Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
20.09.2018 09:37Smalað Svartbakafellið og nágrenni 15 septVið Maja og Óli fórum upp hjá Grænsdölum inn í Búlandshöfða og fórum þaðan alla leið yfir fjallið fyrir ofan Mávahlíð,Tröð og Fögruhlíð. Fyrir ofan Fögruhlíð fundum við kindurnar sem við misstum deginum áður upp á fjall. Óli stökk niður á eftir þeim og var svo fljótur og léttur á sér að hann var búnað reka þær alla leið niður að Rauðskriðumel og náði svo að ná okkur Maju aftur þar sem við vorum komnar upp í Urðir sem eru á leiðinni í átt að Bjarnarskarði. Óli fór svo upp að Bjarnarskarði og alveg upp að Kaldnasa. Þar fyrir neðan í Borgunum og Fossakinnunum leyndust kindur út um allt og alveg upp að Rjómafossi. ![]() Við að ganga upp á fjalli. ![]() Hér sést útsýnið af fjallinu yfir í Ólafsvík. ![]() Maja í Urðunum að kíkja yfir í Svartbakafellið og Rjómafoss blasir við hér á móti. ![]() Hér halda Maja og Óli áfram upp og ég hinkra hér eftir og svo förum við öll af stað í einu niður þegar við sjáum hina koma út Svartbakafellinu. Siggi,Bói,Hannes,sonur hans og mágur fóru upp á Fróðarheiði og ganga þaðan yfir í Svartbakafellið. ![]() Nestið mitt . ![]() Hér sjást rollur lengst upp að Kaldnasa þessar tóku straujið upp í átt að Staðarsveitinni. ![]() Hér er Rjómafossinn. ![]() Þetta var upp á fjalli mér fannst þetta svo fallegt berg minnti mig á bíómynd úr villta vestrinu eða eitthvað þetta var svona svo er þetta eins og göng eða gil inn í fjallið. ![]() Svo er þessi tjörn líka upp á fjalli fyrir ofan Fögruhlíð svo flott. ![]() Hér eru rollurnar sem Óli kom niður og það kom svo í ljós að það voru þær sem við misstum í gær og þetta voru engar ókunnugar kindur heldur var þetta Skuggadís frá mér og Rósa hennar Emblu ásamt fleiri kindum. Ég var að eltast við einhverjar kollóttar held þær hafi verið í heildina 6 stykki 2 rollur og 2 lömb og ég þurfti að hlaupa langa leið frá Urðunum og alla leið niður að Sneið til að komast fyrir þær og þegar ég var búnað koma þeim niður fór ég alla leiðina upp aftur því það voru fleiri sem ég átti eftir að taka fyrir ofan og þegar ég var loksins búnað labba alla leiðina upp aftur var mér sagt að fara niður aftur að Sneiðinni því þar voru aðrar sem voru að sleppa aftur upp á fjall. Þegar ég var svo búnað komast niður aftur og fara í veg fyrir þær var en þá þessi kollótta óþekka að færa sig upp aftur og ég fór aftur upp og var alveg orðin búin á því en lét mér ekki segjast og hélt ótrauð áfram en þegar ég var komin hálfa leið upp aftur og hún var ekkert að gefast upp játaði ég mig sigraða og leyfði henni að fara. Ég fór svo niður aftur og við Maja náðum hinum niður sem eftir voru. Bói var í vandræðum í Svartbakafellinu því þar voru rollur sem voru að fara úr fellinu yfir að Rjómafossi en hann náði að komast fyrir þær sem betur fer. Þar er gata sem kallast tæpa gata og er mjög glæfraleg í förum hann þurfti að fara inn á hana og svo fikra sig niður hjá Rjómafossi. Þetta gekk svo allt vel eftir þetta og við náðum öllu niður sem við vorum með. ![]() Hér er allt á niður leið. ![]() Hér er Skuggadís og Rósu gengi. ![]() Maja á leiðinni niður. ![]() Emil kominn upp hjá sumarbústaðinum hjá Sigrúnu og Ragga að standa fyrir. ![]() Óli og Bói komnir niður. ![]() Féið komið niður í Fögruhlíð. ![]() Allt að hafast hjá okkur. ![]() Sum áttu það til að stökkva og festa sig í girðingu og hér er Siggi að losa eitt. ![]() Kolfinna með gimbrina sína og hrútinn undan Blika hans Bárðar. Hún er mókápótt. ![]() Hér er sonur Hannesar og mágur hans. ![]() Arna kom og hjálpaði okkur að reka þegar við vorum komin niður og líka Bjagga og Geirlaug með dóttir sína svo var líka fólk með Friðgeiri frá Knörr sem var að smala Hlíðina í Hrísum og svo var Karítas frænka og Freyja tengdamamma og Jóhann bróðir Emils með strákana sína svo við fengum góða aðstoð eftir að við komum niður. Það var eina sem við sáum að vantaði og við munum bæta á næsta ári er að það hefði mátt vera tvær manneskjur til viðbótar með okkur Fögruhlíðarmegin því þetta var mjög erfitt fyrir okkur að reyna ná því