Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
14.09.2014 08:21Benóný fer í Sandgerði í sund og fleiri rollur sjást.![]() Langþráður draumur Benónýs Ísaks rættist um seinustu helgi. Benóný er 5 ára gamal sonur okkar og er með dæmigerða einhverfu. Eins og flest einhverf börn er hann með áráttu. Áráttan hans núna er fyrir rennibrautum og varð Sandgerði þar efst á blaði og hann þarf að vita nákvæmlega hvar hún er hvaða stað hún er rétt hjá það er mikið atriði hjá honum að tengja saman staðina. Og veit hann núna nánast hvar allar rennibrautir eru á Íslandi og hverning þær eru á litinn og hverju þær eru rétt hjá. Svo það var mikið atriði hjá okkur að komast í sund í Sandgerði áður en sumarið yrði á enda til þess að uppfylla þennan draum og er næsti draumur að fara í sund á Hellu ![]() Það var rok og rigning og frekar kalt þegar við fórum í Sandgerði en það aftraði honum ekki að prófa rennibrautirnar. Eins og þið sem þekkið Benóný þá hefur Sandgerði verið allveg í uppáhaldi og samdi hann meira segja lag sem ég setti á Facebook um sundlaugina í Sandgerði og svo fékk hann líka afmælisköku sem ég reyndi eftir mestu megni að líkja eftir sundlauginni í Sandgerði og má sjá hana neðar hér á blogginu. Ég fór á mjög skemmtilegt námskeið sem nýtist vel fyrir þá sem eiga börn með einhverfu og það heitir Cat kassinn og þykir mér hann mjög spennandi og stefni á að reyna prófa gögn úr honum til að nýta mér í að hjálpa Benóný. Það eru svo nokkrar myndir hér úr ferð okkar í Sandgerði. ![]() Ég fór í fjöruferð um daginn með gullmolana okkar og það var allveg magnað hvað smá tilvera í náttúrunni getur glatt mann. Þau allveg elskuðu að hlaupa frjáls í fjörunni og auðvitað fattaði minn maður hann Benóný að klifra upp á barð og renna sér eins og í rennibraut. ![]() Mikil hamingja hjá þeim að renna sér niður. Þið getið svo skoðað fallegar myndir af þessu hér inn í albúmi. Rollu rúnturinn gengur líka áfram og sá ég til lambakóngsins núna nýverðið sem fæddist fyrstur og er kollóttur hrútur undan tvævettlu og Baug sæðishrút. ![]() Hér er hann ásamt fleiri lömbum. ![]() Svana með fallegu gimbranar sínar undan Garra. ![]() Hér sést niður í Búland sem er fyrir neðan Búlandshöfða Höfða megin. Það eru ekki allir sem vita af þessum stað hann er fyrir neðan veg og þarna ganga Höfða rollurnar mínar þær eru allveg hættar að fara lengra nema aðeins framm í brekku framan á Höfðanum. Ég er mjög fegin því þá eru þær ekki að hanga á veginum. ![]() Hér sjáiði veginn og Höfðann fyrir ofan og ef litið er niður sést ofan í Búland. Þetta er mjög garalegt svæði að smala og alls ekki fyrir lofthrædda. Það er nefla gömul kindaslóð sem liggur hérna niður og meðfram öllum Höfðanum og er hún ekki mannfær bara rollufær. ![]() Ófeig veturgömul hans Bóa með tvo hrúta undan Mugison. ![]() Uppáhaldshrútarnir mínir undan Hyrnu ég er svo spennt fyrir þeim, þeir eru undan Rafal sæðishrút. ![]() Hér er Mjallhvít með móra sem var vanin undir og svo hvítan hrút undan Ás. ![]() Flottur hópur hér Fíóna veturgömul með hrút undan Glaum hans Sigga og svo Snælda með gimbranar sínar undan Brimil Borðasyni. ![]() Drífa með gimbur undan Snævari og svo veturgömul frá Sigga með gráa gimbur og það er eina mislita lambið hans Sigga í ár. ![]() Donna er hundurinn okkar og er hún aðal fjárhundurinn minn til að nálgast kindurnar því það er svo skondið að þær eru svo forvitnar í hana að þær koma mikið nær þegar hún er nálægt og þá næ ég betri myndum. ![]() Þessar glytti í um daginn upp í Fögruhlíð og eru þetta Skuggadís og Ísabella og svo Herdís hennar Jóhönnu með þeim. Þær eru svo styggar að ég gat rétt náð myndum af þeim áður en þær tóku straujið aftur upp í fjall. Það eru svo miklu fleiri myndir af þessu hér inni. Jæja spennan er allveg að fara með mann núna rétt aðeins vika í smölun. Ég veit að Birgitta vínkona mín er að smala núna um helgina og réttað hjá þeim ó hvað þetta er æðislega spennandi tími. Jæja læt þetta duga að sinni en skrifa hér fljótlega aftur kveðja Dísa 02.09.2014 16:06Rúntur 1 sept![]() Rauðhetta með lömbin sín undan Glaum hans Sigga og þau eru fæddir þrílembingar en þriðja lambið dó á sauðburði. Skondið að þetta árið er þetta eini svarflekkótti hrúturinn sem ég á hver hafði trúað því he he . ![]() Ég var að taka myndir um daginn með Donnu og það vildi svo skemmtilega til að þessar komu hlaupandi til mín ég held að þær séu í eigu Friðgeirs á Knörr. ![]() Gloppa hans Sigga með sæðinga undan Garra. ![]() Hrifla með þrílembingana sína undan Saum sæðishrút. ![]() Mist með rosalega þykka og fallega gimbur undan Ás sæðishrút mér finnst hún vera allveg fáránlega sver að framan. ![]() Drífa með gimbrina sína undan Snævari sæðishrút. ![]() Hér bætist ein ný í safnið þetta er hún Dollý hans Sigga í Tungu með gimbur undan hrútnum hans Óskars í Bug. ![]() Það var dælt út út fjárhúsunum um helgina og dreift á túnin. ![]() Tveir fallegir undan Hyrnu og Rafal sæðishrút. ![]() Mynd af öðrum þeirra nær tekið. ![]() Flottir þessir undan Maístjörnu og Guffa sæðishrút. ![]() Litla Gul hans Sigga í Tungu hún var með 2 hrúta en tapaði hinum nýlega að afvelta. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi. 24.08.2014 01:09Sigurrós,Elding,Rósalind ,Eygló og SvörtBara gleði gleði hér ég datt aldeilis í lukkupottinn í dag og náði góðum myndum af nýjum kindum og lömbum. ![]() Botnleðja með þrílembingana sína undan Brján. Ég er enn að bíða eftir að ná betri mynd af þeim þegar ég kemst nær henni. ![]() Snælda með gimbrina sína undan Brimil. ![]() Hin gimbrin hennar Snældu. ![]() Glódís með hrút og gimbur undan Brján. ![]() Hrútar undan Maístjörnu og Guffa. ![]() Gimbrin undan Ösp og Blika. Hún var með 2 en hin drapst í fæðingu. ![]() Elding með gimbrina sína og það vantar hina sem á að vera botnuflekkótt O það er alltaf jafn svekkjandi þegar vantar lömb. Hin er svo Rósalind með gimbur og hrút undan Glaum. ![]() Sara veturgömul með gimbur undan Blika. ![]() Hosa með hrút undan Þorsta sæðishrút og einnig gimbur undan Þorsta sem er þrílembingur undan Guggu sem var vanin undir hana. ![]() Sigurrós veturgömul með 2 gimbrar undan Blika. Ein kollótt og ein hyrnd frekar skondið. Ég er ekki fyrir að blanda saman kollóttu og hyrndu en neyddist til þess því ég náði ekki að fá lánaðan kollóttan hrút og því verða nokkrir blendingar í haust undan þeim ám sem ég sæddi ekki. ![]() Eygló með hrút undan Glaum og hún var með annan allveg eins en hún tapaði honum í sumar og það sem er svo skrýtið að hún týndi líka öðru lambinu í fyrra og einnig Elding hér fyrir ofan sem vantar botnuflekkóttu gimbrina svo það er spurning hvort þær séu á eitthvað vafalegum slóðum með lömbin sín úr því að þær tapa aftur lömbum núna í ár. ![]() Svört hans Sigga með þrílembingana sína undan Garra sæðishrút. Svakalega flott lömb hjá henni eins og árum áður allveg topp ær. Ú hvað það verður gaman að fá að sjá alla þessa gripi þegar það verður rekið inn. ![]() Embla í berjamó í nýju peysunni sinni sem Brynja frænka var svo góð að prjóna á hana og gefa henni. ![]() Hér eru veturgömlu sem voru hafðar geldar. Loppa Doppa, Líf, Skrýtla og Gersemi. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi. 23.08.2014 00:25Ú svo spennt fleiri lambamyndirVissi að það yrði ekki langt í næsta blogg hjá mér enda iða ég af spenningi að deila með ykkur nýju myndunum sem ég náði í gær og í dag af lömbunum. Þá er ekki eftir neinu að bíða nema skella þeim hér inn. ![]() Hér er Mjallhvít með móra undan Mugison og hrút undan ÁS sæðishrút. ![]() Mist með gimbur undan Ás sæðishrút. ![]() Veturgömul frá Sigga með gráa gimbur. ![]() Hyrna með hrúta undan Rafal sæðishrút. Ég er rosalega spennt að fyrir þeim. ![]() Frá Sigga Dropa held ég með hrút og gimbur. ![]() Dröfn með gimbur þrílembing undan Garra. ![]() Hinn á móti gimbrinni. Þau ganga 2 undir við vöndum eitt undan henni. ![]() Soffía hans Sigga með hrút undan Brimil held ég. ![]() Gloppa hans Sigga með hrút og gimbrin er fyrir aftan hana. ![]() Hér kemur svo gimbrin. ![]() Hér er Frigg með hrút og gimbur undan Kára sæðishrút. Ég er að vona að þessi bæði verði ásettningar. ![]() Gimbranar undan Garra og Aþenu. Hér eru svo fleiri myndir af þessu hér inni. ![]() Rúntaði með Jóhönnu um daginn inn í Tungu og þar voru rollurnar hennar og þær eru vel uppaldar því hún kallaði á þær og þá komu þær hlaupandi að fá brauð hjá henni. ![]() Gimbur undan Guffa sæðishrút. ![]() Eldibrandur hans Sigga alltaf jafn duglegur í fuglunum. Hér er hann með Hrossagauksunga. ![]() Hér er Maístjarna með 2 hrúta undan Guffa sæðishrút. ![]() Freyja Naómí adrenalín sjúklingur að renna sér í sundlaugina og hún fór sko allveg á fleygiferð á bólakaf. ![]() Hér er Embla prinsessan okkar. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inni. 20.08.2014 13:115 ára afmæli Benónýs og Glænýjar lambamyndirYndislegi Benóný Ísak okkar var 5 ára í gær þann 19 ágúst. Það er allveg ótrúlegt hvað tíminn flýgur að það skuli vera kominn 5 yndisleg ár síðan að hann fæddist og það hefur fært okkur allveg ótrúlega reynslu,þroska og ég tala ekki um gleði og hamingju í líf okkar. Afmælið hans var allveg frábært í alla staði og var þetta í fyrsta sinn sem við bjóðum krökkum heim og fannst honum það allveg æði og allt gekk svo vel við vorum búnað gera útisvæði fyrir þau út á palli með allsskonar afþreyjingu og svo höfðu þau trampólínið og sandkassann. Við vissum ekki af þeim þau dunduðu sér svo vel saman og ekkert vesen allir vinir og mér fannst þetta bara rosalega gaman og auðvitað skemmtu þau sér allveg konunglega Benóný var eitt bros allann daginn svo ég þakka krökkunum allveg kærlega fyrir að koma og njóta þessa dags með okkur hann færði okkur mikla hamingju og gleði. ![]() Benóný Ísak að pósa fyrir Karítas frænku sína. Karítas var svo góð að hjálpa mér með krakkana og taka myndir fyrir okkur takk kærlega fyrir besta frænka. Ég þakka líka Jóhönnu fyrir alla aðstoðina í að hjálpa mér að baka. ![]() Ég gerði heiðarlega tilraun til að gera fyrir hann sundlaugina í Sandgerði og rennibrautirnar sem er hann æðsti draumur að fara í og verður það vonandi að veruleika áður en sumarið tekur enda. ![]() Veisluborðið var með skúffukökuna og svo pizzasnúða og rice krispi með oreo fjólubláa súkkulaðinu frá milku og vakti það mikla lukku. Svo auðvitað nóg af nammi. ![]() Rennibrauta gleði við gáfum Benóný þessa rennibraut í afmælisgjöf svo var líka rennt sér á sólstólunum niður af heitapottinum svo þó að heitapotturinn sé alltaf bilaður kemur hann þó að einhverjum notum he he. ![]() Hér má sjá hina rennibrautina sem við gerðum fyrir hana til þess að hafa hana lokaða með smá myrkri rosa stuð. ![]() Og það var líka hoppað og skoppað. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. ![]() Jæja það er svo langt síðan ég hef bloggað að það er til skammar. Þessi mynd er tekin um miðjan júlí og er þetta Aþena með gimbrarnar sínar undan Garra. ![]() Hér er Hyrna með hrútana sína undan Rafal og ég tek það fram að þetta er gamla myndavélin mín því mín eyðlagðist í sumar og er það líka ástæða fyrir því að ég hef ekki verið eins myndaglöð í sumar en það fer batnandi því ég er búnað fá mér nýja Jibbí ![]() ![]() Heyskapur hófst svo loksins eftir rigninga sumarið mikla og var hey víða úr sér sprottið en held við höfum bara fengið ágætis hey alla vega af Fögruhlíð og það er nóg af heyji til svo nú er bara ekkert annað í stöðunni að bíða eftir að skoða lömbin og fara setja á he he . ![]() Sóley með fóstur lömbin fyrir mig og hafa þau bara stækkað fínt þetta voru tvílembingar undan sitt hvorum gemlinginum sem ég skellti undir hana þegar hún missti lambið sitt í vor. Sóley er í eigu Maju systir. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inni ![]() Fórum suður í júlí og fórum með Steinari ,Unni, Magga, Erlu og Emelíu í dýragarð í Mosfellssveit. Það var rosalega gaman þar fengu krakkarnir að klappa og halda á dýrunum og svo var hægt að kaupa 2 hringi á hestbaki ekkert smá sniðugt sá þetta allveg í hyllingum að kaupa Mávahlíð bara og gera svona með búskapnum he he maður má láta sig dreyma það er markmið ![]() Á myndinni er Embla á hestbaki allveg í skýjunum. ![]() Freyja og Birgitta að klappa kálf rosa gaman. ![]() Svo voru þau bara með svona sand og leikföng og þetta var þvílíkt vinsælt hjá krökkunum. Mér finnst þetta allveg snilld hjá þeim sem eru með þennan Dýragarð. Hér er Maggi og Erla að leika við Freyju og Benóný. ![]() Gullmolinn okkar orðinn tilbúinn og hér er meistarinn sjálfur hann Steini sem er búnað vera gera hann svona rosalega flottann fyrir heyskapinn. ![]() Heyskapur í Tungu og Benóný heldur rosalega mikið upp á þennan gullmola hjá Sigga. ![]() Það var hópað fólki saman að svæðinu á Verslunarmannahelginni og haldin smá brenna upp í Rauðskriðumel. ![]() Fór loksins þegar stytti upp rigningunni og þegar það var búið að slá kirkjugarðinn á Brimisvöllum og skreytti fyrir hann pabba ég setti englastyttu sem ég á og týndi svo fjörugrjót úr Mávahlíðarfjörunni og smá Berg úr Kötluholti fyrir hann. ![]() Skreytti líka hjá Steina og setti annan engil svo setti ég líka lítið grjót hjá henni Gerðu í Tungu og það er frá Ósnum fyrir neðan Tungu. Blessuð sé minning ykkar yndislega fólk. ![]() Fórum í heimsókn til Inga Björns Meistara og Emil spilaði við hann Fifa. Hann elskar að spila Fifa með honum. Við fórum svo líka í húsdýragarðinn með Unni og Birgittu og margt fleira svo endilega kíkið hér inn í albúm ef þið viljið skoða. ![]() Fórum á Super Sub að borða og mæli ég allveg geggjað með þessum stað við gátum borðað í friði og krakkarnir léku sér í öllu flotta sem er í boði þar. Það er hægt að fá báta og pizzur og margt fleira og það bragðaðist allveg ljúffenglega. ![]() Jæja þá er nýja myndavélin komin í gagnið og hér er Skvísa með hrútinn sinn. ![]() Dóra með þrílembingana sína en það vantar hrútinn það er ekki langt síðan að hann fór undan svo ég vona að hann hafi frekar villst undan heldur en að hann sé dauður. ![]() Rauðhetta með botnuflekkóttan hrút og botnuhosótta gimbur undan Glaum. ![]() Rán með þrílembingana sína. ![]() Hér sést svo gimbrin hennar líka. ![]() Einn Guffasonur frá Jóhönnu. ![]() Mírranda forrystu kindin mín með gimbrina sína. Gimbrin er reyndar blönduð og er undan Mugison svo hún er ekki allveg ekta forrysta. ![]() Hríma hennar Jóhönnu með gimbur undan Ás. ![]() Guffa synirnir hennar Jóhönnu þessir svörtu. Það má svo skoða þessar myndir hér inn í þessu albúmi. ![]() Rúntur í ágúst allveg glænýtt. Hér er Frigg með gimbrina sína og hrút undan Kára. ![]() Fyrir aftan Vigga hans Bóa með gráflekkótta gimbur og það vantar hrútinn hennar hún tapaði honum snemma í vor. Síða er það Svana með gimbranar sínar undan Garra. ![]() Botnleðja með þrílembingana sína undan Brján og svo Fíóna veturgömul með hrútinn sinn. ![]() Draumarós veturgömul hún bar seinust og kom með karlömb eiginlega þau voru svo lítil en það er nú eitthvað að teygjast úr þeim núna. ![]() Frá Sigga ég man ekki allveg hver hún er en hún er veturgömul og er með fallegan hvítan hrút. ![]() Hér sést í Botnleðju og Snældu og hún er með 2 gimbrar undan Brimil og bind ég miklar væntingar við þær því Snælda átti 88 stiga hrútinn í fyrra. ![]() Bolla gamla orðin lúin og fær að fara í haust blessunin en hér er hún heldur hölt með hrút og gimbur undan Glaum hans Sigga í Tungu. ![]() Lotta frá Freyju og Bóa með hrút og gimbur undan Mugison. ![]() Hriffla er hér til vinstri og er hún með þrílembinga undan Saum og mér lýst allveg rosalega vel á þá allavega er stærðin fín miðaða við að þau ganga öll undir. ![]() Hænana í sveitinni hjá Bóa og Freyju ungaði þessum fallegu ungum út. ![]() Ísey gemlingur undan Klett og Ísabellu með gimbrina sína. Það eru svo fleiri rollu myndir hér inn í albúmi hér. Jæja þá er þetta stóra blogg loksins komið hjá mér og ég mun setja inn reglulega núna því núna eru börnin byrjuð á leikskóla og Freyja yngsta fer að fara í aðlögun svo þá mun gefast meiri tími fyrir mig að taka myndir og blogga. Bara spennandi tímar frammundan ú ég get ekki beðið eftir að smala þetta er svo æðislegur tími. 15.07.2014 21:43Börnin hitta Skoppu og Skrítlu og auðvitað fleiri rollu myndir.![]() Skoppa og Skrítla á Sandaragleðinni og auðvitað fengu krúttin mynd af sér með þeim. ![]() Ein sundlaugamynd fyrir Benóný hér er hann í sundi á Eskifirði rosalega gaman. ![]() Hér er Emil og Embla verið að græja sandkassann í garðinum hjá okkur. Verst að það er alltaf rigning svo hann hefur ekki verið mikið notaður. ![]() Sæt frændsystkynin á Sandaragleðinni að borða pylsu. Benóný, Birgitta, Freyja og Embla. Það var sko mikið reynt að taka mynd af þeim öllum saman en það var alltaf einhver sem horfði ekki eða fór í burtu. ![]() Hér er yndislega fjölskyldan Steinar bróðir Emils og Unnur með Birgittu Emý og það er svo litill prins á leiðinni í nóv rosa spennó. ![]() Stuð í aparólunni á Malarrifi. Hér er Steinar að fara prófa. Það eru svo fleiri myndir af þessu öllu hér inni í albúmi. ![]() Hér er Rán með þrílembingana sína tvo hrúta og eina gimbur. ![]() Rakst á þessa um daginnn þetta er Feikirófa með hrút og gimbur undan Brján. ![]() Feikirófa gemlingur með hrút undan Glaum hans Sigga. ![]() Held að þetta sé litla Gul hans Sigga með 2 hrúta. ![]() Hér er mynd af hrútunum hjá Jón Brynjari sem við heimsóttum fyrir austan. Þessi hvíti hyrndi sem þið sjáið keypti hann af okkur í fyrra haust. Það var mjög gaman að fá að koma og skoða hjá honum og þessi hviti kollótti hefur verið að gefa honum mjög góð lömb og þroskamikil og hefur hann átt þyngstu lömbin í Breiðdal. ![]() Þeir eru vel spakir hjá honum eins og sjá má á þessari mynd. ![]() Við fórum líka í heimsókn til Rúnars á Ásunnarstöðum í Breiðdal. Hann keypti líka hrúta af okkur en við gátum ekki skoðað þá því þeir voru út í haga en það var mjög gaman að koma í heimsókn til hans. ![]() Gummi að slá inn í Tröð seinast liðinn föstudag og náði hann að rúlla það undan rigningunni. Í þessum töluðu orðum eru Emil og Steini farnir inn í Fögurhlíð að slá og nú verðum við bara að krossleggja fingur að veðurguðirnir þóknist okkur. Þetta er allveg með einsdæmum þessi tíð og ekkert að marka spánna hún breytir um eins ekkert sé með degi hverjum. ![]() Hrútarnir stilltu sér vel upp fyrir mér um daginn. Hér eru hrútarnir hans Óskars þessi kollótti og hyrndi veturgömlu og svo kemur Bliki fyrir aftan og svo hrúturinn hans Jóa á Hellissandi og svo Brimill. Jæja nú ætla ég að fara taka rúnt og sjá hverning gengur að slá og bið alla að hugsa stíft til okkar að það haldist þurrt næstu 2 daga he he Það eru svo fleiri myndir af þessu öllu hér inni. 08.07.2014 16:44Ferðalag á Akureyri og rollu rútntur![]() Fórum norður til Akureyrar með Magga bróðir og Erlu og áttum þar rosalega flott viku. Það var Magga og Erlu að þakka að við fórum því þau voru með verkalýðsíbúð sem þau gátu bara nýtt yfir helgina og við fengum svo að nýta restina af vikunni. Við fengum allveg geggjað veður og sem betur fer því ekki hefur verið mikið um sólardaga hér heima síðan að við komum heim. Eins og sést á myndinni þá er Benóný allveg í essinu sínu í rennibrautunum og fórum við oftast á Hrafnagili í sund því þar var mjög gott að vera og alger snilld fyrir barnafólk því þar er upphituð vaðlaug við rennibrautina. Hver kannast ekki við að þurfa að bíða í ískaldri lauginni við rennibrautina meðan krakkarnir renna allavega ég og þarna þurfti ég þess ekki heldur lá bara með Freyju í vaðlauginni og fylgdist með svo ég mæli eindregið með þessari laug mér fannst hún snilld. ![]() Embla er orðin svo köld að hún gaf Benóný ekkert eftir í rennibrautunum og hér erum við í sundi á Dalvík og fórum við svo einnig í sund á Akureyri og Eskifirði þegar við enduðum svo ferðalagið okkar á því að fara allaleið austur til Ágústar bróðirs og Írisar. Mér til mikillar ólukku þá eyðilagðist myndavélin mín á Dalvík og ég gat ekki tekið myndir á hana þegar við fórum austur en ég á það til í símanum og ég kann ekki að færa þær yfir í tölvuna eins og er svo það verður bara að koma þeim myndum inn á facebookið. ![]() ![]() Ég fór svo auðvitað í heimsókn til hennar Birgittu kindavínkonu og þar var tekið vel á móti okkur og fórum við meira segja tvisvar til hennar og Þórðs í þeirra yndislegu sveit. Ég var allveg dáleidd af sveitinni þeirra það er svo rosalega fallegt umhverfið hjá þeim. Ég veit þessi mynd er svolítið hreyfð en ég varð bara að setja hana inn. Það var rosalega gaman að fá að kíkja til ykkar takk kærlega fyrir okkur . ![]() Freyja blómarósin mín í Kjarnaskógi. ![]() Kíktum líka í sumarbústað til Jóhanns og Þórhöllu á móti Illugastöðum ég man ekki hvað það heitir en það var æðislegur staður og svakalega flott leiksvæði fyrir börn. Hér eru allir í krikket og það endaði með því að Freyja fékk kúlu eftir systir sína sem sveiflaði óvart í hana kylfunni. ![]() Maggi og Erla með Freyju í Lystagarðinum á Akureyri. ![]() Sessa með gimbrina sína og Vigga með flekkóttu. ![]() Mjallhvít með hrút undan Ás og Hríma hennar Jóhönnu með gimbur undan Ás. Það eru svo fleiri myndir bæði af rollum og ferð okkar norður með því að smella hér. ![]() Mist með gimbur undan Ás og mun hún heita Ása ef hún verður sett á. ![]() Hrútur og gimbur undan Kára og Frigg ég er rosalega spennt fyrir þeim. ![]() Þrílemibngarnir undan Mugison og Rán. ![]() Svana með tvær gimbrar undan Garra virka mjög flottar. ![]() Botnleðja með þrílembingana sína undan Brján. ![]() Skuggadís, Ísabella og er ekki allveg klár á hver hin er en ég held að það sé Herdís hennar Jóhönnu. ![]() Svana með gimbrarnar sínar undan Garra. ![]() Kápa með hrút og gimbur undan Brimil. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inni. Jæja svo er núna komið að því að fara huga af heyskap og ekki er nú veðrið að leika við okkur þessa dagana það er alltaf rigning. Siggi sló fyrir mánaðarmót og hefur ekki getað hreyft við því fyrr en núna fyrst og tóku þeir eitthvað af þvi saman í gær og er það harla fátt sem hann hirðir því megnið af því er orðið ónýtt. Samkvæmt nýjustu spám veður kanski hægt að heyja um helgina og vona ég að það standist. Af okkur að segja þá er Emil á fullu að græja bátinn á makríl og krakkarnir eru komnir í frí á leikskólanum svo það er nóg að gera að hafa ofan fyrir þeim. Tala nú ekki um þegar veðrið er svona. En við verðum bara vera bjartsýn það hlýtur að fara koma sól og sumar hjá okkur. 19.06.2014 20:50Rollu rúntur hafin og Ferming Eyrúnar![]() Rollu rúnturinn minn hafin og alltaf jafn gaman að sjá lömbin stækka. Hér er Svört hans Sigga með þrílembingana sína undan Garra. ![]() Hrifla með þrílembingana sína undan Saum. ![]() Drífa með lömbin sín gimbur undan Snævari og hrút undan Garra frá Dröfn. ![]() Fékk þetta fallega málverk um daginn og mér finnst það allveg svakalega flott og þykir mér allveg einstaklega vænt um það. ![]() Þetta bréf fylgdi með og er þetta gjöf frá Trausta Magnússyni úr Ólafsvík. ![]() Ferming Eyrúnar var núna um Hvítasunnuna og hér er hún allveg glæsileg með bróðir sinn Bjarka Stein krútt. ![]() Ég átti afmæli núna 17 júní og fékk þessa fallegu mynd sem Jóhanna Bergþórsdóttir málaði handa mér og finnst mér hún allveg geggjuð. ![]() Tók mynd af þessu fallega folaldi hjá Gunna og Veróniku á Brimisvöllum. ![]() Mávahlíðarfjaran í sýnu fegursta með Snæfellsjökulinn í bakgrunn. ![]() Nú er aðeins einn kettlingur eftir og fer hann á morgun. Myrra greyjið á svo tíma á morgun að láta taka sig úr sambandi svo þetta verður erfiður dagur fyrir hana að kveðja kettlinginn sinn og fara í stóra aðgerð. Það eru svo myndir af fermingunni,rollurúntinum og öllu saman hér inni. 09.06.2014 09:06Sauðburðarlok og fleiraJæja þá er sauðburði lokið og seinustu ærnar fóru út núna seinast liðinn fimmtudag. Það var gemlingur sem bar næst seinastur og kom hann með allveg pínulítil lömb eins stór og þroskamikill eins og hann er sjálfur en það virðist ekki koma sama sem merki að það verði stór lömb. Ég hélt honum því inn þangað til seinasti gemlingurinn bar og sem betur fer kom hann með stórt gemlingslamb. ![]() Hér fara þær út í haga með gimbrarnar sínar sú stærri er undan Kjöl hans Sigga og hin 2 eru undan Blika Gosa syni. ![]() Á sama augnabliki og ég var búnað sleppa út minnstu lömbunum hitti ég þessa ínn á Holtsbrú á vappinu hún leit á mig og labbaði svo bara rólega í burtu á miðjum degi. Þetta hefði maður nú ekki séð þegar faðir minn heitin var til staðar þá voguðu þær sér ekki niður í byggð enda vissu þær af skyttunni sem þar réð öllu. Ég óska þess bara að hún verði til friðs og láti lömbin í friði hjá okkur. ![]() Okkar elskulega Þorgerður Jónsdóttir eða Gerða eins og við kölluðum hana kvaddi okkur þann 25 maí. Inn á Sjúkrahúsi Stykkishólms. Gerða var búnað vera með krabbamein og berjast gegn því með ótrúlegri jákvæðni og lífsvilja sem mest getur verið og veitti það öllum í kringum hana von um að hún myndi sigrast á því. Ég hef ekki kynnst annari eins manneskju og Gerðu hún var allveg einstök og kvartaði aldrei undan veikindum sínum nema í bláendann þegar hún vissi að krabbinn væri búnað buga hana. Hennar verður sárt saknað að hún sé ekki viðstödd allt sem tengist sauðfjárræktinni því hún var stór þáttur af því og ég tala ekki um gestristnina hennar sem allveg var til fyrirmyndar og slík er sjaldfundin nú á dögum. Það kom sko engin í kaffi nema að hún væri með ilminn af nýbökuðum kökunum sínum allveg frá pönnukökum upp í rjómatertur og þekkja það allir sem til hennar komu. Hún þekkti allt til veðursins og kennileita og fróðari konu hef ég ekki kynnst. Við fengum að njóta nærveru hennar náið seinustu 3 ár sem við fengum að hafa kindurnar okkar í fjárhúsunum hjá henni og Sigga. Það hefur verið okkur mikil hamingja að hafa kindurnar þar hjá þeim og njóta félagsskapar þeirra og munum við gera það áfram hjá honum Sigga. Við verðum þeim ævilega þakklát fyrir að hafa fengið þessa aðstöðu þvi annars hefðum við ekki getað stundað búskapinn okkar. Hvíldu í friði elsku Gerða okkar og hafðu það ávallt best hvar sem þú ert. Minning þín mun lifa um aldur og ævi. ![]() Maður er nú strax byrjaður að fara á rollu rúntinn og fylgjast með lömbunum dafna og hér er Hulda inn í Máfahlíða túni með gimbrina sína undan Ás já hún er blönduð hynd og kollótt en það var nú bara gert að ganni því ég var með heilt strá og það voru svo fáar að ganga en gimbrin virkar vel breið á framan. ![]() Þessi fallegu Álftarhjón eru búnað gera sér hreiður niður á Gili í Máfahlíð. ![]() Þessi skvísa hún Freyja Naómí sem er 17 mánaða gerði sér lítið fyrir og bað allveg sjálf að pissa í koppinn og gerði það ekkert smá dugleg svo nú fer ég að bjóða henni hann svona hægt og rólega. Einn morguninn þegar ég var búnað fara krakkana á leikskólann og Freyja var heima hjá Emil þá lenti ég í því að hún hefði tekið músina af tölvunni og falið hana fyrir mér. Ég leitaði og leitaði og hugsaði svo jæja ég hlýt að finna hana á eftir svo ég fór bara og ristaði mér brauð og borðaði og hugsaði samt allveg hvaða lykt er þetta eiginlega og pældi svo ekki meira í því og ristaði mér aðra brauðsneið og aftur kemur þessi ógeðslega lykt og ég klára brauðið og fer svo að leita og viti menn haldiði að ég finni ekki músina bráðna í klessu ofan í brauðristinni og ég búnað borða brauðið með bestu lyst en það var auðvitað hinum megin. ![]() Hér sést svo músin ofan í ristinni he he. ![]() Og hér er hún eftir að við náðum henni upp úr og hún var öll bráðin og ég náði ekki batteríinu úr og músin var en blikkandi. Já það allveg magnað hvað þessi börn geta tekið upp á og brauðristin fór í ruslið og músin líka því ég tek ekki séns á því að rista brauð í rist sem er búið að bræða batterí ofan í. ![]() Krakkarnir kátir með kettlingana sem stækka með hverjum deginum og eru í miklu fjöri og uppáhaldi hjá börnunum svo það verður eitthvað þegar þeir fara allir að heiman. ![]() Hérna er hann Eldibrandur fjörkálfurinn hans Sigga í Tungu og mikil vinur Benónýs. Það er allveg magnað hvað Benóný fær að dröslast með hann og hann leitar allveg uppi athyglina hjá Benóný. ![]() Og já það er sko mikið fjör hjá okkur núna. Við fórum á dögunum til Reykjavíkur og keyptum eitt stykki trampólín fyrir krakkana og þau eru allveg að elska það. Þetta er allveg mögnuð græja og ég tali ekki um að þreyta þau fyrir svefninn he he en fyrsta daginn voru þau bæði Embla og Benóný að kvarta yfir maganum því þau voru búnað hoppa svo mikið að þau voru að deyja örugglega úr harðsperrum. Það eru svo fleiri myndir af þessu öllu saman hér inni. ![]() Hérna er hún Snælda upp í tré. ![]() Hérna er Olíver. ![]() Hérna er Brandur upp í tré. ![]() Og hérna er hann Snúður. Það eru svo fleiri kettlinga myndir hérna inni. 22.05.2014 22:30Sauðburður og kettlingar![]() Hér er litla vinnukonan mín að störfum hún Freyja Naómí þó hún sé smá er hún allveg ótrúlega dugleg að stússast í fjárhúsunum með mömmu sinni. Þessi sauðburður er búnað ganga bara að mestu leyti vel og aðeins hafa 2 lömb drepist fyrir utan dauð fóstur úldin sem kom einmitt hjá kind sem heitir Móra og við lentum í því að legið á henni kom út og hún hefur farið á stað með 3 lömb og 2 voru úldin fóstur og eitt lifandi. Þetta var með því ógeðslegasta sem ég hef lent í því ég hafði samband við Hjalta dýralækni og ég reyndi með mesta móti að troða því aftur inn og Siggi og Gummi Ólafs héldu henni á meðan en ekkert gekk þetta var allt of stórt til að komast inn aftur enda komið allveg niður á gólf svaka köggull svo Gummi lóaði henni fyrir okkur og lambinu sem lifði var komið undir næstu einlembu sem bar. Hin 2 lömbin sem dóu var þannig að Ösp var byrjuð að bera um 10 og ekki komin belgur eða neitt og við ákváðum að gefa henni tíma til að verða 12 og þá var hún borin og annað lambið hafði kafnað í belgnum ekkert smá svekkjandi það kenndi manni að maður á ekki að láta líða svona langt á milli það er aldrei að vita hversu fljótar þær eru. Hitt lambið var þrílembingur undan Rauðhettu gimbur botnuflekkótt rosa falleg og hún dó úr slefsýki. Það var gefið henni sykur vatn, skítapillu og reynt öll trix en það gekk ekki. Ótrúlegustu hlutir hófu svo að gerast þetta sauðburðar ár því fyrst fór legið út á henni Móru og henni var lógað. Spíra hans Sigga skaut svo líka út á sér leginu og tókst Sigga og Bóa að koma því aftur inn með átökum og loka fyrir með stikkinu sem er fest í ullina . Svo kom ég í fjárhúsin í gær og þá var legið komið hálft út á annari henni Sillu og ég stökk og náði mér í milda sápu og þvoði það og lét svo renna ískalt vatn á það og hringdi svo í Bóa og hann kom og hjálpaði mér og ég kom því inn aftur og allt í lagi með það en svo var Smári búnað koma og sækja Bóa og þá lít ég við og DEM legið var aftur komið út svo ég tróð því aftur inn og alla leið inn í þetta sinn ég vissi ekki að ég ætti að fara með hendina lengst inn í hana til að það myndi sogast inn OJ ég veit þetta hljómar ekki vel enda var þetta ógeðslegt. En þetta hafðist og fyrir algera tilviljun var ég með gula stykkið í bílnum því ég hafði fengið það lánað hjá Óla í Lambafelli og ætlaði að skila því þennan morgun allveg ótrúlegt að vera með það og lenda í þessu og auðvitað festi ég það svo á hana og legið helst allavega inni núna. Hversu skrítið getur þetta samt verið að þetta hefur ekki skeð í 30 ár eða meira svo Siggi muni að það komi svo 3 núna með legið út. Ég var svo einmitt að tala um þetta við Bárð og þá lenti hann líka í því að gemlingur hjá honum kom með þetta út og áður hafði hann aldrei lent í þessu. Einnig talaði ég við vinkonu mína á Ytri Hofdölum og þau lentu í þessu núna og dýralæknirinn hjá þeim sagði að hann væri búnað sinna óvenju mörgum svona tilfellum í ár. Já þetta er stór spurning hvað veldur þessu svona mikið í ár. ![]() Hér er hún Silla greyjið með leghölduna sína og ég búnað binda hana með bandi svo hún losni allveg örugglega ekki. Það er svo líka gaman að segja frá því að það er aldeilis búið að bætast við lamba talninguna hjá okkur því það komu tvær þrílembdar sem voru sónaðar með 2 og 1 veturgömul með 2 sem átti að vera með 1. 2 gemlingar með 2 sem áttu að vera með 1. Ein síðan með 2 fósturlátin þessi mórauða sem hefur farið af stað með 3 en kom með 1. Svo það eru 5 auka lömb sem bættust við eins og komið er. Bara gaman að fá svoleis svo er ég rosalega lukkuleg með að allir gemlingarnir sem fengu með Blika Gosa syni komu með 2 því einn kom með auka lamb en var sónaður með 1. Eins fæ ég bæði þrílembur og tvílembur undan Brimil Borðasyni svo ég get hætt að vera hrædd við ófrjósemina á bak við ætternismatið þeirra vona ég. ![]() Mist með fallega gimbur undan Ás. ![]() Frigg er ein af okkar bestu kindum og hér er hún með hrút og gimbur undan Kára sæðishrút. ![]() Hnota hennar Jóhönnu með tvo undan Guffa sæðishrút. Það eru svo fleiri myndir hér inni. ![]() Kettlingarnir stækka og stækka. ![]() Alger krútt hér má sjá fleiri myndir af þeim með því að smella hér. ![]() Fíóna með hrút undan Glaum. ![]() Embla Marína og Freyja Naómí með litlu gimbrina hennar Ísey. ![]() Tvílembingar undan gemlingum þeir svörtu undan Zeldu og þeir botnubildóttu undan Sölku. Þeir eru undan Mugison móflekkótta hrútnum mínum og hann er að gefa mjög þroskamikil lömb enda stór og þroskamikil sjálfur. ![]() Botnleðja að fara með þrílembingana sína á fjall undan Brján. ![]() Snotra hennar Jóhönnu með hrút undan Glaum og annað í fóstri. ![]() Dóra með þrílembinga undan Brimil 2 gimbrar og einn hrút. ![]() Snælda sem átti stigahæðsta lambhrútinn hjá Búa í fyrra með 2 gimbrar undan Brimil. ![]() Móheiður með hrútana sína undan Mugison. ![]() Dóra og Rán mæðgur eru báðar þrílembdar og ganga með þau öll og keyrðum við þær inn í Máfahlíð í safaríka grasið. Það má svo sjá fleiri myndir hér af þessu . ![]() Vigga gemlingur með lömbin sín undan Brján. ![]() Ófeig gemlingur með hrútana sína undan Mugison. ![]() Fallegu lömbin hennar Rósulind undan Glaum. Sú fremri gimbur og botnuflekkótta hrútur. ![]() Skrúfa hans Sigga var með 2 annað drapst en þetta litla sæta er rosalega duglegt. ![]() Botna hans Sigga með stóru lömbin sín undan Brimil. ![]() Soffía hans Sigga með gimbrina sína hún kom einnig með eitt úldið. ![]() ![]() Dollý hans Sigga með gimbrina sína. ![]() Rósalind að fara með gullin sín út. ![]() Undan Þrumu og Mugison hrútur og gimbur. ![]() Lagt af stað að vitja um með Bóa og Freyju. ![]() Svakalega spennandi hvort það komi fiskur í netið. ![]() Flottar saman Freyja og Freyja. ![]() Svo var byrjað að draga. ![]() Engin bleikja var í netinu bara ósaflúðra en krakkarnir skemmtu sér konunglega. Það eru svo fleiri myndir af sauðburði og fleira með þvi að smella hér. ![]() Svo er hérna prinsinn með uppáhaldið sitt þann svarta. ![]() Hér eru svo glænýjar kettlinga myndir af þessum krúttum með því að smella hér. Jæja segjum þetta gott að sinni ég á svo eftir að koma með loka sauðburðarblogg því en eru 8 kindur eftir að bera og verður sú síðasta gemlingur um mánarðmótin. 05.05.2014 18:12Sauðburður hafin og Myrra gotinJæja þá gef mér loksins tíma til að henda einhverju hér inn og ekki seinna vænna því sauðburður er hafin en þó rólega og er ég að deyja úr óþolinmæði að allt fari á fullt. ![]() Hrafna bar fyrst 28 apríl hrút undan Baug sæðishrút. Svakalega hvítur þykkur og fallegur. ![]() Nala var önnur og hún er með 2 gimbrar undan Baug sæðishrút. ![]() Flekka kom næst með 2 hrúta undan Baug líka. ![]() Svana með 2 gimbrar undan Garra. ![]() Svört hans Sigga kom með 3 undan Garra sæðishrút. ![]() Hrifla var sónuð með 2 en kom með 3 undan Saum sæðishrút. ![]() Dröfn með þrílembingana sína undan Garra. Það var vanið undan henni undir tvævettlu sem er með 1. ![]() Hér er Benóný með fyrstu bleikju sumarsins sem ég fékk í vaðlinum. Farið að grænka vel og maður bíður spenntur eftir sumrinu. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. ![]() Gugga með þrílembingana sína undan Þorsta. Það tókst að venja undan henni undir tvævettlu sem var með 1. Það er svo gaman að segja frá því að 1 strá sem ég notaði út Garra var notað í 5 kindur 2 hjá Sigga og 3 hjá mér og Siggi fékk tvær þrílembdar og ég fékk 1 þrílembda og 2 tvílembdar svo það er ekkert smá góð nýting á 1 strái 13 lömb alls. Sauðburður hefur gengið rosalega vel en hann fer mjög rólega af stað það bar til dæmis bara ein í dag og það var fyrsta mislita lambið sem kom og það er svartur hrútur undan Kára sæðishrút annars er allt hvítt sem komið er. Nú eigum við eftir að fá lömb úr Guffa, Ás og Kára í viðbót úr sæðingunum svo byrjar að koma úr heimahrútunum okkar og ég er að deyja úr spenningi yfir að sjá lömbin undan Mugison og Glaum. ![]() Fyrstu lambærnar fengu að fara út í gær og geldu gemlingarnir. ![]() Hrútarnir fengu líka að fara út í heimahagana sína í Máfahlíð og var rosa fjör eins og sjá má á þessari mynd. ![]() Mugison og Glaumur komnir inn í Máfahlíð. Myrra gaut svo 4 kettlingum á sumardaginn fyrsta. ![]() Hér eru krúttin. ![]() Benóný Ísak elskar svarta kettlinginn. ![]() Freyja verður líka að fá að halda á þeim. ![]() Embla Marína elskar þann hvíta mest. ![]() Algjörar krúttsprengjur engin furða að krakkarnir séu sjúkir. Ég þarf allveg að skammta þeim tíma með þá því þau gætu verið með þá allan daginn. ![]() Aðalfundur Búa var haldin núna seinast liðinn miðvikudag 30 apríl í Átthagastofu í Ólafsvík og fór þar fram verðlauna afhending , venjuleg fundarstörf, reikningar og fleira. ![]() Grundarfirði.
![]() Efstur í þessum flokki var Ingibjörg og Valgeir og svo átti Óli á Mýrum sem hér tekur við verðlaununum annað og þriðja sætið. ![]()
![]() Hér er Andrés og Jensína í 1 sæti fyrir kjötmat og gerð svo Þór annað sæti og svo Marteinn Gíslason Ólafsvík þriðja sæti.
![]() Hér er verið að veita verðlaun fyrir Bú með 9,0 í gerð sláturlamba. Í fyrsta sæti Sigurður Gylfason Tungu og í öðru sæti Óttar Sveinbjörnsson og í þriðja við.
![]() Emil að taka við verðlaunum fyrir okkur fyrir hæðst stiguðu lambhrútana og áttum við 1 og 3 sæti og svo átti Anna Dóra og Jón Bjarni Bergi 2 sæti.
25.04.2014 01:05Gleðilega páska og Gleðilegt sumar![]() Hér eru krúttin okkar búnað finna páskaeggin sín og allveg tilbúin að fara smakka á þeim. ![]() Myrra gaut 4 kettlingum á Sumardaginn fyrsta. Ég var á fullu að læra og klára verkefni svo ég þurfti að fá mömmu til að sitja yfir Myrru svo ég gæti skilað verkefninu á réttum tíma og sem betur fer hafðist það allt og mamma hugsaði um Myrru þangað til ég var búin og gat tekið við. Bæði Myrru og kettlingunum heilsast vel og allt gekk eins og í sögu. ![]() Nú fer spenningurinn að fara ná hámörkum því nú eru aðeins örfáir dagar í sauðburð og hefst hann á fullu núna á sunnudaginn en þá koma fyrstu sæðingarnir. Ég er líka svakalega spennt yfir lömbunum og litunum sem ég mun fá undan honum Mugison sem myndin hér er af en ég á samkvæmt talningunni eftir að fá 18 lömb undan honum. Ú þetta verður svo gaman og spennandi núna að það eru bara skemmtilegur tími framundan Það eru svo 2 ný myndaalbúm inn í albúmi það er af páskunum og ferð okkar til Reykjavíkur og einnig myndir af smá heimsókn í Lambafell í Ólafsvík og svo kettlingunum hennar Myrru. Læt þetta duga í bili því ég á eftir að vera fljót að blogga þegar sauðburðurinn byrjar og svo er ég á fullu núna að skipuleggja Aðalfund hjá Búa sem verður auglýstur á morgun. Kveð að sinni .... 31.03.2014 13:12Vor í lofti og fjöruferðSkelltum okkur í fjöruferð og vorum úti í mest allan dag í þessu blíðskapar veðri sem kom loksins. ![]() Verð klárlega að fara redda sandkassa á þennan bæ þegar börnin eru farin að moka skrautsteinana kringum pallinn he he. ![]() Skelltum okkur út á tjaldstæði að renna og róla. ![]() Og í hesthúsin til Steina. ![]() Ég fékk svo Steina með okkur í fjöruferð rosalega fannst þeim það gaman og Freyja var að sjá sjóinn í fyrsa sinn svona nálægt og var allveg sjúk að labba niður í fjöru. ![]() Það leynir sér ekki brosið hjá henni. ![]() Bestu vinirnir saman. Það eru svo fleiri myndir hér inni. 28.03.2014 23:28Embla Marína 3 ára![]() Elsku fallega Embla Marína okkar er 3 ára í dag. Innilega til hamingju með daginn þinn. Hún fær almennilega afmælisveislu þegar pabbi hennar kemur heim en hann er að róa í Grindavík núna svo ég var bara með smá kaffi fyrir þá sem áttu leið hjá á afmælisdeginum hennar. Embla fékk þennan svakalega fína kjól frá okkur en hún er búnað vera biðja um kjól sem snýst eins og ballerínu kjóll í langan tíma og varð allveg rosalega ánægð þegar hún opnaði pakkann með þessum. Við fengum Steina, Jóhönnu, Jóhann, Þórhöllu. Eyrúnu og Bjarka í kaffi til okkar og auðvitað Huldu ömmu og Freyju ömmu og Bóa afa og átti hún mjög góðan dag sem endaði með að hún fékk að fara í sveitina til Freyju og Bóa og það elskar hún allveg svo það var til að toppa daginn allveg. Takk kærlega fyrir góðan dag. Það eru svo smá myndir af deginum hér inni. ![]() Freyja Naómí elskar að koma í fjárhúsin og hér er hún að spjalla við Huldu sína. Það er búið að vera bara róleg heit í fjárhúsunum og Siggi er farinn að gefa sjálfur svo þetta er allt saman að skríða saman hjá honum. Spenningurinn er allveg að fara gera vart við sig fyrir sauðburð eftir öllum sæðislömbunum og einna helst er ég svo geðveikt spennt að biða eftir lömbunum sem koma undan Mugison þeim móflekkótta. Spennó hvort ég eigi eftir að fá draumalitinn minn mókrúnótt með sokka. Jæja hef þetta nú bara stutt og laggott að sinni og það eru myndir hér inni af kindunum. 10.03.2014 22:00Tekið af rollunum í seinna skiptið![]() Hér er Gummi aftur af störfum hjá okkur að taka snoðið. Það er nú meiri hörku drengurinn hann var að allann daginn langt fram á nótt og svo ætlaði hann að fara á Berg daginn eftir. Það eru svo fleiri myndir hér af rúninginum. Það var líka dugnaður í fólkinu með því Maja var búnað vera vinna síðan 6 um morguninn og átti svo að fara vinna aftur 6 daginn eftir og Emil var nýkominn af sjónum og var þrælað beint inn í fjárhús lant fram á nótt og svo fór hann á sjó um nóttina aftur. Ég aftur á móti var bara alger aumingi með flensu og lá allveg bakk raddlaus og með hita og kulda til skiptis svo ég var ekki viðstödd rúninginn í þetta sinn. Bói var svo líka nýskriðinn úr flensu og harkaði af sér að mæta og hjálpa. Siggi er svo líka allur að koma til og er orðinn svona rólfær að koma upp í fjárhús og fylgjast með og hjálpa. Steini frændi hefði svo orðið 85 ára núna síðast liðinn 6 mars. Allveg órtúlegt að það séu komin 5 ár síðan og manni finnst enn eins og það hafi bara verið í gær liggur við. Hans er sárt saknað og minningarnar af honum eru umkringdar mann á hverjum degi og munu verða um aldur og ævi blessuð sé minnig hans. ![]() Hér eru þeir bræður Ragnar , Leifur pabbi og Steini inn í Máfahlíð. Ótrúlegt að þeir séu allir farnir úr þessu lífi og enn stendur Höfðinn á bak við og breytist ei mikið ég spái oft í umhverfinu það er eiginlega alltaf eins nema aurskriður eða grjót hreyfist en mennirnir koma og fara og ný kynslóð tekur við. Ég var svo að klára mína fyrri lotu í skólanum og þurfti að fara í munnlegt próf í fyrsta sinn og var búnað fresta því 2 því ég var algerlega raddlaus. Ég er svo mikil gunga að ég ælaði fyrst ekkert að taka það því ég var svo súper stressuð að ég ætlaði ekki að sofna daginn fyrir af áhyggjum og um morguninn varð ég að drekka 3 bolla af kaffi taka svo treo við hausverknum og lesa undir prófið og því næst að tjasla saman tölvunni því ég er með gamla fartölvu sem skjárinn virkar ekki og ég þurfti að nota annan skjá og svo skalf ég gersamlega á beinunum eftir að skypið myndi hryngja. Náði svo að harka þetta af mér en valdi kolvitlausan miða í prófinu og það datt gersamlega allt út sem ég átti að vita um það og endaði með skammarlegt 5 fyrir prófið og plús það að ég komst að því að ég átti alltaf að fara yfir verkefnin mín og senda honum leiðréttingu í skilakassa eftir hvert verkefni GOD hvað það var geðveikt vandræðalegt hann heldur ábyggilega að ég sé alger vitleysingur en Jæks ég veit þetta þó allavega núna fyrir næstu lotu að ég eigi að gera þetta svona. Til að toppa þennan ágæta dag svo þá fór ég inn í sveit að gefa og var þvílíkt að flýta mér því ég var orðin í tímaþröng við að ná í krakkana af leikskólanum og sem betur fer var Siggi upp í fjárhúsum líka og hjálpaði mér að gefa svo ég náði að vera nógu fljót. Ég hringdi svo í Magga bróðir á leiðinni heim og var að létta af mér stessinu yfir þessu munnlega prófi og það var svona lúmskt slabb á leiðinni og haldiðið að ég hafi ekki bara misst bílinn út af við Geirakot nær sjónum og ég var eitthvað svo lengi að átta mig á því að ég var þögul í símann við Magga og sagði ég held ég sé að fara út af og hann allveg HA já ég er farinn út af og svo sprakk ég úr hlátri þetta var eitthvað svo kjánalegt bíllinn með rassgatið niður og húddið upp í loftið en sem betur fer þá dró snjórinn úr öllum hraðanum svo ég velti ekki. Svo hringdi ég auðvitað bara í Bóa og hann og Smári komu og kipptu mér upp. Það var samt leiðinda veður akkurrat þegar þetta skeði og það hafa örugglega aldrei eins margir verið á ferðinni eins og akkurrat þá því það voru alltaf bílar að keyra framm hjá og athuga hvort það væri ekki allt lagi og það fannst mér allveg aðdáunarvert hvað margir stoppuðu og spurðu. ![]() Hér eru sætu okkar að renna með mömmu sinn í Máfahlíðinni. Það eru svo fleiri myndir af þeim hér inni. ![]() Hið árlega bollukaffi var hjá mömmu í Blokkinni. ![]() Fórum í heimsókn í fjárhúsin hjá Bárði um daginn og Freyja var allveg sjúk í lömbin og eins þau í hana eins og sjá má hér. Það eru svo fleiri myndir af því hér inni. Flettingar í dag: 3137 Gestir í dag: 8 Flettingar í gær: 6914 Gestir í gær: 37 Samtals flettingar: 1402329 Samtals gestir: 75232 Tölur uppfærðar: 15.2.2025 13:58:33 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is