Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
24.07.2016 00:33Ferð til Akureyrar í júní![]() Kjarnaskógur á Akureyri svo fallegur staður. Við fórum norður í viku í verkalýðsíbúð og áttum frábæra viku. Það var auðvitað farið í sund á hverjum degi á nýjum stöðum og ýmislegt fleira. ![]() Krílinn okkar að verða svo stór. ![]() Benóný 6 ára. Embla 5 ára og Freyja 3 ára. Benóný verður 7 ára í haust og Freyja 4 ára. ![]() Freyja Naómí. ![]() Embla Marína og Benóný Ísak. ![]() Já og alveg rétt það er svo langt síðan að ég bloggaði seinast. Við keyptum okkur loksins nýjan bíl eftir sauðburðinn Pajero. Við erum mjög ánægð með hann og krakkarnir líka nú sitja þeir svo hátt uppi og sjá vel út og plús hann er 7 manna svo ef þau eru að rífast þá er hægt að stía þau af og setja eitt aftur í he he. ![]() Við fórum í heimsókn til Birgittu og Þórðar á Möðruvöllum. Það er í þriðja sinn sem við heimsækjum þau þegar við erum fyrir norðan og það er alltaf jafn yndislegt og mikið ævintýri að koma til þeirra. Krakkarnir okkar voru alveg í essinu sínu enda nóg fyrir stafni í sveitinni þau fengu að prófa fjórhjól og skoða öll dýrin. Við borðuðum svo hjá þeim og horfðum á leikinn í EM alveg frábær dagur hjá okkur. ![]() Þau voru meira segja svo heppin að það var mús sem Máni strákur sem er hjá Þórði og Birgittu veiddi mús og hún gaut í fötu hjá þeim 7 ungum. ![]() Hér er Embla að halda á einum. ![]() Þau fengu að gefa heimalingunum þvílíkt stuð. ![]() Ég fékk að leika mér líka og prófa fjórhjólið. Það eru svo fleiri myndir af þessu ævintýri okkar hér inn í albúmi. 08.06.2016 12:46Lömbin hjá Óttari á Kjalvegi.![]() Ég fór til hans Óttars um daginn til að skoða og taka myndir af lömbunum. Hann steig út úr bílnum og kallaði á þær og þá komu þær hlaupandi til hans. Svo indælt að sjá. ![]() Þetta er þrílemba hjá honum og gengur með sín þrjú undir annars var vanið undan hinum þrílembunum hans og ganga þær með 2. ![]() Fallegar kindur hjá honum. ![]() Hér er ein með hvít og væn lömb. ![]() Fallegir litir. ![]() Hér er hópurinn að nálgast okkur. ![]() Hér er einn kynbóta hrútur á ferð sýnist mér. Rosalega þykkur og flottur. ![]() Skemmtilegt að sjá allar þessar útgáfur af litum. ![]() Þessi er í miklu uppáhaldi hjá mér, mér finnst hún svo falleg þessi kind. ![]() Hér er svo ein með svört lömb. ![]() Þessi gemlingur er í eigu Kristins Bæjarstjóra. ![]() Stórir og vænir gemlingar hjá honum. ![]() Hér er svo verið að bera á hjá honum. Þórsi og Jói hér að setja á áburðar dreifarann. Það eru svo fleiri myndir af rollunum hjá Óttari hér inn í albúmi. 08.06.2016 12:23Sauðburði lauk 1 júní.![]() Það var hún Lukka gemligur sem lokaði sauðburði í ár og hin gemlingurinn sem var með henni er geld en var sónuð með lambi svo hún hefur látið. Lukka lokaði sauðburði með þessari hvítu gimbur undan Drjóla Hæng syni frá Sigga í Tungu. ![]() Benóný lét undan mömmu sinni stundum og hafði gaman af að koma og halda á lambi. ![]() Fíóna með svarta sinn sem var fótbrotinn og spelkaður og hér er búið að taka af honum og það hefur tekist mjög vel því hann er góður sem aldrei fyrr og hleypur um allt. ![]() Þessar skvísur voru 66 ára 18 maí. Hulda Maggý og Hafdís Auður tvíburasystur. ![]() Flotti strákurinn okkar hann Benóný Ísak hefur nú klárað 1. Bekk. ![]() Seinustu ærnar komnar út Hexía og Lukka gemlingar. ![]() Gæf hún Lukka hennar Jóhönnu að koma og gæða sér á köku hjá stelpunum. ![]() Eldey gemlingur með fallega dökkmórauðann hrút undan Styrmi. ![]() Dúfa með hrútana sína undan Skara. ![]() Gimbur undan Huldu og Krapa. ![]() Embla að klappa Dúfu. Þær héldu sig allar inn í Mávahlíð í skjóli við húsið um daginn í ógeðslega veðrinu. Það var svo hífandi rok og rigning í langt um 4 daga samfleytt. Ég hef ekki séð neitt vanta nema kanski einn tvílembing undan gemling sem hefur ábyggilega tapast í veður ofsanum annað hvort í fyrra rokinu eða seinna sem kom svo vikuna eftir en varði bara í 2 daga. Jæja nú erum við komin í sumarfrí og við tekur að taka rúnt á hverjum degi og fylgjast með að lömbin og kindurnar séu ekki á veginum og auðvitað á eftir að þrífa fjárhúsin líka og taka til þar. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessu. 08.06.2016 12:15Lömb hjá Gumma Óla![]() Fór í heimsókn til Gumma í Maí og það er sko vel litadýrð hjá honum. Þessi ær á þessi 3 flekkóttu lömb. ![]() Gaman að skoða svona flottan hóp. ![]() Þessi heitir Hlíð og er í eigu Þurý og hún var fjórlembd og þau lifðu öll. Þau eru öll jöfn og fín stærð á þeim Gummi er nýbúnað taka eitt undan henni svo hún er með þrjú núna. ![]() Það eru svo fleiri myndir frá þessu hér inn í albúmi. 29.05.2016 23:09Sauðburði alveg að ljúka![]() Við erum aldeilis búnað fá að kenna á því með rigningu og roki alla seinsustu viku. Hér er Ljósbrá gemlingur með lambið sitt undan Máv. Við erum búnað taka rúnt núna á hverjum degi til að athuga hvort allar ær séu ekki örugglega með lömbin sín allavega þær sem við sjáum og hingað til höfum við ekki séð að það vanti neitt og vonandi helst það þannig. ![]() Framtíðar bóndakonan mín hún Embla að horfa á eftir kindunum fara til haga. ![]() Embla Marína að hjálpa okkur að reka út úr túninu. ![]() Hrifla og Dröfn tvær af mínum bestu kindum fengu með Máv og Ísak bestu lambhrútunum sem eru ættaðir í sitthvora kindina og því notaðir á víxl í þær svo það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því. Hrifla er með 2 hrúta undan Máv og Dröfn er með hrút og gimbur undan Ísak. ![]() Hnota hennar Jóhönnu með gimbur og hrút undan Zorró. Við fáum 12 lömb undan honum. ![]() Mírranda vígaleg með lömbin sín. ![]() Snædís með gimbur undan Ísak. Hrúturinn á móti drapst á burði. ![]() Það var borið á túnin seinustu helgi fyrir rigninguna miklu. ![]() Þessi eru öll afkvæmi undan Ísak. ![]() Djásn gemlingur með sin tvö undan Korra. ![]() Mjöll hans Sigga sónaðist með eitt en kom með 2 flotta hrúta svo nú eru rollurnar hjá honum allar með 2 og 3 ekkert smá flott. ![]() Vofa með fallega hosótta gimbur undan Korra. ![]() Hjá Sigga undan Ísak og Skessu. Held að þetta sé fyrsta sinn sem Siggi fær flekkótt og það gimbur. ![]() Þrílembingar undan Mjallhvíti sem er móðir Ísaks. Hrúturinn er stærstur og virkar mjög þykkur og stór ein gimbrin var vanin undir hjá Sigga svo Mjallhvít verður með 2 undir. Það verður gaman að sjá hvort þessi verði föðurbetrungur þó ólíklegt sé því það verður erfitt að toppa hann Ísak. ![]() Mórauðu lömbin hjá Sigga orðin mjög stór við tókum allt sem var inn í girðingu og hleyptum því inn meðan veður ofsinn gekk yfir. ![]() Þessi lokaði sauðburði hjá Sigga. ![]() Þessi bar næst seinust hjá Sigga og því miður hefur lambið ekki komist alveg á spena og bar engin merki um það svo við vorum ekkert að pæla í því og þegar Siggi tók eftir því var það sár svangt og hann gaf því pela og náði að láta það sjúga en daginn eftir var það svo steindautt hefur örugglega fengið slefsýki greyjið. Þetta var grá gimbur undan Ísak. ![]() Salka kom með þrjú golsótt undan Zorró og okkur tókst að venja eitt undan henni. Hún kom með 2 gimbrar og einn hrút. ![]() Freyja að klappa Hosu. ![]() Sauðburður hófst hjá mér og mun enda hjá mér því gemlingarnir gengu svolítið upp hjá okkur og fengu þeir sem gengu upp með Drjóla hans Sigga sem er Hæng sonur. Við fáum 9 lömb undan honum og vonandi 10 með þessari sem verður seinust að bera þetta vorið hjá okkur. Þetta er hún Lukka vínkona hennar Emblu. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. Látum nú þetta duga í bili. 29.05.2016 22:25Sauðburður í hámarki.![]() Vinsælt að sitja í hásætinu og halda á lömbunum. Hér er Margrét og Embla saman. ![]() Magga Lóa gemlingur með hrútinn sinn undan Mugison. ![]() Skrýtla með Saums afkvæmi. ![]() Soffía hans Sigga með mórauða gimbur hún kom einnig með mórauðan hrút og svo svart sem hefur verið nýdautt fyrir einhverjum dögum. Við fengum Styrmir mórauðan hrút hjá Eiríki Helgasyni lánaðan og Siggi fékk þessi lömb og við fengum 15 lömb 6 mórauða hrúta en aðeins eina mórauða gimbur en ég vona að einhver af þessum hrútum verði ásettningshæfur í haust. Þessi hjá Soffíu sem er hér á myndinni kemur sterklega til greina því hún er af mjög góðu kyni hjá Sigga. ![]() Alveg einstök kind hún Hrafna hún kippir sér sko ekkert við að krakkarnir séu hjá henni þó svo að hún sé borin enda er hún uppáhalds kindin þeirra. Þau hafa aðeins fengið að kynnast því hvað spakar rollur geta verið reiðar þegar þær eru komnar með lömb og voru ansi sár við þær he he. ![]() Benóný hefur ekki mikið gaman af því að fara með mér í fjárhúsin og er auðvitað kominn með myglu fyrir því núna he he en gleymir því þegar hann fær eitt lítið og sætt í fangið. ![]() Mátulegt fyrir Freyju til að halda á. ![]() Embla er án efa með rollu delluna frá mömmu sinni í húð og hár. Hún lifir fyrir að koma með mér í fjárhúsin þó svo að hún sé mjög skelkuð við rollurnar eftir að þær voru geðillar og ekki eins góðar við hana eftir burð. Hér er hún að passa lamb meðan við erum að venja annað undir og þetta er lambið sem hún bar, við tökum það frá og erum búnað maka hitt út í slími af belgnum og hellum volgu vatni yfir það og núna í ár hefur þetta ekki klikkað hjá okkur við létum sóna allt svo við vissum hverjar væru einlembdar svo það aðveldaði manni verkið. Svo vorum við svo heppin að tvær voru að bera á sama tíma önnur kom með annað úldið og hin var með þrjú svo við tókum þriðja lambið blautt og settum til hinnar og hún tók því um leið alveg snilld. ![]() Einn þrílembingur fótbrotnaði hjá okkur og hér er Siggi að seja á hann spelku. ![]() Sáttur og fínn kominn með spelku og hleypur um allt. Þetta eru þrílembingar undan Fíónu og hún kom með einn hvítan einn svartan og einn mórauðan þeir eru undan Styrmi. ![]() Grána hans Sigga var með þrjú undan Korra Garra syni og það er búið að venja eitt undan. ![]() Fallegu forrystu lömbin mín mókápótt gimbur Emil til mikilla gleði því auðvitað set ég hana á ef hún skilar sér af fjalli og já hún mun skila sér he he. Móbíldóttur hrútur á móti þau eru reyndar ekki hreinar forrystur því þau eru undan Mugison Soffa syninum mínum. ![]() Snotra hennar Jóhönnu með þrjú undan Skara. ![]() Seinasta myndin af honum Skara greyjinu. ![]() Sæðingur undan Grím. ![]() Lambakóngarnir stækka óðum. ![]() Alltaf mikil gleði hjá krökkunum að skoða lömbin hér eru Birgitta og Alexsander. ![]() Birgitta og Alexsander með Freyju ömmu. ![]() Svo æðislegt í sveitinni þau eru svo frjáls. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 29.05.2016 21:20Leikskóli og Grunnskóla heimsókn í fjárhúsinJæja það hefur ekki gefist nógur tími til að blogga á meðan sauðburði stóð en ég tók nóg af myndum sem segja meira en nokkur orð í bloggi. Af því sem lifði eru 72 lambhrútar og 55 gimbrar það jafnaðist út þegar leið á. Mér leist nefnilega ekkert á þetta fyrst það voru bara hrútar sem komu. Sauðburður gekk bara nokkuð vel nema að það voru nokkuð margar sem voru með annað lambið úldið eða dautt fóstur og þegar ég tók það saman voru það allt rollur sem voru í sömu kró og tvær rollur létu svo mín kenning er sú að þær hafi smitað eitthvað í hinar eða eitthvað. Það voru 5 úldin fóstur og eitt sem hafði drepist fyrir einhverjum dögum. 5 létust í burði 2 við afturfótafæðingu og hin vegna erfiðs burðar þau voru gríðalega stór og eitt drapst vegna þess að hyldirnar hafa losnað og hún var borin öðru lambinu og þegar við fórum að reyna ná í hitt var það að drukkna inn í henni og við vorum of sein að ná því. Það bættist ein þrílemba við sem var sónuð með 2 og úr því að svo margar komu með annað úldið fór engin þrílemba með 3 á fjall og eins hjá Sigga við gátum fóstrað fyrir hann líka. Hrúta ólánið virðist elta okkur því stuttu eftir að við slepptum hrútunum út fann ég veturgamla kollótta hrútinn okkar hann Skara dáinn. Svo núna er ég búnað sækja um leyfi til að kaupa mér fleiri. Siggi var nú að segja okkur svolítið sem ég tek merkan mark á að það sé álagablettur í Hrísum sem Emil teygði sig of langt á þegar hann var að slá í fyrra og held ég hreinast sagt að þar sé búnað segja okkur að hrúta tapið komi heim til sögunnar enda eru þetta 2 kollóttir hrútar fyrir kollótta stofninn hans Emils. Svo vonandi erum við búnað gjalda fyrir þetta núna. ![]() Bói gerði þessa frábæru græju fyrir rollurnar til að klippa á þeim klaufarnar og þær setjast bara eins og í hægindastól og festar með belti og svo snyrtar. ![]() Miklu þægilegra að skella þeim rólega í sætið og snyrta þær. ![]() Þau voru mjög þroskuð og stór fædd undan Ísak og mjallahvít en svo kom okkur mjög á óvart að hann gefur einnig mislit svartflekkótt og grátt. Við fengum 22 lömb undan Ísak og því miður hittist þannig á að öll þessi 5 sem létust í burði voru undan honum. Þetta eru mjög falleg lömb og með mikinn brjóstkassa það er áberandi hvað þau eru flott að framan og mikil svo vonandi verða þau það í haust, allavega verður spennandi að fylgjast með þeim dafna í sumar. ![]() Þota fékk með Máv sem er undan Blika og Dröfn. Við fáum 22 lömb undan honum. Jökulrós gemlingur hér með tvílembingana sína sem eru alveg gríðalega fallegir og eru undan Skara frá Bug sem lést hjá okkur nú um daginn. Hann fór á allar þessar kollóttu og þetta voru rosalega þroskuð og falleg lömb. Við fáum 13 lömb undan honum. 2 Kollóttar fengu með Krapa sæðishrút og þær eru báðar með eitt. ![]() Skoppa fékk með Korra Garra syni hans Sigga og hann er að gefa skemmtilega liti. Ég fékk flekkótt og hosótt undan honum. Við fáum 10 lömb undan honum. Ég fékk svo heimsókn frá Leikskólanum Krílakoti Ólafsvík sem ég var að vinna hjá áður en ég fór í sauðburðarfrí. Það var mjög gaman að fá svona mörg glöð andlit í heimsókn og Brynja frænka aðstoðaði mig við að rétta þeim lömb og fleira svo buðum við þeim upp á djús og nýbakaða snúða sem Jóhanna frænka Emils var svo góð að gera fyrir mig. ![]() Hér eru þau svo í hlöðunni að taka fyrir okkur smá söngstund og gæða sér á snúðum og djús. ![]() 1. Bekkur úr Grunnskóla Snæfellsbæjar kom líka í heimsókn til okkar sem sagt bekkurinn hans Benónýs og það var mjög gaman að fá þau í heimsókn og Brynja aðstoðaði mig einnig við það og þau fengu svo ís áður en þau fóru heim rosa stuð. Það eru svo fleiri myndir af þessu öllu saman hér inn í albúmi. 04.05.2016 23:46Sauðburður byrjar 2016Jæja þá er biðin á enda og sauðburður hafinn. Hann hófst meira segja á meðan við vorum en úti á Tenerife og Siggi sá um að taka á móti Eik sem kom með tvo mórauða hrúta aðeins fyrir tal. Við komum heim 27 apríl og þá var ein að bera hjá Jóhönnu svo við fórum bara strax upp í fjárhús með fullan bíl af töskum og allir en í sumarfötum. Það var auðvitað skíta kuldi upp í fjárhúsum og krakkarnir farnir að kvarta yfir kulda en samt mjög spennt að sjá lömbin. Siggi var svo fljótlega kominn heim úr vinnu og aðstoðaði mig að hjálpa Feikirófu sem var að bera og það var mjög stór hrútur sem var mikil átök að ná út. Feikirófa var með 2 lömb en annað hefur verið löngu dautt og þess vegna var hitt alveg risa stórt. ![]() Ég var að vona að ég fengi móbotnótta gimbur en fékk bara 2 mórauða hrúta. ![]() Feikirófa með hrútinn sinn undan Styrmi frá Eiríki. ![]() hjá okkur að þær séu að bera fyrir tímann. Hún kom með mórauðan og móbotnóttan hrút það er allt hrútar sem koma núna hjá okkur. Þessi litlu kríli þurfti að hita og þurrka með hárblásara til að koma þeim á lappir og eftir smá klukkutíma þolinmæðisvinnu komust þeir á ról og á spena. ![]() Þessi var sædd með Kalda í þeirri meiningu að hún kæmi með golsótta gimbur en nei en var það hrútur. Þetta var stærðar gemlingslamb hjá henni og fyndið að sjá muninn á þessum og litlu krílunum hjá Kviku hér fyrir ofan. ![]() Hrútarnir horn skelltir og klauf snyrtir. ![]() Ísak fyrir horntöku hann er alveg leiðinlega náhyrndur. ![]() Og hér er hann eftir horntöku. ![]() Hrútunum sleppt út á tún hjá Sigga og auðvitað tóku þeir smá slagsmál. ![]() Og meiri slagsmál. ![]() Það var sko fjör að kíkja í fjárhúsin hjá Bárði og Dóru á Hömrum og fara í kara róluna. ![]() Bárður með flotta þrílembinga undan tvævettlu. Jæja vildi bara setja smá hérna inn en þetta er bara rétt að byrja hjá okkur og byrjar sem hrúta ár því það eru komnir 13 hrútar og 4 gimbrar. Það eru svo fleiri lambamyndir og af lömbunum hjá Bárði hér inn í albúmi 04.05.2016 20:16Hesthúsin og undirbúningur fyrir sauðburðJæja þetta átti að vera löngu komið inn en það er bara alltaf þetta blessaða tímaleysi hjá manni að komast í hlutina en allavega þá kemur þetta núna. ![]() Sætar frænkur að hjálpa í hesthúsunum. ![]() Svo mikið stuð. Embla Marína og Margrét Arnbjörg. ![]() Það er ekki beint vorlegt en svo kalt hjá okkur þetta var í byrjun apríl. ![]() Flottir feðgar að prófa bátinn hans Benónýs sem hann fékk í jólagjöf frá Jóhönnu og ömmu Freyju og afa Bóa. Það er samt heldur mikill bræla fyrir þennan bát í dag. ![]() Freyja á hestbaki á Blær rosalega montin. ![]() Embla alsæl á Blær hún er svo mikil hestastelpa. ![]() Hér er Siggi og Emil að setja nýtt á eina stíuna fyrir sauðburð. ![]() Verið að leggja loka hönd á þetta. ![]() Verið að sprauta seinni sprautuna fyrir sauðburð. ![]() Fróði Stera sonur lést úr Barkabólgu eða einhverri lungnabólgu hjá okkur í apríl. Ég notaði hann ekkert í ár heldur lánaði hann til Óla Tryggva svo ég fæ engin lömb frá honum í ár. Við eigum einn gemling undan honum sem er alveg rosalega stór og flott og hún er sónuð með 2 lömb. Svo þetta hrúta basl ætlar aldeilis að dvína á okkur í vetur en er vonandi komið gott núna. ![]() Við héldum Aðalfund hjá Búa áður en ég fór út og við áttum þar 3 stigahæðstu lambhrútana og hér er ég með verðlaunaskjölin fyrir þá. Þið getið lesið um fundinn hér inn á 123.is/bui Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi. 29.03.2016 23:19Gleðilega Páska![]() Hér eru krúttin okkar búnað finna páskaeggin sín. ![]() Embla afmælis stelpa vildi bara fá að koma í fjárhúsin á afmælis daginn og hitta hana Hröfnu sína sem er allveg einstök kind hún leyfir Emblu að sitja á sér og knúsa sig. Svo þegar Embla kemur í fjárhúsin kemur Hrafna hlaupandi til hennar og eltir hana um krónna ef Embla er með mér að sópa. ![]() Bestu vínkonurnar. ![]() Hulda mamma lukkuleg með strákana sína Steina barnabarn og Magga son sinn. Steini borðaði með okkur um páskana því Maja systir,Óli og Karítas eru í Flórída. ![]() Embla að klappa Drjóla Hæng syninum hans Sigga. ![]() Embla að klappa gemlingunum hjá Sigga. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi. 29.03.2016 21:24Embla Marína 5 ára![]() Flotta stúlkan okkar hún Embla er orðin 5 ára. Hún er svo frábær í alla staði. Mikil sveita stelpa og elskar að fá að fara í fjárhúsin og hesthúsin með mömmu sinni. Helstu leikföng hennar eru líka hestar og fara í feluleik finnst henni mjög gaman. ![]() Kakan hennar var keypt í Okkar bakarí og auðvitað valdi hún hestaköku. ![]() Að opna pakkana. ![]() Svo gaman að fá Emelíu frænku í afmælið. ![]() Flotta prinsessan búnað fá glingur og geimsteina í andlitið og kórónu allveg alsæl með gjöfina sína frá Sigga í Tungu. Það eru svo fleiri myndir af þessu hérna inn í albúmi. 29.03.2016 20:57Árshátíð hjá Benóný Ísak,sumarbústaðaferð og fleira![]() Fyrsta Árshátíð hjá Benóný hjá 1. bekk. Þau voru með Línu Langsokk söngleik. Rosalega flott hjá þeim. Benóný var með eina settningu og tókst vel með það. Við erum svo ótrúlega stolt af honum. ![]() Sumarbústaðaferð í Ölfusborgir eina helgina með Steinari,Unni og krökkunum. Við skelltum okkur suður eina helgi og fengum ekki íbúð en gátum fengið bústað svo við skelltum okkur á það og það var mjög gaman. Við fórum upp í Hvalfjörð í útskriftar veislu hjá Erlu hans Magga. Það var rosalega fínt og þvílíkar kræsingar eins og Erlu er lagið. ![]() Sætar frænkur Birgitta, Freyja og Embla. ![]() Gaman að lita. ![]() Kósý í pottinum. ![]() Sæti prinsinn hann Alexander Ísar sonur Steinars og Unnar. ![]() Benóný vann páskaegg á bingói rosalega glaður. ![]() Hér eru gemlingarnir. Þeir dafna mjög vel. ![]() Dugleg að hjálpa mömmu sinni í hesthúsunum. Það eru svo fleiri myndir af þessu öllu saman hér inn í albúmi. 02.03.2016 21:47Seinni rúningur![]() Gummi kom til okkar nú í seinustu viku og tók af seinni rúninginn. ![]() Allt á fullu. ![]() Dóra skemmtilega doppótt eftir klippinguna. ![]() Draumarós líka doppótt. ![]() Lambhrútarnir fyrir rúning. Farið að losna vel af þeim. ![]() Hér eru svo prinsarnir nýrúnir . Skari sá kollótti, Ísak Tvinna sonur, Zorró Glaum sonur fyrir aftan Drjóli Hæng sonur og svo Mávur Blika sonur. ![]() Ég varð svo að láta eina svona læra mynd fylgja hér. Drjóli Hæng sonur frá Sigga, Zorró Glaum sonur, Skari ættaður frá Óskari í Bug kollóttur, Mávur Blika sonur, Ísak Tvinna sonur . Jæja næsta verkefni má segja að verði svo að klaufsnyrta ærnar og svo bara bíða í örvæntingu eftir að fara til Tenerife og koma svo beint heim í sauðburð. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi 02.03.2016 21:23Sleðaferð í Mávahlíð og Krakkahöllin í KorputorgiÞað er fátt eins gaman eins og að fara inn í Mávahlíð í blíðskapar veðri og gera eitthvað skemmtilegt í þessu æðislega umhverfi sem ég elska svo mikið. Það er eitthvað við æskuslóðir manns sem bindur mann svo sterkum böndum að maður bara getur ekki sleppt því. Ég nýt því þess að leyfa börnunum að kynnast því á meðan við eigum þennan fallega stað enn þá. ![]() Benóný og stelpurnar að renna inn í Mávahlíð. ![]() Embla á fullri ferð. ![]() Freyja svo glöð að það skín úr andlitinu á henni. ![]() Svo æðisleg gullmolarnir okkar í sveitinni að fara renna í snjóhúsa rennibrautinni sem ég bjó til fyrir þau. ![]() Svo gaman þegar veðrið er svona milt og gott. Við erum búnað fá svo góðan vetur þetta árið það er mikill snjór og oftast nær gott veður. Við fórum svo suður í dagsferð með krakkana og fórum með þau í krakkahöllina í Korputorgi sem er allveg æðisleg paradís fyrir börn. Því næst var farið í Kringluna að borða og svo endað daginn á því að fara í Bíó. ![]() Það var svo sannarlega þess virði að fara suður og sjá þessa miklu gleði sem skín úr andlitunum á krökkunum þegar þau fá útrás í þessum köstulum. ![]() Embla Marína. ![]() Víi