Jæja það er aldeilis kominn tími til að fara blogga. Við fórum í viðtal hjá Bændablaðinu áður en við fórum suður til að fara
í sólarlandaferð til Salou og það var mikil heiður að fá svona flott viðtal og mjög fallegar myndir sem voru teknar sérstaklega sem
var á forsíðu blaðsins með stelpurnar okkar með kindina Hildi sem við getum alltaf labbað að úti og hún kemur og vill fá klapp og klór.
 |
|
Hér er mynd sem Ástvaldur Lárusson blaðamaður og ljósmyndari tók af stelpunum og sendi mér hún er alveg glæsileg hjá honum.
|
Við fórum svo til Rvk sama dag um kvöldið eftir viðtalið. Við vorum svo 17 júní með Magga bróðir Rut og Marra Má og kíktum í miðbæ
Garðarbæjar á litla hátíð sem var þar svo fór Ronja með Magga og Rut heim og borðaði með þeim og við kíktum út að borða í tilefni
þess að ég átti afmæli 17 júní. Daginn eftir fóru stelpurnar í tannréttingar tíma og svo gistum við aðra nótt og flugum svo út um morguninn
til Salou þann 19 júní.
 |
|
Hér er Ronja spennt í flugvélinni.
 |
|
Hér erum við fyrsta daginn á hótelinu við vorum á Hotel Best Cap Salou og það tók okkur um
2 klukkutíma að keyra þangað með rútu frá Barcelona . Við lentum í smá veseni að finna rútuna á flugvellinum
því ég vissi ekki af smáaletrinu frá Vita um að við áttum að fara á einhvern ákveðinn stað til að finna rútuna og við
vorum búnað leita út um allt og engin vissi neitt um neina rútu og það voru fleiri íslendingar sem voru í sama veseni
svo eftir að við vorum öll orðin lömuð af hita og með allar töskurnar og allir orðnir frekar pirraðir að finna enga
rútu endaði ég með að hringja í vita ferðaskrifstofuna og þá loksins kom þetta allt í ljós og við þurftum að fara
aftur inn í flugstöðina og hitta á einhvern mann þar og fá leiðbeiningar um að finna rútuna og þá vorum við
búnað missa af fyrri rútunni svo við vorum búnað lengja tímann til að komast um klukkutíma en það voru allir
fegnir þegar við loksins komumst í rétta rútu og ferðin gat haldið áfram á hótelið.
 |
|
Ströndin var beint fyrir neðan hótelið og var alveg æðisleg svona lítil krúttleg vík með fullt af fiskum sem
voru syndandi í kringum mann .
 |
|
Við keyptum vindsæng fyrir stelpurnar og þær voru með hana niður á strönd í sjónum.
 |
|
Það var spilasalur niðri á hótelinu og var mjög vinsælt hjá Ronju og Benóný að fara í hann en það
kostaði 1 evru að spila og 2 evrur til að fara í billjard.
 |
|
Þeir sem okkur þekkja vita að Benóný Ísak sonur okkar er með dæmigerða einhverfu og ADHD
og hann er einstaklega einhæfur á fæðutegundir og það var tekinn heil ferðataska út með næringu
Lu súkkulaði kexi frá frón og salt stangir svo elskar hann ss pylsubrauð með sinnepi og við náðum
að kaupa það í fríhöfninni heima á Íslandi áður en við fórum út og það reddaði honum alveg úti .
 |
|
Það reddaði honum alveg að honum fannst pönnukökurnar góðar sem voru
á hótelinu í morgunmat svo hann gat borðað nóg af þeim á hverjum morgni.
 |
|
Hér erum við fyrstu dagana í sundlauginni.
 |
|
Hér er sundlaugagarðurinn fyrir neðan svalirnar okkar svo er annar garður fyrir ofan hótelið
með rennibrautum.
 |
|
Ronja Rós fyrir utan hótelið .
 |
|
Hér erum við að fara í tívolí garðinn PortAventura sem Benóný
er svakalega spenntur að fara loksins í hann.
 |
|
Við fórum í tæki með Ronju Rós og stelpurnar og Benóný þræddu öll stóru tækin og
fengu fast pass svo þau þyrftu ekki að biða í röð. Það var mjög heitt í garðinum og við
urðum að vera dugleg að drekka vatn og fara í skugga af og til.
 |
|
Hér er svakalegur rússibani fyrir aftan okkur og krakkarnir fóru í þá alla.
 |
|
Hér eru stelpurnar í bát sem fór á fleygiferð niður mjög skemmtilegur við fórum líka í
hann með Ronju og svo fóru þær með Ronju og við vorum uppi að sprauta vatni á þau mjög gaman.
 |
|
Hér erum við í vatnastríði á svona bát að skjóta vatni á aðra báta mjög skemmtilegt.
 |
|
Hér erum við komin í Ferrariworld og Benóný var ekki alveg að treysta sér í stóra
rússibanann en þegar stelpurnar vildu fara skelltu þau sér öll í hann.
 |
|
Ég skil hann mjög vel þetta er rússibaninn sem þið sjáið hér ekkert smá hár
og fer svakalega hratt ég færi ekki í hann þó mér væri borgað fyrir það he he.
 |
|
Ronja Rós að lita á sólbekknum í garðinum. Garðurinn opnaði kl 10 á morgnanna mér fannst
það æði að geta farið bara róleg í morgunmat og svo labbað í garðinn og tekið bekki og það var
allt svo rólegt að við lentum aldrei í því að fá ekki bekki.
 |
|
Við vorum alltaf með bekki hér þetta eru tásurnar á stelpunum í sólbaði og svo voru svalirnar okkar
hliðina á pálmatrénu beint fyrir ofan. Það var svo krakkaklúbbur en Ronja vildi ekki prófa hann það voru
engir aðrir Íslendingar sem við sáum á þessu á hóteli eða urðum var við nema fyrsta daginn var einhver ein kona og barn
en annars sáum við aldrei neinn.
 |
|
Hér tókum við leigubíl í miðbæ Salou og það var miklu meira líf þar mikið af fólki
og veitingarstöðum og gaman að labba.
 |
|
Hér erum við í miðbænum við ströndina.
 |
|
Á veitingarstað í miðbænum.
 |
|
Hér er hluti af rennibrautunum á hótelinu okkar.
 |
|
Þetta er svo barnasvæðið með fullt af litlum rennibrautum.
 |
|
Hér sést yfir svæðið með rennibrautunum.
 |
|
Ronja við rennibrautirnar á efra svæðinu sem er fyrir yngri börn.
 |
|
Við fórum í minigolf.
 |
|
Hér er vinnings röðunin í minigolfinu.
 |
|
Ronja fór í svona zip line.
 |
|
Benóný Ísak.
 |
|
Emil og Ronja.
 |
|
Við áttum 11 ára Brúðkaupsafmæli 27 júní.
 |
|
Við Ronja fórum oft niður á strönd það var svo stutt niður á strönd bara rétt fyrir neðan
hótelið nokkur skref.
 |
|
Þetta er ströndin bara svona lítil og krúttleg vík fyrir neðan hótelið.
 |
|
Það voru svo bátar og snekkjur fyrir utan og sjórinn var mjög heitur og kósý.
 |
|
Við keyptum þennan kút og Ronju fannst mjög gaman að vera í honum í sjónum.
 |
|
Ronja í fallega kjólnum sínum sem við keyptum í Englabörnum áður en við fórum út.
 |
|
Með sumardrykk.
 |
|
Ronja fékk að fara í svona hoppi teyju sem var í miðbænum.
 |
|
Töffararnir Emil og Benóný.
 |
|
Stelpurnar fóru allar í neglur.
 |
|
Það var inni sundlaug líka á hótelinu sem var upphituð.
 |
|
Emil og Ronja fundu þetta fína dress .
 |
|
Við að skála saman seinasta kvöldið.
 |
|
Hér er herbergið okkar það var langt og mjög stórt og svo svalir og klósett og langur
gangur. Við vorum með Benóný og Ronju og svo voru stelpurnar þrjár saman í öðru herbergi.
Embla,Freyja og Erika vinkona Emblu hún kom með okkur út. Þeim fannst þetta æðislegur staður
og langar alveg að fara aftur þangað. Hótelið var mjög nice og gott starfsfólk og nóg um að vera
alltaf skemmtidagskrá á kvöldin og mikil stemming alveg til 12 á kvöldin. Við vorum mjög heilluð
af Salou og fannst mjög fínn hitinn og maður var ekki svona þvalur á kvöldin þó svo að það væri
stuttbuxna veður á kvöldin líka. Það fór mest í 35 stiga hita og þá var gola með svo við sluppum
bara vel því það var hitabylgja á mörgum stöðum í kringum okkur á Spáni. Það var mjög fallegt í
Salou mikið af gróðri og fínn matur líka. Við vorum í morgunmat og hann var mjög góður á hótelinu.
Við vorum pínu út út með því að velja þetta hótel því við þurftum að taka leigubíl til að komast í
miðbæinn en það var mjög kósý og allt til alls á staðnum en ég hugsa ef við færum aftur að
það væri gaman að prófa annað hótel og vera þá aðeins nær miðbænum því það er mjög
gaman að labba þar á kvöldin.
Við fórum í tvo vatnsleikjagarða Aquapolis og svo hinn sem er hliðina
á PortAventura í ferðinni og svo tvisvar í
verslunarmiðstöð í Tarragona og þar fengu stelpurnar sér neglur.
 |
|
Nú er komið að heimferð eftir alveg frábæra ferð.
 |
Á flugvellinum á leiðinni heim. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
| |
|