sem var þar svona fá. Við fórum upp í fjall þennan dag kl hálf 10 um morguninn og vorum kominn niður um 4 leytið. Við fengum margt fé niður og það var slatti frá Friðgeiri og eitthvað frá Óla á Mýrum og Kvíarbryggju. Það væri líka snilld ef við gætum fengið okkar dróna næsta haust he he Hemmi frændi Emils var að smala fyrir Friðgeir og hann var með dróna til að sjá hvar kindurnar væru alger snilld. ![]() Það er alltaf gott þegar komið er að þessum tíma eftir smölun kaffi og kræsingar. ![]() Brauðterta var í boði mömmu Huldu og ég gerði rjóma terturnar. Jóhanna sá um að græja kaffið og gerði líka kjúklingasúpu sem var alveg æðislegt að fá þegar maður kemur niður og orðin kaldur og blautur þá er gott að fá heita súpu. ![]() Allir glaðir í kaffinu inn í Tungu. ![]() Hér erum við aftur lögð af stað eftir kaffi að ná tveim lömbum sem eru undan rollu frá mér sem var keyrt á fyrir þó nokkru síðan og þau voru að leiðinni að koma fyrir utan girðingu þegar við náðum að stökkva á þau og ná þeim með aðstoðar hundsins hans Hannesar. ![]() Jæja þá er búið að reka inn. ![]() Allar krær orðnar fullar af fé. ![]() Fallegur hvítur hrútur hér. ![]() Það var alveg magnað að þessi gimbur var spök í vor og þurfti pela í smá stund því hún var klaufi að sjúga og ég reyndi að klappa henni og hún er jafn spök og góð. Það kom líka á óvart að það var önnur sem er móbotnótt og hún er enn þá spakari og hún var líka gæf sem lamb. ![]() Það er mikið af skemmtilegum litum í ár svo ég verð í stökustu vandræðum að velja ásettningin. Þetta er búið að vera frábær dagur og ég vil færa öllum innilegt þakklæti fyrir alla hjálpina hvort sem það var að smala eða sjá um kaffið og passa börnin. Það er æðislegt að eiga svona góða að þið eruð frábær. Það er búið að vera mikil törn hjá okkur og þetta er auðvitað umfram allt okkar heitasta áhugamál og skemmtun sem fylgir þessum tíma. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi. 20.09.2018 08:46Smalað Höfðann og Mávahlíðina 14 septJæja nú get ég loksins gefið mér tíma til að fara blogga. Það er búið að vera gersamlega allt á haus hjá okkur að gera. Við smöluðum Búlandshöfðann á föstudaginn og ég fór með hörku duglega smala með mér börnin mín og vínkonu þeirra. Þau voru ótrúlega dugleg og löbbuðu langa leið með mér. Það gekk vel að smala innst í Höfðanum og koma þeim út eftir en þegar við fórum að sækja Mónu Lísu og Möggu Lóu upp í hlíð endaði það með að ég fór alveg upp á fjall til að komastí veg fyrir þær. Ég var að þrotum komin að elta þær fram og til baka þegar ég náði á Sigga sem var búnað vera príla með mér í hlíðinni og fékk hann til að koma upp og aðstoða mig. Við náðum að komast fyrir þær en misstum þær svo fyrir ofan útsýnispallinn í Höfðanum og þá kom Maja okkur til aðstoðar líka. Ég endaði svo með því að fara príla aftur upp og fara fyrir ofan útsýnispallinn og fékk mikið áhorf meðal túrista sem voru þar he he. Við komum henni svo loksins niður og gátum haldið áfram að reka inn í Mávahlíð. Til aðstoðar við okkur bættist svo við Bói,Gummi og frændi hans og Hörður í Tröð. ![]() Hér eru duglegu smalarnir mínir Freyja Naómí,Hanna Líf, Embla Marína og Benóný Ísak. ![]() Hrygna með hrútana sína undan Grettir. ![]() Von með hrút og gimbur undan Móra sæðishrút. ![]() Benóný svo duglegur. ![]() Embla að horfa niður í Búland. ![]() Svo gaman hjá þeim og orðið heldur kalt. ![]() Fía Sól með gimbranar sínar undan Ask. ![]() Hér eru þær að fara undir Búlandshöfðann það er hægt að ganga á eftir þeim undir honum öllum. ![]() Hér er Siggi að reka niður á Mávarhlíðarhellu. ![]() Hér sést yfir til Ólafsvíkur. ![]() Ég komin upp í Hlíð. ![]() Búnað fá Sigga með mér lengst upp að klettum. ![]() Hérna er óþekka Móru gengið. ![]() Hér eru þær búnað hlaupa fram og til baka með mig upp á fjalli. ![]() Flott útsýni niður af fjallinu. ![]() Svo fallegt niður í fjöru við Mávahlíðarhelluna. ![]() Hrúturinn hennar Þoku svo flottur ég vona að hann komi vel út. ![]() Hér er hún með gimbrina og hrútinn sinn undan Grettir. ![]() Komin inn í Mávahlíð. Stóra fjallið sem blasir við er Svartbakafellið og það verður smalað á morgun þá förum við upp í Búlandshöfða og yfir fjallið hér fyrir ofan Mávahlíð og alla leið að Svartbakafellinu. ![]() Gummi að aðstoða okkur hann á líka fé á sama stað. ![]() Jæja loksins búið að koma fénu upp í Tungu. Ég byrjaði að smala hálf 10 um morguninn og nú erum við kominn á áfangastað og klukkan er að verða 7. ![]() Hér upp á fjalli var ég og Siggi að elta Mónu Lísu og Möggu Lóu. ![]() Jæja þá var búið að reka inn í girðingu og skvísurnar mættar til aðstoðar. ![]() Gaman að leika sér í kerrunni og þykjast vera kindur. ![]() Emil , Siggi og Bói að klára negla niður grindurnar eftir að við vorum búnað dæla út og þrífa. ![]() Það er farið að rökkva þegar við fórum svo að reka inn og sjá hvað væri komið af kindum. ![]() Draumaliturinn minn komin heim. Móhosótt með krónu. ![]() Mamma með Emblu og Freyju. ![]() Bibba og Valli og Óli Tryggva kom með þeim að athuga hvort þau ættu eitthvað fé og þau áttu bara eina rollu með tvö lömb. ![]() Hér er ein fallega flekkótt. Hún er undan Brælu og Kraft. ![]() Fallegur hrútur frá Gumma Óla. ![]() Freyja að klappa Eik. Þá er þessi smaladagur á enda og gekk hann mjög vel fyrir utan eltingarleikinn við Móru og svo misstum við nokkrar upp fyrir ofan Fögruhlíð aftur upp á fjall. Ég er komin með meira en helming af mínu féi en Sigga vantar slatta en restin kemur öll sömul á morgun. Það eru svo fleiri myndir af smalamennskunni hér inn í albúmi. 13.09.2018 15:2713 sept![]() Rakst á hana Botnleðju í morgun og varð að deila því hérna með ykkur hún er með svo flott lömb á litinn þau eru undan Ask mínum sem er Kalda sonur. ![]() Gimbrin er með svo svakalega flottan kraga alveg ekta svartbotnótt. ![]() Flottar hérna mæðgurnar Botnleðja er Grábotna dóttir. ![]() Hér er hrúturinn ég held að hann sé golsubotnóttur eins og pabbi sinn hann Askur. ![]() Þessi hrútur er undan Villimey 16-014. ![]() Gimbrin á móti honum hér og þau eru undan Ísak 15-001. ![]() Hér er Urður 16-009 með hrútana sína undan Gutta sæðingarstöðvar hrút. ![]() Hér er annar hennar Urðar. ![]() Hér er hinn. ![]() Fíóna með lömbin sín undan Ísak 15-001. ![]() Gersemi 16-016 með lömbin sín undan Ask 16-001. Náði ekki alveg nógu góðri mynd af þeim. ![]() Hér sjást þau aðeins betur. ![]() Náði aðeins betri mynd af þeim svarta sem er undan Zeldu og Kraft 17-002. ![]() Langar svo að ná betri mynd af Þoku 16-004 með sín lömb hún er með flekkótta gimbur og svarflekkóttan hrút undan Grettir hans Sigga sem er Máv sonur. Jæja varð bara að skella þessu inn hér strax eftir hinu blogginu alveg í hámarki núna. Svo er bara klára dæla út á eftir og gera allt klárt. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessum rúnti. 12.09.2018 23:38Rúntur 10 - 12 sept![]() Þessir tveir vaka yfir okkur í Tungu þeir fylgja bænum. ![]() Hér er gemlings lambið sem var svo spakt í vor og drakk pela fyrst en plummaði sig svo mjög vel. Það verður svo gaman að sjá það um helgina og sjá hvort hún verði enn svona gæf. ![]() Þessir móflekkóttu eru undan Skrýtlu og Tinna hans Gumma Óla. ![]() Þessi er undan Tungu og Bjart sæðingarstöðvarhrút. ![]() ![]() Þessi gimbur líka þau eru þrílembingar en ganga tvö undir. ![]() Hér er Dröfn 12-008 með lömbin sín undan Berg. ![]() Birta 17-006 með hrútinn sinn undan Kraft 17-002. ![]() Gimbur undan Gló 15-020 og Svan 17-001. ![]() Hér eru þau saman lömbin undan Gló og Svan 17-001. ![]() Fór og gaf brauðgenginu hennar Jóhönnu. ![]() Þrílembingur undan Skvísu sem gengur undir Hnotu. Hún er undan Klett sæðingarstöðvar hrút. ![]() Hrúturinn hennar Hnotu hann er undan Berg sæðingarstöðvar hrút. ![]() Þessi eru undan Hrímu hennar Jóhönnu og Svan. Þau eru fæddir þrílembingar og ganga tvö undir. ![]() Kvika með gimbur undan Klett sæðingarstöðvar hrút. ![]() Þessi er undan Arenu 16-018 og Glám hans Sigga í Tungu. ![]() Annar hrúturinn er undan Hriflu 12-005 og Tvist sæðingarstöðvar hrút og hinn er undan Skuggadís 10-010 og Klett sæðingarstöðvar hrút. ![]() Hér er Hrifla með þá. ![]() Þessi er undan Skuggadís 10-010 fædd þrílembingur og gengur undir Nótt hans Sigga og er líka undan Klett sæðingarstöðvar hrút. ![]() Hér er hún með Nótt. ![]() Arena með hrútinn sinn undan Glám. ![]() Þessi er undan Tinna hans Gumma Óla og Sprengju 17-003. Gengur undir Skessu hans Sigga. ![]() Gimbur frá Sigga undan Skessu og Ask. ![]() Hér eru þau aftur. ![]() Hér er Skessa með þau. ![]() Finnst þessi svo mikið krútt hann er frá Sigga og er undan Völu og Korra. ![]() Mjög fallegur hrútur. ![]() Hér er Vala með lömbin sín. ![]() Gola hans Sigga með sæðingana sína sem eru fæddir þrílembingar og ganga tveir undir og þeir eru undan Berg. ![]() Þessi eru undan Zeldu 13-007 og Kraft 17-002. ![]() Ég er svakalega spennt fyrir að sjá þennan svarta almennilega hann var svo rosalega áberandi breiður á framan sem lamb. Hlýtur að vera með góðan frampart. ![]() Móana 17-015 með gimbrina sína undan Láfa hans Óla. ![]() Vaíana 17-014 hún var geld núna gemlingur. ![]() Ronja 17-017 með gimbrina sína undan Grettir hún er fæddur tvílembingur og hitt á móti var vanið undir Rjúpu. ![]() Litla Gul hans Sigga með gimbur undan Ask 16-001. ![]() Hér er hún ég segi að hún verði með 19 í læri þessi hún er alveg svakalega þykk og falleg sést ekki alveg á þessari mynd því það hefur verið rigning síðustu daga svo þau eru smá blaut. ![]() Þessi hrútur gengur undir Litlu Gul og er undan Skuggadís og Klett sæðingarstöðvar hrút. Jæja spennan orðin mikil og nóg að gera við Bói erum búnað vera alla vikuna að dæla út og ég að þrífa líka á morgnana og ég náði að klára að þrífa í morgun. Það eru enn nokkrar haugsugur eftir að dæla út en kanski í mesta lagi 5 ferðir. Bói er búnað fara 40 ferðir síðan hann byrjaði að dæla út og bera á Fögruhlíðina og Kötluholtið. Við reiknum með að klára þetta á morgun og þá er hægt að fara negla niður grindurnar og gera klárt fyrir smölun. Siggi er búnað vera græja girðinguna og setja nýja staura og laga þar sem orðið var lélegt. Við gátum ekki aðstoðað hann þvi við vorum að dæla út en þetta gekk bara mjög vel hjá honum. Svo þetta fer allt saman að fara bresta á. ![]() Hér má sjá barkann sem við notum til að dæla út og svo hrærum við upp í með járninu og drögum að stútnum og eins að ýta að með spýtu. ![]() Þetta er búið að vera algerar þrælabúðir fyrir aumingja Bóa hann er í fullri vinnu til 5 á daginn og kemur svo beint hingað að dæla út með mér til 9 öll kvöld í þessari viku. ![]() Ég búnað þrifa 5 krær. ![]() Þetta fer að vera glæsilegt hjá okkur enda má ekki seinna vera því smölun hefst á föstudaginn. ![]() Það var svakaleg blíða í dag hjá okkur og framm eftir kveldi þegar við vorum að dæla út. ![]() Bói átti erfitt með að sjá út um rúðuna á traktornum því það var svo mikil sól. Jæja læt þetta duga í bili verð að fara henda mér í háttinn ![]() Það eru svo fleiri lamba myndir hér inn í albúmi. 09.09.2018 22:28Dælt út úr fjárhúsunum![]() Búið að vera nóg að gera um helgina hjá Bóa að brjóta upp,hræra og dæla út. Við Freyja fengum að koma og hjálpa honum í dag því það er heilmikill vinna að vera einn að standa í þessu. Það er líka mikið hey í skítnum sem veldur því að það er að stíflast mikið í haugsugunni. Hér er Bói nýbúnað losa stífluna og er að stökkva aftur í traktorinn. ![]() Hér er Bói búnað bakka að og er að fara festa barkann aftur við. ![]() Freyja tekur sig vel út. ![]() Hér er ég og Bói. ![]() Þetta gengur bara vel hjá okkur og Bói er búnað fara hvorki meira né minna en 26 ferðir með haugsuguna á túnin og það er dágóður tími sem fer í að keyra því hann keyrir skítnum á túnin í Fögruhlíð. Þetta er heilmikið púl sem þarf að klárast fyrir fimmtudaginn en þá þurfum við að negla grindurnar niður aftur og gera klárt réttina og svona fyrir helgina. Ég fer aftur í fyrramálið að halda áfram að þrífa ég á eina og hálfa kró eftir og svo mun ég aðstoða Bóa aftur á morgun þegar hann verður búnað vinna. Hann er svo duglegur að gera þetta fyrir okkur. ![]() Hér eru grindurnar sem ég er búnað vera þrífa og ég svo þarf ég að skafa af spýtunum alla króna svo þetta er heilmikill vinna en vinnst vel þegar það er búið að blotna vel í því. ![]() Æðislegt útsýnið frá Höfðanum og yfir sést í Mávahlíðarfjöruna og Snæfellsjökulinn. ![]() Það var svakalega stórstreymt í kvöld þegar við hættum að dæla út. Hér er Svana með lömbin sín undan Part hans Bárðar. ![]() Þau eru orðin svakalega væn eins og sjá má á þessari gimbur ég hef mikla trú á þessum lömbum. ![]() Hrúturinn á móti akkurrat með gras strá upp í sér þegar ég tók myndina he he. ![]() Hér eru þau bæði aftur. Jæja læt þetta duga í bili núna. 07.09.2018 19:536 september![]() Ljósbrá 15-016 með hrút undan Dranga sæðishrút og með gimbur undan Dröfn og Berg sæðishrút sem hún fóstrar. ![]() Hér er önnur mynd af þeim. ![]() Björg 17-009 með hrútinn sinn undan Ask. Þessar voru nýjar sem ég rakst á þegar ég fór daglega rollu rúntinn minn eftir að ég var búnað vera í fjárhúsunum að þrífa og það pottast áfram nú er ein og hálf kró eftir. 05.09.2018 22:28Lömb 5 september![]() Skuld 16-010 undan Kölska og Svönu með lömbin sín undan Hlúnk hans Sigga. Hlúnkur er undan Máv og Skessu hans Sigga í Tungu. ![]() Anna 15-007 með tvær gimbrar undan Svan. Svanur er undan Máv og Svönu. ![]() Hér sést framan í hana Skuld hún er svo falleg kind. ![]() Hér sést hrúturinn hennar betur. ![]() Ýr 14-016 er undan Garra og Svönu og hér er hún með fallegar gimbrar undan Bjart sæðingarstöðvarhrút. ![]() Það var svo ofboðslega fallegt veður í dag í Mávahlíðinni og Snæfellsjökullinn skartaði sínu fegursta. ![]() Snotra hennar Jóhönnu með lömbin sín undan Kaldnasa. ![]() Þessir svanir voru á Holtstjörninni. ![]() Stelpurnar að týna ber. ![]() Hvar er Benóný he he þessi mynd minnir mig á hvar er Valli bókina. ![]() Þarna glittir í hann hinum megin við tjörnina en hann kallar þetta Vestfirðina og finnst svo rosalega mikið ævintýri að labba hinum megin og láta ímyndunaraflið fara með sig á Vestfirðina sem hann er svo heillaður af eftir að við fórum þangað í sumar og honum langar að eiga heima á Reykhólum þegar hann verður stór en við erum ekki einu sinni búnað koma til Reykhóla við eigum það eftir en samt langar honum að eiga heima þar he he þótt hann hafi ekki komið þangað. Alveg yndislegt hvað hann pælir mikið í tilverunni. Jæja það styttist óðum í smalamennsku og ég er á fullu þessa dagana að þrífa grindurnar og fjárhúsin og svo ætlar Bói að hjálpa okkur að dæla út því við eigum það eftir og Emil er alltaf að róa núna á Skagaströnd og kemur lítið heim. Bói er líka búnað fá nýjan barka á haugsuguna og gera við hana svo vonandi gengur þetta allt saman vel hjá honum við erum svo þakklát fyrir að Bói aðstoði okkur og hann er með þetta allt á hreinu með viðgerðinar og allt svo ég veit ekki hvernig við færum að ef við hefðum hann ekki með okkur í þessu öllu saman. 03.09.2018 14:51Lambhrútar hjá Óttari á Kjalvegi![]() Myndarlegir lambhrútar hjá Óttari sem hann tók myndir af og leyfði mér að deila henni með ykkur. Sá grái er undan Gráum veturgömlum hrúti sem drapst hjá Óttari í vor en hann var undan Laufasyni frá Óla á Mýrum. Móðir er Grábotnadóttir. Sá hvíti er undan Morgun sem er undan Dag frá Hofstöðum sem er undan Hriflon syni. Móðir er undan Prúð sæðingarstöðvarhrút 11-896 frá Ytri Skógum. ![]() Svakalega gleiður og breiður að framan sá grái og svona fallega dökkgrár. Þetta verða væntanlega ásettnings eða sölu hrútar hjá Óttari. Nú er spennan heldur betur farin að magnast hjá öllum enda verður smalað eftir 2 vikur eða 15 sept. 29.08.2018 13:47Rifið upp grindurnar og fleiri lömb![]() Þetta er hún Gurra gemlingur með lömbin sín tvö undan Hlúnk. Svakalega væn hjá henni og búin að ganga bæði undir. Gurra er undan Tinna sæðingarstöðvarhrút. ![]() Hér sjást þau betur. ![]() Þau eru næstum jafn stór og mamma sín svo hún hefur mjólkað þeim vel. ![]() Krakkarnir komu með mér að gefa rollunum brauð og voru svo hrædd þegar þær komu hlaupandi að þau hlupu sjálf í burtu he he. ![]() Hér eru Embla,Freyja og vinkona þeirra og nágranni okkar hún Hanna Líf. ![]() Sarabía er með hvíta gimbur undan Móra sæðishrút svo fóstrar hún þennan svart hrút sem er þrílembingur undan Sölku og Móra hans Sigga. ![]() Gimbrin hennar. ![]() Zelda með hrútinn sinn undan Kraft ég er svo spennt að sjá hann betur því hann bar af í vor hann var svo gríðalega sver að framan. ![]() Gimbrin á móti honum. ![]() Lömbin hennar Gló og undan Svan. ![]() Hér er Gló með lömbin sín náði ekki að fá mynd framan í þau. ![]() Orabora 16-012 ![]() Gimbrin hennar og hún er undan Kraft. ![]() Hér er Djásn með svakalegan bola undan Tvist sæðingarstöðvahrút. Hún var tvílembd í vor en hinn á móti drapst á sauðburði. ![]() Verkefni mitt þessa dagana er að rífa upp grindurnar inn í fjáhúsum. Það gekk hálf brösulega fyrst og ég hélt ég væri að rústa hömrunum því annar var kengboginn en svo hringdi ég í Emil og sagði að þetta væri ekkert að gera sig ég myndi bara skemma grindurnar og hamrana en þá komst ég að því að hamarinn var beyglaður eftir hann he he. Þetta fór svo loksins að ganga betur og ég var hætt að detta aftur fyrir mig þegar ég var að nota allt mitt afl til að reyna ná lykkjunum úr. Ég lét þó ekki bugast og náði að finna út að berja vel á lykkjuna áður en ég reyndi að lyfta grindinni upp við lykkjuna og þá var auðveldara að ná þeim úr. Emil er farinn að róa á Skagaströnd og kemst ekkert í að hjálpa mér við þetta en hann og Bói hafa alltaf séð um þetta svo þess vegna er þetta alveg nýtt fyrir mig að losa grindurnar upp. Ekki var svo á þetta bætandi að ég festi sumar grindurnar niður í fyrra og setti allt of margar lykkjur í og negldi þær of fast niður. Þá var ég að festa grindurnar niður í fyrsta skiptið og gerði það vitlaust. Svo það var eins gott fyrir mig að losa þetta sjálf eftir mig. ![]() Jæja kláraði að losa það sem eftir var í morgun og næst verður hægt að dæla út og svo þríf ég grindurnar og fjárhúsin eftir að þeir verða búnir að dæla út. ![]() Lömb undan Nál og Tinna hans Gumma Óla. ![]() Álft með hrúta undan Svan. Annar þeirra er undan Hrímu hennar Jóhönnu sem Álft fóstrar fyrir hana. ![]() Ljósbrá með hrút undan Dranga sæðingarstöðvarhrút og svo er hún fóstra fyrir þessa gimbur sem er þrílembingur undan Dröfn og Berg sæðingarstöðvarhrút. ![]() Hér sjást þau betur. ![]() Hosa með gimbrarnar sínar undan Grettir. ![]() Hér er önnur gimbrin hennar Hosu. ![]() Hér er svo hin. ![]() Sóldögg 14-011 undan Þorsta og Guggu. ![]() Önnur gimbrin hennar Sóldögg og faðir er Ísak. Þessi er alhvít ![]() Þetta er hin á móti og hún er aðeins gul. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi. 28.08.2018 08:43Benóný 9 ára og sílaferð í Hofatjörn![]() Benóný Ísak orðinn 9 ára. Við gerðum enga afmælisköku í þetta skipti enda borðar hann ekki köku svo við gerðum bara pizzu og brauðstangir og skreyttum svo borðið með áhugamálinu hans sundlaugum og rennibrautum. ![]() Hér er meistarinn okkar að fara opna pakkann sinn. Benóný er alveg einstaklega prúður og kurteis drengur og orðalag hans getur verið mjög gamalt og höldum við stundum að hann sé með gamla sál he he. Hann notar oft orðið hví sem er ekki mikið notað í íslensku í dag. Orðið bull og vitleysa kemur oft hjá honum ef honum þykir eitthvað ekki vera rétt sem mér finnst mjög fyndið. Ef hann þarf að spyrja um eitthvað þá segir hann Afsakaðu mig og spyr svo spurninguna. Þegar hann er svangur notar hann oft ég er glorsoltin eða ég er að deyja ég er svo hungraður. Einlægnin hjá honum er alveg einstök og yndisleg. Við elskum hann svo óendalega mikið hann frábæra Benóný okkar. ![]() Fullorðna fólkið fékk þó kökur. ![]() Hann óskaði sér línuskauta og við gáfum honum þá. Það var mjög spaugilegt að fylgjast með honum að æfa sig he he. ![]() Benóný vildi halda afmælið heima og það gekk mjög vel. Stelpurnar héldu sig svolítið saman og svo strákarnir í hasarnum frammi. ![]() Ein grínmynd af bekkjarfélögunum Max,Birgitta og Benóný. ![]() Mamma tók virkan þátt í að hjálpa okkur í stuðinu. ![]() Benóný,Ollý og Svavar. ![]() Fórum um daginn í sílaferð með Bjarka Stein og Þórhöllu upp í Hofatjörn fyrir ofan Kötluholt inn í Fróðarhrepp. ![]() Hér eru sílaveiðararnir tilbúnir í veiðina. ![]() Alveg að komast á áfangastað. ![]() Það var aðeins og kalt en krakkarnir skemmtu sér mjög vel. ![]() Embla var mjög dugleg að veiða og veiddi flest en hin náðu líka að veiða öll allavega eitt síli. ![]() Hér eru sílin að safnast í fötuna. ![]() Freyja hafði meiri áhuga á berjunum og var að tína og borða ber. ![]() Þær létu sig hafa það að vaða þó kalt hafi verið. ![]() Benóný. ![]() Svo var haldið heim með fulla fötu af sílum og sumir berjabláir eftir allt berjaátið he he. Ég held það verði eitthvað af aðalbláberjum í haust þrátt fyrir kalda sumarið okkar. Við fundum að minnsta kosti ágætis ber. Jæja það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 27.08.2018 18:00Freyja byrjar í skóla og dagsferð á Hellnum,Arnarstapa og Búðir![]() Þá er hún Freyja Naómí okkar byrjuð í skóla og þá eru öll börnin okkar komin í Grunnskóla. Hér er hún spennt að byrja og takast á við ný ævintýri sem bíða hennar. ![]() Hér eru þau öll saman. ![]() Bjarki og Freyja frændsystkini að byrja í skólanum. ![]() Það var skrýtin tilfinning að horfa á eftir Freyju litlu að fara í rútuna. ![]() Hér eru þau öll saman aftast í rútunni Embla,Freyja og Bjarki. ![]() Við mamma skelltum okkur í dagsferð með krakkana niður í Skarðsvík og svo niður að Hellnum og kíktum í fjöruna þar og fórum á Fjöruhúsið og fengum okkur kaffi og vöfflu. ![]() Hér erum við inn í Skarðsvík. ![]() Á Fjöruhúsinu. ![]() Í fjörunni á Hellnum. ![]() Inn á Arnarstapa. ![]() Fundum þessa flottu krabba. ![]() Inn á Arnarstapa. ![]() Svo fallegt umhverfið séð frá bryggjunni á Arnarstapa. ![]() Komin í fjöruna inn á Búðum. ![]() Benóný að deba. ![]() Hér endaði svo ferðin okkar inn á Búðum. ![]() Rákumst á hana Skvísu með lömbin sín. ![]() Hún er alveg yndislega kind og það þarf ekki brauð til þess að hún komi svo gæf er hún. Það er þó misjafnt hvernig liggur á henni stundum kemur hún og vill fá klapp en stundum vill hún ekkert koma. Hér erum við í hlíðinni inn í Mávahlið ég og krakkarnir og við fengum öll að klappa henni og knúsa. ![]() Gimbrin hennar skildi ekkert í þessu og beið bara eftir mömmu sinni. Jæja það eru svo fleiri myndir af þessu öllu hér inn á albúmi. 26.08.2018 11:55Rúntur 25 ágúst![]() Kolfinna með lömbin sín undan Flekkótta hrútnum hans Bárðar á Hömrum. ![]() Orðin svo falleg þessi verður ásettningur hjá mér. ![]() Virkar svo líka vel þykk að aftan séð. ![]() Skuggadís með gimbur frá Sigga sem er undan Gullu og Hlúnk hans Sigga. ![]() Ég er alveg að fíla þessa hún er æðisleg. ![]() Dúfa með hrútana sína undan Móra sæðingarhrút. ![]() Dúfa sleikjir hér vel út um þegar við köllum í hana að fá brauð. ![]() Hér er annar hrúturinn hennar Dúfu undan Móra. ![]() Hlúnkur veturgamall frá Sigga undan Máv og Skessu. ![]() Svanur veturgamall undan Máv og Svönu frá okkur. ![]() Hér eru þeir saman. ![]() Hexía með hrútana sína undan Ísak. ![]() Skvísa með lömbin sín undan Klett sæðingarstöðvarhrút. ![]() Önnur gimbrin. ![]() Hin gimbrin hún hefur örugglega fest annað hornið í einhverju því það vantar smá bút á það sýnist mér það er ekki eins langt og hitt. ![]() Íssól. ![]() Gimbrin hennar undan Bjart sæðingarstöðvarhrút. ![]() Hrúturinn á móti sem er undan Íssól og Bjart. Það eru svo fleiri myndir af þessum rúnti hér inn í albúmi. 26.08.2018 11:13Rúntur 24 ágúst![]() Hér eru stóru hrútarnir frá Sigga Grettir og Drjóli. Grettir er undan Máv og Drjóli er undan Hæng. ![]() Glámur er Saumsonur frá Sigga og svo hin hvíti er Ísak Tvinna sonur frá okkur. ![]() Askur Kaldasonur og svo Korri Garrasonur frá Sigga sem liggur. ![]() Þetta er Bomba gemlingur orðin svo stór og falleg og hún er með hrút undan Ask. ![]() Dimmalimm gemlingur frá Jóhönnu með hrút frá Sigga sem gengur undir henni og hann er undan Mjöll og Grettir. ![]() Sami hrútur bara sést betur. ![]() Rakst loksins á Hriflu sem er afbragðs rolla hjá mér og hún er með sæðing undan Tvist og hún var með 3 en tvö drápust í fæðingu 2 fallegar gimbrar sem drukknuðu því hún var farin af stað og fór fram hjá okkur hvenær hún byrjaði svo það var gripið of seint inn í að tékka á henni og þá náðist bara þessi hrútur á lifi alveg ömurlegt en svona gengur þetta stundum en jæja svo fóstrar hún líka annan þrílembing sem er undan Skuggadís og Klett sæðingarhrút. Það verður gaman að sjá þessa í haust. ![]() Held að þeir verði flottir sérstaklega þessi hér fremsti. ![]() Rakel gemlingur er undan Hriflu hér fyrir ofan og Grettir og hún er hér með hrút undan Glám. ![]() Nál með gimbur undan Tinna hans Gumma Ólafs Ólafsvík. ![]() Hrúturinn á móti. ![]() Nál með lömbin sín. Það eru svo fleiri myndir af þessum rúnti hér inn í albúmi. 23.08.2018 10:32Rollu rúntur 17 ágúst![]() Þessi er undan Mjallhvíti minni og Hlúnk hans Sigga. ![]() Gimbrin á móti. ![]() Hér eru þau saman. Hlúnkur hans Sigga er undan Skessu hans Sigga og Máv sem fór á Sæðingarstöðina. ![]() Þetta er Svana með sín lömb undan Part hans Bárðar og ég held að þetta verði svakalega falleg lömb þau eru svo þykk að sjá. ![]() Þetta er Arena með hrútinn sinn hún var tvílembd í vor en hitt fæddist dautt. Hrúturinn hennar er undan Glám hans Sigga sem er Saum sonur. ![]() Þessi hrútur er undan Álft og Svan. Svanur er Máv sonur frá okkur. ![]() Hér er Álft hún gengur líka með fósturlamb sem er frá Jóhönnu. ![]() Flott gimbur frá Sigga undan Völu og Korra. Korri er Garra sonur frá Sigga. ![]() Hrúturinn á móti. Þetta verða falleg lömb það sást strax í vor þegar þau fæddust hvað þau voru þykk og mikil. ![]() Lotta gemlingur hans Sigga með gimbur undan Glám. ![]() Búrka gemlingur frá Sigga með gimbur undan Hlúnk. ![]() Gimbur og hrútur undan Kvíku og Klett sæðingarstöðvarhrút. ![]() Veturgamli hrúturinn minn hann Svanur hann er undan Svönu og Máv sem fór á stöðina. ![]() Lambhrútarnir að djöflast í þeim. ![]() Hlúnkur hans Sigga hann er líka veturgamal og undan Máv. ![]() Þessar blómarósir voru með mér á rollu rúntinum. Freyja,Embla og Aníta vínkona þeirra. ![]() Morgunstjarna hennar Jóhönnu með gimbrar undan kraft. Kraftur er undan Ísak. ![]() Búið að hrista brauðpokann fyrir Hnotu hennar Jóhönnu og hún lætur ekki segja sér það tvisvar og hleypur til okkar. ![]() Hún á þennan gula hrút sem er undan Berg sæðingarstöðvarhrút og svo er gimbur undir henni sem er undan Skvísu og Klett sæðingarstöðvarhrút. ![]() Hríma hennar Jóhönnu er líka mikið fyrir brauðið og kemur hlaupandi. Hún er með lömb undan Svan. ![]() Maggý hennar Jóhönnu er hérna aftast hún er líka með lömb undan Svan. ![]() Gola hans Sigga með hrúta undan Berg sæðingarstöðvahrút. ![]() Móheiður með hrútana sína undan Kaldnasa. Kaldnasi er Magna sonur. ![]() Hér sjást þeir betur sá hvíti virkar þykkri og fallegri. ![]() Gimbur undan Hosu og Grettir. Grettir er frá Sigga og er undan Svört og Máv. ![]() Hin á móti. ![]() ![]() Skuld með sín tvö undan Hlúnk. Það eru svo fleiri myndir af þessum rúnti hér inn í albúmi. 23.08.2018 10:16Frábært veður inn í Kötluholti og farið á paddel bard![]() Það var æðislegt veður um daginn inn í sveit og Maja og Óli eru nýbúnað fá sér þessi paddel board bretti. Við skelltum okkur með þeim og fengum að prófa. Hér er Freyja með Maju. Hjónin sem eiga Mávahlíð eru góðir vinir Maju og Óla og þau voru líka með þeim. ![]() Hér er Benóný að hafa það kósý með Maju. ![]() Freyja Naómí kát eftir að vera búnað fá að prófa. ![]() Æðislegt útsýnið yfir í Mávahlíð. Hér sést Richard og Erin sem eiga Mávahlíð og Óli. ![]() Richard var á svona uppblásum kajak bát. ![]() Hér er Maja með Emblu. ![]() Pollý fylgdist spennt með. ![]() Og Messí auðvitað líka og henni langaði að fara með. ![]() Og Erin lét það eftir henni og tók hana með og hún vildi helst bara fá að vera með. ![]() Hér er Erin á sínu bretti. ![]() Hér er Óli . ![]() Lét mig hafa þetta að prófa fyrst var ég eins og skjálfandi spýtukarl að ná jafnvæginu og sat fyrst en varð svo að standa upp og það var pínu kúnst að ná jafnvæginu og ég var óstyrk en svo eftir smá stund var þetta bara mjög gaman. ![]() Hér erum við systurnar saman ég og Maja. Embla var svo dugleg að taka myndir. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. Flettingar í dag: 683 Gestir í dag: 7 Flettingar í gær: 2026 Gestir í gær: 19 Samtals flettingar: 1387233 Samtals gestir: 75065 Tölur uppfærðar: 9.2.2025 03:41:44 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is