði svona golsubíldótt og eru undan Verk sæðingarstöðvarhrút.

 


Þyrnirós með lömbin sín undan Gumma Óla.

 


Benóný Ísak 13 maí aðeins farið að grænka túnin í Tungu en orðið vel grænt inn í Tröð .

 


Freyja Naómí að klappa Klóí gemling.

 


Þrílembings hrútur undan Rúsínu og Magna sæðingarstöðvarhrút þau eru mjög þykk og falleg 

ég er spennt að sjá hvernig þau koma út í haust.

 


Þetta hefur verið meira notað núna en venjulega hjá okkur en þetta er magaslanga og sprauta

sem er þrætt ofan í maga og gefið brodd til að koma smá næringu í orkulítil lömb. Það var ein sem

bar þremur hjá okkur sem var með extra lítil lömb og það þurfti að gefa tveim af þeim magaslöngu.

Eitt var alveg kramlamb svo það lifði bara í sólarhring en hin tvö lifðu og eitt var lengi bara upp í fjárhúsum

og látið sjúga því mamman vildi ekki taka við því en sem betur fer kom svo loks að við gátum vanið það undir aðra kind

sem var einlembd og bar svakalegum kálf sem kom á afturfótunum og lifði ekki fæðinguna af svo hún fékk að fóstra 

tvö lömb í staðinn. Annars hefur sauðburðurinn gengið nokkuð vel og fór rólega af stað og það var engin svona gusustór dagur

heldur bara nokkrar á dag og yfirleitt bara með stuttu millibili en þær vorur mikið að bera á næturnar svo það voru 

nokkrar andvökunætur á mesta annatímanum. Við vorum frekar óheppin með þrílemburnar það var mikið um að þriðja væri

dautt fóstu eða dáið fyrir nokkrum dögum og eins með fjórlembuna sem Kiddi á hana Draumadís hún kom með þrjú fín lömb

en fyrsta var á afturfótunum og það kom dautt og var svona bleikt á litinn það hefur drepist fyrir einhverjum dögum fyrir burð en

það var þó lán í óláni því það er ágætt að hún sér bara með þrjú og þá þarf ekki að venja undan henni svo maður verður líka

að líta á þetta jákvæðum augum þó svo að það sé alltaf leiðinlegt að missa.

 


Það gengur ýmislegt á þegar mikið er að gera í sauðburði og eldri systkynin eru að passa Ronju þá þarf hún að

hafa ofan af fyrir sér og leika með allt út um allt mömmunni til mikilla gleði þegar hún kemur heim ha ha

þá er ekki hægt að hvíla sig því þá þarf að taka til og brjóta saman þvott og allt sem heimilinu tengist. 

Svo þetta getur verið krefjandi tími að vera með stóra fjölskyldu og sauðburð á sama tíma en þetta er allt

saman svo skemmtilegur tími og nóg tími til að hvíla sig í júní eftir törnina.

 


Hér er hrútur undan Sóma okkar en hann er undan Snúru Ramma dóttur og Brimil sæðingarstöðarhrút og hann

er að koma með svakalega þykk og falleg lömb en aðeins stór horn. Þau eru áberandi falleg lömbin hans og hann

er með ARR svo það verður mjög spennandi að sjá lömbin hans í haust.

 


Við sótthreinsum allar stíur með staldren áður en þær fara í þær og 

það er algert undra efni gerir allt svo hreint og þæginlegra að þrífa stíurnar eftir það.

 


Hér eru þrílembingarnir undan Rúsínu og Magna sæðingarstöðvarhrút og þau eru mjög þéttvaxin og falleg.

 


Hér er Freyja að gefa pela einni gimbur undan Kommu sem við þurftum að taka inn því við tókum

eftir því að hún var komin með júgurbólgu og við tókum hana inn til að meðhöndla hana með bólgueyðandi og pensilini

svo fékk hún að fara út og nær að mjólka þessu lambi því hitt dó í fæðingu var svo stórt og kom á afturfótunum og

ég tók það heim þegar hún bar og reyndi að koma því til en það náði sér ekki. Burðurinn í vor var svakalega stór og vitum við 

ekki alveg hvað hefur valdið því við gefum alltaf jafnt og þétt en það kom svo betra hey inn á sauðburðinum og spurning hvort

það hafi farið svona skart í lömbin en svo voru aðrar ær sem voru frekar feitar og þá fór meira í þær og þær komu með minni lömb.

 


Hér er Perla með gimbrar undan Dallas hans Óla Ólafsvík og þær verða vonandi með arr.

