Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
Færslur: 2020 Nóvember27.11.2020 23:29Ronja Rós 14 mánaða og afmæli pabba.Ronja Rós orkuboltinn og grallarinn okkar er 14 mánaða í dag. Hún bræðir alla á heimilinu með prakkaraskap og gleði. Hún er farin að vera svo skýr kallar á Benóný með krúttlegu röddinni sinni sem var fyrst bara B en segir núna Benóný og svo segir hún Embla og Freyja og kallar í þær þegar þær koma heim úr skólanum. Amma , mamma og babbi segir hún hátt og skýrt og Obbosí abar hún eftir mér því ég segi það svo oft ef hún missir eitthvað eða dettur og það er ofurkrúttlegt þegar hún segir það svo skýrt svo segir hún takk ef maður réttir henni eitthvað og er mjög stríðinn og þykist ætla rétta manni eitthvað en tekur það svo til baka og hleypur í burtu. Hún elskar fjarstýringar,spjaldtölvu og síma sem sagt allt sem hún má ekki vera með alveg yndisleg. Sjúk i kindur og kisu og kallar Donna á eftir Donnu og er mjög vinsæl hjá Donnu þegar það er matartími þá veit Donna hundurinn okkar nákvæmlega hvar hún á vera fyrir neðan stólinn hjá Ronju he he. Hér er yndið okkar að stríða mér í gardínunum. Gúgg gú segir hún og felur sig bak við gardínurnar. Svo gaman með systkinum sínum. Elskar að fá að vera með Benóný bróðir sem er ekki alltaf tilbúinn að fá hana í herbergið sitt og hún gerir í því að stríða honum og hleypur inn í herbergi til hans. Svo vinsælt að tæta í skúffunum hjá mömmu og tala heilmikið hrognamál og ræðu sem væri gaman að skilja. Gera a við kisu Myrru. Setti smá tíkó í tilefni dagsins. Gaman að kíkja út um gluggan og skoða út. Hér er hún að stríða ömmu Huldu að setja á sig gleraugu voða sniðug. Amma Hulda var svo yndisleg að passa hana fyrir mig í allann dag meðan ég og Emil fórum inn í Stykkishólm því ég átti tíma í litun. Amma Freyja sótti svo hina krakkana í skólann fyrir okkur og þau fóru með henni í sveitina og fengu uppáhalds grjónagrautinn hjá henni. Svo yndislegt að eiga svona frábærar ömmur sem eru alltaf tilbúnar að fá börnin sin. Það er svo nýjasta hjá henni að ef hún fær ekki það sem hún vill leggst hún í gólfið á grúfu og fer að grenja í fýlu svo hún verður skapstór ákveðin dama. Hér er hún alveg í krúttkasti að hlægja hjá ömmu Huldu. Svo hleypur hún alveg í æsingskasti he he. Pabbi minn Leifur Þór Águstsson hefði orðið 77 ára í dag hefði hann verið á lífi. Blessuð sé minning hans, hér erum við saman að labba í Ólafsvík með Benóný þegar hann var lítill og pabbi var á Dvalarheimilinu í Ólafsvík. Þá fór ég oft með Benóný í heimsókn og við fórum svo í göngutúr. 24.11.2020 16:50Tekið af kindunum 22 nóvArnar kom á sunnudaginn og tók af fyrir okkur. Þær alveg léku í höndunum á honum og hann var eldsnöggur að þessu. Hér er Kristinn,Siggi og Jóhanna að fylgjast með Arnari. Jóhanna og Siggi að fara yfir ullina. Benóný vildi fá að ráða hvaða kind væri næst því hann var að róa þær áður en þær færu í klippingu sagði hann. Hér er Freyja á Hröfnu sinni. Embla og Freyja að fylgjast með af mikilum áhuga. Ég var svo með hrygg í hádeginu fyrir þau sem ég eldaði heima og kom svo með inn í Tungu. Svo gekk þetta allt saman mjög vel og allar dömurnar orðnar vel snyrtar og fínar svo núna fer allt að komast í rútínu i fjárhúsunum. Benóný að klappa lömbunum þegar búið var að taka af þeim. Hér eru þær komnar eins og þær eiga að vera lömbin eru inn í horni og veturgömlu á móti og svo eru hinar kindurnar á móti hvor öðrum hérna fyrir framan. Hér eru þær nýrúnar áður en ég setti þær á sinn stað. Hér er Randalín vel doppótt. Brussa svo falleg. Hún er undan Máv og Þotu. Klara hún er undan Snót og Svan. Gyða Sól hún er undan Mjallhvíti og Ask. Fjör hjá krökkunum vinir þeirra Aníta og Þráinn komu með okkur í fjárhúsin. Það var líka kíkt á hænurnar inn í Varmalæk hjá Freyju og Bóa. Ronja Rós grallari er alveg rosaleg hún er alltaf að henda einhverju ofan í klósettið hvenær sem færi gefst og hafa fjarstýringarnar fengið sinn skammt af klósettinu og verið svo þurrkaðar á ofninum. Einn daginn fór Emil á klósettið og var næstum búnað stífla það þá var glas ofan í því og pappír yfir glasinu. Hér er hún í skóm af mér og staulast á þeim þangað til hún dettur. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 21.11.2020 12:40Útivera inn í Mávahlíð 18 nóv og kindurÞað var vel kalt um daginn inn í Mávahlíð það var 5 stiga frost og krakkarnir voru alveg að elska að vera á klakanum. Það er orðið svo dimmt yfir allann daginn. Svo mikið sport þegar klakinn kemur fyrst á veturnar. Hér má sjá snó þvölina yfir Svartbakafellinu. Hér er Embla við Mávahlíðargilið. Benóný með Snæfellsjökulinn í baksýn. Benóný búnað ná klaka. Embla Marína með Donnu. Embla Marína með klaka. Vinsælt að tala saman í rörinu. Embla að öskra til Benónýs. Hér má sjá hvernig Holtstjörnin hefur frosið með gárurnar í tjörninni. Hér sést það einmitt vel hvernig hún hefur frosið. Það var svo komið við og kíkt á hænurnar. Benóny að klappa einni frá Sigga. Embla að reyna temja gimbrarnar með gras í bandi. Hér er hún að reyna fá Snærós til að stökkva upp á sig. Benóný umkringdur spökum kindum. Svo falleg Dísa hans Óttars sem ég fóðra fyrir hann hún er veturgömul og er undan Brussu og Ask. Klara svo falleg hún er undan Svan Máv syni og Snót sem er undan Brimil Borðasyni. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 21.11.2020 09:14Göngutúr með Magga bróðir og hestarnir reknir inn i Fossárdal.Fórum í göngutúr um síðustu helgi upp í Dal hjá gömluréttinni og skógræktinni. Flottir frændur Magnús Már bróðir minn kom i heimsókn og tók með okkur göngutúr. Svo skemmtileg leið og gaman að fara hingað. Ronja Rós var alveg að elska þetta. Freyja Naómí. Það gekk misjafnlega vel að ná mynd af þeim öllum saman he he. Alltaf einhver sem var ekki tilbúinn he he. Maggi með Donnu og Mikka hennar Jóhönnu. Það var ansi kalt en gott veður. Benóný lukkulegur fékk að taka hænu með sér á rúntinn þegar við vorum að reka hestana fyrir Jóhönnu inn í Fossárdal. Það gekk mjög vel að reka þá hér sjást þeir koma inn í Bug. Hér eru krakkarnir með Bóa afa sínum að reka. Alveg að verða komnir og hér sést Jóhanna að standa fyrir á brúnni. Og nú eru þeir að fara inn í hólfið hjá Jóhönnu og verður svo sleppt upp í Fossárdal. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 15.11.2020 21:51Kindunum smalað heim 14 nóvHér sést glitta í kindur sem við höfum grun um að séu ókunnugar. Hér eru Siggi í Tungu og Kristinn bæjarstjóri. Hér er Kristinn að ganga á eftir þeim og er að nálgast Mávahlíð. Hér rennur féið niður og Kristinn fer á eftir þeim niður með Mávahlíðar gilinu. Hér er Ronja Rós með pabba sínum að fylgjast með okkur smala. Hér renna þær yfir brúna yfir Holtsána. Hér má sjá þær koma upp brekkuna í Tungu. Þær voru þægar og góðar og rata leiðina. Það var svo mikil spenna yfir að vita hver ætti þessi kollóttu aðkomu kind og flekkótta lambhrútinn sem virkaði mjög efnilegur. Hér er Ronja Rós komin inn í fjárhús að tala við gimbranar sem ætla alveg að éta hana þær eru svo gæfar og sjúkar í hana. Hér er svo flekkótti hrúturinn sem við vorum mikið búnað vera pæla í og Kristinn reddaði því og hringdi í Helga vin sinn til að spyrja um markið sem var á honum og kom þá í ljós að Bibba í Grundarfirði ætti markið og Helga dóttir hennar ætti hrútinn. Kollóttu kindina átti Gísli á Álftavatni og hafði hún áður komið til okkar sem lamb og var skírð Rúða því hún stökk út um rúðuna á bílnum þegar hún var sótt hingað með móður sinni. Ég fékk þessa mynd hjá Kristinn hann tók hana þegar við vorum komin með hana inn í fjárhúsin í Tungu Bibba og Helga komu svo til okkar að kíkja á hrútinn og náðu Siggi,Emil og Kristinn að tala þær mæðgur til að Siggi fengi að kaupa hrútinn því okkur vantar svo svona ekta flekkóttan hrút og hann er líka bara mjög vel byggður að sjá og þær voru svo góðar að ganga að kaupunum svo þetta er nýjasti ásettnings hrúturinn hjá Sigga, Hér sést betri mynd af honum og gaf Siggi honum nafnið Ingibergur og verður hann svo kallaður Bibbi. Fallega flekkóttur er hann og komumst við svo að þvi hjá Bibbu að faðir hans heitir Gjafar og var fengin hjá Bárði á Hömrum og var með 19 í læri svo það má ætla að hann eigi eftir að gefa okkur vel. Ronja heldur betur köld hleypur bara inn króna og ég þarf að hafa mig alla við að elta hana svo hún fari sér ekki að voða. Falleg kind hún Einstök hún er systir Bolta sem Kristinn á. Hún er veturgömlu og hún kom með lamb núna sem gemlingur í vor og var það hrútur 50 kg á fæti 21,3 í fallþungi og fór í U 2. Svala 18-004 er undan Svönu og Part og hún verður eign Kristins Bæjarstjóra. Randalín er undan Kraft frá okkur og Brælu sem er mamma hans Ask. Hún verður í eigu Kristins Bæjarstjóra líka. Þetta er Höfn veturgömul hún er svo stór og mikil að ég hélt hún hafi verið geld en hún var með lambi og það fór í sláturhús í U 3. Viktoría er veturgömul og er undan Víking og Hexíu. Hún var með svakalega fallega gimbur sem við seldum sem var með 33 ómv 9 framp og 19 læri sú gimbur var undan Vask. Hér eru tvær veturgamlar Embla sú gráa undan Fáfni sæðingarstöðvarhrút og svo Gjöf hennar Emblu sem ég fékk hjá Friðgeiri í fyrra og gaf Emblu hana í jólagjöf. Hér eru þrjár veturgamlar ein frá okkur sú kollótta og er undan Guðna sæðingarstöðvar hrút og svo á Siggi hinar tvær. Ósk sú gráa er tvævettla og er undan Móra sæðingarstöðvarhrút. og svo er Fía Sól hliðina á henni sem Freyja dóttir mín á. Hér er Terta fremst hún er undan Ísak og Hexíu og er tvævettla. Þessi er veturgömul og kom núna sem gemlingur með 88 stiga lambhrút sem var seldur. Hann var með 19 læri og 32 ómv. Björt fengum við hjá Kristjáni á Fáskrúðabakka og Kaldnasi okkar er faðir lambsins sem hún kom með núna. Þær hafa það gott úti það er búið að vera svo gott veður við hleypum þeim út á daginn og inn um kvöldið þangað til að það verður tekið af þeim. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér í albúmi. 12.11.2020 22:08Ronja Rós 11 nóvLitla skruddan okkar er heldur betur farin að skanna heimilið og hér er hún að príla. Upp skal ég komast. Alveg að hafast og Myrra fylgist spennt með. Myrra í sjónlínu hjá henni að fara vera í hættu á að vera togað í skottið á henni. Hún slapp þó naumlega en er hálf hræðsluleg á svipinn he he. Markmiðinu náð hún er komin upp á hundinn og við tekur mikil ræða á hrognamáli sem gaman væri að skilja he he en kemur þó líka kis kis og hvað er þetta í leiðinni sem er mjög mikið hjá henni að spyrja um allt hvað er þetta copy eftir mömmu sinni. Það er svo nýjast hjá henni að hlusta á Adam átti syni 7 og dansa með laginu og gera klappa og stappa og snúa í hring alveg yndislega krúttlegt hjá henni. Elskar að fara í sveitina til ömmu Freyju og afa Bóa og hitta hænurnar. Hér er Benóný með hanann sinn Belg og Embla með hænuna Doppu. Embla með Doppu. Benóný og Belgur. Ronja Rós og Belgur hann er alveg magnaður hani situr bara alveg kyrr og leyfir henni að klappa á sig. Hér er hún að gera a við hann og leggur hausinn ofan á hann. Benóný hana hvíslari og haninn liggur bara kyrr. Svo miklir félagar. Belgur alveg órúlegur hani og hvað hann er góður og þolinmóður gagnvart Benóný. Eins Ronju hún hljóp inn í stofu og kom svo aftur og hann var alveg kyrr á meðan. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 12.11.2020 21:35Gefið ormalyf og vigtað gimbrarnar 9 nóvÞað var bræla hjá Emil á mánudaginn og við hjálpuðumst að við að gefa ormalyf og vigta gimbrarnar. Siggi var búnað vigta hjá sér svo mig langaði að sjá hvort okkar væru búnað bæta eitthvað við sig. Það var misjafnt 3 voru búnað bæta sig um 1 kg. 4 voru búnað bæta við sig heil 7 kg og meira segja ein alveg 9 kg. Þessi Blesa hennar Freyju var búnað bæta mest við sig alveg 9 kg. Léttasta er 40 kg og það er Dúlla undan Hriflu og þyngsta er 57 kg og það er Hrafney sem er undan Hröfnu og Móra sæðingarstöðvarhrút. Hér sést Hrafney sú svarta og svo Melkorka 50 kg og svo Snærós 51 kg. Skotta sem ég fékk hjá Bárði og Dóru er búnað þyngjast um 4 kg og er 49 kg. Þór er orðinn gæfur hann er undan Ask. Óðinn er ekki orðinn gæfur það þarf aðeins að vinna meira í honum til þess að hann verði gæfur hann er undan Vask. Hér eru Sprelli Gosa sonur frá Sigga og svo Kolur Zesar sonur frá okkur. Bolti Vikings sonur frá Kristinn Bæjarstjóra. Hér er fallegur hrútur undan Klöru og Ask sem er seldur og fer á Nýpukot. Þessi er líka seldur hann er undan Bjart frá okkur sem við fengum á Fáskrúðarbakka. Svo falleg hún Kleópatra hún er undan Brussu. Hún var búnað þyngjast um 7 kg og er 56 kg. Þessi er seldur og ég kalla hann Dúbba hann er undan Dúfu hennar Jóhönnu og er mjög spakur en aðeins varasamur ef maður hættir að klappa honum þá stangar hann í mann. Hér er Ronja Rós að klappa þeim í jötunni. Hér er litla bónda prinsessan sem er farin að vakna þegar ég er að gefa og þá þarf ég að taka hana inn með mér í fjárhúsin og stundum er hún svo lítil í sér þegar hún er fyrst að vakna að ég þarf að halda á henni og heyjinu til að gefa he he. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 08.11.2020 11:37Ásettnings gimbrar hjá Guðmundi Ólafs ÓlafsvíkÞessi er undan Steinunni og Mjölni sæðingarstöðvarhrút. 43 kg 29 ómv 1,9 ómf 4 lag 108 fótl 8,5 framp 17,5 læri 7,5 ull 8,5 samræmi Þessi er á móti þessari fyrir ofan. 46 kg 34 ómv 3,6 ómf 4,5 lag 107 fótl 9 framp 18 læri 8 ull 8,5 samræmi. Þessi er undan Líf og Mjölni. 46 kg 31 ómv 2,8 ómf 4 lag 109 fótl 9 framp 18 læri 8 ull 8,5 samræmi. Þessi er undan Dísu og Vask. 52 kg 32 ómv 3,2 ómf 4,5 lag 112 fótl 9 framp 18 læri 8 ull 8 samræmi. Þessi er undan Blesu held ég og Vask. 50 kg 39 ómv 3,8 ómf 5 lag 109 fótl 9,5 framp 19 læri 8 ull 9 samræmi. Glæsilegar gimbrar hjá honum. Hér eru gimbrarnar. Hér eru svo veturgömlu mjög fallegar. Hér eru svo ærnar ný klipptar og flottar. Hér sjást hérna fremst sú svarta,botnótta og grá botnótta eru frá mér og Gummi fékk þær það eru Zelda,Bræla og Þoka. Þoku fékk ég hjá Gumma sem lamb og hún er alveg gríðalega falleg kind. Það eru svo æðisleg fjárhúsin hjá Gumma svo svakalega snyrtileg og flott. Það eru svo fleiri myndir af heimsókninni hér inn í albúmi. 07.11.2020 16:04Lömbin bólusettTryggvi dýralæknir kom til okkar að bólusetja um daginn ásettningin hjá okkur. Annars er allt bara rólegt hjá okkur það á enn eftir að sækja nokkur sölu lömb og kindurnar eru enn úti nema nokkrar sem eru hérna heima við og höfum við haft þær inni það er búið að vera svo leiðinda veður í gær og fyrradag. Þaðeru alltaf að bætast við fleiri gimbrar sem eru að verða gæfar og þær eru alveg yndislegar. Flestir hrútarnir sem búið er að selja eru líka gæfir. Hér er hluti af gimbrunum. Embla Marína ánægð að fá að koma og gefa. Freyja Naómí að gefa. Benóný Ísak búnað koma sér fyrir í sófanum. Hér er hann Óðinn undan Vask og Bombu það verður spennandi að nota hann. Hér er Óðinn og svo hrútur undan Hriflu og Mosa þrílembingur og svo Þór sem við eigum. Óðinn stór og langur hrútur ásamt fleiri hrútum sem á eftir að sækja. Svo falleg undan Kviku og Vask. Ronja Rós að klappa Kaldnasa. Það eru fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. Við fórum svo rúnt til Bárðar um daginn í fjárhúsin á Hömrum og skoðuðum hvað hann er að fara setja á og það er myndarlegur hópur af gimbrum. Hérna er hluti af ásettnings gimbrunum hjá Bárði og Dóru inn á Hömrum. Hér er svo hinn hlutinn. Fallegur hópur hjá honum. Ég fékk svo þessa svartflekkóttu hjá honum og hann fékk hvíta hjá mér í staðinn eins ég var áður búnað segja frá. Hér er Vikingur sem er faðir Bolta hans Kristins Bæjarstjóra. Fallegur svartur hrútur hjá Bárði sem hann fékk hjá Jón Bjarna á Bergi sem lambhrút. Hér eru svo hrútarnir fremstur Einbúi sem við Bárður áttum saman og er undan Ísak og Tungu og hann hefur verið að reynast Bárði vel. Sá móflekkótti er Knarran sem á ættir í Knörr í móðurætt og hann hefur verið að reynast Bárði vel líka og ég á ær undan honum sem eru góðar kindur. Hér er hrútur frá Bárði og Dóru sem þau setja á og hann er með 18,5 læri og 41 ómv 10 bak 5 lögun 88,5 stig hann er undan Víking. Það verður spennandi að sjá hvað hann gefur. Það eru fleiri myndir af heimsókn okkar til Bárðar hér inn í albúmi. Emil fór á rúntinn um daginn og kíkti í fjárhúsin hjá Auði og Jóa Hellissandi og ég bað hann um að taka nokkrar myndir fyrir mig. Þessar fóru frá okkur og fengu nýtt heimili hjá Auði og Jóa á Hellissandi. Þetta er Urður Blíða og Dimmalimm. Hér er hluti af gimbrunum sem þau setja á. Hér sjást þær líka. Þessi mógolsótta er frá okkur undan Poppý og Kol. Þau keyptu þennan hrút af Neðri-Hól. Þennan keypti Jói af Gumma Óla Ólafsvík og hann er 89,5 stig með 19,5 læri. Það verður gaman að sjá frammræktunina á þessum hrút hjá þeim. Það eru svo fleiri myndir af þessari heimsókn hér inn í albúmi. 03.11.2020 20:29Ásettningur 2020Óðinn 20-001 er undan Bombu 17-004 sem er Mávs dóttir og Vask 19-001 sem er Ask sonur. Kynbótamat 110 gerð 110 fita 106 frjósemi 105 mjólkurlagni 50 kg 104 fótl 39 ómv 2,1 ómf 5,0 lag 8 9 9 10 9,5 19 8 8 9 alls 89,5 stig. 20-003 Dagur undan Mínus sæðingarstöðvarhrút og Sóldögg 14-011 Þorsta dóttir. Kynbótamat 117 gerð 99 fita 103 frjósemi 104 mjólkurlagni 52 kg 107 fótl 34 ómv 2,6 ómf 5,0 lag 8 9 9 9,5 9 18,5 8,5 8 8,5 alls 88 stig. Þór 20-002 undan Ask 16-001 og Snædrottningu 16-005 Ísaks dóttir. Kynbótamat 114 gerð 105 fita 106 frjósemi 103 mjólkurlagni. 48 kg 109 fótl 34 ómv 2,7 ómf 5,0 lag 8 9 9 9,5 9 19 7,5 8 8,5 alls 87,5 stig. Þetta eru lambhrútarnir sem eru settir á þetta haustið. 20-005 Hrafntinna undan Hnotu og Svarta Pétri í eigu Jóhönnu Bergþórsdóttur Þrílembingur 40 kg 108 fótl 28 ómv 2,9 ómf 4,0 lag 8,5 framp 17,5 læri 8 ull 8,5 samræmi alls 42,5 20-006 Snærós undan Rósu og Kaldnasa í eigu Emblu Marínu dóttir okkar Tvílembingur 44 kg 113 fótl 28 ómv 4,8 ómf 3,5 lag 9 framp 18 læri 8,5 ull 9 samræmi alls 44 20-007 Hrafney undan Hröfnu og Móra sæðingarstöðvarhrút. Einlembingur en gengu tvö undir 51 kg 115 fótl 28 ómv 6,2 ómf 4 lag 8,5 framp 18 læri 8 ull 8 samræmi alls 42,5 20-008 Skotta frá Bárði og Dóru sem ég skipti við þau hún er undan Knarran. Tvílembingur 45 kg 34 ómv 9 framp 18 læri veit ekki alveg hinar tölurnar á eftir að fá þær. 20-009 Blesa undan Möggu Lóu og Kolur 19-003 í eigu Freyju Naómí dóttur okkar. Tvílembingur 42 kg 113 fótl 34 ómv 2,9 ómf 4,5 lag 8,5 framp 17,5 læri 7,5 ull 8 samræmi alls 41,5 20-010 Kóróna undan Gyðu Sól og Mosa Gosa syni frá Gumma Óla Ólafsvík. Tvílembingur 50 kg 106 fótl 34 ómv 2,7 ómf 4,5 lag 9 framp 18,5 læri 8,5 ull 9 samræmi alls 45 20-011 Kleópatra undan Brussu og Mosa. Tvílembingur 44 kg 111 fótl 33 ómv 2,9 ómf 4,5 lag 9 framp 18 læri 9 ull 8,5 samræmi alls 44,5 20-012 Dúlla undan Hriflu og Mosa. Þrílembingur 39 kg 104 fótl 2,4 ómf 5,0 lag 9 framp 18 læri 8 ull 8 samræmi alls 43 20-013 Brá undan Fíónu og Bolta sem er undan Víking frá Bárði og Dóru. Þrilembingur 41 kg 105 fótl 30 ómv 3,5 ómf 4,0 lag 9 framp 18,5 læri 8 ull 8,5 samræmi alls 44 20-014 Epal undan Djásn Tvinna dóttir og Bolta. Þrílembingur 50 kg 109 fótl 40 ómv 2,9 ómf 5,0 lag 9,5 framp 19,5 læri 8,5 ull 8,5 samræmi alls 46 20-015 Lísa undan Sölku og Ask Kalda syni. Í eigu Benónýs sonar okkar. Þrílembingur 40 kg 105 fótl 31 ómv 2,9 ómf 4,0 lag 9 framp 17,5 læri 7,5 ull 8,5 samræmi alls 42,5 20-016 Perla undan Ask og Gurru Tinna 15-968 sæðingarstöðvarhrúts dóttur. Tvílembingur 45 kg 108 fótl 39 ómv 3,2 ómf 5,0 lag 9 framp 19 læri 8 ull 8,5 samræmi alls 44,5 20-017 Melkorka undan Kviku og Vask Ask syni. Tvílembingur 43 kg 108 fótl 33 ómv 3,2 ómf 4,5 lag 9 framp 19 læri 7,5 ull 8,5 samræmi alls 44,5 20-018 Milla undan Skvísu og Vask Ask syni. Þrílembingur 40 kg 103 fótl 30 ómv 3,8 ómf 4,0 lag 9 framp 18 læri 8 ull 8,5 samræmi alls 43,5 20-020 Mávahlíð undan Vofu og Vask Kaldasyni hún er í eigu Ronju Rós dóttur okkar. Tvílembingur 42 kg 103 fótl 31 ómv 3,4 ómf 5,0 lag 8,5 framp 18 læri 8 ull 9 samræmi alls 43,5 Þá eru þær upptaldar hjá okkur sem settar verða á þetta haustið. Nokkrar voru valdar út frá mæðrum sem ég held mikið upp á og voru látnar fara núna því þær voru alveg búnar. Það er Skvísa,Fióna og Hrifla sem voru í miklu uppáhaldi hjá mér. Emil og Siggi fóru í að horntaka hrútana fyrir veturinn hér eru þeir að taka af Hlúnk. Friðgeir á Knörr kom svo og fékk Drjóla hjá Sígga og Svan hjá mér þvi við erum búnað full nota þá og vonandi reynast þeir honum vel. Þessi veturgamla er frá Óttari og hann fékk hana hjá mér í fyrra og er hún undan Brussu og Ask rosalega falleg kind. Ég missti systir hennar í sumar hana Díönu og ég sá svo svakalega mikið eftir henni hún var líka svo geggjað falleg. Ég ætla að fóðra þessa fyrir Óttar í vetur því hann er hættur með kindur á Kjalvegi. Hér er hann Benóný með hana Lísu sína sem hann valdi sjálfur og gaf henni nafn líka. Ronja Rós orðin dugleg að kíkja á kindurnar. Benóný komin í sjálfheldu allar svo spakar að fá klapp. Það eru hluti af kindunum sem við héldum eftir inn í girðingu það eru sem Bárður átti eftir að fá og Gummi og svo þær sem við eigum og ganga inn fyrir Búlandshöfða svo við þyrftum ekki að fara eins langt að sækja þær þegar við förum að hýsa. Þessi hvíta fremsta er Mávs dóttir og móðir hennar er undan Myrkva hún er veturgömul eða fer á annan vetur núna. Þessi gráa kollótta er undan Móra sæðingarstöðvarhrút og er líka veturgömul að fara á annan vetur. Freyja að knúsa Mávadís. Benóný að kveðja Hörpu sem fer til Bárðar og Dóru í vetur eftir að hann samdi við Bárð að reyna koma lambi í hana en hún var geld veturgömul og ég ætlaði að láta hana fara því ég held hún sé ónýt en hún er í miklu uppáhaldi hjá Benóný og hann bað Bárð svo fallega að hann gat ekki neitað honum og hann ætlar að gefa henni séns. Það eru svo fleiri myndir af lömbunum og fleira hér inn í albúmi. 02.11.2020 10:24Óstöðvandi smala mennskaSiggi í Tungu og Kristinn Bæjarstjóri eru alltaf að smala og var einstaklega fallegt veður í gær til að smala og fóru þeir tvisvar upp fyrst fóru þeir fyrir ofan Hrísar og náðu þar einni kind frá Friðgeiri sem kom til okkar líka í fyrra og var það móðir hennar Gjöf sem ég fékk hjá Friðgeiri í fyrra og gaf Emblu í jólagjöf. Svo fóru þeir upp í Svartbakafell og náðu þar einni kind með tvö lömb sem reyndist vera frá kvíabryggju og passaði það þeim vantaði akkurrat eina sem þeir vissu að væri einhversstaðar á þessu svæði. Hér sést hluti af veðurblíðunni séð inn i Mávahlíð frá Tungu. Ég skuttlaði Sigga og Kidda inn í Fögruhlið upp á Rauðskriðumel í gær. Hér eru Siggi og Kiddi um daginn þegar þeir voru að smala upp undir myrkur fé frá Gísla á Álftarvatni sem Kiddi kom með í því var svo forrystu kind með lömb frá Lýsudal. Forrystan er á bak og burt og hefur ekki sést til hennar en við náðum kindinni frá Gísla og var hún með tvö lömb sem reyndust vera undan Ask frá mér þvi hann var í afkvæma rannsókn hjá Gísla á Álftavatni. Gummi kom svo og tók kindurnar sem hann fær hjá mér þær eru þrjár svo kom Bárður og tók hjá mér 10 sem hann fær og svo bíttaði ég á við hann um eina gimbur sem mig langaði svo mikið í hjá honum. Ég fékk þessa hjá honum og auðvitað var það liturinn sem heillaði mig. Hann fékk þessa hjá mér sem er undan Sóldögg og Mínus sæðingarstöðvarhrút. 02.11.2020 10:13Ásettnings gimbrar hjá Kristni BæjarstjóraHér er svo gimbrin aftur frá Sigga sem Kristinn setur á. Hún er undan Svínku og Bolta. Hún fær nafnið Tuðra. 42 kg 33 ómv 2,5 ómf 5,0 lag 104 fótl 9,5 framp 18,5 læri 7,5 ull 8 samræmi. Þessa gimbur fékk hann hjá Óttari á Kjalvegi og hún er undan Rassbót og Vask sem er frá okkur og er undan Ask. Hún fær nafnið Tuska. 45 kg 31 ómv 2,9 ómf 4 lag 9 framp 18 læri 9 ull 8,5 samræmi. 02.11.2020 07:39Ronja Rós 13 mánaða 27 októberRonja Rós er heldur betur farin að príla út um allt og er mikill prakkari í sér og núna eru Donna og Myrra í miklu uppáhaldi og þær forða sér undan henni því hún hleypur á eftir þeim og grípur í skottið á þeim og reynir að setjast ofan á Donnu ef hún liggur einhversstaðar. Orðaforðinn er alveg komin á fullt og er farin að komast á eftirhermu aldurinn og apar allt upp eftir manni og fær það svo algerlega á heilann eins og páfagaukur alveg yndisleg. Elskar öll dýr og sérstaklega hænurnar núna byrjar leið og við stoppum fyrir utan hjá Freyju og Bóa í sveitinni að segja gogg gogg þvi þar veit hún að hænurnar eru. Þessi frábæra prinsessa kann svo alveg lagið á ömmum sinum og Jóhönnu frænku að láta halda á sér og bræðir alla með kátínu og prakkara skap. Hér er hún brosandi að fá að príla upp á eitthvað nýtt. Svo yndisleg. Inn í Tungu hjá Sigga að leika með snigilinn sem hefur verið í miklu uppáhaldi hjá öllum krökkunum. Við náðum í þetta píanó frá Freyju þegar hún var litil því Embla var að æfa sig á píanó inn í herbergi og Ronja var alveg óð að fara inn í herbergi og trufla Emblu og ýta á alla takkana og þegar við föttuðum að við ættum þetta og náðum í það var hún alveg í skýjunum með það. Þurý systir hennar mömmu heklaði þetta fallega hárband í stíl við kjólinn mjög flott. Hún elskar að vera í kringum lömbin enda eru þau alveg einstaklega gæf. Hér er hún að skottast með þeim svo glöð og kallar me me. Þessi mynd er eitthvað svo einlæg og sæt af okkur. Með ömmu Huldu sinni. Hér er hún mikið að segja a við tré hundinn he he. Hér er hún að borða egg með afa Bóa í sveitinni. Það eru svo fleiri myndir af henni hér inn í albúmi.
Flettingar í dag: 316 Gestir í dag: 37 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 1188505 Samtals gestir: 69640 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 07:31:23 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is