Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
31.12.2016 03:26Gleðileg jól og farsælt komandi ár.![]() Kæru vinir Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Við þökkum kærlega fyrir heimsóknirnar og kommenntin á liðnu ári og vonum að þið haldið áfram samfylgninni á nýju ári. Mér finnst líka bara svo frábært að fá heimsóknir og kommennt inn á síðuna það gerir bloggið svo miklu meira spennandi og skemmtilegra og gefur manni innblástur að blogga meira. Takk kærlega fyrir það kæru vinir og megi gleði og hamingja umvefja ykkur yfir hátíðarnar. Við höfum haft það frábært yfir jólin haft nóg að gera í fjárhúsunum. Ég sá mest megnis um að hleypa til sjálf og við gerum það upp á gamla mátann og leitum með hrút og svo leiðum við ærnar í einn og einn hrút. 3 daga í röð voru 10 til 12 að ganga og það tók dágóðan tíma og ég nota líka svolítið mikið af hrútum miðað við fjölda he he en það er bara svo gaman að sjá hvað þeir gefa og spá og speklura í ræktuninni og hvað passar best saman. En ég þakka þó fyrir að það var vont veður og bræla hjá Emil manninum mínum og þá gat ég notið nærveru hans og hjálpar við tilhleypingarnar því áður en hann kom til hjálpar voru dagarnir langir og erfiðir. Því mikið átti eftir að gera heima líka í undirbúning fyrir jólin og sinna 3 orkuboltum sem vilja alla athygli þegar maður kemur heim. ![]() En þau bræða mann alveg með brosinu og góðmennskunni sinni þessir englar og hafa alveg ótrúlega þolinmæði fyrir að mamma sé alltaf í fjárhúsunum. ![]() Áttum æðislegan aðfangadag í faðmi fjölskyldunnar. Það eru svo fleiri myndir af jólunum hér inn í albúmi. Jólakveðja fjölskyldan Stekkjarholti 6 31.12.2016 03:20Hestarnir teknir inn 26 des![]() Við tókum hestana inn 26 des. ![]() Krakkarnir voru alsæl yfir því. ![]() Og tóku virkan þátt í umhirðu. ![]() Og allir að sópa saman voða dugleg. ![]() Auðvitað varð hestastelpan okkar að fá að fara á bak. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 31.12.2016 03:05Jól í fjárhúsunum![]() Gæðablóðið hún Hrafna með Emblu vínkonu sína. Hún leyfir Emblu dóttur minni að klifra upp á bak á sér og kippir sér ekkert upp við það. Ég hef aldrei kynnst annari eins kind. ![]() Svo fær hún að knúsa hana. ![]() Þegar ég er að sópa er kapphlaup að klára sópa áður en þær hópast af manni og eru enn ágengari þegar Embla er með mér eins og sjá má á þessari mynd. ![]() Zorró er kominn í jólaskap. ![]() Korri líka hó hó. ![]() Mávur vildi líka fá jólamyndatöku. ![]() Og sæta krúttið hann Kaldnasi hann fékk líka jólahúfu en Grettir vildi líka og reyndi að stela húfunni af honum he he. ![]() Gulla hans Sigga er líka í jólaskapi. ![]() Meira segja Svört hans Sigga leyfði mér að skella einni jólamynd af sér. ![]() Enda svo þetta jólablogg úr fjárhúsunum á Emblu og Hröfnu saman. Af sæðingum að segja þá sæddi ég 16 fyrir mig. 2 fyrir Jóhönnu og 9 fyrir Sigga. Ég notaði Bekra, Borkó, Dreka, Vin, Malla, Tinna og Burkna. Svo núna fer spennan að magnast hvað muni halda núna á næstu dögum. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 31.12.2016 02:39Fengitími að byrja og skreytt jólatréð![]() Hér er hún Embla með Hröfnu sína sem er uppáhalds kindin hennar. Hún kemur hlaupandi til Emblu þegar hún heyrir röddina hennar alveg einstök kind. ![]() Svo dugleg að hjálpa mömmu sinni að gefa. ![]() Hrafnarnir sem fylgja bænum Tungu eru oftast ekki langt frá þegar ég kem að gefa og í þetta skipti náði ég mynd af þeim upp á fjárhúsinu. ![]() Mávur og Ísak eru komnir til baka frá Gaul svo nú fer ég að byrja að hleypa til á fullu núna 18 des. Fyrstu kindurnar fengu 13 des og svo byrjaði ég að sæða 15 des til 18. Við höfum þá svona bundna og það bjargar mér alveg á fengitímanum því ég á í fullu basli að ráða víð þessa stóra hrúta. Þeir eru bara í hestataum og ég losa þá bara þegar ég þarf að nota þá og ekkert streð og basl að allir séu að reyna að koma í einu. Þeir eru ekkert ósáttir við þetta heldur læra þetta strax. Ég nota svo einn hrút fyrst til að leita og ég set á hann poka svo ég sé ekki að missa hann á ærnar sem eru að ganga he he því stundum ræð ég ekki svo glatt við hann Korra sem ég nota til að leita með þó hann sé mesta gæða blóð þá hem ég hann ekki þegar blæsmandi ær er annars vegar. ![]() Hér er Korri hann er Garra sonur hjá Sigga og er alveg gríðarlega stór hrútur. ![]() Lambhrútarnir. ![]() Hér er svo verið að skreyta jólatréð rosa spenningur. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessu. 31.12.2016 02:314 ára afmæli Freyju Naómí![]() Freyja Naómí orðin 4 ára. Svo yndisleg og blíð lýsir henni best og hún er svo dugleg þó lítil og nett sé. Hún var 4 ára 12. 12. 2016. ![]() Svo mikil dama. ![]() Hún fékk nánustu vini sína í afmælið og það var mjög gaman hjá þeim. ![]() Ég bjó til nammi prinsessu köku fyrir hana. ![]() Þær systur á leið á jólaball á leikskólanum. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af afmælinu hennar Freyju. 09.12.2016 10:50Ásettningur hjá Óttari Blómsturvöllum![]() Þessi er undan Lukku og Hring. 50 kg 36 ómv 4,3 ómf 4,5 lögun 9,5 framp 19 læri. ![]() Þessi er undan Sússu og Sokka. 45 kg 30 ómv 3,2 ómf 4,5 lögun 9 framp 18,5 læri. ![]() Þessi er undan Dímmu og Sokka. 45 kg 31 ómv 3,4 ómf 4 lögun 8,5 framp 18 læri. ![]() Þessi er undan Dimmu og Sokka. 45 kg 34 ómv 2,3 ómf 4,5 lögun 8,5 framp 18,5 læri. ![]() Þessi er undan Golsu og Sokka. 51 kg 30 ómv 4,8 ómf 4,5 lögun 8 framp 18,5 læri. ![]() Sorghyrna er undan Tinnu og Sokka. 49 kg 29 ómv 4,2 ómf 4,5 lögun 9 framp 18 læri. ![]() Þessi er undan Nótt og Hring. 49 kg 33 ómv 3,7 ómf 4,5 lögun 9,5 framp 19 læri. Þá eru þær upptaldar hjá honum Óttari. Glæsilegar gimbrar og fallega hosóttar. ![]() Stórar og sterkbyggðar kindur hjá honum. Það eru svo fleiri myndir af heimsókn minni hjá Óttari hér inn í albúmi. 04.12.2016 10:31Ásettningur hjá Bárði og Dóru Hömrum![]() Þessi er 41 kg 33 ómv 2,7 ómf 4,5 lögun 9 framp 18 læri 8 ull. ![]() Þessi er undan Kolbrá og Part. 36 kg 31 ómv 3,1 ómf 4,5 lögun 8,5 framp 18 læri 8 ull. ![]() Þessi er undan Kornelíusi. 41 kg 28 ómv 3,1 ómf 4,5 lögun 9 framp 18,5 læri 8 ull. ![]() Þessi er undan Hring frá Óttari held ég. 48 kg 30 ómv 3,2 ómf 4,5 lögun 9 framp 18,5 læri. ![]() Þessi er undan Læk. 41 kg 33 ómv 2,4 ómf 4,5 lögun 8,5 framp 18 læri 8 ull. ![]() Þessi er undan Part. 44 kg 36 ómv 1,9 ómf 5 lögun 9,5 framp 18,5 læri 7,5 ull. ![]() Þessi er frá Bergi í eigu Bárðar. 33 ómv 2,7 ómf 4,5 lögun 9 framp 18 læri 8 ull. ![]() Þessi er undan Part. 38 kg 26 ómv 2,9 ómf 4 lögun 9 framp 18 læri 8 ull. ![]() Þessu er undan Læk. 41 kg 29 ómv 1,7 ómf 4 lögun 9 framp 18,5 læri 8 ull. ![]() Þessi er undan Part, 36 kg 31 ómv 2,4 ómf 4,5 lögun 9 framp 18 læri 8 ull ![]() Þessi er undan Læk. 45 kg 30 ómv 2,7 ómf 4 lögun 9,5 framp 19 læri 8 ull. ![]() Þessi er undan Part. 50 kg 31 ómv 2,8 ómf 4 lögun 9 framp 18,5 læri 8 ull. ![]() Þessi er undan Læk. 46 kg 26 ómv 4,5 ómf 3 lögun 9,5 framp 18,5 læri 7,5 ull ![]() Þessi er frá Jón Bjarna Bergi í eigu Bárðar. Held hún sé undan Kölska. 28 ómv 4,1 ómf 3,5 lögun 9 framp 17,5 læri 7,5 ull. ![]() Mógolsa er undan Styrmi. 45 kg 26 ómv 3,8 ómf 3,5 lögun 8,5 framp 17,5 læri 7,5 ull. ![]() Þessi er undan Grím. 45 kg 28 ómv 5,6 ómf 3,5 lögun 9 framp 18,5 læri 7,5 ull. Ég vona að ég hafi komið þessu rétt upp en allavega eru stiganirnar réttar en myndirnar af hvítu gimbrunum gætu hafa ruglast eitthvað eða verið réttar. Þetta eru sem sagt 16 gimbrar sem Bárður og Dóra setja á og ekkert smá flottur hópur af glæsilegum gimbrum. ![]() Vel fylltar með falleg lærahold. ![]() Bárður og Dóra eru með 16 og Hörður og Lauga 4 gimbrar. ![]() Þennan hrút heimti Bárður seint og var ekki stigaður en hann er gríðalega þéttur og með mjög öflug læri sem ættu skilið 19 segja fróðir menn svo það verður spennandi að sjá hvað hann gefur. Hann er ættaður undan syni Kára sæðishrút. ![]() Þessi fallega flekkótti hrútur er í eigu Bárðar og hann fékk hann á Bergi hjá Önnu Dóru og Jón Bjarna og hann er undan Topps dóttur og Hæng syni. 28 ómv 3,3 ómf 4 lögun 113 fótl 8 8,5 8,5 8 9 18,5 8 8 8,5 alls 85 stig ![]() Hérna er hvíti okkar Einbúi sem við eigum saman hann er undan Tungu og Ísak. ![]() 51 kg 36 ómv 5,8 ómf 4 lögun 108 fótl 8 8,5 9 9,5 9 19 8 8 8 alls 87 stig. Þessi er undan Börk sæðishrút og Gloppu frá Sigga í Tungu Bárður keypti hann af Sigga. ![]() Partur Klettssonur hjá Bárði. Hann er að gefa rosalega góða gerð og bara allan pakkann og ég ætla að fá að prófa hann núna í vetur. ![]() Þessi er undan Kára sæðishrút og Frigg frá Mávahlíð. Bárður á hann. Svarti lambhrúturinn er undan þessum. ![]() Þessi er undan Vita frá Bergi og er í eigu Bárðar. ![]() Þessi fyrirsæta forrystan hans Bárðar styllti sér vel upp fyrir myndatöku með fallega Kirkjufellinu í baksýn. Ég veit að þessar lambamyndir eru að koma seint inn hjá mér en það bara drógst svo á langinn því talvan hrundi hjá mér. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessum fallegu gripum hjá Bárði og Dóru einnig er smá myndir af okkur fjölskyldunni af bústaða ferð í Ölfusborgum. Svo ef þið hafið áhuga á því endilega kíkið hér í albúm Það eru svo væntanlegar myndir af ásettningi hjá Óttari á Blómsturvöllum ég er búnað gera mér heimsókn til hans og taka myndir svo þær koma fljótlega inn Takk fyrir innlitið góðir gestir ............. 04.12.2016 09:43Rollurnar teknar inn og rúningur.![]() Við erum löngu búnað smala rollunum heim en það vantaði 5 stykki sem við erum búnað vera leita af á hverjum degi. Við erum búnað vera gefa þessum á kvöldin og hafðar inni en svo settar út yfir daginn þangað til það verður tekið af þeim. ![]() Okkur til allra hamingju þá fundum við þessar fimm sem okkur vantaði. Eina frá Sigga og fjórar frá okkur. Þær voru að fela sig einhverstaðar inn í Búlandshöfða og ég var búnað keyra daglega að gá af þeim og við vorum að gera okkur klár að fara ganga upp á Höfða til að fara leita af þeim en þá sáum við þær fyrir neðan veg fyrir ofan Búlandið. Við vorum afskaplega fegin að finna þær og rákum þær út á Tungu. Hér er Siggi að ganga á eftir þeim í Búlandshöfðanum. ![]() Hér eru þær komnar áleiðis og eru að nálgast Mávahlíðarhelluna. Fjallið sem sést hér í fjarska er Ólafsvíkur Enni. ![]() Hér er ég búnað sortera litina fyrir rúninginn. ![]() Gummi klippari mættur til okkar að rýja. Ég var fyrst bara ein að draga í hann og ég átti fullt í fangi með að draga þessar stóru sem eru allar þyngri en ég en það hafðist á endanum. Svo sem betur fer kom Bói mér til aðstoðar. ![]() Það fer vel um þær í fanginu á Gumma. ![]() Jóhanna á hleranum. ![]() Bói mættur á svæðið. ![]() Hér er búið að snyrta allar og gefa þeim á garðann og þær alveg alsælar. Nú er spennandi tími framundan að fara dekra við þær og leggja höfuð í bleyti yfir að raða þeim í hrútana og velja sæðis hrútana. ![]() Hér eru stóru hrútanir okkar Zorró er að fara á annan vetur. ![]() Mávur Blika sonur er líka að fara á annan vetur og hann er að fara í afkvæmarannsókn hjá Heiðu á Gaul. ![]() Ísak Tvinna sonur er líka á öðrum vetri og er að fara í afkvæmarannsókn líka hjá Heiðu á Gaul. Það er mikill heiður og verður spennandi að sjá hvernig það kemur út. ![]() Þetta er nú alveg yndislegt veður sem er hjá okkur núna í desember. Ég man ekki eftir eins hlýjum vetri eins og er búið að vera núna í ár. 21.11.2016 22:39Ásettningurinn okkar 2016![]() Orabora er undan Guggu og Zorró. Tvílembingur 43 kg 31 ómv 4,1 ómf 4,5 lögun 108 fótl 8,5 framp 17,5 læri 9 ull 8,5 samræmi. ![]() Hlussa er undan Þotu og Máv. Tvílembingur 52 kg 30 ómv 3,1 ómf 4 lögun 107 fótl 8,5 framp 18 læri 8,5 ull 8,5 samræmi. ![]() Bifröst er undan Dröfn og Ísak. Tvílembingur 50 kg 32 ómv 3,6 ómf 4,5 lögun 108 fótl 9 framp 17,5 læri 8 ull 8,5 samræmi. ![]() Arena er undan Ljósbrá og Máv. Undan gemling 40 kg 35 ómv 4,2 ómf 5 lögun 106 fótl 9 framp 18 læri 8,5 ull 8,5 samræmi. ![]() Öskubuska er undan Sölku og Zorró. Þrílembingur 43 kg 32 ómv 4,2 ómf 4 lögun 106 fótl 9 framp 18 læri 7,5 ull 8,5 samræmi. ![]() Rósa er undan Rósalind og Skara. Hún er í eigu Emblu dóttur okkar hún valdi hana. 38 kg 23 ómv 3,5 ómf 3 lögun 106 fótl 7,5 framp 16 læri 8 ull 8,5 samræmi. Þetta er án efa lélegasta gimbur sem sett hefur verið á frá upphafi en ég marg reyndi að benda Emblu dóttur minni á aðrar en hún þekkti þessa alltaf aftur svo það var ekki hægt að neita henni um hana. Það vill svo skemmtilega til að hún er rosalega gæf og hefur alveg brætt mig svo ég er alveg búnað meðtaka hana og hef fulla trú á henni. Hún sem sagt gekk móðurlaus í sumar rollan drapst afvelta upp á fjalli. ![]() Fía Sól er undan Þrumu og Styrmi. Tvílembingur 50 kg 27 ómv 5,2 ómf 3,5 lögun 109 fótl 8 framp 17,5 læri 8 ull 8,5 samræmi. ![]() Þyrnirós er undan Saum og Dalrós. Tvílembingur 40 kg 31 ómv 2,2 ómf 4,5 lögun 102 fótl 9 framp 17,5 læri 8,5 ull 8,5 samræmi. ![]() Þoka er undan Ísak og Elsu. Tvílembingur 55 kg 31 ómv 4 ómf 4 lögun 8,5 framp 18 læri 8 ull. ![]() Árás er undan Hosu og Korra. Tvílembingur 44 kg 32 ómv 4,8 ómf 4 lögun 106 fótl 9 framp 18,5 læri 7,5 ull 8,5 samræmi. ![]() Skuld er undan Svönu og Kölska. Tvílembingur 47 kg 34 ómv 2,9 ómf 5 lögun 107 fótl 9 framp 18,5 læri 8 ull 8,5 samræmi. ![]() Urður er undan Snældu og Ísak. Tvílembingur 46 kg 30 ómv 2,9 ómf 4 lögun 106 fótl 9 framp 18 læri 7,5 ull 8,5 samræmi. ![]() Villimey er undan Vetur og Ýr. Tvílembingur 48 kg 31 ómv 3,5 ómf 4 lögun 106 fótl 8,5 framp 17,5 læri 7,5 ull 8,5 samræmi. ![]() Snædrottning er undan Ísak og Maístjörnu. Tvílembingur 45 kg 29 ómv 2,9 ómf 4 lögun 108 fótl 8,5 framp 17,5 læri 9 ull 8,5 samræmi. ![]() Gæfa er undan Marel og Skuggadís. Tvílembingur 48 kg 27 ómv 4,7 ómf 4 lögun 108 fótl 8,5 framp 17,5 læri 8 ull 8,5 samræmi. ![]() Sarabía er undan Móheiði og Skara. Tvílembingur 48 kg 30 ómv 4,7 ómf 4,5 lögun 109 fótl 8,5 framp 17,5 læri 9 ull 8,5 samræmi. ![]() Nutella er undan Snót og Máv. Hún er í eigu Emelíu frænku Emils. Tvílembingur 43 kg 32 ómv 2,6 ómf 4,5 lögun 106 fótl 8,5 framp 18 læri 9 ull 8,5 samræmi. ![]() Morgunstjarna er í eigu Jóhönnu og er undan Hnotu og Zorró. 40 kg 30 ómv 109 fótl 4,2 ómf 4,0 lögun 8,0 framp 17,5 læri 8,0 ull 8,5 samræmi. Hér koma svo lambhrútarnir sem verða settir á núna. ![]() Kaldnasi er keyptur frá Eybergi og Laugu Hraunhálsi. Hann er undan Magna og Urtu. Hann er þrílembingur. 45 kg 107 fótl 29 ómv 3,6 ómf 3,5 lögun 8 8 8,5 8,5 8,5 18 9 8 8,5 alls 85 stig. ![]() Askur er undan Kalda og Brælu. Bræla er veturgömul undan Bekra. 53 kg 35 ómv 4,2 ómf 4 lögun 109 fótl 8 9 8,5 9 9,5 18,5 8 8 8 alls 86,5 stig. ![]() Einbúi er undan Ísak og Tungu og er í eigu míns og Bárðar. 58 kg 35 ómv 2,5 ómf 5 lögun 108 fótl. 8 8,5 9 9 9 18,5 9 8 8,5 alls 87,5 stig. Þetta er smá af myndunum sem ég náði að bjarga en svo þurfti ég að taka sumar upp á nýtt sem ég náði ekki að bjarga. Þess vegna eru sumar með meira af grasi í ullinni því þær myndir tók ég bara núna í gær. Ég er búnað spekja 3 gimbrar það eru Gæfa hún er extra spök og kemur hlaupandi þegar maður fer ofan í kró svo er það hún Rósa hennar Emblu og síðan er það hún Þyrnirós. Af hrútunum er Kaldnasi svakalega gæfur ég held ég hafi bara aldrei átt eins spakan hrút hann er alveg einstakur. Askur er en styggur og Einbúi er hjá Bárði og Dóru inn á Hömrum. Það verður komið að rýja hjá okkur í dag og ég er fór í morgun og sorteraði litina og gerði klárt hann kemur að klippa kl 5 svo ég missi því miður af kynningar fundinum um sæðingar hrútana. Verð að fá skýrslu frá þeim sem fara á fundinn hvað verður sagt um gripina. En jæja læt þetta duga í bili. 14.11.2016 09:00Ásettnings gimbrarnar hjá Gumma Óla Ólafsvík![]() Þessi er undan Rönd og Svima sæðishrút. 49 kg 36 ómv 2,8 ómf 5 lögun 9,5 framp 19 læri 7,5 ull ![]() Þessi er undan Gránu og Ísak. 46 kg 32 ómv 2,6 ómf 4,5 lögun 9 framp 18,5 læri 8,5 ull. ![]() Þessi er undan Dóru og Ísak. 54 kg 31 ómv 2,6 ómf 4,5 lögun 9 framp 18,5 læri 8 ull. ![]() Þessi er undan Ólínu og Ísak. 45 kg 34 ómv 4 ómf 4,5 lögun 9 framp 18 læri 8 ull. ![]() Þessi er undan Gullu og Zorró. 53 kg 33 ómv 4,1 ómf 4 lögun 9 framp 18 læri 8 ull. ![]() Þessi er undan Ísak og Elsu. 52 kg 33 ómv 2,9 ómf 4 lögun 9,5 framp 19 læri 8 ull. ![]() Þessi er undan Flekku og Zorró. 47 kg 32 ómv 5,4 ómf 4 lögun 9 framp 18,5 læri 8 ull. ![]() Veturgömlu hjá honum eða tvævettlurnar núna. ![]() Fallegar kindur hjá Gumma mér finnst þessi svarflekkótta svo skemmtileg á litinn. ![]() Svo flott og frábær fjárhús og litadýrðin alveg æðisleg hann er alveg búnað slá mér við í litunum og mér finnst þetta alveg frábært hjá honum. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessum flottu fjárhúsum og fallega fénu hans. Endilega skoðið með því að klikka á albúms linkinn hér fyrir ofan. Því miður hrundi talvan mín og ég glataði myndunum mínum sem ég var búnað taka í haust af smölun og öllu. Inn í því var svo myndir af ásettnings gimbrunum mínum og hjá Bárði og Dóru á Hömrum svo ég verð að fara og taka myndir af þeim aftur en það verða ekki alveg eins flottar myndir því þær eru búnað vera lengi inni og ullin orðin aðeins með grasi en ég verð að láta það duga fyrst svona fór. 09.11.2016 22:20Gimbranar hjá Jóa og Auði Hellissandi![]() Gulla móðir Gjöf og faðir Sokki. 46 kg 31 ómv 4,0 ómf 4 lögun 9 framp 18 læri 7,5 ull ![]() Kiddý móðir Kristbjörg og faðir Hugur 43 kg 29 ómv 3,9 ómf 4,5 lögun 9 framp 18 læri 9 ull. ![]() Skellibjalla móðir Rósalind og faðir Hugur 49 kg 33 ómv 5,9 ómf 4,5 lögun 9 framp 17,5 læri 7,5 ull. ![]() Tinna Nótt móðir Elding og faðir Hugur. 50 kg 27 ómv 4,6 ómf 4 lögun 9 framp 18,5 læri 8 ull. ![]() Svakalega flott fjárhúsin hjá þeim Jóa og Auði og þar er sko dekrað við rollurnar og lömbin. Hlýleg og björt fjárhús hjá þeim og allt svo rólegt og yfirvegað. Það var mjög gaman að koma til þeirra og fá að skoða. Það eru svo fleiri myndir af heimsókn okkar hér inn í mynda albúmi. Það verður smá bið eftir myndum af gimbrunum mínum og frá Bárði og Dóru því ég var búnað græja þær en þá hrundi talvan mín svo ég er bara með gamla núna að redda mér og ég var svo heppin að ég var en þá með myndirnar sem ég tók hjá Auði og Jóa í myndavélinni svo ég gat sett þær inn. Ég vona samt heitara en allt að það náist að bjarga myndunum sem ég átti í hinni tölvunni. Jæja læt þetta duga að sinni og endilega kíkið í albúmið og skoðið flottu fjárhúsin hjá Jóa og Auði og flottu kindurnar og ásettnings gimbranar. 31.10.2016 22:00Gimbranar hans Sigga í Tungu![]() 50 kg 30 ómv 4,3 ómf 3,5 lag 106 fótl 8 framp 17,5 læri 8 ull 8,5 samræmi. ![]() Þessi er undan Svört og Máv. 51 kg 35 ómv 2,2 ómf 5 lag 108 fótl 9 framp 19 læri 8 ull 9 samræmi. ![]() Þessi er undan Vetur og Litlu Gul. 52 kg 35 ómv 4,9 ómf 4,5 lag 109 fótl 9 framp 18 læri 7,5 ull 8,5 samræmi. ![]() Þessi er undan Ísak og Spíru. 53 kg 33 ómv 3,6 ómf 5 lag 110 fótl 9 framp 18 læri 7,5 ull 8,5 samræmi. ![]() Þessi er undan Drjóla og Skrúfu systir hinnar fyrir ofan. 50 kg 30 ómv 3,1 ómf 3,5 lag 107 fótl 7,5 framp 17,5 læri 8,5 ull 8,5 samræmi. ![]() Þessi er undan Snekkju og Saum. 45 kg 32 ómv 3,6 ómf 4,5 lag 105 fótl 8,5 framp 18 læri 8,5 ull 8,5 samræmi. ![]() Þessi er undan Korra og Fönn. 47 kg 32 ómv 3,3 ómf 4 lag 107 fótl 8 framp 18 læri 8,5 ull 8,5 samræmi. ![]() Þessi er keypt frá Bárði og er undan Styrmi. 45 kg 24 ómv 3,1 ómf 3,5 lag 8,5 framp 18 læri 8 ull. ![]() Þessi er undan Dropu og Korra. 50 kg 36 ómv 3,4 ómf 4,5 lag 106 fótl 9 framp 19,5 læri 8 ull 8,5 samræmi. Hrútarnir hjá Sigga. ![]() Móri er undan Soffíu og Styrmi. 58 kg 30 ómv 3,9 ómf 3,5 lag 110 fótl 8 8,5 8,5 8,5 8,5 18 8 8 8,5 alls 84,5 stig. ![]() Þessi heitir Glámur og er undan Snekkju og Saum. 52 kg 38 ómv 3,5 ómf 5 lag 106 fótl 8 8 8,5 9,5 8,5 18,5 8,5 8 8,5 alls 86 stig. ![]() Þetta er Grettir og er undan Svört og Máv. 55 kg 33 ómv 2,0 ómf 4,5 lag 109 fótl 8 8,5 9 9 9,5 19 7,5 8 8 alls 86,5 stig. ![]() Hér eru stóru komnir inn og þetta er Drjóli Hæng sonur frá Sigga og svo Zorró okkar. ![]() Korri hans Sigga er Garra sonur og er undan Svört. Hann er rosalega stór og fallegur. jæja þá er hans ásettningur kominn inn og svona næstu daga fer ég að henda inn nýjum bloggum af ásettnings gimbrum hjá mér og fleirum eftir því hvað ég verð dugleg að vinna þetta inn hjá mér. 19.10.2016 22:39Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi 2016Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi 2016 var haldinn vestan girðingar hjá Heiðu og Júlla á Gaul. Lárus Birgisson og Jón Viðar Jónmundarson voru dómarar. Þar voru mættir til leiks 17 mislitir , 9 kollóttir og 29 hyrndir. Þessum hrútum var svo raðað upp eftir flokkum og úr þeim valdir 5 efstu í uppröðun og svo keppa þeir við þá efstu sem verða sunnan girðingar. Sýningin hófst klukkan 13:00 á Gaul og lauk um 16:30 Það var vel mætt og að uppröðun lokinni var boðið upp á súpu frá Heiðu sem var alveg rosalega góð og vakti mikla lukku ásamt nýbökuðu brauði. Þetta var skemmtileg sýning og frábær aðstaða í flottum fjárhúsum á Gaul. Golsótti hrúturinn okkar vakti mikla eftirtekt vegna litarins því hann er ekki bara golsóttur heldur er hann botnóttur líka svo hann er golsubotnóttur hann fór í uppröðun af 5 mislitu hrútunum. Í hvítu hyrndu fór Saum sonurinn hans Sigga í 5 uppröðun. Sunnan girðingar mættu 5 mislitir, 4 kollóttir og 15 hyrndir. Í heildina voru 22 mislitir, 13 kollóttir og 44 hyrndir. Bæði vestan og sunnan girðingar. Sýningin hófst kl 20:30 í Haukatungu Syðri 2 hjá Ásbyrni og Helgu. Þar var byrjað á því að skoða hrútana og raða upp. Að því loknu bauðu Ásbjörn og Helga upp á kaffi og kökur í hlýlega og glæsilega fjárhúsinu þeirra. Á meðan fóru Jón Viðar og Lárus afsíðis að bera saman hrútana og finna nýjan héraðsmeistar 2016. Ég fór með verðlaun fyrir hönd Fjárræktarfélagsins Búa á sýninguna en það var mynd sem ég teiknaði af hrút og setti það í bleikt skraut í tilefni bleiku slaufunar. Seinni sýningunni lauk svo um hálf 12. Þetta var mjög skemmtilegur dagur og frábær sýning á báðum stöðum. Ég tók stuttlega sögu af deginum saman sem þið getið skoðað hér ásamt myndum sem eru í mynda albúmi. ![]() Héraðsmeistarinn 2016 er Garra sonur frá Ásbyrni og Helgu Haukatungu Syðri 2. ![]() Héraðsmeistarinn 2016. Griðalega fallegt lamb og með frábæran blett á afturfót. Faðir Garri. 53 kg 112 fótl 37 ómv 2,7 ómf 5 lag 8 9 8,5 10 9 18,5 7,5 8 9 alls 87,5 stig Í öðru sæti var hrútur frá Dalsmynni. Faðir Tangi 57 kg 111 fótl 34 ómv 4,3 ómf 4,5 lag 8 8,5 8,5 9,5 9 18,5 8 8 8,5 alls 86,5 stig ![]() Held að þetta sé hrúturinn frá Dalsmynni sem var í öðru sæti sem er með svarta teypið. Í þriðja sæti var svo hrútur frá Helgu og Ásbyrni Haukatungu Syðri 2. Faðir Stefán 54 kg 108 fótl 33 ómv 4,3 ómf 5 lag 8 8,5 9 9,5 9 18,5 8 8 8,5 87 stig. ![]() Hér er mynd af honum. ![]() Hér má sjá hvitu hyrndu hrútana fyrir vestan girðingu. ![]() Og hér eru fleiri í þeim hóp. ![]() Þessi ungi framtíðarbóndi og ef ekki ráðanautur gaf dómurunum ekkert eftir í að skoða hrútana. Þetta er hann Baldur sonur Arnars og Elísabetu Kálfárvöllum. ![]() Þessir fjórir voru í uppröðun ásamt Sigga hrút sem er Saum sonur. ![]() Hér er hann á endanum sem Eyberg heldur í . Sem sagt það var hérna vestan girðingar voru 5 í uppröðun og það var frá Heiðu á Gaul, Arnari á Kálfárvöllum, Fáskrúðabakka og ég veit ekki alveg hver hinn er. ![]() Flottur Kölska sonur frá Arnari og Elísarbetu Kálfárvöllum. ![]() Þessi var í uppröðun líka og er frá Fáskrúðarbakka. Flottur hrútur. ![]() Þessi var gríðarlega fallegur hann er frá Heiðu á Gaul og er undan Kalda. ![]() Hvítu hyrndu sunnan girðingar. ![]() Hvítu hyrndu sunnan girðingar. ![]() Fimm efstu í uppröðun sunnan girðingar. Besti kollótti hrúturinn 2016 var frá Dalsmynni. Faðir Stöðvar 54 kg 107 fótl 33 ómv 5,4 ómf 4,5 lag 8 8,5 8,5 9 8,5 18 9 8 8,5 alls 86 stig ![]() Hér er hann mjög fallegur hrútur frá Dalsmynni. Í öðru sæti var hrútur frá Bjarnarhöfn. Faðir Deddi 54 kg 110 fótl 30 ómv 4,8 ómf 4,5 lag 8 9 9 9 9 18,5 8,5 8 8 alls 87 stig. Í þriðja sæti var hrútur frá Hraunhálsi. Faðir Kópur 44 kg 107 fótl 34 ómv 3,5 ómf 4 lag 8 9 9 9 9 18,5 7,5 8 8 alls 86 stig. ![]() Kollóttu fyrir vestan girðingu á Gaul. ![]() Fimm efstu í uppröðun vestan girðingar. 1 frá Eyberg og Laugu Hraunhálsi. 3 frá Hjarðafelli og einn frá Bjarnarhöfn. ![]() Litli Baldur var orðinn ansi þreyttur á Gaul í restina og fékk sér smá lúr hjá afa sínum. ![]() Kollóttu hrútarnir í uppröðun sunnan girðingar þeir voru alls 4 til keppni þar. Þrír frá Ásbyrni og Helgu og einn frá Dalsmynni. ![]() Þessi unga dama var yngsti bóndinn á sýningunni og stal alveg senunni með fallega brosinu og gleðinni sem geislaði af henni á Haukatungu seinni hluta sýningarinnar. Besti misliti lambhrútur 2016 var frá Haukatungu Syðri 2. Faðir Kúði 39 kg 106 fótl 32 ómv 2,0 ómf 5 lag 8 8,5 9 9,5 9 19 8 8 8,5 alls 87,5 stig ![]() Hér er hann besti misliti lambhrúturinn 2016 frá Helgu og Ásbyrni Haukatungu Syðri 2. í öðru sæti var svarflekkóttur hrútur frá Eggjarti á Hofstöðum. Faðir Slutti 54 kg 112 fótl 35 ómv 3,3 ómf 4 lag 8 9 8,5 9 9,5 19 7,5 8 8,5 alls 87 stig Í þriðja sæti var hrútur frá Hraunhálsi sem Ásbjörn keypti af þeim. Faðir Kópur 45 kg 107 fótl 30 ómv 4,5 ómf 4 lag 8 9 9 9 9,5 18 8,5 8 8 alls 87 stig. ![]() Hér er sá sem var í þriðja sæti en ég náði ekki mynd af öðru sætinu. ![]() Hérna sést í flekkótta hrútinn sem var í öðru sæti ásamt hinum mislitu vestan girðingar. ![]() Allar útgáfur af litum. ![]() Skemmtilega margir mislitir þeir voru 17 vestan girðingar. ![]() Hérna eru 5 í uppröðun vestan girðingar. Svarflekkóttur frá Hofstöðum, Svartur frá Óttari Blómsturvöllum. Botnugolsóttur frá Mávahlíð. Svartur frá Fáskrúðabakka og svartur frá Laugu Hraunhálsi. ![]() Hér er svo mynd af honum botnugolsa mínum. ![]() Mislitu sunnan girðingar. Þeir voru alls 5. Þrír frá Ásbyrni og einn frá Hraunhálsi og einn frá Kristbyrni. ![]() Flottir hrútar hér á ferð. ![]() Eyberg og Lauga komu með skemmtilegan grip í keppni með mislitu hrútunum en það var ferhyrndur hrútur sem þið sjáið hér. ![]() Vígalegur hrútur hér hjá þeim. ![]() Aðeins meiri nærmynd af honum. Það voru svo einnig veitt verðlaun fyrir afurðarhæðstu 5 vetra ærnar. Í fyrsta sæti var ær nr 11-194 frá Hjarðarfelli með 114 í einkunn. Gerð 104 fita 116 frjósemi 110 Mjólkurlagni 110 Móðir Stólpa sem vann héraðssýningu 2013 og verður á sæðingarstöð næsta vetur. Í öðru sæti var ær nr 11-301 frá Mýrdal með 113,8 í einkunn. Gerð 93 fita 112 frjósemi 121 Mjólkurlagni 118. Er undan Kára heimahrút sem var undan Kalda 03-989. Í þriðja sæti var ær nr 11-302 frá Mýrdal með 113,2 í einkunn. Gerð 102 fita 107 frjósemi 114 Mjólkurlagni 121. Er líka undan Kára heimahrút undan Kalda 03-989. ![]() Hér eru þau vinningshafarnir fyrir afurðarhæðstu 5 vetra ærnar. ![]() Hér er Ragnar á Kverná, Óttar Blómsturvöllum og Hallur á Naustum. ![]() Elísabet með Bald sem var svo duglegur að mæta á báðar sýningarnar og var svo áhugasamur en leiddist að bíða eftir úrslitum og fékk sér lúr á báðum sýningunum enda erfitt að vera svona lítill og vaka allann daginn. ![]() Hér var hann Baldur í röð með mömmu sinni að fara skoða hrútana. ![]() Svona endaði svo kvöldið hjá litla bóndanum alveg búin á því búnað dæma í allann dag. Það verður spennandi að fylgjast með honum í framtíðinni hann verður örugglega án efa stórkostlegur fjárbóndi. ![]() Þessar mæðgur Hildur og Elva frá Hellissandi fylgdust spenntar með. ![]() Mamma mætti með stelpurnar mínar að sjá hrútana á Gaul. ![]() Stelpurnar skemmtu sér vel við að búa til engla í hlöðunni á Gaul. Hér er Sveina dóttir Hlédísar og vínkona hennar. ![]() Kristinn bæjarstjóri kom og kíkti en aðeins of seint þá var sýningin búinn á Gaul en hann náði þó spjalli við Lárus. ![]() Hér er Ásbjörn að veita Helgu verðlaunin fyrir besta mislita hrútinn 2016. ![]() Hér veitir Lárus svo Ásbyrni Farandsskjöldinn fyrir besta lambhrút Snæfellinga 2016. ![]() Hér eru þau hjónin Ásbjörn og Helga Haukatungu Syðri 2 með skjöldinn. Ég óska þeim innilega til hamingju með alla flottu hrútana sína og öllum hinum verðlaunahöfunum. Takk fyrir frábæra sýningu og skemmtilegan dag. Það eru svo fleiri myndir sýningunni hér inn í albúmi. 10.10.2016 12:06Sláturmat og Kaupferð í Hraunháls.Jæja þá er komið af erfiðasta kaflanum í sauðfjárræktinni og finnst mér það vera slátrunin sérstaklega þegar þarf að kveðja gamlar og ungar ær sem verða ónýtar. Að þessu sinni verður sárast að kveðja hana Huldu okkar sem er svo rosalega sterkur karekter í húsunum hjá okkur. Emil á hana og það er alveg magnað að sjá þegar hann kallar á hana og hún kemur hlaupandi til hans í von um að fá brauðbita. Hún er sem sagt ein af þessum kindum sem eru mikið fyrir brauð nema hún er alveg ótrúlega nösk að finna þegar maður er með það og má ekki heyra smá skrjáf þá er hún komin eins og píla með tunguna lengst út. Jæja en nú er það mál komið að hún kviðslitnaði í vor og hefur ekki verið að fóðrast eins vel og hún ætti að gera svo eitthvað meira er að hrjá hana. ![]() Hér er hún uppáhaldið hans Emils það verður ekki eins að koma í húsin í vetur þegar vantar hana Hullu hans hennar verður sárt saknað Þær voru tvær sem drápust í sumar það voru Rósalind og Kría. Við þær bætast svo þessar sem verða slátraðar núna og það eru Hulda, Kápa, Líf, Skálmöld, Búkolla Gaga og Draumarós. Ég var svo heppin að Freyja, Bói og Bárður sáu um slátrunina fyrir mig og ég fékk að sleppa því að vera viðstödd þegar þær fóru og þakka ég þeim óendalega mikið fyrir það því mér finnst þetta svo erfitt þegar það eru svona fullorðnar kindur sem maður er búnað mynda svo mikil tengsl við. ![]() Dóra mín átti að fara líka hún er einspena fékk júgurbólgu í fyrra sem hefur ekki náð að lagast og var hún komin í sláturhópinn en ég sleppti henni út og ákvað að gefa henni eitt ár í viðbót ég held svo rosalega mikið upp á þessa kind enda er þetta fyrsta kindin hans Benónýs sem Bárður og Dóra gáfu mér þegar hann fæddist. Af 122 lömbum voru 17 slátruð heima. 23 voru seld til lífs. 16 gimbrar verða settar á plús ein sem ég keypti af Gumma Óla. 2 Hrútar verða settir á og einn keyptur alls 3 en með Sigga verða 6 lambhrútar á Samvirkjubúinu okkar í Tungu í vetur. 64 lömb fóru í sláturhús og var gerðin 10,25 meðalvigt 19,71 og meðalfita 7,86 Hjá Sigga fóru 33 lömb í sláturhús gerð 10,64 meðalvit 19,38 og meðalfita 8,06 Hjá Jóhönnu fóru 10 lömb gerðin var 10,1 meðalvigt 21,07 meðalfita 8,8 Það var svo að koma víða vel út sláturmatið. Hjá Gumma Óla Ólafsvík var gerðin 11 meðalvigt 22,4 og meðalfita 8,53 af 15 lömbum. Hjá Óttari á Kjalveg var gerðin 11,6 meðalvigt 20 og meðalfita 9 af 30 lömbum ![]() Embla og Freydís komu með okkur í kaupleiðangur í Hraunháls og voru mest hrifnar af ferhyrnda fénu. ![]() Hér er einn glæsilegur sem þær voru mjög hrifnar af. ![]() Ég á eftir að taka betri mynd en þessi hvíti lambhrútur er nýji kollótti hrúturinn okkar. Hann er með 18 í læri og er 84,5 stig. Hann á móflekkótta móður sem ég var alveg dáleidd af. Faðir hans er Magni sem er frá sæðingarstöð. ![]() Þetta er móðirin sem er við jötuna gríðalega stór og falleg kind. Það verður spennandi að nota þennan hrút í vetur og sjá hvort við fáum móflekkótt. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessu. Ég minni svo á þessa auglýsingu Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi 2016 Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi verður haldin laugardaginn 15. okt 2016.
Við viljum hvetja sauðfjárræktendur að mæta með sína gripi á sýninguna og taka þátt í uppskeruhátíð sauðfjáræktenda á Snæfellsnesi. Nefndin Reglur vegna lambhrútasýningar Snæfellsnesi 30.09.2016 08:55Hrútasýning veturgamla 2016Hrútasýning veturgamla fór fram seinast liðinn föstudag á Hömrum Grundarfirði og Bárður og Dóra lánuðu fjárhúsin þar fyrir hrútasýninguna. Aðstaðan var frábær hjá þeim og Dóra gerði fyrir okkur gúllassúpu sem naut mikilla vinsælda á sýningunni einnig voru skúffukökur í boði og fleiri kræsingar sem stjórnin kom með og Laufey hans Óla. Eyjólfur Ingi og Torfi Bergsson komu og dæmdu hjá okkur hrútana. Það voru alls 22 hrútar sem mættu á sýningu en aðeins færra var af fólki en hefur verið en þetta var fámennt en góðmennt. Glæsileg sýning og fór mjög afslappað fram. Það var frábrugðið núna að hrútarnir voru vigtaðir og dæmdir og svo var farið bara beint í uppröðun og úrslit. Siðan var gætt sér á ljúffengu súpunni hjá Dóru og brauði og bakkelsi. Þegar allir voru búnir að því var verðlauna afhending og svo sýningu lokið. ![]() Hér má sjá mælingu á hrútunum. ![]() Af hvítu hyrndu hrútunum voru 5 í uppröðun. ![]() 2 frá Mýrum, 2 frá Mávahlíð og 1 frá Tungu. Siðan stóðu eftir 3 efstu sem voru einn frá Mávahlíð, einn frá Mýrum og einn frá Tungu. ![]() Þetta eru farandsbikararnir sem eru varðveittir í ár hjá næstu eigendum. ![]() Hér er ég svo með vinningshafann í hvítu hyrndu nr 15-001 Ísak Tvinna sonur og Mjallhvítar. Tvinni er Saum sonur og Mjallhvít er undan heimaær og Storm Kveiksyni. ![]() Ísak 15-001 frá Mávahlíð. Hann var 105 kg fótl 119 ómv 38 ómf 3,4 lag 4 8 haus 9 H+h 9 B+útl 9 Bak 9,5 malir 19 læri 8,5 ull 8 fætur 8,5 samr. Alls 88,5 stig. Í öðru sæti var hrútur nr 15-688 frá Mýrum undan Vind og Ljónu. Hann var 93 kg fótl 125 ómv 38 æinf 5,1 lag 4 8 haus 8 H+h 8,5 B+útl 9 Bak 9 malir 19 læri 7,5 ull 8 fætur 8,5 samr. Alls 85,5 stig. Í þriðja sæti var Drjóli nr 15-450 frá Sigga í Tungu undan Soffíu og Hæng. Hann var 115 kg fótl 122 ómv 39 ómf 7 lag 4 8 haus 9 H+h 9 B+útl 9 Bak 9 malir 18,5 læri 8 ull 8 fætur 9 samr. Alls 87,5 stig. Í fjórða sæti var Mávur frá Mávahlíð nr 15-002 undan Blika og Dröfn. Hann var 98 kg fótl 124 34 ómv 5,7 ómf 4 lag 8 haus 8,5 H+h 9 B+útl 8,5 Bak 9 malir 18 læri 8,5 ull 8 fætur 8,5 samr. Alls 86 stig. Í fimmta sæti var hrútur nr 15-689 frá Mýrum undan Botnu og Prúð. Hann var 98 kg fótl 123 ómv 34 ómf 7 lag 4 8 haus 8,5 H+h 9 B+útl 8,5 Bak 9 malir 18,5 læri 8 ull 8 fætur 8 samr. Alls 85,5 stig. ![]() Í kollótta flokknum voru þrír í uppröðun frá Friðgeiri á Knörr, Gunnari á Kolgröfum og Ingibjörgu og Valgeiri Grundarfirði. ![]() Gunnar á Kolgröfum með hrút nr 15-081 sem er vinningshafi kollóttra 2016. ![]() Hann var 87 kg fótl 115 ómv 33 ómf 6,9 lag 4 8 haus 8 H+h 8,5 B+útl 8,5 Bak 9 malir 18,5 læri 8,5 ull 8 fætur 8 samr. Alls 85 stig. Í öðru sæti var hrútur nr 15-721 undan Breka og Kápu frá Ingibjörgu og Valgeiri Grundarfirði. Hann var 74 kg fótl 120 ómv 31 ómf 4,7 lag 4 8 haus 8 H+h 8,5 B+útl 8,5 Bak 9 malir 18 læri 8,5 ull 8 fætur 8 samr. Alls 84,5 stig. Í þriðja sæti var hrútur nr 15-377 móðir 12-894 og faðir 08-361 frá Friðgeiri á Knörr. Hann var 97 kg fótl 124 ómv 35 ómf 6 lag 4 8 haus 8 H+h 8,5 B+útl 8,5 Bak 8,5 malir 17,5 læri 8 ull 8 fætur 7,5 samr. alls 82,5 stig ![]() Í mislita flokknum voru líka þrír í uppröðun og voru frá okkur Mávahlíð, Ingibjörgu og Valgeiri Grundarfirði og Friðgeiri á Knörr. ![]() Hér er ég með Zorró 15-003 undan Glaum og Feikirófu. Glaumur er Topps sonur og undan Gloppu hans Sigga í Tungu. Feikirófa er undan Mýslu frá Mávahlíð og Negra sem var í eigu Bárðar og var undan At. ![]() Gleymdi að taka mynd af honum á sýningunni en hér er hann í ágúst. Þetta er sem sagt besti misliti veturgamli hrúturinn 2016 hjá Búa. Hann var 90 kg fótl 114 ómv 37 ómf 6,4 lag 4 8 haus 9 H+h 9 B+útl 9 Bak 9 malir 18,5 læri 8 ull 8 fætur 8,5 samr. Alls 87 stig. Í öðru sæti var hrútur frá Ingibjörgu og Valgeiri undan Móra 14-723 og Úllu 11-037. Hann var 78 kg fótl 120 ómv 31 ómf 3,2 lag 4 8 haus 8,5 H+h 8,5 B+útl 8,5 Bak 9 malir 18 læri 8 ull 8 fætur 8 samr. Alls 84,5 stig. Í þriðja sæti var hrútur frá Friðgeiri á Knörr nr 15-376 faðir 08-361 og móðir 10-753 Hann var 92 kg fótl 120 ómv 30 ómf 6,3 lag 4 8 haus 8,5 H+h 9 B+útl 8,5 Bak 8,5 malir 17,5 læri 8 ull 8 fætur 8 samr. Alls 84 stig. Þá er þetta upptalið og ég þakka enn og aftur Dóru og Bárði fyrir að leyfa okkur að halda sýninguna hjá þeim og fyrir alla aðstoðina í kringum allt saman. ![]() Þessi fallegi hrútur er frá Önnu Dóru og Jón Bjarna og Bárður var að fá hann hjá þeim. Hann er undan veturgömlum hrút hjá þeim sem er Hæng sonur og undan Hriflu minni og hann keypti hann hjá mér í fyrra. Móðirin er Topps dóttir frá Bergi. ![]() Bárður setur hann á og ég ætla fá að koma með einhverjar ær í hann mér finnst hann svo svakalega fallega flekkóttur. Hann var stigaður upp á 85 stig og er með 18,5 í læri. 28 ómv 3,3 ómf 4 lag 113 fótl 8 haus 8,5 H+h 8,5 B+útl 8 Bak 9 malir 18,5 læri 8 ull 8 fætur 8,5 samr. Alls 85 stig. ![]() Mynd frá stigun hjá Guðmundi Ólafs Ólafsvík. Ekkert smá flott fjárhús hjá honum og ég er alveg að fíla þessa miklu litadýrð hjá honum. ![]() Hjá Gumma gimbranar hans. ![]() Hrútarnir hans. ![]() Hér er fallega grábotnótta gimbrin sem ég festi mér hjá honum. Hún er 55 kg ómv 31 ómf 4 lag 4 framp 8,5 læri 18 og ull 8. Systir hennar á móti setur Gummi á og hún er gráflekkótt með 33 ómv 9,5 framp og 19 í læri. ![]() Hér er verið að stiga hjá Óla í Lambafelli og Torfi er mælingarmaður. ![]() Verið að skoða í lambafelli og hér eru Marteinn , Óli og Óskar að hjálpast að og Eyjólfur og Torfi að skoða. Gummi er ritari. ![]() Flottar gimbrar hjá Óla þessi gráa og mórauða kollótta voru með 18 í læri. ![]() Hér var svo verið að stiga á Hömrum hjá Bárði og Dóru. Ég var nefnilega ekki búnað setja þessar myndir inn þegar ég var að blogga seinast svo ég vildi láta þær fylgja núna. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi. Flettingar í dag: 3248 Gestir í dag: 8 Flettingar í gær: 6914 Gestir í gær: 37 Samtals flettingar: 1402440 Samtals gestir: 75232 Tölur uppfærðar: 15.2.2025 15:02:07 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is