Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
26.02.2010 22:52Hvolpar og fleira.Jæja ég er allveg orðin hundaóð Maja er örugglega orðin hundleið á mér ég er alltaf í heimsókn að kíkja á hvolpana he he. Við fórum í dag og Brynja og Marta komu líka og þær eru líka með hundaæði og eru allveg dolfallnar yfir þeim, þeir eru allveg milljón hlaupa út um allt og leika sér á fullu og þeir voru allveg sjúkir í Benóný og dótið hans og fóru meira segja ofan í skiptitöskuna hans og tóku bleyjurnar úr og tuskuna og drógu út voða gaman. Benóný fékk svo að smakka soðið brokkólí stappað í nýja töfrasprotanum sem við keyptum og var hann ekki hrifinn af því og geibblaði sig allann og spýtti því út úr sér og náttla hafði Emil og Maggi svo gaman af því að þeir urðu að gefa honum meira bara til að sjá svipinn á honum algjör kvikindi. Honum finnst samt gulrótamaukið best eintómt og borðar það með bestu lyst. Ég skráði okkur svo í ungbarnasundið sem byrjar 6 mars og bíðum við spennt eftir að fara í það en ég verð bara að kaupa á okkur sundföt. Við fórum svo í mat til Huldu í pizzu í kvöld sem var mjög fínt bara hún bakar svo góða pizzu. Það er svo myndir af þessu öllu saman í albúminu. ![]() Ö hva eruð þið að gefa mér. ![]() Gaman í töskunni. ![]() Hérna eru svo dúllurnar. 24.02.2010 21:26Hundur sem kúkar í klósett.Jæja það er nú skondið að segja frá að Steini kom í heimsókn með Tristan um daginn og hann gerði sig líklegan til að fara að kúka inn í stofu og var kúkurinn farinn að ulla og viti menn að klíjugjarnasti maður sem ég þekki hann Þorsteinn Bergþórsson tók Tristan og hélt við kúkinn og lét hann bókstaflega kúka í klósettið og gerði hann það, svo hundar geta kúkað í klósett he he. Ég fór að gefa Dögg fyrir Maju í dag og er hún algjört yndi hún er svo fyndin byrjuð að leika sér og hlaupa út um allt þetta litla kríli. Maggi kom svo í land í morgun og hann er stórslasaður nei nei hann er kominn á hækjur og er með rifið liðband eftir að hann fékk kar á sig þegar það kom brot á bátinn. Emil fékk svo í bakið í gær og var allveg fastur með þursabit svo ég bý með tveim fatlafólum svo Emil getur hætt að segja að hvolpurinn Dögg sé fatlafól því hann er bara sjálfur fatlafól og hana nú. Benóný er svo að fá aðra tönn svaka stór og slefar eftir því honum klæjar svo, ég kíkti svo á Mána folaldið mitt og tók myndir sem eru í albúminu.
![]() Steini að láta Tristan skíta.
![]() Sætust í heimi ég er ekki fatlafól.
![]() He he voða gaman í hoppurólunni. 20.02.2010 12:486 Mánaða og Nýji bílinnJæja litli strákurinn orðinn 6 mánaða og við fórum í heimsókn til Maju og þar voru Steini,Helgi og Biggi komnir vestur í heimsókn voða gaman. Þeir tóku sér föstudagsrúnt og kíktu á liðið. Emil og Maggi fóru svo í bæinn að sækja nýjan bíl Skoda árgerð 2007 keyrður 70 þús,sjálfskiptur disel, já loksins kaupum við okkur nýjan bíl en hann Emil er nú ekkert allveg í essinu sínu að hafa ekki fengið jeppa en er samt sáttur á Skoda ljóta he he. Þetta er bara fínt eyðir engu svo þetta kemur sér vel í kreppunni. Jóhann og Þórhalla og Jakob og Eyrún eru svo í heimsókn og gista hjá okkur yfir helgina. Hulda amma fann svo fyrstu tönnina á fimmtudaginn 18. febrúar. ![]() Stóri strákurinn. ![]() Nýji bílinn okkar. 17.02.2010 21:59Borðar í fyrsta sinnJæja við fórum í saltkjöt hjá Steina og Jóhönnu í gær mjög gott og svo fór prinsinn í skoðun í dag og er orðinn 7340 gr og 70 cm og er enn bara allveg í línunni sem er fínt bara og nú má ég fara að byrja gefa honum smátt og smátt að borða og byrjuðum við á því í kvöld og það var mikið hlegið, Steini frændi var hjá okkur og Emil og hann gáfu honum að borða og hann kúgaðist og kúaðist og fannst þetta alls ekki gott. Pabbi hans var allveg að deyja úr hlátri og við hin líka algjör kvikindi. ![]() Oj oj hva eruð þið að gera mér. ![]() Pabbi hló og hló. 14.02.2010 20:47Lambaskoðun og Bollur hjá Huldu.Jæja þetta er búið að vera annasamur dagur. Hann byrjaði þannig að það var farinð inn að Hömrum kl hálf 11 í morgun til að vera viðstödd lambatalningu hjá Bárði og vorum við nú heldur sein því aðeins voru fjögur lömb eftir þegar við komum, það gekk bara ágætlega það er fjórar 3 lembdar og ein 4 lembd og margar tvílembdar og svo voru einhverjir gemlingar tvílembdir svo þetta er flott bara. Við fórum svo í heimabakaðar bollur hjá mömmu í blokkina og Maja og fjölskylda komu og Maggi og Soffía komu með pabba svo það voru borðaðar bollur með bestu lyst enda svaðalega góðar hjá henni Huldu. Því næst fórum við að kíkja á bændurna í Ólafsvík. Fyrst fórum við til Gumma og meira segja mætti aðalbóndinn hún Þuríður Ragnarsdóttir og tók þetta út hvort allt gengi ekki eftir bókinni og gekk bara ágætlega nema svolítið margar einlembdar en það er fyrir öllu að það séu allar með lömbum. Það var svo sónað hjá Óla,Sigga og Brynjari og gekk held ég bara nokkuð vel en gekk allra best hjá Marteini það voru flestar tvílembdar og 4 þrílembdar held ég svo það er bara glæsilegt og það var víst líka góð útkoma hjá Eddu Báru en eitthvað slakara hjá Óttari þar var svolitið um einlembdar held ég en ég ætla bara að bíða spennt þori ekki að eyðileggja spennuna hjá mér með því að kíkja í pakkann strax. Það eru svo myndir af þessu öllu saman í albúminu góða skemmtun. ![]() Verið að telja hjá Gumma. ![]() Hulda lukkuleg með bollurnar sínar. 13.02.2010 22:43Benóný í fyrsta sinn í baðhringnum sínum.Jæja það var keyptur baðhringur í bænum og fékk prinsinn að prufa hann og var lukkulegur í honum en svo fórum við út á labba á fimmtudaginn í okkar venjulegu fjallgöngu bak við hábrekkuna og skoða rollurnar hans Palla og niður hjá hesthúsunum hans Gústa og finna þar hrossa ilminn voða hressandi, svo förum við niður á bryggju og svo upp hjá skólanum svo við förum hringinn í kringum Ólafsvík nánast á hverjum degi. Við komum svo við í kirkjunni og kíktum á mömmumorgna og hittum þar mömmur og hressa krakka voða stuð og prufaði Benóný göngugrind þar sem er miklu léttari en hans og þeyttist fram og aftur á henni. Á fimmtudagskvöld var svo litli kúturinn kominn með hita og voða slappur og lítill í sér en hann er orðinn hitalaus í dag karlgreyið. Við kíkjum svo á hverjum degi að gefa henni Dögg fyrir Maju í hádeginu, hún er nú búnað stækka vel og drekkur meira, en augun á henni eru svo skrítin að það er mikill hætta að hún verði blind greyið. Maggi var svo duglegur um daginn að hann skúraði og ryksugaði fyrir mig og tók svo bílinn sinn og minn og þreif þá hátt og lágt svo nú er lanserinn orðinn glanserinn he he. Það eru svo nýjar myndir í albúminu bæði af hvolpum og Benóný Ísak. ![]() Kúturinn í baði. ![]() Sætir strákar Olíver og Benóný. ![]() Glanserinn skínandi hreinn eftir Magga. ![]() Litla rangeygða dúllan hún Dögg. 08.02.2010 23:12Rúntur með Magga í GrundóVið gerðum okkur glaðan dag með Magga í dag og fórum rúnt inn í Grundafjörð. Við byrjuðum á því að kíkja í hesthúsin hjá Bárði og skoða skrauthænurnar hans og hann Vörð sem er haninn hans og hann stendur sig í stykkinu að passa hænurnar. Því næst fórum við að skoða hestana sem eru í góðum holdum í blíðveðrinu sem er búið að vera seinustu daga enda er það alveg með eindæmum hversu góð tíð er búinn að vera í vetur. Við héldum svo næst að Hömrum og skoðum hænsnabúið sem Bárður var að taka við og var það rosalega snyrtilegt og flott og er hann nýbúnað fá nýjar hænur ellefu hundruð í heildina held ég svo það verður nóg að gera að tína egg. Næst héldum við svo til Sverris og Gerðar í Gröf og var tekið vel á móti okkur með kræsingum með kaffinu eins og Gerði einni er lagið, Sverir fór með okkur upp í fjárhús til Lárusar sonar síns og sýndi okkur rollurnar og sagði sögur. Á meðan var Benóný í góðum höndum hjá henni Gerði og lék sér við fílinn sinn. Síðan lá leiðin okkar í þessu blíðskapar veðri og haustsólinni að bæjarhlaðinu í Mávahlíð, þaðan hélt leið okkar áfram í Tungu þar sem við lentum í veislu hjá Gerðu og fengum sólarpönnukökur í haustsólinni. Haldið var heim á leið eftir góðan dag, en þið getið skoðað ferðina í nýja myndaalbúminu sem ég setti inn, og einnig myndband af Benóný taka ofvirkniskast. ![]() Vörðurinn hans Bárðar. ![]() Hæsnabúið hans Bárðar. ![]() Fallegur mánudags miðdagur í febrúar. 07.02.2010 01:23BumboHæ það er mikið búið að drífa á dagana hjá okkur erum rosalega mikið alltaf hjá Maju að kíkja á hvolpana og reyna að hressa þessa minnstu við og gengur það bara fínt. Ég, Maggi og Benóný náðum í pabba og fórum með hann í heimsókn til Maju að skoða hvolpana og kom þá aðeins upp sá pabbi sem við munum eftir þvi þá heyrðist í honum þetta eru nú ljótu kvikindin og vildi hann ekki mikið spá í þeim en klappaði Pollý. Við erum svo mikið búinn að vera að pæla í að kaupa okkur nýjan bíl og fórum til Reykjavíkur að skoða og erum að pæla í Skoda eða Pajero og Emil langar náttla meira í Pajero en mig langar í Skoda Octaviu disel því þeir eyða svo litlu, þanning að við eigum eftir að ákveða hva við gerum. Við kíktum svo til Steina frænda og Fríðu og Helga í smá stund og svo kíktum við líka á Jóhann og Þórhöllu en við höfðum bara svo lítinn tíma til að fara í heimsóknir þvi þegar maður fer svona í bæinn í einn dag þá flýgur tíminn gersamlega. Það var svo loksins keyptur Bumbo stól handa Benóný og er hann allveg hæðst ánægður með hann, þeir eru allveg snilld þessir stólar en jæja þetta er komið gott í bili og það eru nýjar myndir í albúmi bæði af hvolpunum og Benóný svo endilega skoðið. ![]() ![]() ![]() 02.02.2010 21:19FebrúarVið fórum í göngutúr um daginn niður á bryggju og tókum myndir af bátunum það var svo rosalega gott veður og Emil var allveg grænn í framan að vera í landi. Það er enn verið að reyna að laga bátinn fyrir hann en hann kemst nú væntanlega á sjó á morgun. Jæja það gengur hálf erfiðlega með einn hvolpinn hjá Maju hana Dögg hún stækkar ekkert og kemst allveg inn í hina og er komin með einhverja sýkingu greyið hún getur varla opnað augun og drekkur ekki sjálf það þarf að sprauta ofan í hana, Maja hélt að hún væri að deyja í gær en nei hún lifir enn og ég fór með hana til Rúnars í dag og lét sprauta hana og við fengum sýklalyf til að sprauta hana á hverjum degi svo þetta basl með greyi hvolpana ætlar aldrei að taka enda en vonandi hefur hún það af litla sílið því hún er nú búnað vera helvítið hörð að komast af. Benóný dafnar svo bara mjög vel og er farinn að geta sitið sjálfur en dettur stundum hægt til hliðar he he er ekki allveg kominn með jafnvægið. ![]() Fallegt veður í Ólafsvíkurhöfn. ![]() Þið sjáið hérna muninn á hvolpunum hvað hinir eru miklir bolar og svo hin litla algjör písl. ![]() Algjör töffari í nýju lopapeysunni og húfunni sem Brynja frænka var að gefa honum allveg geggjað flott,hún er algjör snilli í að prjóna og já sæll eigum við eitthvað að ræða það hva hún er snögg af þessu, algjör snild þessi prjónamaskina. 29.01.2010 19:39LanddrátturÞað byrjar vel árið hjá Emil, hann var dreginn í land í dag. Það losnaði eitthvað tengi og skrúfan losnaði svo hann gat ekki klárað að draga og Dóri og Heiðar kláruðu að draga fyrir hann og var Dóri með tæp 3 tonn á balana hans Emils og Heiðar er enn að draga og er víst að mokfiska á þá ýkt böggandi fyrir Emil að missa af þessu og náttla var ég niðri á bryggju í dag og tók á móti honum brosandi með myndavélina að taka myndir af honum he he algjört kvikindi ![]() ![]() 25.01.2010 16:24OfsaveðurÞað var hrikalegt veður í nótt ég hélt að það væri bara allt að fara til fjandans. Við sváfum eiginlega ekki neitt það lak svo inn um svalahurðina hjá okkur og svo vorum við svo hrædd um girðinguna á pallinum hún var á fullu en það var svo í lagi. Það tók svo ekki betur við þegar við fórum inn í hesthús þá var hurðinn þar fokinn af og urðu Steini og Emil að festa hana svo fórum við inn í Mávahlíð og þar byrjaði ballið fyrst blasti við okkur að það væri fokið af hlöðunni plata sitt hvoru megin og svo þegar við fórum bak við kom í ljós að þakið af súrheysgryfjunni var fokið af í heilu lagi svo það hefur aldeilis mikið gengið á þar í nótt. Rollurnar voru þó bara rólegar og ánægðar að fá að éta. Emil,Steini,Bói og Maggi festu svo niður það sem þeir gátu því það er enn þá svo mikið rok og verður að laga þetta bara á morgun eða þegar að það hæir svo hægt sé að setja nýja járnplötu. ![]() Hérna er sláturhúsið það losnuðu nokkrar spýtur framan af því og þarna er platan farinn af hlöðunni. ![]() Hérna má sjá þakið hinum megin sem þeir festu niður og svo súrheysgryfjuna og þakið af henni fauk af í heilu lagi og liggur við hliðina á henni. 24.01.2010 22:27HvolparnirJæja það er búið að vera nóg að gera um helgina á laugardaginn voru Tristan og Alexandra í pössun hjá okkur því Hafrún var að vinna í Valafelli allveg brjálað að gera þar og svo í dag fórum við í heimsókn til Maju að skoða hvolpa boltana og Hafdís,Eva og Ragnar Ágúst komu í heimsókn að skoða líka og svo var öllum boðið í vöfflur hjá mömmu og þar var páfagaukurinn Travis sem Brynja átti og er hann nú kominn með nýtt heimili hjá Evu og Ragnari Ágústi, sem voru afar lukkuleg með hann enda rosa karekter þessi fugl. Benóný var allveg sjúkur í hann og reyndi að klípa í hann ýkt fyndið. Ég tók svo myndir af hvolpunum sérstaklega fyrir þig Brynja svo hér koma þær og fleiri inn í albúminu. ![]() Tík,Strákarnir tveir og Dögg. ![]() Strákur Torres ![]() Tíkin hans Óla ![]() Hin tíkin ![]() Dögg ![]() Hinn strákurinn. 19.01.2010 17:035 MánaðaJæja þá er hann Benóný orðinn 5 mánaða, ekkert smá fljótt að líða. Hann fór í skoðun í morgun og kom allt mjög vel út hann er 6920 gr og 67 cm á lengd. Hann fór í sprautu svo það má búast við að hann verði pirraður í kvöld. Ég er svo en þá með of háan blóðþrýsting allveg ömurlegt ég ætla bara ekki að losna við þetta, ég á að fara á önnur lyf svo vonandi helst hann niðri þá. Það er svo sorgarfréttir að einn hvolpurinn hann Fatli er dáinn en hann var svo fatlaður greyið að þetta hefur bara átt að fara svona en hinir dafna vel og eru algjörar bollur. Við fórum til Bárðar í gær og náðum í Rósu hans Emils og Flekku hans Bóa sem vonandi koma með kynbætur úr Kubb frá Bárði. Þær dafna vel gimbrarnar hjá honum allar með svaka hornahlaup og margar spakar en það er engin orðin spök hjá okkur en þá, þær eru bara forvitnar. Jæja það eru svo myndir af þessu öllu saman í albúminu njótið vel. ![]() Já maður er sko orðinn fótafimur. ![]() Það eru alltaf brosmyndir svo ég varð að setja eina af honum í réttu ljósi að fá smá frekjukast ![]() 16.01.2010 00:58Fyrsta skiptið á hestbakBenóný fór með okkur í hesthúsin og fékk að fara í fyrsta sinn á hestbak og fékk Huld heiðurinn af því að vera fyrsti hesturinn sem hann fer á, þeir eiga nú væntalega eftir að vera miklu fleiri sem hann fær að máta. Honum líkaði vel og yðaði allur við að klípa í faxið á henni og reyndi svo að stínga grasinu upp í sig og éta það. Við fórum svo í heimsókn til hvolpaömmu hennar Köru og Maju langömmu he he þar er sko allt í hershöndum að gefa hvolpunum á þriggja tíma fresti úr pela og passa að þeir sjúgi ekki Pollý meðan hún er jafna sig. Emil er svo alltaf á sjónum bara og gengur vel hann og Steinar voru með 4,8 tonn í dag 15 jan og komu heim allveg búnir á því enda mikið fiskerý og bræla úti. ![]() Stoltir feðgar. ![]() Viltu knús O þeir eru svo miklar dúllur að drekka pela hjá Maju hvolpalangömmu. ![]() Ein sæt af pútla litla hann er svo brosmylt barn. 14.01.2010 10:30Pollý og hvolparnirÞað er sko búið að vera nóg að gera hjá Maju og fjölskyldu því yngsti fjölskyldumeðlimurinn hún Pollý var að eignast 6 litla æðislega hvolpa og er mikill gleði þar á bæ en það er búið að vera mikið stress því það þurfti að bruna með Pollý til Rvk á spítala til að hlúa að henni hún var orðin svo veik og fékk hún allskyns sprautur og vitamín og hún má ekki hafa hvolpana hjá sér fyrr en hún er orðin sterkari og byrjuð að borða. Svo núna þarf Maja og Kara að gefa hvolpunum á þriggja tíma fresti það er bara eins og ungabarni he he og núna er Maja í vinnunni og Kara í skólanum og Lena bauðst til að fóðra hvolpana á meðan svo vonandi fer hún Pollý elska að frískast. Það er ekki nóg með að þetta sé allt í gangi heldur þurfti að fá Dýra til að kíkja á folaldið mitt hann Mána því hann er kominn með sýkingu í augað og þarf að bera krem í augað á honum á hverjum degi og sér hann Bói um það fyrir mig hann er svo hjálpsamur að hugsa um hann fyrir mig. ![]() Hérna er svo stolt mamman með krútt boltana sína. Flettingar í dag: 3204 Gestir í dag: 8 Flettingar í gær: 6914 Gestir í gær: 37 Samtals flettingar: 1402396 Samtals gestir: 75232 Tölur uppfærðar: 15.2.2025 14:40:55 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is