Perla er Ask dóttir svo ég er mjög spennt fyrir þessum gimbrum.

 


Huppa með lömbin sín undan Steina okkar hann er arfhreinn H154.

 


Ronja Rós dugleg að hjálpa til  að gefa.

 


Benóný Ísak er búnað vera duglegur að koma og hjálpa til og vatna fyrir mig.

 


Allir að hjálpa til hér er Emil og Ronja að gefa.

 


Mamma fagnaði 76 ára afmælinu sínu þann 18 maí og við fórum með hana á kaffihús

í þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi og það var mjög gott og fallegt veður til að sitja úti og fá kaffi og köku.

Ég , Maja og Ronja fórum með henni.

 


Embla datt í lukkupottinn og fékk móflekkótta gimbur undan Margréti og hvítan hrút undan Gumma Óla.

 


Huppa að fara út með hrútana sína þeir eru svo fallegir á litinn.

 


Hér eru fallegir litir undan Agúrku og Steina.

 


Þessi gimbur er undan Blesu og Dorra frá okkur hann er með gulan fána og C151.

 


Margir litir hér þessi er undan Hörpu og Steina.

 


Ísey gemlingur kom óvænt með mórauða gimbur undan Sóma okkar sem er undan Brimil sæðingarstöðvarhrút og Snúru

og ég var svo glöð því þá getur hann gefið mórautt það var nefnilega alveg möguleiki að hann gerði það því móðir Snúru var 

Mógolsótt og það sem betra er að hún gæti mögulega fengið ARR.

 


Hún var algert kraftaverk þessi gimbur undan Ísey því hún var alger bjáni og komst ekki á spena og 

tók ekki spenann og Siggi hélt hún væri að drepast var búnað vera gefa henni pela og allsskonar bætiefni

en hún var ekki að ná að sjúga en svo prófaði hann að gefa henni vel af brodd í magaslöngu og þá allt í einu

hrökk hún í gang og fór sjálf á spena og er alveg eldspræk hún er í eigu Kidda en Kiddi kom svo Freyju minni

á óvart í fermingunni hennar og skrifaði neðst í kortið hjá henni að hún mætti eiga mórauðu gimbrina og hún

var svo ánægð með hana og sérstaklega því hún lifði af því það var nú ekki mikið bjartsýnni yfir því að hún myndi

hafa það af. Þetta verður pottþétt kynbóta gimbur sem skilar sér í haust.

 


Rósa komin með hrútana sína út undan Gumma Óla.

 

Strönd með lömbin sín undan Dorra.

 


Míla gemlingur var með tvílembd en það uppgötvaðist að hún var komin með júgurbólgu svo við vöndum annað undna

henni og meðhöndluðum hana með pensilini og svo fékk hún að fara út með þennan hrút hann er undan Kakó hans Sigga.

 


Brownie hennar Freyju bar hrút undan Tarzan og fékk svo hrút undan Mílu líka og hún 

mjólkar þeim flott. Brownie kom frá Friðgeiri og hann gaf Freyju hana í vetur.

 


Rakst á fallegu gimbrina hennar Ösp og Hróðs hún stækkar vel.

 


Esja 24-024 með fallegu lömbin sín undan Bryta sæðingarstöðvarhrút.

 


Siggi varð fyrir því óláni í enda sauðburðar að missa gemling sem var

bara bráðkvaddur út í túni og því er hann með tvo heimalinga og þeir eru

svo skemmtilegir hér eru þeir að elta húsbóndann sinn og fylgja honum í hverju skrefi.

Seinasta kindin bar hjá okkur 3 júni það var hún Snúlla.

 

Niðurstaðan eftir sauðburð hljómar svona hjá okkur hvað við fáum mörg lömb undan hverjum hrút.

Það eru alls 152 lömb í heildina.

 

Heimahrútar

 

Prímus eru 5 lömb

Tarzan eru 6 

Koggi eru 3 

Álfur eru 5 

Kakó eru 2 

Gummi Óla eru 9 

Sómi eru 21 

X eru 10

Steini eru 16

Dorri eru 13

Kútur eru 5

Dallas frá Óla Ólafsvík eru 11 lömb

 

Sæðingarstöðvarhrútar 

 

Fursti 2 lömb

Faldur 3 

Hlekkur 2

Hrókur 6

Bryti 6

Magni 3

Völusteinn 4

Fáni 2

Hróður 3

Verkur 5

Flói 3

 

Flettingar í dag: 257
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 411
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 3448572
Samtals gestir: 93165
Tölur uppfærðar: 13.6.2026 07:11:03

Eldra efni

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar