23.07.2026 21:11
Freyja og Hildur eiga alveg sérstakt samaband og hún er svo yndisleg kind sama kind og var með stelpunum í Bændablaðinu.
Við erum búnað fá út úr flestum sýnum úr lömbunum og hljóða þau svona:
32 eru með R 171 og gulan fána
3 eru með R 171 og C 151
5 eru með R 171 og H 154
7 eru með C151 og gulan fána
35 eru með H154 og gulan fána
1 er arfhreint H154
Þetta er hún Snara með gimbrar undan Steina.
Þessi gráa gimbur er orðin fræg á Tiktok það var tekið myndband af henni af einhverjum erlendum frægum tiktokara
og hún var með 981 þúsund likes. Stelpurnar sáu það á Tiktok og sáu að það var tekið í Búlandshöfðanum og það var gimbrin okkar.
Það var verið að líkja henni við Sheep detective kindurnar í bíómyndinni í ummælum.
Rúmba með hrút og gimbur undan Goða sæðingarstöðvarhrút.
Hvíti hrúturinn er með R 171 og gulan
Gimbrin er bara með gulan sem sagt hlutlaus.
Branda með hrút undan Steina hann er með H 154 og gulan fána.
Guðmunda með hrútana sína undan Tarsan.
Hvíti er með H154 en sá flekkótti er með gulan.
Hér sést sá hvíti betur hann er mjög fallegur.
Þetta er Dögg hún er svo svakalega blíð og ljúf kind hún er undan Kaldnasa og Dúfu.
Hér eru hrútarnir hennar annar er með R 171 og gulan fána og hinn er með H 154 og R 171.
Þeir eru undan Völustein sæðingarstöðvarhrút.
Esja með hrút og gimbur undan Bryta sæðingarstöðvarhrút og þau eru bæði með
H 154 og R 171 .
Botnía hans Sigga í Tungu með svakalega falleg lömb undan Grána hans.
Svakalega þykkur og fallegur grábotnóttur hrútur hjá Botníu.
Byrjuðum að slá í Fögruhlíð 16 júlí þá var loksins útlit fyrir tvo þurra daga annars er
búið að vera svakalega leiðinlegt veður rok og rigning í langan tíma .
Það var svo rúllað næsta kvöld 17 júlí. Hér er Emil að rúlla og Bói að raka saman.
Við fjárfestum í nýjum plastara eða gömul réttara sagt og hann er með 70 millimetra
plast svo við erum aðeins fljótari að plasta og hér er Siggi á plastaranum og hann virkar mjög vel.
Hér er traktorinn hans Sigga með nýju heygreipina sem
við vorum að kaupa af Kraftvélum svo núna þarf ekki að vera
rúnta alltaf fram til baka á traktornum því núna er greip bæði
á bláa traktornum og þessum svo það spara vinnuna að geta verið
með á sitthvorum staðnum þegar það er verið að keyra rúllurnar upp á fjárhúsum.
Hér er svo gamli góði vörubílinn sem stendur alltaf fyrir sínu og kemur rúllunum heim.
Emil var búnað vera svo lengi að ferja rúllurnar að Jói og Hilmar buðust til að koma og
hjálpa til svo þetta tæki styttri tíma .
Hér fara þeir af stað upp í Tungu.
Ronja Rós dugleg að hjálpa mér að loka endunum og merkja rúllurnar.
Það voru 1 rúlla af Gunna Óla bústað
Það voru 9 af Fögruhlíð 1 sem er við afleggjarann
Það voru 61 af stóra túninu og það var smá hluti af því frekar blautt í restina.
Alls 71 rúlla af Fögruhlíð.
Flettingar í dag: 434
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 331
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 3486156
Samtals gestir: 93698
Tölur uppfærðar: 28.7.2026 05:32:04