|
Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|||||||||||||||||||
24.07.2026 10:31Heyskapur byrjar aftur 23 júlíJæja þá er loksins aftur útlit fyrir smá þurrk og það var stokkið á það og farið að slá í Fögruhlíð og Siggi að slá hjá sér inn í Tungu. Emil og Kristinn slóu í Fögruhlíð og það var nú eitthvað bras til að byrja með eins og getur oft gerst þegar maður er með gömul tæki. Traktorinn hans Kidda var eitthvað stríða honum og það brotnaði hosuklemma og það þurfti að panta nýja en hann gat þá verið á rauða traktornum í staðinn svo var blái traktorinn hjá Emil líka að stríða þeim og það slitnaði glussaslanga á honum svo Bói tók hana fyrir Emil og lét laga hana í vélsmiðjunni en svo gekk þetta vel eftir það. Þeir kláruðu að slá og svo fór Bói og Emil í að laga veginn niður á túnið í Kötluholti . Maja talaði við Erin og Richard sem eiga Kötluholt og það var allt í góðu að við myndum fá að taka rauðskriðmöl og fylla upp í veginn svo það væri þæginlegra að koma tækjunum niður á tún og þá sérstaklega þegar við þurfum að keyra rúllurnar af túninu og inn í Tungu þegar búið er að heyja. Kiddi rakaði með túninu á meðan og það sem var búið að fara aðeins út í skurðina sem var búið að slá. Ætlunin er svo að snúa heyjinu í dag og vonandi er þá hægt að fara binda eitthvað seinnipartinn í dag.
Flettingar í dag: 434 Gestir í dag: 4 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 1 Samtals flettingar: 3486156 Samtals gestir: 93698 Tölur uppfærðar: 28.7.2026 05:32:04 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
||||||||||||||||||
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is