svo gaman....... ![]() Þessi ofurkastali er já svona skuggalega hár eins og hann virðist og það er mesta furða að þau fóru öll í hann eins og ekkert væri og komu á fleygiferð niður meira segja Freyja litla hún allveg týnist þarna við að láta sig hafa það að klifra upp. Það eru svo fleiri myndir inn í albúmi hér af þessu öllu. 20.02.2016 12:03Fósturvísatalning 2016Jæja þá er spennufallið liðið yfir og hann Guðbrandur er búnað koma til okkar og kíkja í pakkann fyrir okkur. ![]() ![]() ![]() Gemlingar árgangur 2015 18 í heildina 5 með 2 12 með 1 1 geldur Veturgamlar árgangur 2014 17 í heildina 15 með 2 2 með 1 1 geld Þriggjavetra árgangur 2013 17 í heildina 3 með 3 11 með 2 3 með 1, 2 af þeim voru sæddar Fjórðavetur árgangur 2012 10 í heildina 1 með 3 8 með 2, 1 af þessum er með eitt fóstur dautt sem er að hverfa. 1 með 1 Fimmvetra árgangur 2011 5 í heildina Allar með 2 Sexvetra árgangur 2010 9 í heildina 6 með 2 3 með 1. Ein sædd af þeim Sjövetra árgangur 2009 3 í heildina 2 með 2 1 geld nýbúnað láta sennilega. Níuvetra árgangur 2007 Er elst og er bara ein og hún er með 2. Þá er þetta upptalið. Ég held að ég eigi 106 fóstur og Bói 31 eins og staðan er á þessu núna. Bliki Gosa sonur á 6 dætur og eru þær allar tvílembdar nema gemlingurinn er með 1. Svo ég er mjög ánægð með það en það er eftirsjá núna að hafa ekki sett fleiri á undan honum. Brimill Borða sonurinn sem ég átti og ég var mjög varkár í að nota á 2 dætur og þær eru báðar tvílembdar og Siggi á líka undan honum og er mjög ánægður með þær. Svo það er óhætt að nota hann enda svakalega stór og fallegur hrútur. Ég fékk Móra Styrmir svo lánaðan hjá Eiríki Helgasyni og ég er svo spennt að fá lömbin í vor. Hann fékk 8 kindur og það eru 2 með 3, 1 gemlingur með 2 og einn með 1 og rest af hinum eru með 2. Hann fór svo á eina hjá Sigga og hún er með 3. Ég er svo lukkuleg með útkomuna hjá honum og vonast eftir að fá drauma litinn minn sem er móhosótt og nú ætla ég að nota jákvæðina og hugsa ÉG ÆTLA AÐ FÁ MÓHOSÓTTA GIMBUR ![]() Ég á 6 dætur frá Tvinna Saum syni og þær eru allar með lambi 2 af þeim eru með 2. Ég sæddi núna 3 með Saum svo vonandi fæ ég eitthvað gott þar. Jæja af sæðingunum að segja þær voru 11. 3 fengu með Saum og eru allar með 2 1 með Grím með 1 2 með Krapa báðar með 1 3 með Kalda 1 með 1,1 gemlingur með 1, 1 með 2 1 með Kölska með 2 1 með Vetur með 2 Í heildina má segja af þessu að það verði 17 sæðisfóstur. Siggi lét undan hópþrýstingi í ár ![]() Sá nú ekki eftir því það kom svo rosalega vel út. Hann er með 30 kindur 5 voru með 3 1 með 1 rest með 2 Gemlingar voru 6 1 með 2 2 geldir 3 með 1 Frábær útkoma hjá honum. Á næstunni verður svo tekið af hjá okkur snoðið og svo það er alltaf eitthvað spennandi að gerast í sauðfjárræktinni. Bless að sinni................. Það eru svo myndir inn á albúmi sem hann Óli Helgi var svo vænn að taka fyrir mig meðan það var verið að sónaskoða. Takk fyrir Óli ![]() Flettingar í dag: 683 Gestir í dag: 7 Flettingar í gær: 2026 Gestir í gær: 19 Samtals flettingar: 1387233 Samtals gestir: 75065 Tölur uppfærðar: 9.2.2025 03:41:44 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is