Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

18.06.2026 22:59

Sjómannadagur og fleira


Ronja Rós búnað útskrifast úr 1 bekk.

 


Hún stóð sig svo vel í skólanum að við gáfum henni nýtt hjól í sumargjöf .

 


Ein sjóara mynd í tilefni sjómannadagsins hjá Emil.

 


Við hjónin á leiðinni á sjómannahófið og erum í fyrir partý heima hjá Lilju og Gumma.

 


Fórum og settum blá blóm og fána hjá pabba Emils í tilefni sjómannadagsins.

 


Við skelltum okkur á rúntinn og fórum að Hellnum.

 


Svo fallegt.

 


Enduðum svo út á Arnarstapa þar er líka alltaf svo fallegt.

 


Malla kisan okkar eignaðist sínu fyrstu kettlinga þann 1 júní.

Þeir eru þrír og allt læður.


Ég átti afmæli núna þann 17 júní þjóðhátíðardaginn sjálfan og fékk þessa 

skemmtilegu kveðju frá Gullu svilkonu minni sem hún bjó til með gervigreind alger snilld

svo skemmtilegt og gaman að sjá hvað hægt er að búa til.

 


Við fórum í 2 ára afmæli hjá Marra Má þann 13 júní og enduðum svo

daginn með þvi að fara með honum og Magga bróðir í sund og hér eru Marri

og Ronja að leiðast inn í Laugardalslaug og Marri alveg elskar Ronju frænku sína og vill

gera allt eins og hún og lítur svo upp til hennar.

 


Hér er svakalega fallegt veður í sveitinni og vel heitt við rákum kindurnar sem

voru komnar milli Hrísa og Brimisvalla til baka inn í Kötluholt til að ná þeim innar og frá veginum.

 

 

 

Flettingar í dag: 247
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 474
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 3455122
Samtals gestir: 93263
Tölur uppfærðar: 21.6.2026 07:54:24

Eldra efni

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar