Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
20.02.2016 12:03Fósturvísatalning 2016Jæja þá er spennufallið liðið yfir og hann Guðbrandur er búnað koma til okkar og kíkja í pakkann fyrir okkur. ![]() ![]() ![]() Gemlingar árgangur 2015 18 í heildina 5 með 2 12 með 1 1 geldur Veturgamlar árgangur 2014 17 í heildina 15 með 2 2 með 1 1 geld Þriggjavetra árgangur 2013 17 í heildina 3 með 3 11 með 2 3 með 1, 2 af þeim voru sæddar Fjórðavetur árgangur 2012 10 í heildina 1 með 3 8 með 2, 1 af þessum er með eitt fóstur dautt sem er að hverfa. 1 með 1 Fimmvetra árgangur 2011 5 í heildina Allar með 2 Sexvetra árgangur 2010 9 í heildina 6 með 2 3 með 1. Ein sædd af þeim Sjövetra árgangur 2009 3 í heildina 2 með 2 1 geld nýbúnað láta sennilega. Níuvetra árgangur 2007 Er elst og er bara ein og hún er með 2. Þá er þetta upptalið. Ég held að ég eigi 106 fóstur og Bói 31 eins og staðan er á þessu núna. Bliki Gosa sonur á 6 dætur og eru þær allar tvílembdar nema gemlingurinn er með 1. Svo ég er mjög ánægð með það en það er eftirsjá núna að hafa ekki sett fleiri á undan honum. Brimill Borða sonurinn sem ég átti og ég var mjög varkár í að nota á 2 dætur og þær eru báðar tvílembdar og Siggi á líka undan honum og er mjög ánægður með þær. Svo það er óhætt að nota hann enda svakalega stór og fallegur hrútur. Ég fékk Móra Styrmir svo lánaðan hjá Eiríki Helgasyni og ég er svo spennt að fá lömbin í vor. Hann fékk 8 kindur og það eru 2 með 3, 1 gemlingur með 2 og einn með 1 og rest af hinum eru með 2. Hann fór svo á eina hjá Sigga og hún er með 3. Ég er svo lukkuleg með útkomuna hjá honum og vonast eftir að fá drauma litinn minn sem er móhosótt og nú ætla ég að nota jákvæðina og hugsa ÉG ÆTLA AÐ FÁ MÓHOSÓTTA GIMBUR ![]() Ég á 6 dætur frá Tvinna Saum syni og þær eru allar með lambi 2 af þeim eru með 2. Ég sæddi núna 3 með Saum svo vonandi fæ ég eitthvað gott þar. Jæja af sæðingunum að segja þær voru 11. 3 fengu með Saum og eru allar með 2 1 með Grím með 1 2 með Krapa báðar með 1 3 með Kalda 1 með 1,1 gemlingur með 1, 1 með 2 1 með Kölska með 2 1 með Vetur með 2 Í heildina má segja af þessu að það verði 17 sæðisfóstur. Siggi lét undan hópþrýstingi í ár ![]() Sá nú ekki eftir því það kom svo rosalega vel út. Hann er með 30 kindur 5 voru með 3 1 með 1 rest með 2 Gemlingar voru 6 1 með 2 2 geldir 3 með 1 Frábær útkoma hjá honum. Á næstunni verður svo tekið af hjá okkur snoðið og svo það er alltaf eitthvað spennandi að gerast í sauðfjárræktinni. Bless að sinni................. Það eru svo myndir inn á albúmi sem hann Óli Helgi var svo vænn að taka fyrir mig meðan það var verið að sónaskoða. Takk fyrir Óli ![]() 20.02.2016 11:42Öskudagur og Pizzaveisla![]() Anna og Elsa prinsessur og Iron men. Svona fóru krúttin okkar á Öskudaginn. Um seinustu helgi komu Unnur og Steinar bróðir Emils vestur með börnin sín og gistu hjá Jóhanni bróðir Emils. Jóhann og Þórhalla buðu okkur svo að koma og borða með þeim með krakkana svo allir gætu hist saman. Það var mjög gaman að sjá alla krakkana sem eru á svipuðum aldri leika saman. Við horfðum svo á Öldu Dís syngja og auðvitað rúlla þessu upp hún er allveg mögnuð og ég er allveg klár á því að við sendum hana út fyrir Íslands hönd og hún vinnur þetta ![]() ![]() Stuð hjá frændsystkinunum í pizzaveislu hjá Jóa og Þórhöllu. ![]() Bjarki Steinn, Birgitta Emý, Embla Marína og Freyja Naómí. Þetta var mjög gaman að hittast svona öll með börnin og eiga góða stund saman. Það er svo aðeins fleiri myndir hér inn í albúmi af þessu. 30.01.2016 16:56Leikrit með Línu langsokk,rollur,dans og fleiraJæja ekki seinna vænna að fara blogga loksins og Gleðilegt ár kæru vinir. Janúar er búnað líða svo hratt að hálfa væri nóg. Ég er alla daga núna að vinna 8 til 12 á leikskólanum og svo fer ég beint að gefa rollunum og því næst að sækja krakkana klukkan 2 svo þetta hentar mér rosalega vel og mér finnst þetta mjög fínt. Ég verð í þessari rútínu til 8 apríl en þá fer ég í frí. Við erum búnað panta okkur ferð til Tenerife með alla fjölskylduna og förum þangað 12 apríl og komum heim 26 apríl og þá fer ég beint í sauðburð. Svo það eru svo langir mánuðir framm undan að bíða eftir þessum geggjaða tíma sem verður í apríl. Við höfum aldrei farið út með krakkana svo þetta verður svakalega spennandi. ![]() Hérna er mynd af gullmolunum okkar á gamlárskvöld og hér má sjá fleiri myndir. Benóný var að æfa dans í skólanum og það var mjög gaman að sjá krakkana dansa. ![]() Hér eru þau að dansa svo dugleg. Við tókum hrútana úr 15 janúar. Ég sæddi 17 kindur og af þeim héldu 11. Við fáum lömb úr Saum,Grím,Börk,Kölska,Kalda,Vetur og Krapa. Ég sæddi 10 hjá Sigga en aðeins 4 héldu svo ég var ekki allveg að standa mig sem sæðingarmaður í ár. Það er svo næsta tilhlökkunarefni að bíða eftir fósturtalningunni. Það verður mjög spennandi ég get varla beðið hlakka svo til. ![]() Stelpurnar voru alsælar þegar Rakel Gunnars gaf þeim þennan hest ekkert smá góð, hann hefur sko vakið mikla lukku hjá þeim. Enda elska þær hesta. ![]() Benóný fékk hann Bangsímon frá skólnum í heimsókn yfir helgina og fannst það mjög gaman. Við tókum hann svo með okkur til Reykjavíkur yfir helgina. ![]() Við fjölskyldan fórum svo í fyrsta sinn í Leikhús. Ég og krakkarnir höfum aldrei áður farið í Leikhús en Emil hefði farið einhvern tímann sem krakki. Þetta var þvílík upplifun og rosalega flott og gaman. Það sem toppaði þetta svo var að við fengum að fara baksviðs og hitta Línu Langsokk og það fannst krökkunum æði og voru svolítið feimin eins og sjá má og auðvitað fékk Bangsímon að koma með. Það eru svo fleiri myndir hér í albúmi af þessu. ![]() Hér eru svo gimbranar að gæða sér á heyinu. ![]() Ég er mjög ánægð með fórðrunina hjá mér á gimbrunum og veturgömlu þær hafa verið sér þangað til ég hafði hrútinn í þeim þá setti ég saman gimbranar og veturgömlu en þær verða aftur í stúkkaðar af eftir fósturtalninguna. Það eru allveg mjög flott hornahlaup á þeim. Rollurnar eru svo hinum megin í tveim stíum á móti hvor öðrum. Við höfum gefið gimbrunum og veturgömlu allveg fulla jötu og sópum svo frá þeim sem þær skilja eftir í rollurnar því þær hreinsa miklu betur upp. ![]() Emil að gefa fóðurbætir. ![]() Svört hans Sigga veit sko allveg upp á hár hvenær er verið að gefa fóðurbætir og klifrar upp á milligerðið og bíður eftir að fá sína lúku sem ég gef henni alltaf. Ég gef nefilega klukkan 12 en Siggi gefur ekki fyrr en um 6 eða 7 leytið. Þær eru allveg sallarólegar hjá honum meðan ég gef því þær vita að þær fá ekki að borða þá nema Svört hún fær alltaf lúkuna sína af fóðurbætir ![]() ![]() Hér eru Ísak Tvinna sonur og Mávur Blika sonur. Það eru líka flott hornahlaup á þeim og í topp fóðrun hjá Sigga þeir eru í fóðrun hans megin í húsunum. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessu. Ég var nú næstum búnað gleyma að segja frá því hvað þetta ár byrjaði nú ekki vel hjá mér. Krakkarnir voru öll veik fyrstu vinnu vikuna og ég komst ekkert að vinna fyrr en aðra vikuna í janúar. Benóný hefur verið svo matvondur eftir veikindin sem hann mátti nú ekki við því nógu matvondur var hann fyrir. Hann borðaði eingöngu brauðstangir frá Dodda í sjoppunni og brauðstangir sem ég bakaði til 15 janúar og það var í öll mál neitaði öllu öðru. Já ég veit þetta hljómar allveg galið en svona var þetta. Hann er með dæmigerða einhverfu og hefur verið matvondur en aldrei svona slæmur en þetta er að koma aðeins til baka núna það er búið að bætast við engjaþykkni og bananaskyr hér heima. Svo vonandi fer þetta nú að lagast. Annað sem gekk ekki vel á þessu ári var að ég var einn daginn í óðagotinu mínu að setja krakkana inn í bíl og tala í símann í leiðinni. Það vildi svo til að ég skelli á og legg símann upp á toppinn á bílnum. Spenni svo krakkana og er eitthvað að þusa við þau og stekk svo bara inn í bíl og keyri af stað. Þegar ég svo kem inn í sveit til Freyju og Bóa fer ég að hugsa hvar er síminn minn eiginlega og leita dágóða stund og fer með krakkana til þeirra og fattaði svo ARRRRRRGGGGGG ![]() og brunaði til baka og mér til mikilla hamingju sá ég hann á götunni í bleika veskinu sem er utan um hann en lít svo upp þegar ég er að fara hægja á mér til að stökkva út og sækja hann og sé þá hvar kemur og BÚMM tekur símann og þeytir honum eitthvað út í loftið. Ég allveg lamaðist hvað var að gerast þetta var svo fáránlegt eins og ég væri í bíómynd hvaða líkur voru á því að plógurinn myndi akkurrat á þessu augnabliki koma og hrifsa símann minn. Svo ég brunaði til baka og sá bleika veskið á götunni og í því var enginn sími og eins var ökuskirtenið horfið ásamt vísa kortinu mínu. Ég ók svo til baka og sótti Bóa til hringja í símann ef svo ólíklega myndi vita til að hann myndi vera í lagi en það var slökkt á honum. Við leituðum svo inn í Bug eftir veginum og til allra lukku þá fann ég ökuskirtenið og vísa kortið í heilu lagi en enginn sími. Við fórum því næst bara inn í Tungu að gefa og gáfum símann upp á bátinn um sinn. Þegar við vorum svo búnað gefa ákváðum við að leita betur og eftir dágóða leit fann ég lokið af símanum svo batteríið og því næst símann en hann var í henglum. En ég fann hann þó allavega og var mjög sátt við það. Allveg ótrúlegt finnst mér samt að hugsa til þess hversu óheppin ég var að þetta hafi farið svona því ef ég hefði verið mínótu fyrr að koma að símanum hefði ég náð honum ég meina hverjar eru líkurnar að mæta snjóblóg sömu mínótu og maður sér hann. Ég er því búnað glata öllum númerum og þarf að safna þeim upp á nýtt en er þó komin með annan síma núna en var símalaus í 2 vikur eftir þetta óhapp. Vona að þið hafið skemmt ykkur eins vel yfir sögunni og ég geri í dag ![]() Takk fyrir mig að sinni 30.12.2015 12:16Gleðilegar hátíðir![]() Gleðileg jól kæru vinir og farsælt komandi ár vona að þið eigið æðislegar hátíðir og áramót. Ég vona að þið hafið notið þessa stóra blogga sem ég demdi hér inn í restina á árinu. Ég hef nefla verið svo upptekin restina á árinu ég hef verið að vinna á Leikskólanum í Ólafsvík fyrir hádegi og svo gefið kindunum og svo hugsað um börnin og heimilið og þar af leiðandi hef ég haft lítinn tíma til að blogga. Ég tók mér svo frí af Leikskólanum til að sinna hinni vinnunni kindunum og fengitímanum og var í því um miðjan desember og framm að mánaðarmótum. Hlakka til að hefja nýtt ár hérna á síðunni með ykkur og aldrei að vita að ég skelli einu loka bloggi áður en árið er liðið með fréttum um hvað hefur haldið úr sæðingunum því nú er það aðal spenningurinn hér hjá okkur. Hér er svo fullt af myndum af jólunum hjá okkur inn í albúmi. 30.12.2015 11:36Fengitími![]() Þetta er hann Korri Garra sonur hans Sigga í Tungu. Hann nota ég sem leitar hrút og skelli á hann poka svo ég missi hann ekki í einhverja sem hann má ekki fara á því ég ræð ekki alltaf við þessa stóru hrúta . Þó stór sé er hann allveg rosalega góður við mig og labbar hlið mér eins og hundur og veit allveg nákvæmlega hvað er í vændum. ![]() Ég fékk lánaðan Móra hans Eiríks Helgasonar á mórauðu kindurnar mínar og þær sem gætu erft mórauð gen. Hann fékk allveg 8 skvísur og ég er allveg súper spennt yfir að bíða eftir vorinu og sjá litina. Þær hafa allar haldið með honum því það er komið yfir þann tíma sem þær fengu. Takk kærlega fyrir lánið Eiríkur þetta verður svo spennó. ![]() Mugison Soffa sonur fékk bara tvær í ár Mirröndu forrystu og Möggu Lóu sem er lamb undan Eik sem er móbotnótt. Óli á Mýrum fékk hann svo lánaðan á nokkrar hjá sér. ![]() Marel veturgamal fékk ekki margar í ár en gætu orðið fleiri ef gengur upp úr sæðingunum. Hann er búnað fá 3 . ![]() Hér er svo gullið okkar hann Tvinni sem átti að fara í afkvæmarannsókn á Hjarðafelli en hann fór ekkert greyjið því hann fótbrotnaði eða sleit liðband. Við prófuðum hann á eina kind og hún hefur haldið. En hann var ekki notaður meira en það. ![]() ![]() Hér er Tvinni Saum sonur við kíktum á hann milli hátíða því þá áttum við að taka gifsið af honum og þá kom í ljós að brotið hefur verið upp í bóg á honum því löppin dinglar til og frá og það er farið að grafa illilega í henni. Brotið hefur sennilega verið þarna fyrir ofan eða brákað og farið svo á endanum allveg í sundur við gifsið. Það er því mér með sorg í hjarta að segja ykkur frá því að við þurftum að láta hann fara yfir móðuna miklu allveg ömurlegt. Mér þótti svo endalaust vænt um hann og var loksins búnað eignast topp hrút sem fyllti allar kröfur um að fara í afkvæmarannsókn og ég var svo í skýjunum með allt í haust hvað allt gekk vel hrútur undan honum fékk Farandsskjöldinn fagra og Tvinni kom svo vel út að Jón Viðar bað mig um að lána hann í afkvæmarannsókn og ég var allveg þvílíkt upp með mér að fá þann heiður. En svo dundi ógæfan yfir hjá okkur Bliki Gosa sonur veiktist og féll frá. Lambhrútur hjá Sigga undan Jóker sæðishrút fékk stein í typpið og var dæmdur dauðvona svo honum var lógað. Siggi gaf Friðgeiri á Knörr hrútinn sinn undan Klett hann Kjöl og hann drapst hjá Friðgeiri úr lungnabólgu. Svo þessi flotta hrúta stía sem við vorum með fulla af hrútum í haust hafði tapað tölunni hratt á skömmum tíma. Við vorum einmitt búnað vera fíflast með það að það væri verið að safna hrútum hér á bæ en sem betur fer settum við á lambhrúta undan Blika og Tvinna úr því að Tvinni er núna úr sögunni líka. Honum var lógað 3 í jólum. Nú er bara biðja og vona að þeir verði föðurbetrungar eða allavega jafn góðir og feður þeirra voru. Blessuð sé minnig þessara flottu gripa. ![]() Lambhrútarnir verða vel notaðir og fá þessir hvítu Mávur 11 kindur og Ísak skjaldhafinn hefur fengið 18 og þær geta orðið fleiri ef sæðingarnar klikka. Skari kollótti fékk allar kollóttu eða 9 stykki nema 2 sem voru sæddar með Krapa. Zorró sá flekkótti fékk svo 8 kindur . Drjóli lambhrútur hjá Sigga er búnað fá 4 en gætu orðið fleiri ef gengur upp úr sæðinu. Korri leitarhrúturinn minn hann er búnað fá 6 kindur. ![]() ![]() Ég sæddi 17 kindur . Notaði Kornilíus,Kölska,Vetur,Kalda,Börk og Krapa. svo af suðurlandinu tók ég Saum og Grím. Af fyrsta deginum var engin sem hélt með Kornilíus en ein hélt með Kölska. Tvær af þeim sem fengu með Grím hafa gengið upp eins og komið er. En þetta kemur allt í ljós á næstu dögum hvað heldur. Það eru fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 30.12.2015 11:30Gimbranar hjá Óttari á Kjalvegi![]() 50 kg 30 ómv 3,5 ómf 5 lag 17,5 læri ![]() 51 kg 35 ómv 4,2 ómf 4,5 lag 17,5 læri ![]() 52 kg 36 ómv 4,5 ómf 5 lag 18 læri ![]() 60 kg 37 ómv 6,2 ómf 4 lag 18,5 læri ![]() 57 kg 33 ómv 5,2 ómf 4,0 lag 17,5 læri ![]() Hér er Sokki hans Óttars hann fær helmingin af rollunum. ![]() Svakalega flottar hjá honum þessar svörtu Kletts dætur svo stórar og miklar kindur. ![]() Hér er hinn hrúturinn hans og hann fær hinn helmingin af kindunum. Það eru svo fleiri myndir af kindunum hans Óttars hér inn í albúmi. 30.12.2015 11:20Freyja Naómí 3 ára![]() Elsku sæta krúttsprengjan okkar orðin 3 ára gömul. Svo fljótur að líða tíminn. Hún á líka flottustu kennitölu þó víða væri leitað 12 12 12 allveg snilldar tölur. Afmælið hennar var haldið heima hjá okkur og það komu Bjarki Steinn og Hilmar vinir hennar í afmælið og svo fjölskyldan og Irma vínkona og fjölskyldan hennar. Þetta var fjörugt og skemmtilegt afmæli og allir skemmtu sér vel. ![]() Kakan hennar heimatilbúin með prinsessum. ![]() Búnað blása á kertin voða lukkueg. ![]() Freyja með flottu barnabörnin sín Jakob Loga og Eyrúnu Ösp. ![]() Freyja og Hilmar vinur hennar. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af afmælinu hennar. 30.12.2015 11:08Gimbranar hjá Þór og Elvu Hellissandi![]() Hér erum við komin í húsin hjá Þór og Elvu Hellissandi og kíktum á gimbranar þeirra. Þessi fyrsta er mjög skemmtileg á litinn með dökkmórauðan blett á vanganum. 49 kg 32 ómv 5,0 ómf 4,5 lag 8,5 framp 17,5 læri 7,5 ull ![]() 45 kg 35 ómv 4,4 ómf 4,5 lag 9 framp 17,5 læri 7,5 ull ![]() 38 kg 31 ómv 3,8 ómf 4,0 lag 8,0 framp 16,5 læri 7,5 ull. ![]() Þessi litla mórauða er í eigu Jensínu og var hennar uppáhalds og fékk að lifa. Hún fékk nafnið Jasmíne frá barnabörnum Jensínu. Hún er óstiguð. ![]() Hér eru hrútarnir þeir eru frá Óttari sá gulmerkti keyptur frá Sigga í Tungu og hinn keyptur frá Hjarðafelli. Það eru svo fleiri myndir af kindunum þeirra hér inn í albúmi. 30.12.2015 10:53Gimbranar hjá Jóa og Auði Hellissandi![]() Hér erum við komin í flottu fjárhúsin hjá Jóa og Auði Hellissandi. Hér er Jói að spekja gimbranar sínar og gefa þeim smá dekur. ![]() Þessa fékk hann hjá okkur og hún er undan Sóldögg og Marel Guffa syni. 45 kg 31 ómv 2,5 ómf 4,5 lag 109 fótl 9 framp 18 læri 7,5 ull 8,5 samr. ![]() Þessa fékk hann líka hjá okkur hún er undan Þrumu og Mugison. 45 kg 25 ómv 3,9 ómf 3 lag 115 fótl 8 framp 17 læri 8 ull 8 samr. ![]() Þessa fékk hann hjá Sigga í Tungu og veit ég ekki stiganir á henni held hún hafi verið með 36 ómv og 18,5 læri mjög flott gimbur. ![]() Þessa fékk hann frá okkur og er undan Dröfn og Blika. 46 kg 30 ómv 3,4 ómf 4 lag 108 fótl 9 framp 17,5 læri 9 ull 8,5 samr. ![]() Hrútarnir þeirra. Klettssonur og Blika sonur. Blika sonurinn hans er ónýtur og hefur ekki getað lembt. ![]() Auður að knúsa sína kind sem er allveg afskaplega gæf og hún labbar að henni úti og fær að klappa henni og knúsa. Það eru svo fleiri myndir af kindunum þeirra hér inn í albúmi. 30.12.2015 10:38Jólatónleikar Snæfellsbæjar![]() Jólatónleikar Snæfellsbæjar voru haldnir í byrjun desember og þar komu framm fullt af efnilegu fólki sem við eigum. Hér er Irma vínkona mín og Sara dóttir hennar að syngja, það var allveg meiriháttar flott hjá þeim. ![]() Diddi að spila undir hjá dóttir sinni. Rosalega dugleg og efnileg stelpa hér á ferð. ![]() Alda Dís sigurvegari Ísland got talent kom og söng með sinni undur fögru rödd. ![]() Einar söng og dóttir hans dansaði með það var allveg yndislegt eins og sést á þessari mynd. Það eru svo fleiri myndir af tónleikunum hér í albúmi. 30.12.2015 10:26Börnin í fjárhúsunum í desember![]() Jæja kæru vinir þá fer að líða að skemmtilega tímanum fengitíma. Hér er dóttir mín Freyja Naómí að gefa tvævettlunum fóðurbætir. ![]() Emblu Marínu okkar finnst mjög gaman að hjálpa mömmu sinni. ![]() Benóný Ísak með vínkonu sinni frá Sigga henni Svört. Benóný finnst ekki gaman að fara í fjárhúsin en þegar hann fæst til að koma með finnst honum ekkert leiðinlegt ![]() ![]() Freyja með vínkonu sinni Ollu sem býr í næsta húsi yfir götuna hjá Jóhönnu og hún er dóttir kisunar okkar hennar Myrru. Hér er hún búnað leggjast á gæruna eins og skreyting með skrautinu mínu. ![]() Gaman að renna inn í Mávahlíð. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 25.12.2015 01:50Gleðileg jólKæru vinir við óskum ykkur Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum kærlega fyrir góðar stundir á netinu á árinu sem er að líða og hlakka til að eiga þær fleiri á komandi ári. Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar og óska ykkur góðra fengitíðar. Herdís,Emil , Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naómí. 05.12.2015 11:40Tekið af rollunum og Hrútaskráin![]() Gummi kom og tók af fyrir okkur og voru þær heldur óþekkar við hann til að byrja með en svo gekk þetta allt saman vel. Við létum skilja eftir kvið ullina og rass ullina á öllum núna í ár. Hér er Gummi að störfum sínum og með rólu gaman að sjá hvað hann er laginn við þetta og svo fljótur. ![]() Mislitu orðnar snyrtar og fínar. ![]() Hvítu hinum megin þær eru orðnar næstum jafn margar hjá okkur mislitu og hvítu. ![]() Við fórum svo á kynningarfund um Hrútaskrána á Breiðabliki. Þar voru Lárus Birgisson og Torfi að kynna. Vel mætt var á fundinn og fróðlegt að hlusta á afkvæma rannsóknir frá árinu sem er að líða og fá innsýn í hvernig hrútarnir eru sem eru í Hrútaskránni. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af fundinum og rúninginum. 05.12.2015 10:29Aðalfundur Búa fyrir árið 2014Aðalfundur Búa var haldinn á Átthagastofu Ólafsvík og var farið yfir venjuleg fundarstörf og veitt verðlaun fyrir ýmsa þætti. Þessi fundur átti að vera löngu búið að halda en því miður dróst hann þetta lengi svo betra er seint en aldrei verður maður bara að segja. En þetta gekk allt ljómandi vel og við komum bara sterk inn á nýju ári og ræddum um að reyna fara í einhverja ferð á komandi ári. ![]() Hér eru félagarnir Bárður Rafnsson Grundarfirði og Óttar Sveinbjörnsson Kjalvegi. Ég ákvað að fara aftur í tímann og veita viðurkenningu til að hengja upp í fjárhúsinu. Við veitum alltaf bikara sem menn geyma í ár og svo fara þeir annað en nú fá allir skjal sem þeir geta þá átt um ár og aldir . ![]() Anna Dóra og Bárður að taka einnig við verðlaunaskjölum fyrir veturgamla hrúta frá árum áður. ![]() Gummi með fyrir mig verðlaun fyrir veturgamla frá fyrri árum. ![]() Fleiri viðurkenningar fyrir veturgamla frá árum áður. Gunnar á Kolgröfum með hyrndu Kverná með kollóttu og Siggi Tungu með mislita. ![]() Gummi og Anna Dóra með 2 afurðarhæðstu 5 vetra ærnar og svo átti ég þriðju. 1.Berg með 103 Gerð 101 Fita 107 Frjósemi 121 Mjólkurlagni 110 heildarstig. 2.Berg með 100 Gerð 109 Fita 106 Frjósemi 116 Mjólkurlagni 109 heildarstig. 3.Mávahlíð 106 Gerð 116 Fita 112 Frjósemi 101 Mjólkurlagni 108 heildarstig. ![]() Afurðarhæðstu búin 2014. 1.Siggi í Tungu fjöldi veturgamla 9 fjöldi áa17 Reiknað kjöt eftir hverja á 43,2 lömb eftir á fædd 2,12 til nytja 2,00 meðalfallþ 20,78 meðalgerð 11,00 meðalfita 9,75 2.sæti Ólafur Tryggvason Grundarfirði. Fjöldi veturgamla 8 fjöldi áa 4 Reiknað kjöt eftir hverja á 41,4 lömb eftir á fædd 2,25 til nytja 2,00 3.sæti Marteinn Gíslason Ólafsvík. Fjöldi veturgamla 6 fjöldi áa 12 Reiknað kjöt eftir hverja á 38,5 lömb eftir hverja á fædd 2,08 til nytja 1,92. ![]() Ég og Emil áttum þrjá bestu lambhrútana 2014. 88 stig, 87,5 stig 87 stig. ![]() Kjötmat 2014 Bú sem náðu 9,0 í meðalflokkun fyrir gerð lamba og áttu fleiri en 10 sláturlömb.1 sæti Hörður Pálsson Hömrum sem Bárður heldur á. 21 lamb meðalfallþ 17,80 meðalgerð 11,00 meðalfita 8,38 Sigurður Tungu annað sæti. 28 lömb meðalfallþ 20,78 meðalgerð 11,00 meðalfita 8,38 Guðmundur Ólafsson þriðja sæti. 35 lömb meðalfallþ 18,32 meðalgerð 10,74 meðalfita 7,71 ![]() Rollunum var svo smalað heim helgina 20 nóvember og byrjað að hýsa. ![]() Aumingja Tvinni okkar lenti í því leiðinlega atviki að hann var með 4 hrútum í stíu og eitthvað mikið hefur gengið á því hann var draghaltur og steig ekki í fótinn en það má alltaf búast við því þegar fengitími nálgast að mikið gangi á í hrútastíunni og auðvitað lenda svo uppáhalds hrútarnir fyrir barðinu á að slasast. Svo nú er kauði búnað fá Hjalta dýralæknir til að gifsa sig en gat þó ekki allveg greint hvort hann væri brotinn eða með slitið liðband en allavega þá þarf hann að vera í gifsi í 4 til 5 vikur. Það stóð til að lána hann á Hjarðafell í afkvæmarannsókn en það verður nú örugglega ekki að því þetta árið en ég ætla að prófa hann og sjá hvernig mun ganga hjá honum . Það er þó skömminni skárra að þetta sé frammfótur. Ég var rosalega svekkt að þetta skyldi endilega þurfa að koma fyrir hann akkurrat þegar Jón Viðar var búnað biðja um hann í afkvæmarannsókn en það er víst ekki spurt af því hvernær óhöppin verða. Jæja það eru svo fleiri myndir af fundinum og fleira hér inn í albúmi. 21.11.2015 17:39Gimbranar hjá Bárði og Dóru.![]() Nr 155 undan Marel. 40 kg 29 ómv 1,7 ómf 4 lögun 8,5 framp 18 læri 8 ull. ![]() Gráeyglótt undan Blossa sem er undan Vita . 45 kg 28 ómv 2,2 ómf 4 lögun 8,5 framp 18 læri 8 ull. ![]() Svört undan Part Klettsyni. 45 kg 29 ómv 3 ómf 4 lögun 8,5 framp 18 læri 8 ull. ![]() Undan Bursta og Bond. 38 kg 29 ómv 1,7 ómf 5 lögun 8,5 framp 18 læri 8 ull. ![]() Undan Bekra og Lísu 45 kg 33 ómv 1,9 ómf 4,5 lögun 9 framp 18 læri 7,5 ull. ![]() Undan Kjarna og Mist. 40 kg 28 ómv 1,4 ómf 4,5 lögun 9 framp 18,5 læri 8,5 ull. ![]() Undan Bombu og Tvinna. Bomba er mamma Salómons sem er á sæðingastöðinni. 41 kg 30 ómv 3 ómf 4 lögun 8,5 framp 18 læri 8,5 ull. ![]() Undan Saum og Löpp. 40 kg 33 ómv 2,8 ómf 4,5 lögun 8,5 framp 18 læri 7,5 ull. ![]() Undan Bekra og Gulbrá . 40 kg 26 ómv 2,4 ómf 4,5 lögun 8,5 framp 18,5 læri 7,5 ull. ![]() Mórauða gimbrin hans sem hann vann í lambahappdrættinu frá Eiríki Helgasyni. Hún var með 29 í ómv og 17,5 læri rosalega fallega mórauð. ![]() Leit ekki allveg á mig og myndavélin var batterýslaus. Undan Mús og Part Klettsyni. 40 kg 29 ómv 2,3 ómf 4,5 lögun 8,5 framp 18 læri 8 ull. Vona að ég hafi púslað þessu rétt saman frá Bárði og Dóru. Það eru svo fleiri myndir inn í albúmi af gimbrunum þeirra hér. Flettingar í dag: 3164 Gestir í dag: 8 Flettingar í gær: 6914 Gestir í gær: 37 Samtals flettingar: 1402356 Samtals gestir: 75232 Tölur uppfærðar: 15.2.2025 14:19:41 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is